Morgunblaðið - 03.11.1984, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1984
Morgun-
sólin í
Flórens
Ég hef stundum velt því fyrir
mér, hvernig á því standi að ít-
alskar sjónvarpsmyndir hrífa mig
meir persónulega, en flest önnur
skjáverk skyldrar ættar. Eða hvað
segja menn um myndaflokkinn, er
sýndi hér fyrir nokkru mörland-
anum, inní einkalíf hversdagslegr-
ar ítalskrar húsmóður, þeirrar er
tók upp á þeim ósið að halda dag-
bók um einkalífið. Getur nokkur
gleymt andlitsdráttum þessarar
konu, er báru með sér tign forn-
rómverskra lágmynda, eða kallin-
um hennar sem var einsog pressuð
sítróna? Er ekki hér komin skýr-
ingin á töfrum ítalskrar sjón-
varpslistar, þar fer nefnilega sam-
an lotningin fyrir menningararf-
inum og skörp innsýn inní nötur-
leika hversdagslífsins. Þar í landi
tala menn ekki um að lækka
skatta á kostnað óperunnar, tón-
listarskólanna, leikhúsanna. Horf-
um til Ítalíu, eins og Goethe, þá
hann var að kafna undan embætt-
isskyldum hins smáa hertoga-
dæmis í Weimar, og léttum um
stund af okkur oki poppiðnaðar-
ins, sem fletur út jafn ágæt bók-
menntaverk og Þyrnifuglana uns
Dallas-keimurinn sigrar bragð-
laukana.
ítölsk veisla
Það var svolítil ítölsk veisla í
sjónvarpinu í gærkveldi. Arkime-
des litli nefndist myndin og fjall-
aði hún um breskan listfræðing, er
hélt til Ítalíu, að rita um þarlend
miðaldamálverk. Leigir listfræð-
ingurinn forkunnarfagra villu í
hæðunum uppaf Flórens. Telur
hann að kyrrð sveitarinnar og
tærleiki loftsins muni auka sér
einbeitni, en hið gagnstæða gerist,
fegurðin er slík þarna uppfrá að
dregur hugann frá miðaldamál-
verkinu að pensildráttum náttúr-
unnar. Svo er það hann Arkimedes
litli, sveitastrákurinn sem list-
fræðingurinn rekst á af tilviljun.
Er ekki að orðlengja að þessi
móðurlausi hnokki reynist í senn
stærðfræði- og tónlistarsnillingur.
En römm er sú taug er rekka
dregur föðurhúsa til og það reyn-
ist drengnum hin mesta ógæfa, að
rekast á fulltrúa menningarinnar.
Hann hefir alist upp frjáls útí
náttúrunni og þegar gullbúrið
þrengir að á alla vegu, kastar
drengurinn sér út um glugga.
Varð mér á þessu augnabliki
myndarinnar hugsað til allra litlu
barnanna, er frést hefur, að fremji
sjálfsmorð ár hvert austur í Jap-
an, þá þau standa frammi fyrir
næstum ókleifum múr skóla-
kerfisins. Mér varð líka hugsað til
allra litlu Arkimedesanna, er
reika um í þvögu fátækra á jörðu
hér, og hafa enga minnstu von um
að snilligáfan skíni nokkurn tim-
ann.
En það var ekki bara boðskapur
þessarar ítölsku sjónvarpsmyndar
— sem gerð er eftir sögu þess
merka breska rithöfundar Aldous
Huiley (Antic Hay ’23, Point
Ck>unter Point ’28, Brave New
World 32, The Doors of Perception
’54), er snart mig, heldur og fyrr-
greind lotning fyrir menningar-
arfinum, er birtist meðal annars í
upphafssenu myndarinnar, þar
sem við sjáum Flórensborg kvikna
til lífs, undan blóðrauðri morgun-
sólinni rétt eins og Feneyjaborg
forðum í myndum Canaletto
(1697—1768). Það eru svona smá-
atriði er lyfta ítölskum sjón-
varpsmyndum yfir skarkala popp-
heimsins, og skerpa sýn manns á
morgunsólina í Reykjavík.
ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP/SJÓNVARP
2240
Laugardags-
kvikmynd
sjónvarpsins
að þessu sinni er ný bresk
sjónvarpsmynd, gerð eftir
sögu William Shake-
speare, Lér konungur
(King Lear). Þessi mikli
harmleikur Shakespeare
var fyrst sýndur í London
árið 1606 og hafa vinsæld-
irnar ekki dvínað síðan.
