Morgunblaðið - 03.11.1984, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER1984
Ólympíumótið f bridge:
Islendingar dala
EFTIR góda byrjun eru íslendingar
að dala nokkuð á ólympíumótinu í
bridge, komnir niður 112. sæti í sín-
um riðli eftir 14 umferðir með 211
stig. Indónesía heldur enn foryst-
unni í riðlinum, er með 285 stig, Ital-
Dönsk gaman-
mynd í Nor-
ræna húsinu
Kvikmyndaklúbburinn Norðurljós
byrjar starfsemi sína i þessum vetri
sunnudaginn 4. nóvember kl. 17 í
Nomena húsinu.
Þá verður sýnd danska gaman-
myndin »Slá ferst Frede" með
Morten Grunwald, Ove Sproge og
Poul Bundgárd í aðalhlutverkum.
Leikstjóri er Erik Balling. „Slá
forst Frede“ er fyrsta myndin í röð-
inni um andhetjuna Frede Hansen,
sem fyrir tilviljun lendir í ýmsum
ævintýrum og er m.a. sendur í
leyniferð með stórnjósnaranum
Smith. Myndin er skopstæling á
007-njósnamyndum 7. áratugarins,
full skemmtilegra uppátækja og
glettni.
Aðildarkort að sýningum kvik-
myndaklúbbsins verða seld í bóka-
safni Norræna hússins.
Einnig er mögulegt að kaupa
miða við innganginn.
Sýningar Norðurljósa verða í
Norræna húsinu á sunnudögum kl.
17 og verða danskar gamanmyndir
á dagskránni frameftir vetri.
ir eru I öðru sæti með 269 stig,
Bandaríkjamenn þriðju með 268,
Þjóðverjar fjórðu með 249, og Arg-
entína og Svíþjóð eru jöfn í 5. til 6.
sæti með 246 stig.
í A-riðli er Austurríki efst með
286 stig, þá Frakkland með 275
stig, Pólland með 271 stig, Venezú-
ela með 258 stig og Danmörk með
252 stig. Venezúelamenn skoruðu
74 stig af 75 mögulegum síðasta
keppnisdaginn og komust þar með
i hóp efstu þjóða.
Hollendingar eru enn efstir i
kvennaflokki með 232 stig, en
bandarísku konurnar eru aðrar
með 206 stig. Fyrir mótið var þeim
spáð auðveldum sigri. Frakkar eru
þriðju með 202 stig og Þjóðverjar
fjórðu með 198 stig.
íslenska sveitin virtist vera að
ná sér á strik aftur á fimmtu-
dagsmorguninn, en þá unnu þeir
Sameinuðu arabísku furstadæmin
örugglega 24—6. En um daginn og
kvöldið urðu þeir að þola stórt tap
gegn Indónesiu (7—23) og Þýska-
landi (8—22). Sveitin átti í gær að
leika gegn Italiu, Guadeloupe og
írlandi.
Norskir bændur í íslandsferð
Morgunbladid/ Bjarni.
Hér á landi er staddur 40 manna hópur bændafólks úr Gausdal og Guðbrandsdal i Noregi. Hópurinn er hér í
helgarferð á vegum Flugleiða. Myndin var tekin á föstudag fyrir utan Hótel Esju þegar norska bændafólkið
var að leggja upp í ferð um Suðurland undir fararstjórn Agnars Guðnasonar, blaðafulltrúa bændasamtak-
anna. Var farið að bænum Oddgeirshólum i Hraungerðishreppi, i sláturhús SS á Selfossi og til Þorlákshafnar
þar sem frystihús og síldarsöltun var skoðuð og hlýtt á kirkjukór Þorlákshafnar.
Umræður á Kirkjuþingi:
Kírkjan ofborgar inn-
heimtumönnum ríkisins
„KIRKJAN gæti ráðið 15 til 20 manns til nauðsynlegra þjónustustarfa fyrir
það fé sem hún hefur ofborgað til innheimtumanna ríkissjóðs fyrir inn-
heimtu kirkjugjalda og kirkjugarösgjalda," sagði Halldór Finnsson í Grund-
arfirði á Kirkjuþingi I fyrradag, í umræðu um breytingu á lögum um kirkju-
garða.
