Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 20
f*í>! vmff'W'/. 7 K[?ííA(lU«jV(flM .QÍCtAiiSnUöflOt MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984 Þetta eftir Bergþóru Sigurðardóttur „Ég elska land með algrænt sumarskart", segir í einu okkar mörgu lofkvæða um landið. Ef við ætlum að vera raunsæ, er þá hægt að tala um skart? Getur klæði sem glatað hefur meira en helmingi af efnivið sinum, kallast skart? Ég skrifa þessar línur vegna þeirra hugrenninga sem sóttu á mig á ferð um landið í góðviðrinu fyrr í sumar. Mér virðist þetta land ekki í skartklæðum heldur tötrum, — lörfum sem verða götóttari með ári hverju. Það tekur enginn frá okkur fegurð jökla eða tign fossa og fjallatinda. En það vekur manni hryggð að sjá rofabörð, uppblásin holt og naktar víðitág- ar, merki þess gróðurs sem er að hverfa. Þessi mynd blasir víða við. Það eru reyndar smá bætur á klæðinu. Landgræðslan hefur á 75 árum friðað um 100 svæði, sam- anlagt um 2% af landinu. Hvað er það á móti því sem hefur glatast á sama tíma? Svarið veit víst eng- inn. En það er þó aðeins brot af því sem hefur glatast frá því land- ið byggðist. Við sem ökum ekki svo hratt yf- ir landið að rykský byrgi okkur sýn, sjáum gróðurlendinu hraka ár frá ári. Nú mun aðeins vaxandi gróður í tveim sýslum landsins, A-Skaftafellssýslu og Rangár- vallasýslu. í Rangárvallasýslu er það fyrst og fremst Landgræðsl- unni að þakka og stórkostlegt er að sjá uppgræðslu sandanna þar. 1 A-Skaftafellssýslu hafa bændur víða tekið höndum saman og rækt- að upp aurana en beitt á gömlu, þýfðu túnin. Á sex árum, frá 1974—1980, kom ég þrisvar í Morsárdal. Bæjarstaðaskógur er ekki mikill umfangs og þar voru rof í gróðurþekjuna. En aurarnir þar fyrir framan eru að gróa upp. Beinvaxnar birkihríslur, víðikjarr og holtablóm á bökkum smálinda, — sannkallaður unaðasreitur. Gróðurinn teygir sig inn dalinn upp undir jökul. Við skulum vona að jökulárnar hlífi þessum reit, nú þegar menn og skepnur gera það. Sama má segja um svæðið framan við Skaftafellsheiði, og stórkost- legt er að fylgja stikuðu leiðinni um heiðina fram á Skorarbrýr, sjá Morsárjökul og heyra drunurnar þegar jökulísinn hrapar af hömr- um fram. Ekki munu þeir sem sjá fegurð í hrikaleik, sjá stórkost- land átt þú legri sýn en þar sem Skaftafells- jökull steypir sér niður á láglend- ið. Skógar og kjarr þekja nú um 2% —3% af því skóglendi sem hér var við landnám, eða aðeins um 1.250 km2. Af þeim skógum er að- eins um þriðjungur í framför en Vt fer hnignandi. Trjánýgræðing- ur sést varla á ófriðuðu landi. Nú vaxa birki og víðir upp úr sverðinum í Aðalvík, fyrri íbúum þessa svæðis til mikillar furðu. Engan gat grunað að landið ætti þetta til meðan þar var búið. Það er varla hægt að gleðjast yfir ný- rækt, sem ef til vill verður aðeins til þess að fleira fé er sett á ofbit- inn haga. Áður voru þó takmörk fyrir hvað hægt var að setja á, meðan heyjað var með ljá og hrífu. Mér skilst þó að framræsla mýra hafi líka átt að vera til að létta á ofbeittu landi. Ég hafði ekki áttað mig á mínum þætti í skurðgreftri hér á landi, en á ár- unum 1949—1964 óx framlag rík- isins til framræslu á opnum skurðum úr 33% í 70% og 75% eru greidd af kostnaði við plógræs- ingu. Kom ekki keldusvínið til lands- ins á undan okkur? Á það ekki líka rétt á smá mýrarflóa. Mikið var „Þaö tekur enginn frá okkur fegurö jökla eða tign fossa og fjallatinda. En þaö vekur manni hryggð að sjá rofabörð, uppblásin holt og naktar víðitágar, merki þess gróðurs sem er að hverfa.“ gaman að koma í Hornavík og ganga berfætt um ósnortna mýri. Guði sé lof að Hornstrandir voru yfirgefnar áður en að ég fór að taka þátt í skurðgreftrinum. En því miður finnst víst keldusvíninu sumarið of stutt fyrir opnu Norður-íshafinu. Lög um náttúruvernd frá 1971 kveða á um samskipti manns og náttúru, en ekki búpenings og náttúru. Um þjóðgarðinn í Jökuls- árgljúfrum segir reyndar í lögum að búfjárbeit sé bönnuð á hinu friðlýsta svæði. En Keldhverf- ingar fá að nota landið til beitar samkv. sérstökum samningi. Beit hlýtur alltaf að breyta gróðurlendi eitthvað, jafnvel þó að ekki sé um ofbeit að ræða. Kind- um þykir burnirót t.d. lostæti. Þess vegna verður maður hissa að sjá vöxtuglega burnirót við fætur sér, eins og í Tjaldmýrinni í Esju- fjöllum eð á Hornströndum. Ekki bara hátt í klettasyllum. Blómin á blágresinu bragðast líka vel. í Hornvík