Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 4
hSftr íirsfáKrr/óvt ? fffínAcfuXíVðíM .miGAjSKUóflOM' MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984 Magnús Gunnarsson: Samningar hinna glötuðu tækifæra „ÞAÐ MÁ segja að þessir samning- ar, sem fylgja í kjölfar samninga BSRB og ríkisins, séu samningar hinna glötuðu tækifæra. t>að vannst því miður ekki tími eða kraftar til að brjóta blað í gerð samninga með lægri prósentuhækkunum og skatta- lækkunum,“ sagði Magnús Gunn- arsson, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambands íslands. Hann kvaðst því miður óttast, að sú hring- rás efnahagslífsins sem allir þekktu, væri ekki langt frá okkur. Við vær- um að fá gömlu vandamálin yfir okkur á ný. Magnús sagði samningana rúmlega 24% frá upphafi til loka, eða örlítið lægri en BSRB-samn- ingana. Dreifing kauphækkana væri þó örlítið hagstæðari, ekki eins miklar hækkanir á hverjum tima, enda ættu fyrirtækin erfið- ara með stórar sveiflur. Hann sagði ennfremur: „Það er hálfgerð kaldhæðni, að á sama tíma og Hafrannsóknastofnun tilkynnir að draga þurfi úr botnfiskveiðum um á annað hundruð tonn, ef við- halda eigi stofninum, að þá skul- um við ganga frá samningum sem fela í sér um fjórðungshækkun allra launa í landinu. Það getur hver íslendingur sagt sér að það er erfitt að láta þetta dæmi ganga upp. En það var ekki um annað að ræða, BSRB gaf tóninn." Varðandi samningaviðræðurnar sagði Magnús, að samningarnir hefðu nú náðst, án verkfalla eða verkfallshótana. Á hinn bóginn hefði baráttan verið heiftugri hjá prenturum. Þessi samningalota hefði staðið í um þrjá mánuði og að hans mati hefði hún fært vinnuveitendur og forustumenn verkalýðshreyfingarinnar nær hver öðrum. Menn hefðu rætt í al- vöru leiðir til að fara nýjar braut- ir til að viðhalda lífskjörunum án hárra prósentuhækkana. Hann kvaðst að lokum vonast til að niðurstaðan af þessum samning- um yrði, að næst tækist að ná var- anlegum samningum sem byggð- ust á gagnkvæmum hagsmunum. Ásmundur Stefánsson: Seint ánægöir með nokkra samninga „VIÐ VERÐUM seint ánægðir með nokkra samninga, en það versta í þesKum samningum er að það vantar í þá tryggingarákvæði og ekki er mögulegt að opna samningana fyrr en 1. september. í þeirri óvissu sem nú ríkir í efnahagsmálum almennt er þetta stór galli,“ sagði Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands íslands. Hann var spurður, hvort samn- ingar þessir hefðu ekki óhjá- kvæmilega í för með sér aukna verðbólgu og gengisfellingu. „Það er alveg Ijóst, að þeir auka þrýst- ing á verðlag. Það er hins vegar stefna stjórnvalda sem verður ráðandi um hvernig sá þrýstingur verður." — Hefur tekist með þessum samningum, fremur en mörgum undanförnum, að tryggja betur hag hinna lægst launuðu en hinna? „Það skaltu spyrja forsvars- menn iðnverkafólks og Verka- mannasambandsins um. Ég tel þá beztu dómarana þar um. Verka- Menn voru orðnir slæptir eftir langa samningalotu síðdegis í gær og sumir fengu sér kríu áður en samningurinn var endanlega tilbúinn. Björn Björnsson: Krafa að stjórnvöld verndi kaup- máttinn „ÞAÐ VORU margir meðmæltir skattalækkunarleiðinni og hún var skoðuð