Morgunblaðið - 07.11.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
5
Hið frábæra Ríó tríó sem allir
muna eftir er nú komiö sam-
an aö nýju. Þeir félagar
Ágúst, Hetgi og Ólafur hafa
nú sett saman bráðskemmti-
lega og eldhressa dagskrá
meö gömlu og góöu áramt
nýju og fersku efni sem
frumflutt veröur í Broadway
um næstu helgi.
Gunnar Þórðarson hinn mikli
tónlistarsnillingur hefur af
þessu tilefni sett saman
stórhljómsveit strengja og
blásara sem leika mun undir
hjá Ríó þar sem þeir
skemmta gestum í mikilli
Ijósadýrö Broadway, í húsi
sem ber hljóm afburða vel.
Skemmtikvöldin i Broadway
hafa fest sig í sessi íslensks
skemmtanalífs og veriö
hvert öóru betra. Þaö er því
enginn svikinn af gleöistund
í Broadway meö Ríó. Fram-
leiddur veröur þríréttaöur
Ijúffengur kvöldveröur af
bestu gerö — pantið borö
tímanlega því hér er aö fara
af staö hin allra besta
skemmtun.
laun samkvæmt töxtum og hafa
ekki annað. Þetta fólk hefur laun
á bilinu 13—20 þúsund krónur á
mánuði. Hvað varðar afgreiðslu-
fólk í Reykjavík, þá er annar hver
maður með 13—14 þúsund krónur
fyrir dagvinnuna.
Á sama tíma og því er haldið
fram, að ekki sé hægt að hækka
dagvinnulaun þessa fólks hefur
hluti verslana séð sér fært að
hækka launagreiðslur, með eftir-
og næturvinnu, um allt að 60% án
þess að fá nokkrar aukatekjur á
móti. Könnun, sem við höfum gert,
staðfestir þessar niðurstöður.
Launaskriðið, sem talað er um
sem almennt hjá einkafyrirtækj-
um, kemur ekki fram hjá af-
greiðslufólki, þess gætir miklu
fremur á skrifstofunum."
Magnús lagði á það áherslu, að
sem betur færi hefðu margir feng-
ið kjör sín bætt með launaskriðinu
„en launaskrið umfram taxta sýn-
ir að atvinnuvegirnir hafa þolað
að borga verulega hærri laun en
launataxtarnir segja til um —
launataxtarnir sem ríkisstjórnir
undanfarinna ára hafa verið að
skerða svo stórkostlega. Þess
vegna er mjög brýnt að hækka
þessa óraunhæfu launataxta án
þess að sú hækkun fari upp í gegn-
um allt launakerfið. En það er
vitaskuld gjörsamlega tilgangs-
laust að vera að hækka taxtana í
krónutölu ef ekki er jafnframt
tryggt, að kaupmátturinn hald-
ist,“ sagði hann.
BIRCAD
WAY
nk. föstudags-, laugar-
dags-og sunnudags-
kvöld kl.
19.00.
„VINNUVEITENDUR voru reidu-
búnir um mánaðamót júlí og ágúst
að gera nýja kjarasamninga, er
hefðu það að markmiði að tryggja
kaupmáttinn, sem stefnt var að með
febrúarsamkomulaginu. Þeir settu
sem skilyrði, á fundi sem við í Versl-
unarmannafélagi Reykjavíkur áttum
með þeim, aö sem flest aðildarfélög
Alþýöusambandsins yrðu aðilar að
samkomulaginu. Um það náðist
hinsvegar því miður ekki samstaða
innan ASÍ — þar voru sum félög
með hugmyndir um miklu meiri
kauphækkanir en falist hefðu í slík-
um samningum,“ sagði Magnús L.
Sveinsson, formaður VR, í samtali
við blaðamann Mbl. um stöðuna í
kjaramálum í ijósi nýgerðra samn-
inga.
Verslunarmannafélag Reykja-
víkur er ekki aðili að þeim heild-
arsamningi, sem VSÍ og ASÍ gerðu
í gær en hefur fallist á að eiga
viðræður um sérsamninga fyrir
lyfjatækna, sérmenntað af-
greiðslufólk í apótekum, sem eru
félagar í VR. Er gert ráð fyrir að
þær viðræður hefjist í dag eða á
morgun.
Magnús sagðist harma, miðað
við þróun mála, að ekki skyldi
nást samstaða um að gera í haust
samninga, sem miðuðu að því að
viðhalda kaupmætti febrúarsamn-
inganna. „Nú stöndum við frammi
fyrir því, að gerðir hafa verið
samningar um verulegar launa-
hækkanir," sagði hann. „Þeir sem
taka laun samkvæmt skráðum
launatöxtum, og þeir eru býsna
margir bæði hjá hinu opinbera og
í VR, eru síst ofsælir af þessari
liðlega 20% launahækkun — ef
þeir þá halda henni. Höfuðgalli
þessara samninga er auðvitað að í
þeim eru engin ákvæði um kaup-
máttartryggingu. Það getur ekki
verið markmið verkalýðshreyf-
ingarinnar að hækka laun i krónu-
tölu — markmiðið hlýtur að vera
að tryggja kaupmátt. Ég óttast, að
í lok samningstímabilsins verði
kaupmáttur þessa láglaunafólks
síst meiri en hann er í dag, þrátt
fyrir krónutöluhækkunina. Og þá
er verr af stað farið en heima setið
því það kæmi ekki á óvart að
ráðstafanir yrðu gerðar í geng-
ismálum, sem munu leiða til miklu
meiri verðbólgu en annars hefði
verið.
