Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984 Glæpir tíðir í Bretlandi London, 5. nóvember. AP. GLÆPIR eru einna mestir í Stóra- Bretlandi, sem hlutfall af íbúafjölda, samkvæmt könnun, sem Gallup- stofnunin gerði fyrir Daily Tele- graph og blaðið birtir í dag. Reyndar eru innbrot á heimili fólks tíðust í Frakklandi af Evr- ópulöndum, rán og þjófnaðir tíð- astir í Hollandi og líkamsárásir tíðastar á Spáni. En Bretland er í öðru sæti í öllum þremur flokkun- um og í því efst yfir heildina. Á heimsmælikvarða er Bretland í fjórða sæti á eftir Kólumbíu, Brasilíu og Suður-Afríku hvað þessa glæpaflokka áhrærir. Herskáir UNITA-menn Limabon, 6. nóvember. AP. Skæniliðasamtökin UNITA í Ang- óla hafa tilkynnt að þau hafí staðið fyrir vel heppnuðum árásum á stjórnarhermenn og kúbanska bandamenn þeirra nýverið. Segja UNITA-menn 172 stjórnarhermenn hafa fallíð >e 2 kúbanska. Auk þessa segja UNITA-menn að fjöldi stjórnarhermanna hafi verið særðir og teknir höndum og að bardagarnir hafi geisað í 9 af 17 sýslum landsins. „Við erum sí- fellt í sókn og munum gera stjórn- arhernum miklar skráveifur á næstu vikum," sagði í tilkynningu UNITA. Skæruhernaður samtak- anna gegn stjórnarhernum hefur staðið í 8 ár, en stjórnin hefur þúsundir kúbanskra hermanna sér til trausts og halds. Kynning er að hefjast í tízkuhúsum Parísar á sumarfatnaði árið 1985. Á myndinni sýnir stúlkan Koshino-línuna: minidragt með breiðu belti. Sér- staka athygli mætti veita fótabúnaði og hárgreiðslu, en það verður að vera með svo að línunni sé fylgt. Víetnamar í Kambódíu ráðast inn í Thailand Hangkok, 6. nóvember. AP. VÍETNAMSKAR hersveitir réðust inn í Thailand frá Kambódíu á mánudag og kom til blóðugra átaka víetnamskra og thailenskra hermanna á landa- mærum ríkjanna, að því er talsmaður Thailandshers skýrði frá í dag. Vitað er að tveir thailenskir hermenn féllu og 20 særðust. Til bardaga kom er landamæra- lögregla kom að 150—200 víet- nömskum hermönnum tvo kíló- metra innan thailenzku landa- mæranna í héraðinu Surin, á svæði sem er 445 kílómetra norð- austur af Bangkok. Kallaði lög- reglan sér til aðstoðar sérstakar hersveitir og stóðu bardagar fram eftir nóttu. Óljóst var í morgun hvort bar- dagar stæðu enn yfir eða hvort tekist hefði að hrekja víetnamska herliðið til baka til Kambódíu, þar sem um 160 þúsund víetnamskir hermenn halda til. Átök af þessu tagi hafa verið tíð frá því Víet- namar réðust inn í Kambódíu 1979. Popieluszko í helgra tölu? Páfagardi, 6. nóvember. AP. TALSMAÐUR páfagarðs sagði aðspurður í dag, að það gæti vel komið til greina að gera séra Jerszy Popieluszko, pólska prestinn sem leynilög- reglumenn myrtu á dögunum, að dýrlingi. „Það þarf einungis að sýna fram á að hann hafí dáið fyrir trúna,“ sagði talsmaðurinn. Nefd mun fjalla um mál Popi- eluszko og ákveða hvort að tilurð dauða hans þyki sanna að hann hafi dáið fyrir trúna, morðingjar hans hafi drepið hann vegna hat- urs á kaþólskri trú. Verði nefnd- armenn sammála um það, verður presturinn fyrst tekinn í helgra manna tölu, en það er einn liður í að komast í tölu dýrlinga. Talsmaðurinn, Pietro Palanz- ini, undirstrikaði þó, að ekki væri tekið á pólitískum málum, það yrði að finna trúarlegan flöt á morði Popieluszkos til þess að hann kæmi til álita. Sagði hann og að möguleiki væri á því að finna slíkan flöt eftir því sem hann best sæi. Samkvæmt regl- um verða þó að líða minnst fimm ár frá dauða prestsins áður en mál hans yrði tekið fyrir. í náttfótum til frekara öryggis UHMkm. AP. FYRIR skömmu hitti 64 ára gömul 11 barna móóir Karl Bretaprins og gaf honun eftirfarandi ráð til þess að takmarka barneignir: Sofðu í náttfötum. Lil Hill, en svo heitir konan, var í hópi fólks sem prinsinn heilsaði upp á, þegar hann kom í skoðunarferð í æskulýðsmiðstöð eina í Bristol. Hill sagðist hafa rætt um barnuppeldi við prins- inn. — Ég tjáði honum, að ég ætti 11 börn sjálf og þekkti vanda- málin af eigin reynd. Prinsinn sagðist endilega vilja hitta mig aftur