Magnús og Þorfinnur
„Svart-hvítur
vetur“ í Keflavík
ÞESSA dagana stendur yfir í Grágás,
Vallargötu 14, Keflavík, myndlistar-
sýningin „Svart-hvítur vetur“, en þar
sýna verk sín þeir Magnús V. Pálsson
og Þorfinnur Sigurgeirsson.
Á sýningunni er 35 myndir allar
svart-hvítar, grafíkmyndir, túss-
myndir, myndir gerðar með kolum
og ennfremur krítarmyndir. Sýn-
ingin er opin alla daga frá klukkan
16 til 22. Henni lýkur 4. nóvember.
„Samkvæmt lögum fá innheimtu-
menn ríkisins 6% fyrir að inn-
heimta kirkjugjöld og kirkjugarðs-
gjöld," sagði Halldór ennfremur.
„Er það hæsta innheimtuprósenta
hérlendis í gildandi lögum. Dóm-
prófastur í Reykjavík hefur því
fengið því framgengt við fjármála-
ráðherra og borgarstjóra, að gjald-
heimtan í Reykjavík taki aðeins 1%
innheimtuþóknun fyrir innheimtu
kirkjugarðsgjalda og tekur þetta
gildi um næstu áramót. Hefur þar
með fengist staðfesting á, að 1%
séu eðlileg innheimtulaun. 5% af
kirkjugjöldum og kirkjugarðsgjöld-
um, sem telja má því ofborgun,
svarar til tvöfaldrar þeirrar upp-
hæðar sem veitt er til kirkjustjórn-
arinnar. Hin ofborguðu innheimtu-
laun eru þreföld sú upphæð, sem fer
til starfsjóðs kirkjunnar, kristni-
sjóðs,“ sagði Halldór Finnsson. I
frumvarpinu sem liggur fyrir
Kirkjuþingi er innheimtumönnum
ríkissjóðs og sveitarsjóða gert skylt
að annast innheimtu kirkjugarðs-
gjalds gegn 1% þóknun og skulu
skil vera ársfjórðungslega.
Fjöldi fólks, lágtekjufólk og
skólafólk, greiðir engin önnur gjöld
en kirkjugjöld. Séra Jón Einarsson
í Saurbæ leggur til á Kirkjuþingi,
að ónýttum persónuafslætti og
barnabótum fólks megi ráðstafa til
greiðslu þeirra gjalda. „Felur þetta
Ensemble 13
hjá Tónlist-
arfélaginu
SUNNUDAGINN 4. nóvember
heldur kammersveitin Ensemble
13 frá Baden Baden í Þýskalandi
tónleika undir stjórn Manfred
Reichert í Austurbæjarbíói og hefj-
ast þeir kl. 14.30.
Ensemble 13 var stofnað árið
1973 og var upphaflega strengja-
sveit þrettán hljóðfæraleikara
úr Síidwestfunk-sinfóniuhljóm-
sveitinni í Baden Baden, en nú
eru tengdir henni um 40 hljóð-
færaleikarar, bæði strengir og
blásarar. Ensemble 13 hefur
haldið tónleika víða um heim,
gefið út fjölda hljómplatna sem
unnið hafa til verðlauna, og hef-
ur vakið athygli fyrir ferska og
athyglisverða túlkun á verkum
gömlu meistaranna, svo og túlk-
un á samtímatónlist. Á efnis-
skránni á sunnudag eru verk eft-
ir Schubert, Varese, Muller-Sie-
mens og Rihm. Nokkrir auka-
miðar verða til sölu við inngang-
inn. Ensemble 13 kemur til Is-
lands fyrir tilstilli Goethe-
Institut.
Fréttatilkynning frá Tónlbrtarfélaginu.
í sér lækkun gjalda láglaunafólks
og hagræðingu innheimtu," sagði
flutningsmaður f framsögu fyrir
frumvarpi um breytingu á lögum
um tekjuskatt og eignaskatt.
