Morgunblaðið - 07.11.1984, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
7
ABOT
Á VEXTI
GULLS ÍGILDI
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖU MÓNUSTA
-
Búnaðarbank-
inn á Þyril enn
BÚNAÐARBANKI íslands á olíu-
flutningaskipið Þyril ennþá en skip-
ið var slegið bankanum á nauðung-
aruppboði í lok júlí eins og komið
hefur fram. Þorvaldur G. Einarsson,
lögfræðingur Búnaðarbankans,
sagði í samtali við Mbl. að bankinn
vaeri með í athugun hvað gert yrði
við skipið.
Sagði hann að ekki væri enn bú-
ið að ganga að fullu frá öllum upp-
boðskröfum og bankinn því ekki
orðinn formlegur eingandi Þyrils
Sagði hann að ýmsir aðilar hefðu
sýnt áhuga á að kaupa skipið en
ekkert hefði verið ákveðið í þvi
efni enn. Sagði hann að komið
hefði til greina að leigja skipið á
meðan gengið væri frá öllum end-
um í sambandi við uppboðið og
sölumöguleikar kannaðir.
Leiðrétting vegna
leikumsagna
ÝMSAR villur urðu í umsögnum
um leiklist í Mbl. í gær. Tekið skal
fram, að Jóhanna Kristjónsdóttir
skrifaði umsögnina um sýningu
Alþýðuleikhússins á Beizkum tár-
um Petru Kant. Undir mynd var
ranglega sagt að myndin væri af
Eddu Guðmundsdóttur og Erlu
Skúladóttur. Myndin var af Maríu
Sigurðardóttur, sem lék titilhlut-
verkið og Erlu Skúladóttur. Víxl
urðu i setningum, leikumsögnin
átti að enda: „í heild sýning sem
kallar á hlustun og athygli sem
leikverk fyrst og fremst og vel til
skila komið."
í umsögn um Önnu Frank féllu
niður fáein orð. Rétt var setningin
svona: „Gísli Halldórsson fór með
hlutverk Dussel af yfirlætisleysi
en áreiðanlega eftir töluverða
stúdíu á þessum manni. Ákaflega
heilsteyptur leikur."
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Kammertónleik-
ar annað kvöld
Viðurkenna
þjófnaði úr
bifreiðum
ÞRÍR piltar, 16 og 17 ára gamlir,
hafa viðurkennt að hafa brotist
inn í 15 bifreiðir og stolið úr
þeim útvarpstækjum og talstöðv-
um. Þeir hafa stundað þessa iðju
sína á undanförnum mánuðum,
en voru handteknir siðastliðinn
föstudag. Rannsóknarlögregla
ríkisins vinnur að rannsókn
málsins og hefur tekist að endur-
heimta þýfið úr bifreiðunum.
ÞÚ HEFUR ÞRJÁR GULLVÆGAR ÁSLÆÐUR TTLAÐ VELIA
INNLÁNSREIKNING MEÐÁBÓT
TILÁVÖXrUNAR SPARIEJÁR ÞÍNS■
Þér bjóðast fylbtu i/extir, 26,2%, strax í fyrsta mánuði eftir stofnun reihningsm
2.' Þér býdst fast að 28% ávöxtun á 12 mánuðum.
• 3.1 Þú mátt taHa út hvenær 5em er án þe55 að áunnir vextir sherðbt.
Hotaleg tilhugsun, eHHi satt?
EKKISTIGHÆKKANDI
InnlánsreiHningur með Ábót þýðir eHHi stighæHHandi ávöxtun
og þar með margra mánaða bið eftir hámarHinui, heldur fyllstu vexti strax
í fyrsta mánuði eftir innlegg.
SKÍNANDIÁVÖXTUN, STRAX.
EYRSTIJ kammertónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar íslands á þessu
starfsári verða í Bústaðakirkju á
morgun Hmmtudaginn 8. nóv. 1984
og hefjast þeir kl. 20.30.
Efnisskrá tónleikanna verður
sem hér segir: J. Pachelbel: Canon
fyrir strengi og sembal, P. Hinde-
mith: Konsert fyrir píanó, blásara
og hörpu og W.A. Mozart: Sinfónía
nr. 36 Linz.
Einleikari á tónleikunum er Guð-
ríður St. Sigurðardóttir. Hún er
fædd 1956 í Reykjavík. Guðríður
lauk píanókennaraprófi 1977 og
einleikaraprófi 1978 frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík. Kennar-
ar hennar þar voru m.a. Hermína
S. Kristjánsson, (Jrsúla Ingólfsson
og Árni Kristjánsson. 1978—80
dvaldi Guðríður í Bandaríkjunum
Ammoníakslekinn
hjá Eimskip:
Enn óljóst hve
tjón er mikið
EKKI ER enn Ijóst hve mikið af
frystum fiski, sem geymdur var í
frystigeymslu Eimskipafélags Is-
lands við Sundahöfn, skemmdist
þegar leki kom að ammoníakleiðslu
í klefanum. Nú er Ijóst að á milli 400
og 500 tonn af frystum sjávarafurð-
um voru í klefanum þegar óhappið
átti sér stað.
Fara verður í gegnum allt sem í
frystigeymslunni var, kanna hvað
er skemmt og hvað heillegt og sið-
an umpakka vörunni. Af þessu
hlýst verulegur kostnaður. Verð-
mæti vörunnar í geymslunni er
um 50 milljónir og er óttast að
einhver hluti sé ónýtur, þannig að
tjónið af völdum ammoníaklekans
er verulegt — skiptir líklega millj-
ónum króna.
og lauk mastersprófi í píanóleik
frá háskólanum í Ann Arbor,
Michigan. Að því loknu snéri hún
heim og hefur stundað kennslu og
tónlistarstörf, m.a. spilað með
Sinfóníuhljómsveit íslands og í ís-
lensku óperunni, og auk þess kom-
ið fram á ýmsum tónleikum. í vet-
ur stundar Guðríður framhalds-
nám í Köln hjá Prof. Giinter Lud-
wig.
(FrétUtilkynning.)