Með aðalhlutverk í
verkinu nú fara margir
þekktir leikarar, m.a.
Laurence Olivier, sem
hefur leikið í mörgum
verka Shakespeare, t.d.
Hamlet og Rómeó og
Júlíu. Aðrir leikarar eru:
Colin Blakely, Anna
Calder-Marshall, John
Hurt (Elephant man),
Jeremy Kemp, Robert
Lang, Robert Lindsey, Leo
McKern, Diana Rigg,
Bróðir minn
Ljónshjarta
í kvöld hefur
sjónvarpið
sýningar á nýj-
um sænskum framhalds-
myndaflokki i fimm þátt-
um. Þátturinn nefnist
„Bróðir minn Ljóns-
hjarta" og er gerður eftir
samnefndri skáldsögu
Astrid Lindgren, sem öll-
um börnum er kunn fyrir
bækur sínar. Sagan segir
frá drengnum Karli, sem
finnur eldri bróður sinn,
Jónatan, að loknu þessu
jarðlífi á öðru tilverustigi,
sem minnir um margt á
miðaldaheim riddara-
sagna. Með aðalhlutverk
fara Staffan Götestam og
Lars Söderdahl, en leik-
stjóri er Olle Helbom. Á
myndinni sjást þeir bræð-
ur, Jónatan og Karl, er
þeir fagna innilega
hittast aftur.
að
Fimmti og síðasti þáttur framhaldsleikritsins „Draumaströnd-
in“, eftir Andrés Indriðason, verður á dagskrá útvarps kl. 16.30 í
_______dag. Nefnist þáttur þessi „Sólarmegin í lífinu".
í fjórða þætti fannst Önnu að Jóhannes maður sinn væri farinn að
líkjast Lilla léttlynda einum of mikið í háttum og tali. Henni tekst að fá
hann til að samþykkja að nú sé kominn tími til að þau hjónin njóti lífsins
án Lilla. Þau ákveða að fara ekki í hópferð dagsins heldur leigja bílaleigu-
bíl og stinga af út í buskann. En bíllinn bilar á miðri leið og skömmu síðar
birtist hópferðabíllinn með Lilla innanborðs. Þrátt fyrir miklar annir við
söngstjórn og aðra skemmtan telur hann ekki eftir sér að hjálpa besta vini
sínum í vandræðum hans.
Leikendur í fimmta þætti eru: Arnar Jónsson, Kristbjörg Kjeld, Hjalti
Rögnvaldsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir og Balt-
asar Samper. Tæknimenn eru Vigfús Ingvarsson og Áslaug Sturlaugsdótt-
ir, en leikstjóri er Stefán Baldursson. Þátturinn verður endurtekinn
næstkomandi föstudag kl. 21.35.
UTVARP
L4UG4RD4GUR
3. nóvember
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og
kynnir. 7.25 Leikfimi. Tón-
leikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorö: — Halla Kjart-
ansdóttir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr ).
Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir (10.00
Fréttir. 10.10 Veðurfregnir).
Óskalög sjúklinga, frh.
11.20 Súrt og sætt. Stjórnend-
ur: Sigrún Halldórsdóttir og
Erna Arnardóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.40 Iþróttapáttur
Umsjón: Ragnar Orn Pét-
ursson.
14.00 A ferð og flugi. Þáttur
um málefni llðandi stundar I
umsjá Ragnheiöar Davlðs-
dóttur og Siguröar Kr. Sig-
urðssonar.
15.10 Listapopp
— Gunnar Salvarsson.
(Þátturinn endurtekinn kl.
24.00).
18.00 Fréttir. Dagskrá. 18.15
Veðurfregnir.
16.20 Framhaldsleikrit:
.Draumaströndin" eftir
Andrés Indriöason
5. og slðasti þáttur: .Sólar-
megin I llfinu"
Leikstjóri: Stefán Baldurs-
son. Leikendur: Arnar Jóns-
son, Kristbjörg Kjeld, Tinna
Gunnlaugsdóttir, Steinunn
Jóhannesdóttir, Hjalti
Rögnvaldsson og Baltasar
Samper. 5. þáttur endurt.
föstudaginn 12. október kl.