Fyrir 14 árum samþykkti Alþingi
lög um ráðningu sjúkrahúsprests,
en fjárveiting hefur enn ekki feng-
ist til þess, þrátt fyrir þá augljósu
þörf sem er fyrir prestsþjónustu
meðal sjúkra. Séra ólafur Skúlason
vígslubiskup flutti tillögu á Kirkju-
þingi í þá átt, að teknar verði upp
beinar viðræður við stjórn ríkis-
spítalanna og Borgarspítalans um
störf sjúkrahúspresta við þær
stofnanir og starfi þeir innan pró-
fastsdæmisins. „Vitað er að félags-
ráðgjafar hafa verið ráðnir til spít-
alanna til nauðsynlegra starfa og
ætti ekki síður að þurfa presta til
sálgæslu vegna sjúkra og aðstand-
enda,“ sagði vígslubiskup.
Öldrunarþjónusta kirkjunnar
Séra Ólafur Skúlason mælti einn-
ig fyrir tillögu að gert skuli sér-
stakt átak í kirkjulegri þjónustu
fyrir og meðal aldraðra á næstu
fimm árum. „Félagsstaða aldraðra
hefur vaxið mjög í söfnuðum lands-
ins upp á siðkastið," sagði vfgslu-
biskup, „og er brýnt að kirkjan
marki sér stefnu og veiti sem víð-
tækasta þjónustu, andlega sem lfk-
amlega við aldrað fólk.“
Bókhlaða í Skálholti
Eitt merkasta bókasafn landsins
er varðveitt í turni Skálholtskirkju,
enda eign staðarins. Ekki er kleift
við núverandi aðstæður að nýta
safnið sem skyldi. Séra Jón Ein-
arsson mælti fyrir tillögu um að
hugað skyldi að byggingu bókhlöðu
í Skálholti til að hýsa safnið svo að
það megi nýta sem best í þágu vís-
inda og fræðastarfa. Greint var frá
því að fjárveiting hefði fengist frá
Rangárvallasýslu, Árnessýslu,
Vestur-Skaftafellssýslu og Selfossi
til skráningar á safninu.
Akureyri:
Kristniboðsvika í Zion
Akureyri, 2. nóvember.
ÁRLEG samkomuvika kristni-
boðsfélaganna KFUM og K á Ak-
ureyri hefst í Kristniboðshúsinu
Zion sunnudaginn 4. nóvember og
stendur fram til 11. nóvember.
Samkomur verða hvert kvöld og
hefjast klukkan 20.30. Aðalyf-
irskrift vikunnar er: Með framtíð-
ina í huga, veldu Jesúm.
Sagt verður frá starfi ís-
lenskra trúboða í máli og mynd-
um, auk þess sem tekið verður á
móti gjöfum til kristniboðsins,
en eins og flestum mun kunnugt
vinna íslendingar að kristniboði
í Eþíópíu og Kenýa.
Áðalræðumenn verða kristni-
boðarnir sr. Kjartan Jónsson,
sem nýlega er kominn frá Kenýa
og Skúli Svavarsson og Helgi
Hróbjartsson, prestur í Hrísey,
auk margra annarra. Mikill og
fjölbreyttur söngur verður og á
samkomunum.
GBerg
Ungmennafélagið íslendingur
sýnir Saklausa svallarann
Hvannatúní f Andakíl, 2. núvember.
FRUMSÝNING á gamanþáttun-
um Saklausi svallarinn eftir
Arnold og Bach í þýðingu Emils
Thoroddsen verður í Brún, laug-
ardaginn 3. nóvember. Leik-
stjóri er Guðjón Ingi Sigurðsson
og með aðalhlutverk fara Snorri
Hjálmarsson, Þuríður Jó-
hannsdóttir, Jónína Valsdóttir
og Böðvar Pálsson. Næstu sýn-
ingar eru fyrirhugaðar þriðju-
dag, fimmtudag og föstudag.
DJ