og undir Dyr- hólaey eru breiður af baunagrasi. í jurtatalningu frá árinu 1971 er það ekki nefnt í Dyrhólaey og blá- liljan talin þar í hættu. Nú eftir friðun vex bláliljan þarna í brúsk- um, sannkallað augnayndi. Víðast hvar er hún aðeins smá jarðrengl- ur. Snemma í vor fór ég um Hvít- ársíðu. Þar sá ég samfelldan gróð- ur í girðingu ofan við reisulegan bæ. Þar vestan við voru rofnir þúfnakollar og á bökkum Hvítár rofabörð. Hafði ekki verið sagt að Borgarfjörður væri falleg sveit? Þykir einhverjum rofabörð falleg? Ég fór um Fljótsdrög fyrir nokkr- um árum. Hjá gangnamannaskál- anum var uppblásið holt, þar sem skein á jarðlægar víðitágar, síð- ustu ummerki þess sem áður var. Seinna rakst ég á grein eftir Pálma Hannesson, þar sem hann lýsir innfjálgum orðum gróðri þessa svæðis 30 árum áður. Ljóm- ann af Eiríksjökli í tungsljósi tek- ur enginn frá manni. Reitur Lions-manna við Hvítárvatn í 430 m hæð hlýjar manni um hjarta- rætur. Þarna sér maður hvers landið er í raun og veru megnugt, þar sem þessi reitur hefur aðeins verið friðaður frá árinu 1965, en hvílík andstæða við umhverfið. Reyndar eru gróðurmörkin ekki við girðinguna, heldur jafnlangt GróiA rofabarö í Hornvík. í Mosárdal. Ungur gróður. fyrir innan og snoppa sauðkindar- innar nær. Eg man eftir hárri gróðurtorfu á Uxahryggjaleið. Ein af þessum sígildu sem myndir eru teknar af „á landið að blása upp“? Nokkru seinna var þarna smá moldarhrúga með afvelta gróð- urkögglum og síðan engin merki þess að þarna hafi ekki alltaf verið örfoka land. Á árinu 1973 var talið 2—300 þúsund ærgildum of mikið í sumarhögum að mati landnýt- ingamanna, en þá voru 846.000 fjár á vetrarfóðrum og álíka næstu ár. En á árunum 1979—1983 var gróður auk þess lélegur. í ár er 1,7—1,8 milljón fjár í sumarhaga. Er þá nokkur furða að ferðamaður skuli sjá landinu hraka á þessu tímabili? Kom ég ekki fyrst f þennan afdal fyrir níu árum og drakk kaffi í þessum hvammi. Græna hlíðin á móti blasti við, en nú er hún öll rofin en nýrækt í dalnum og ný fjárhús. Ég á ekki þetta land, þetta er land sauðkindarinnar. Sá ég þær ekki á beit inn í Herðubreiðarlind- Akranes: Heimavist Fjölbrauta- skólans tekin í notkun Akraaeai FYRRI hluti hins nýja heima- vistarhúss Fjölbrautaskóians á Akranesi var tekinn form- lega í notkun í haust. Meöal vióstaddra voru Alexander Stefánsson félagsmálaráö- herra og aðrir þingmenn Vesturlandskjördæmis, bæj- arstjórnarmenn á Akranesi. Guðjón Guðmundsson for- seti bæjarstjórnar Akraness afhenti Þóri Ólafssyni skóla- meistara lykla aö hinni nýju byggingu og árnaði hann síð- an skólanum heilla. Gestum var síðan boðið að skoða hina nýju byggingu og að því loknu þáðu þeir veitingar í boði bygginganefndar heima- vistarinnar. Þar flutti Þórir skólameistari ávarp og Baldur Ólafsson umsjónarmaður með heimavistarbyggingunni rakti byggingarsögu hennar. Einnig fluttu ávarp Friðjón Þórðarson alþingismaður, Magnús Oddsson rafveitustjóri, fulltrúi í Fræðsluráði Vesturlands, og Ragnheiður Ólafsdóttir, for- maður skólanefndar Fjölbrauta- skólans á Akranesi. Fögnuðu þau öll hinum nýja byggingar- áfanga skólans. Framkvæmdir við hið nýja heimavistarhús hófust 5. mars 1983 með því að þáverandi menntamálaráðherra, Ingvar Gíslason, tók fyrstu skóflu- stunguna. Síðan má segja að unnið hafi verið nær samfellt við bygginguna. Það var Verk- fræði- og teiknistofan sf. á Akranesi sem sá um teikni- og hönnunarvinnu. Magnús H. Ólafsson arkitekt gerði allar teikningar af fyrirkomulagi og búnaði í herbergjum, hann valdi einnig allan lausan búnað, hús- gögn, tæki og þ.h. Njörður Tryggvason verkfræðingur sá um burðarþolsteikningar og starfsmenn Verkfræðistofunnar hönnuðu hitalögn ásamt ýmsum þeim sérteikningum sem nauð- synlegar eru. Flestir verkþættir voru boðnir út og var í öllum tilfellum tekið lægsta boði. Þó var samið sérstaklega við Þorgeir & Ellert hf. um eininga- steypu og grunn hússins. Það sem réð þeirri ákvörðun var, að þá var sá kostur fyrir hendi að sömu menn ynnu það verk sem árinu áður höfðu steypt einingar í verknámshús skólans. Húsið var reist á fimm dögum og þótti Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson. Guðjón Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar Akraness, afhendir Þóri Ólafs- syni, settum skólameistara Fjölbrautaskólans, lykla hinnar nýju heimavistar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.