Það blasir við, eftir þessa samn-
ingagerð, að þeir fá fæstar krónur,
sem lægst hafa launin. Mér finnst
dapurlegt að það sé samið án þess
að kaupmáttur sé tryggður og að
hinir lægst launuðu skuli enn bera
minnst úr býtum.
Ég held að menn verði að viður-
kenna þá staðreynd," hélt Magnús
Sveinn Einarsson
veiðistjóri, látinn
Magnús L Sveinsson
áfram, „að á undanförnum mörg-
um árum hafa ríkisstjórnir skert
umsamda launataxta verkalýðs-
hreyfingarinnar langt niður fyrir
allt velsæmi. Það er staðreynd að
þúsundir manna í landinu taka
SVEINN R. Einarsson veiðistjóri,
frá Miðdal, lést um síðustu helgi á
heimili sínu í Reykjavík, 67 ára að
aldri.
Sveinn fæddist þann 14. janúar
1917 í Miðdal í Mosfellssveit. For-
eldrar hans voru Einar Guð-
mundsson bóndi í Miðdal og Val-
gerður Jónsdóttir kona hans.
Hann lauk prófi í leirkerasmíði og
stundaði síðan nám í postulíns-
gerð og leirkerasmíði í Munchen í
Þýskalandi. Hann starfaði í rúm
20 ár hjá Listvinahúsi sf., sem var
nafn á leirbrennslu Guðmundar
Einarssonar frá Miðdal, bróður
Sveins, og veitti Sveinn fyrirtæk-
inu forstöðu í 10 ár. Hann stund-
aði einnig ýmis algeng störf á sjó
á landi, var meðal annars grenja-
skytta í nokkur vor fyrir bæjar- og
sveitarfélög á Reykjanesi. Sveinn
tók við hinu nýstofnaða embætti
veiðistjóra 1. janúar 1958 og
gegndi því starfi til dánardags.
Sveinn var tvíkvæntur. Hann
kvæntist Kömmu Norðland Niel-
sen frá Kaupmannahöfn 5. desem-
Sveinn Einarsson, veiðistjóri, frá
Miðdal.
ber 1952. Þau eignuðust 5 börn en
skildu 1. desember 1960. Hann
kvæntist Láru Einarsdóttur frá
Hringsdal 6. maí 1966 en hún lést
22. júní 1975.
Borðapantanir
daglega kl. 11—19
í síma 77500.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Sendir matvæli og
peninga til Eþíópíu
Hjálparstofnun kirkjunnar ákvað
í dag að senda 18,5 tonn af íslensk-
um matvælum til hjálpar á þurrka-
svæðunum í Eþíópíu, ásamt 500 þús-
und kr. framlagi til hjálparstarfsins
til þess að aðstoöa við dreifingu mat-
vælanna.
Íslenska matvælasendingin
samanstendur af fimm tonnum af
mjólkurdufti, sem Hjálparstofn-
uninni hefur borist að gjöf frá
Mjólkursamsölunni, og 13,5 tonn-
um af eggjahvítuauðugu fiskdufti,
sem Hjálparstofnun hefur fest
kaup á.
Fréttum fjölmiðla og hjálpar-
beiðna til Hjálparstofnunarinnar
ber saman um það, að ástandið í
Eþíópíu og víðar í austanverðri
Afríku sé mjög alvarlegt um þess-
ar mundir vegna langvarandi
þurrka og uppskerubrests.
Sl. sumar safnaði Hjálparstofn-
unin á meðal landsmanna 45 tonn-
um af fötum, sem send voru á
þurrkasvæðin í Eþíópíu. Starfs-
menn stofnunarinnar í Eþíópíu
sáu um dreifingu fatnaðarins, sem
gekk vel þrátt fyrir mjög erfiðar
aðstæður. Fréttir hafa borist um
að þau hafi komið að góðum not-
um.
Haraldur Ólafsson, sem dvelst í
Eþíópíu, mun taka á móti íslensku
matvælasendingunni og hafa um-
sjón með framkvæmd dreifingar.
Þá er ákveðið að starfsmaður
Hjálparstofnunarinnar haldi til
Eþíópíu næstu daga til undirbún-
ings fyrirbyggjandi verkefnum,
sem stofnunin fyrirhugar að
standa að.
FrétUtilkynning
Þrennt í
gæsluvarðhald
TVÆR UNGAR konur og einn karl-
maður, öll á þrítugsaldri, voru í gær
úrskurðuð í gæsluvarðhald í Saka-
dómi Reykjavíkur allt fram til 14.
nóvember næstkomandi. Þau eru
grunuð um nokkur þjófnaðarbrot.
Þau voru handtekin eftir húsleit
heima hjá einu þeirra, þar sem
fundust hlutir er þau gátu ekki
gert grein fyrir. Er talið að um sé
að ræða þýfi úr nokkrum innbrot-
um, sem Rannsóknarlögregla rik-
isins hefur verið með í rannsókn
að undanförnu, skv. uppiýsingum
deildarstjóra RLR. — Rannsókn
málsins er haldið áfram.
Enn fá þeír fæstar krón-
ur sem lægst hafa launin
— segir Magnús L. Sveinsson, formaður VR, í samtali um stöðuna í kjaramálum