niður í kjölinn. Það var ekki bara hik á okkur, heldur ennfremur hjá ríkisstjórninni. Þessu var síðan ýtt út af borðinu með samningum bókagerðarmanna og bæjarstjórna og síðan BSRB og ríkisins. Af þeirri ástæðu hlaut þetta að fara svona hjá okkur,“ sagði Björn Björnsson, hag- fræðingur Alþýðusambands íslands. Björn var spurður, hvort þetta væru verðbólgusamningar, sem engan veginn tryggðu kaupmátt launþega. Hann sagði: „Áhuginn á skattalækkunarleiðinni byggðist á því að unnt væri að vernda kaup- máttinn. Kaupmáttarþróunin á samningstímabilinu veltur hins vegar ákaflega mikið á því, hvern- ig haldið verður á efnahagsmálum þjóðarinnar. Okkar krafa er sú, að stjórnvöld haldi þannig á, að kaupmátturinn verði sem bezt varinn." Þá var hann spurður, hvort fyrirtækin væru að hans mati undir það búin að taka á sig þess- ar kostnaðarhækkanir. Hann sagði ljóst vera, að fyrirtækin væru ákaflega misjafnlega á sig komin. Sjávarútvegur og fisk- vinnsla ættu til dæmis í miklum erfiðleikum, en verzlun og þjón- ustugreinar blómguðust með bærilegum árangri. Guömundur Þ. Jónsson: jr Ovarinn fyrir verö- hækkunum „ÞETTA gerir að meðaltali yfir 20% iaunahækkanir hjá iðnverkafólki. Eg er út af fyrir sig ánægður með samninginn að því leyti, að kaup- hækkanirnar koma fyrri hluta næsta árs og auk þess næst afnám tvöfalda kerfisins í maímánuði. Ég tel það atriði sem félagsmenn mínir geti verið ánægðir með,“ sagði Guð- mundur Þ. Jónsson formaður Lands- sambands iðnverkafólks. Guðmundur sagði einnig: „Stóri gallinn við samninginn er að mínu mati, að hann er óvarinn fyrir verðhækkunum, í honum eru eng- ar tryggingar. Þó er ákveðið að menn ræði saman í lok apríl. Komi þá saman til að athuga með hvaða hætti megi rétta af þær skekkjur, sem þá verða á orðnar. Ef ekki næst þá samkomulag um að bæta skekkjurnar, þá gildir samningurinn til 1. september." Ad loknum kjarasamningum Samningurinn gaumgæfilega yfirfarinn áður en skrifað var undir. mannasambandið og Landssam- band iðnverkafólks voru mjög mótandi um hvernig staðið hefur verið að þessum samningum. Þessi sambönd lögðu mesta áherzlu á að komast út úr tvöfalda kerfinu, sem lágmarkstekjutrygging hefur leitt til.“ Ásmundur var spurður, hvort sú töf sem varð á að unnt yrði að skrifa undir samningana í gær- dag, stafaði af innanhússvanda- málum hjá ASl, og hvort þar ættu sér stað deilur um hvernig staðið yrði að endurskoðun og uppsögn- um samninga, ef til kæmi á næsta ári. Hann sagði það rétt vera að menn væru ekki á eitt sáttir um það, að afstaða til samningamála væri fyrirfram ákveðin sú, að menn yrðu að taka sameiginlegar ákvarðanir. Miðað væri við að á þeirra vettvangi yrðu sameigin- legar samningaviðræður og ákvörðun um hvort samningar yrðu framlengdir. Hann sagði að niðurstöður viðræðnanna í gær hefðu orðið þær að fresta umræð- um um ákvarðanatöku þar til eftir að ný miðstjórn hefði verið kjörin á komandi ÁSÍ-þingi. Víglundur Þorsteinsson: Draga á eftir sér gengis- breytingar „ÉG TEL að þetta séu samningar sem enginn okkar, hvorki úr okkar hópi eða þeirra, hefði í hjarta sér kosið að gera,“ sagði Víglundur Þorsteinsson formaður Félags ísl. iðnrekenda. Hann