21.35.
17.00 Slðdegistónleikar: Frá
Mozart-hátlðinni I Frankfurt
sl. sumar; tónlist eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart.
a. Fimm fjórraddaðar fúgur
úr .Das wohltemperierte
16.00 Hildur
Endursýning. Dönskunám-
skeið I 10 þáttum.
16.30 Enska knattspyrnan
18.30 (þróttir
Umsjónarmaður Ingólfur
Hannesson.
19.25 Bróðir minn Ljónshjarta
Sænskur framhaldsmynda-
flokkur I fimm þáttum, gerð-
ur eftir samnefndri sögu eftir
Astrid Lindgren. Leikstjóri
Olle Hellbom. Aöalhlutverk:
Staffan Götestam og Lars
Söderdahl.
Sagan segir frá drengnum
Karli sem finnur Jónatan,
eldri bróöur sinn, að loknu
þessu jarðllfi á ððru tilveru-
Klavier" eftir Bach, umsamiö
fyrir strengjakvartett, K405.
b. Kvartett fyrir planó, fiölu,
lágfiölu og selló I g-moll
K478.
c. Strengjakvartett I C-dúr
K465.
Flytjendur: Sir Georg Solti,
plartó, og Melose-kvartett-
inn.
18.00 Miöaftann I garöinum
meö Hafsteini Hafliðasyni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
L4UG4RD4GUR
3. nóvember
stigi sem minnir um margt á
miðaldaheim riddarasagna.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
2075 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Heima er best
Lokaþáttur. Breskur gaman-
myndaþáttur.
21.05 Aningarstaður
(Bus Stop). Bandarlsk bló-
mynd frá 1956. Leikstjóri
Joshua Logan. Aöalhlutverk:
Marilyn Monroe og Don
Murray. Oreyndur en frakkur
kúreki kemur til borgarinnar
til að vera á kúrekaati (rod-
eo). Hann kynnist stúlku.
19.35 „Systir mln lendir I Iffs-
háska"
Davlð Sigurþórsson les smá-
sögu eftir Jón Dan.
Umsjón: Sigrlður Eyþórs-
dóttir.
20.00 Sagan: .Eyjan með
beinagrindunum þrem",
smásaga eftir George Tou-
douze. Emil Gunnar Guö-
mundsson les þýöingu Ein-
ars Braga.
20.40 Austfjaröarútan
með viðkomu á Seyöisfiröi
og I Vopnafiröi. Umsjón:
Hilda Torfadóttir.
sem starfar og syngur á
knæpu, og ber óöara upp
bónorð.
Þýðing Kristmann Eiösson.
22.40 Lér Konungur
(King Lear). Ný bresk sjón-
varpsmynd gerð eftir harm-
leik William Shakespeare.
Aöalhlutverk Laurence Olivi-
er ásamt Colin Blakely,
Anna Calder-Marshall, John
Hurt, Jeremy Kemp, Robert
Lang, Robert Lindsey, Leo
McKern, Diana Rigg, David
Threlfall og Dorothy Tutin.
islenskan texta gerði Vetur-
liði Guðnason eftir þýöingu
Helga Hálfdanarsonar.
01.25 Dagskrárlok.
(Þátturinn endurtekinn á
mánudaginn kl. 11.30).
21.15 Harmonikuþáttur
Umsjón: Bjarni Marteinsson.
21.45 Einvaldur I einn dag
Samtalsþáttur l umsjá As-
laugar Ragnars.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Kvöldsagan: .Undir oki
siömenningar" eftir Sigmund
Freud
Sigurjón Björnsson lýkur
lestri þýöingar sinnar (10).
23.00 Létt slgild tónlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá rás 2 til
kl. 03.00.
RÁS 2
LAUGARDAGUR
3. nóvember
24.00—00.50 Listapopp
Endurtekinn þáttur frá rás 1.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
00.50—03.00 Næturvaktin
Stjórnandi: Kristln Björg
Þorsteinsdóttir.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl.
24.00 og heyrist þá I rás 2
um allt land.)
SJÓNVARP
Lér konungur
„Sólarmegin í lífinu“
David Threlfall og Dor-
othy Tutin. Veturliði
Guðnason íslenskaði
verkið eftir þýðingu
Helga Hálfdanarsonar.
Það skal tekið fram að
myndin er ekki við hæfi
barna.