og þiggja góð ráð. Þá sagði ég við hann, að ég gæti aðeins gefið honum eitt ráð: Sofðu í náttfötum, sagði ég við hann. OPEC boðar fram- leiðslusamdrátt Parú, S. nóvember. AP. BÚIST er við því, að OPEC-sam- tökin, samtök olíuframleiðsluríkja, muni draga saman meðalfram- leiðslu sína á hráolíu á síðasta fjórðungi þessa árs. Er reiknað með að meðalframleiðslan verði 16,4 milljónir tunna á umræddu tímabili, en meðalframleiðslan á þriðja fjórðungi ársins nam 17,8 milljónum tunna. Þessar ráðstafanir eru liður í að koma í veg fyrir verðfall á olíu í kjölfarið á verðlækkunum Breta og Norðmanna á hráolíu sinni. Það sem á eftir að ákveða innan OPEC er hvaða lönd taki á sig mesta framleiðslusamdrátt- inn. í tilkynningu frá OPEC í dag kom ekkert fram þar um, en hins vegar tala um að eftirspurn myndi trúlega fara vaxandi eftir olíu á síðasta spretti þessa árs, einkum i austantjaldslöndunum. 8 af 13 olíuframleiðslulöndum innan OPEC hafa framleitt meira það sem af er árinu en þeim hafði verið úthlutað sem ársframleiðslu, þar á meðal Níg- ería, írak og Kuwait. \f/ ERLENT, Papandreou gersamlega heillaöur af Jaruzelski — og fordæmir stuöning fólks á Vesturlöndum viö Samstöðu Tirnes, London. ANDREAS Papandreou, forsætisráð- herra Grikkja, sem nýlega var í Pól- landi í boði Jaruzelskis, hershöfð- ingja, hefur fordæmt stuðning fólks á Vesturlöndum við Samstöðu, hin óháðu verkalýðsfélög í Póllandi. Segir hann, að stuðningurinn sé aðeins hræsni og liður í tilraunum Banda- ríkjamanna til að koma kommúnista- löndunum á kné. „Kf ríkisstjórnum kapítalista á Vesturlöndum er svona umhugað um lýðræði og frelsi," sagði Pap- andreou, „ættu þær fyrst að beina spjótum sínum að ástandinu í Tyrklandi þar sem fólk er tekið af lffl, fangelsað og pyntað dag hvern.“ Papandreou lét þessi orð falla við gríska fréttamenn, sem fylgdu hon- um í Póllandsferðinni, þeirri fyrstu, sem farin er af vestrænum þjóð- höfðingja eftir að Samstaða var Andreas Papandreou barin niður. Höfðu fréttamennirnir á orði, að Papandreou virtist ger- samlega heillaður af Jaruzelski, sem hann kallaði föðurlandsvin, sem ekki hefði brugðist skyldum sínum. „Þótt Jaruzelski skrýðist ein- kennisbúningi skulum við ekki láta það villa um fyrir okkur og freistast til að halda, að í Póllandi sé her- stjórn við völd. Það væru mikil mis- tök,“ sagði Papandreou ennfremur. Papandreou sagði, að Samstöðu hefðu orðið á mistök með því að flýta sér um of. „Hreyfingar, sem berjast fyrir miklum breytingum, verða að skilja, að allt hefur sinn tíma. Ef þær taka ekki tillit til sögulegra aðstæðna verða þær hættulegar og stuðla að hnignun og afturför.” Heróín fyrir 1,2 milljarða gert upptækt Kula Umpar, 6. nórember. AP. LÖGREGLAN gerði upptæk 24,8 kílógrömm af heróíni og handtók mann, sem talinn er vera höfuðpaur umfangsmikils smyglhring.s. Er þetta mesta magn, sem lagt hefur verið hald á í Kuala Lumpur. Mark- aðsverð heróínsins er talið um 35 milljónir Bandaríkjadollara, eða jafnvirði 1,2 milljarða króna. Lögreglan komst á sporið er plastpoki, sem innihélt heróín, fannst undir bílstjórasæti í bif- reið, sem stöðvuð var í siðustu í Malasfu leiðir til dauðarefsingar verði sekt sönnuð. Talið er að í Malasiu neyti 350 þúsund manns fikniefna að staðaldri, en i landinu búa 15,2 milljónir manna. ( Mexíkó var hald lagt á 300 kiló af hreinu kókaíni, sem smygla átti til Bandaríkjanna, og er það mesta magn af fíkniefnum, sem gert hefur verið upptækt í einu þar í landi. Átta menn, sem grun- aðir eru um fíkniefnasmygl, voru teknir fastir. viku þar sem háttalag bílstjórans vakti grunsemdir. Eftir yfirheyrslur yfir bílstjór- anum gerði lögreglan innrás i hús í Banting, 30 km frá Kuala Lump- ur, þar sem fundust 52 pokar af heróíni í kassa, sem á var letrað „leirvörur“. Á þessu ári hafa verið hand- teknir 2.767 menn og konur fyrir brot tengd fíkniefnum. í þeim hópi eru 83, þar af 15 konur, sem hand- teknar voru á lagaforsendu, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.