Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
216. tbl. 71. árg.________________________________MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
í nótt stefndi í einstæðan
kosningasigur Reagans
Wa.shington. 6. nóvember. AP.
RONALD Reagan tók strax for-
ystu, þegar talning atkvæða í
bandarísku forsetakosningun-
um hófst í kvöld. Allt benti til
þess, að Reagan yrði endurkjör-
inn forseti með miklum yfir-
burðum. Þegar talin höfðu verið
3% atkvæða hafði hann hlotið
63% þeirra.
Reagan hafði þá sigrað í fimm
ríkjum, Flórída, Indiana og Ken-
tucky, NorðurKarólína og Vir-
giníu, og hlotið alla kjörmennina
þar, 67 að tölu. Jafnframt hafði
hann forystu í 12 ríkjum með 114
kjörmönnum. Til þess að sigra
þarf forsetaefni að fá 270 kjðr-
menn af 538.
Walter Mondale, frambjóðandi
demókrata, hafði þá hlotið 37% af
þeim atkvæðum, sem talin höfðu
verið. Hann hafði sigrað í Wash-
ington DC, og hlotið þar þrjá kjör-
menn.
Athygli vakti, að Reagan virtist
einnig mjög sigurstranglegur í
þeim sex ríkjum, þar sem Jimmy
Carter sigraði í forsetakosningun-
um 1980.
f Norður-Karólínu töpuðu
demókratar sæti sínu í öldungar-
deildinni til repúblikana og í Ken-
tucky voru allar horfur á, að fram-
bjóðandi repúblikana, Mitch
McConnell, bæri sigurorð af nú-
verandi öldungardeildarþing-
manni demókrata, Walter
Huddleston.
Reagan, sem er 73 ára að aldri,
kaus ásamt Nancy forsetafrú í
smábænum Solvang í Kaliforníu.
George Bush varaforseti kaus í
Houston í Texas.
Mondale, sem er 56 ára .fyrrver-
andi öldungardeildarþingmaður
og varaforseti í stjórnartíð Jimmy
Carters, var á meðal hinna fyrstu
sem kusu í heimabæ hans North
Oaks í Minnesota. Geraldine Fer-
raro, varaforsetaefni demókrata,
fór á kjörstað í New York ásamt
dóttur sinni. Frú Ferraro er fyrsta
konan, sem verið hefur í framboði
til embættis varaforseta í Banda-
ríkjunum.
Auk forseta og varaforseta var
kosið til beggja deilda Bandaríkja-
þings. Kosnir voru allir þingmenn
fulltrúadeildarinnar, 435 að tölu,
og 33 þingmenn öldungadeildar-
innar, en þar sitja 100 fulltrúar.
Enn fremur voru kosnir ríkis-
stjórar í 13 af 50 ríkjum landsins.
Þá var kosið í fjölda bæjar- og
sveitarstjórna og á mörgum stöð-
um voru atkvæði greidd um ýmis
staðbundin ágreiningsefni.
Um 174 milljónir Bandaríkja-
manna hafa kosningarétt. Búist
var við að kjörsókn yrði meiri í
þessum kosningum, en hún hefur
verið undanfarin 20 ár. I kosning-
unum fyrir fjórum árum greiddu
52,5% kjósenda atkvæði.
í gærkvöldi var því spáð, að
bandaríski seðlabankinn mundi
slaka á hömlum varðandi útlán og
lækka vexti að kosningunum af-
stöðnum.
Ronald Reagan og Nancy kona hans halda frá kjörstað í Solvang í Kaliforníu
í gær, eftir að hafa greitt þar atkvæði. Er fréttamenn spurðu Reagan, hvern
hann hefði kosið, svaraði hann með því að benda á sjálfan sig, eins og
mvndin sýnir. AP-símamynd
Walter Mondale, forsetaframbjóðandi demókrata greiddi atkvæði í heima-
bæ sínum í North Oaks, Minnesota. Þessi mynd af honum var tekin á
kjörstað í gærmorgun, er hann var búinn að kjósa. AP-símamynd
Afganistan:
Mikið tjón í Kabúl af
völdum flugskeyta
i
Barizt í nágrenni við flugvöll borgarinnar
Flick-málið:
Kohl fyrir
svörum
Bonn, 6. nóvember. AP.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-
l*ýzkalands, mun svara spurning-
um varðandi Flick-málið svo-
nefnda á morgun, þriðjudag, á 4
klukkustunda fundi með þing-
nefnd þeirri, sem rannsakar
meintar mútugreiðslur Flick-
samstcypunnar til háttsettra
stjórnmálamanna í Bonn.
Nefndin mun væntanlega
krefja kanslarann svars við því,
hvers vegna nafn hans komi
fyrir í bókhaldsgögnum Flick-
samsteypunnar vegna greiðslu
á 665.000 mörkum. Hald var
lagt á þessi gögn 1981, er húsleit
fór fram í aðalstöðvum Flick-
samsteypunnar.
Nýju Delhf, 6. nóvember AP.
STOR hluti hins forna verzlunartorgs
í Kabúl, höfuðborg Afganistan, eyði-
lagðist í mikilli flugskeytaarás frels-
issveitanna fyrir nokkrum dögum.
Augljóst er þó talið, að flugskeytun-
um hafi verið ætlað að lenda á virk-
inu Bala Hissar í miðborg Kabúl, en
það er mannað rússneskum her-
mönnum. Samkvæmt frásögn út-
varpsins í Kabúl biðu fimm óbreyttir
borgarar bana í árásinni, en sextán
særðust. Þá var hundruðum manna
bjargað úr cldum, sem kviknað höfðu
í árásinni.
Flugskeytum var skotið á Kabúl
að næturlagi alla síðustu viku. Var
sumum þeirra skotið frá fjöllunum
í nágrenni borgarinnar og lentu
nokkur þeirra i grennd við banda-
ríska sendiráðið í borginni. Þá
mátti einnig heyra harða vélbyssu-
skothríð og þungan dyn frá fall-
byssum í nágrenni flugvallarins í
Kabúl alla síðustu viku. Um þenn-
an flugvöll fara nær allir aðflutn-
ingar frá Sovétríkjunum til sov-
ézka herliðsins í Afganistan, en í
því eru nú yfir 100.000 manns.
Mikil sprenging varð í afganskri
herþyrlu af sovézkri gerð, eftir að
hún hafði hafið sig á loft frá flug-
vellinum. Er talið, að þessu hafi
valdið sprengja, sem áður hafði
verið komið fyrir í þyrlunni.
SAMÍÍTAÐA verkfallsmanna í
bresku kolanámunum virðist vera að
bresta. í dag höfðu 380 námamenn
verkfallsvörslu stéttarfélags sfns að
engu og sneni til vinnu í fyrsta sinn
frá því verkfallið hófst, 12. mars sl. Á
mánudag komu 802 aðrir verkfalls-
menn til vinnu.
Stjórn ríkisreknu kolanámanna
Þá hafa borizt fréttir af hörðum
bardögum undanfarna daga í
grennd við borgirnar Kandahar og
Herat og í svonefndum Logar-dal
fyrir sunnan Kabúl, en þessi dalur
er enn að nokkur leyti á valdi frels-
issveitanna.
telur að þetta sýni að verkfallið sé
nú að leysast upp. Er talið að 53
þúsund námamenn af 178 þúsund-
um í landinu öllu séu nú að starfi.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra, hefur hvatt þá námamenn
sem standa verkfallsvörð við nám-
urnar að láta af iðju sinni og hefja
störf.
Bretland:
Námuverkfallið að
fara út um þúfur?
London, 6. nóvember. AP.