Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 17
verðlag samkvæmt niðurstöðum
verkfræðistofu Baldurs Lindal, er
6% arðsemi í stað 7,3% til 8,5%
eftir því hvernig boranir tækjust
miðað við 40.000 tonna áfanga. Ég
tel og stefna stjórnar fyrirtækis-
ins hefur verið sú, að íjúka beri
8.000 tonna áfanganum, fá frekari
markaðsupplýsingar og að fram-
haldið yrði síðan stækkun um
4.000 tonn, sem einungis er viðbót
á pönnum og að því loknu verði
verksmiðjan stækkuð í 10.000
tonna áföngum, en ekki beint í
40.000 tonn eins og forsendur
reiknilíkans Iðntæknistofnunar
gera ráð fyrir."
— í skýrslu iðntæknistofnunar
kemur fram ádeila á ráðgjöf og
stjórnendur.
„Þetta gæti verið eins og sagan
um Kólumbus og eggið. Eftir að
búið var að finna út hvernig gera
átti hlutina reyndust þeir tiltölu-
lega augljósir. Það er staðreynd,
að tæknileg vandamál við fram-
leiðslu á fisksalti voru vanmetin
og komu ekki nægilega fram I
rekstri tilraunaverksmiðjunnar,
þar sem hún var of smá eining.
Framleiðsla á salti var vel þekkt,
en ég veit ekki til þess, að fisksalt
hafi verið framleitt á þennan
máta áður. Stjórn sjóefnavinnsl-
unnar hefur ekki fundið neinn er-
lendan aðila, sem hefur framleitt
slíkt salt, en þeir voru tilbúnir að
selja sína þjónustu og ráðgjöf á
allt að þreföldum töxtum, sem
innlendir ráðgjafar kostuðu. Það
var mat stjórnar að þeir menn
sem hefðu unnið við verkefnið frá
upphafi, væru búnir að fá þekk-
ingu, sem nýir aðilar yrðu að
byrja á að tileinka sér. Auk þess
er talið mikilvægt að þessi þekk-
ing og reynsla byggist upp hjá
innlendum aðilum. Það er engin
framtíðarlausn, að borga fyrir æf-
ingarverkefni útlendinga til að
læra á íslenzkar aðstæður og
lausn á alíslenzkum verkefnum,"
sagði Guðmundur Einarsson.
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984 17
Vetur genginn í garð í Mývatnssveit:
Stefnir í metframleiðslu
hjá Kísilverksmiðjunni
Mývatnmveit, 5. nóvember.
EFTIR einmuna gott sumar og haust
fór að snjóa hér með vetrarkomu og
setti niður 20—30 sm jafnfallinn
snjó, sem enn er óhreyfður. Fram að
þeim tíma er varla hægt að telja, að
komið hafi snjóföl. Er það mjög
óvanalegt. Síðustu daga hefur verið
hér hægviðri og nokkuð bjart og
frostið komist niður fyrir 10 stig. Nú
er hér 14 stiga frost. Kominn er ís á
Mývatn og þessvegna orðið frekar
vctrarlegt
Nú er hætt dælingu á hráefni
fyrir Kísiliðjuna enda hráefnis-
þróin orðin full. Framleiðsla Kísil-
iðjunnar hefur aldrei verið meiri
en á þessu ári. Búið er að fram-
ieiða 22 þúsund tonn það sem af er
árinu og stefnt að því, að fram-
leiðslan verði komin yfir 26 þús-
und tonn í árslok. Á sama tíma I
fyrra var búið að framleiða 20.700
tonn en framleiðsla þess árs varð
25.500 tonn, sem var nýtt fram-
leiðslumet. Vel hefur gengið að
selja framleiðslu verksmiðjunnar.
Mývetningar héldu sinn árlega
slægjufund í Skjólbrekku sl. laug-
ardag. Að þessu sinni til að minn-
ast einmuna sumars. Einnig von-
ast menn eftir góðum vetri.
Venjulega eru slægjufundir
haldnir hér fyrsta dag vetrar en
nú var brugðið út af þeirri venju.
Fundurinn hófst kl. 14:30 með
helgistund. Sóknarpresturinn,
séra örn Friðriksson, flutti ræðu.
Þá var sungið og Kristfn Jónas-
dóttir lék á hljóðfæri. Hákon
Björnsson, framkvæmdastjóri
Kísiliðjunnar, flutti ræðu dagsins,
slægjuræðuna. „Sólskríkjur og
valur í vígahug" skemmtu með
söng með gítar- og harmonikku-
undirleik. Þá var einnig mynda-
sýning og diskótek fyrir börn og
unglinga. Ennfremur almennur
söngur. Fjölmenni var. Um kvöld-
ið var svo dansleikur í Skjól-
brekku, þar sem hljómsveit Finns
Eydal frá Akureyri lék fyrir dans-
inum. — Kristján
R íoT río í
53P
HELGAR
REISUR
Helgarreisur veita einstaklingum, fjölskyldum og hóp-
um tækifæri til að njóta lífsins á nýstárlegan og skemmti-
legan hátt, fjarri sinni heimabyggð. Fararstjórnin er í þín-
um höndum: Þú getur heimsótt vini og kunningja, farið
í leikhús, á óperusýningu, hljómleika og listsýningar.
Síðan ferðu út að borða á einhverjum góðum veitinga-
stað og dansar fram á nótt.
Stígðu ny spor i Helgarreisu Flugleiða!
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur
Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur
FLUGLEIÐIR