sagði ennfremur, að ekki væri minnsti vafi á því að slíkar launahækkanir, sem samið hefði verið um, drægju á eftir sér gengisbreytingar. Víglundur sagði, að eftir þá miklu vinnu sem forsvarsmenn ASÍ og VSf hefðu lagt í athugun á skattalækkunarleiðinni hefðu að- ilar verið sammála um, að samn- ingar sem tryggðu litla verðbólgu með lágum launaprósentum auk skattalækkana hefðu gefið laun- þegum hagkvæmustu og beztu nið- urstöðu og aukinn kaupmátt. Hann sagði síðan: „Átakið tókst ekki i þetta sinn, en ég vona aðeins að að lokinni þeirri stuttu verð- bólguhrinu sem óhjákvæmilega fylgir samningunum þá geti menn tekið upp þessar viðræður á þeim nótum sem menn telja skynsam- legastar fyrir launþega og atvinnurekendur." Guðmundur J. Guðmundsson: Vitanlega verðbólgu- samningar „SAMNINGURINN sjálfur er út af fyrir sig nokkuð góður, hliðstæður BSRB. Þá er tvöfalda kerfið svo til úr sögunni, sem ég tel stærsta ávinn- inginn. Hækkanir eru heldur betri á lægstu flokkana, tveir neðstu flokk- arnir hverfa, en vitanlega eru þetta verðbólgusamningar,“ sagði Guð- mundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar og Verkamannasam- bands íslands. Guðmundur sagði, að þrátt fyrir þetta óttaðist hann mjög þróunina á næsta ári, því engar tryggingar væru fyrir því að kauphækkanirn- ar rynnu beint í verðhækkanir. Hann kvaðst þó fagna yfirlýsingu forsætisráðherra, sem borist hefði inn á samningafundinn á lokastigi viðræðnanna þess efnis að í sam- ráði við heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra, Matthías Bjarna- son, lægi fyrir loforð um að clli- lífeyrir, auk atvinnuieysisbóta og Morgunblaöið/Ólafur K. Magnússon. lífeyrissjóðsgreiðslur yrðu hækk- aðar í samræmi við samningana. Guðmundur sagði ennfremur, að kauphækkanirnar væru nú með allra mesta móti og sjaldgæft að samið væri um yfir 20% launa- hækkanir eins og nú væri gert. Hann var spurður, hvort hann teldi æskilegt að losna úr samfloti við BSRB miðað við fengna reynslu. Hann svaraði að hann teldi það ásetning VSÍ að halda sig sem næst BSRB, en að þeirra mati fylgdu því frekar ókostir. Vilhjálmur Egilsson: Þýöa auk- inn verð- bólguhraða „SJÁLFSAGT þýða samningarnir aukinn verðbólguhraða á fyrri hluta næsta árs, en þetta eru ekki síðustu samningarnar ■ heiminum. Það er nú nauðsynlegt að menn sameinist við undirbúning næstu samninga, bæði af okkar hálfu, ASÍ og sérstaklega af hálfu stjórnvalda," sagði Vil- hjálmur Egilsson hagfræðingur Vin- nuveitendasambands fslands. Hann sagði ennfremur, að það væri viðbú- ið að allir þeir sem undirrituðu þennan samning gerðu það í þeirri vissu að gengi íslensku krónunnar verði ekki óbreytt. Þá sagði Vilhjálmur að það hlyti að hafa alvarlegar afleið- ingar, þegar öll laun í landinu hækkuðu um 18% á næstu tveim- ur mánuðum. „Aðeins það skapar mikla óvissu og erfitt er að spá um kaupmáttinn," sagði hann. Hann benti á, að frá árunum 1970 til 1983 hefði taxtakaup hækkað um 7.000% en kaupmáttur á sama tíma minnkað um 10%. Hætt væri við að sú stefna sem ákveðin hefði verið í kjarasamningunum yrði til þess að við værum nú að fara sömu leið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.