Morgunblaðið - 07.11.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
21
um 1978, ekki má ég tína þar strá.
Nú er hlaup í Kverká (8/7 ’84) og
Lindá orðin að jökulvatni, eyrar-
rósin flýtur uppi, rof á árbakkan-
um og við vöruð við að fara yfir.
Allt í einu verður þetta þó mitt
land aftur. Þrír erlendir mótor-
hjólagæjar koma þarna að og ætla
sér að hjóla eftir bakkanum, þegar
þeir hafa kannað að áin er ekki
fær á vaðinu. Sá sem ég karpa
mest við er í teðurjakka með klút
fyrir vitunum, rétt eins og í bófa-
hasar. Mér tekst að hefta för
þeirra, en töfrar öræfanna eru
horfnir. Maður fer ekki þangað til
að brúka kjaft og hvað munar um
þrjú hjólför í svörðinn miðað við
allt hitt?
Hvernig var landið sem ég var
að fara um? Virtist ekki víðirengl-
unum líða best upp á þaki Mið-
fellskofa. Varla trúi ég að nokkr-
um þætti þess virði að reka fé á
þetta land snemma vors eða halda
því í haga fram undir jól, eins og
dæmi eru um á fyrri hluta aldar-
innar og frásagnir af Fjalla-Bensa
kveða á um. Er ekki skrítið að
gróðurinn skuli vera vænlegastur
á þaki kofans? Ekki var laust við
nokkur vonbrigði er ég kom fyrst í
Hvannalindir 1975. Þar voru þá
fyrir átta hreindýrstarfar og
það ganga sérstaklega vel.
Þegar húsið var orðið fokhelt
urðu þáttaskil í byggingu þess
þar sem allt fjármagn sem veitt
hafði verið til byggingarinnar
var búið og vel það. Sótt var um
aukafjárveitingu til mennta-
málaráðuneytisins og fjármála-
ráðuneytis til að geta lokað hús-
inu að fullu fyrir veturinn og
fékkst hún. Þegar ljóst var að
fjármagn var á fjárlögum 1984
til byggingarinnar var hafist
handa við múrhúöun og síðan
hefur hver verkþátturinn rekið
annan uns fyrri hluti bygg-
ingarinnar er tekinn í notkun nú
við upphaf skólaárs. Alls er rúm
fyrir 32 nemendur í þessum
hluta auk þess sem aðstaða er
fyrir húsvörð. Byggingin er
mjög smekkleg og ber meistur-
um sínum gott vitni. Einnig
þykir hönnun hússins hafa tek-
ist mjög vel.
Um kostnaðarhlið byggingar-
innar má segja að þó ekki séu
allir reikningar komnir fram
ennþá er það ljóst að húsið mun
kosta um 16 milljónir króna. Ef
áfram verður haldið á sömu
braut og aðgæsla verður í með-
ferð fjármagns eins og fram-
kvæmdanefnd byggingarinnar
hefur greinilega gert standa
höfðu bitið hvönnina, þannig að
hún kom ekki til með að bera fræ
það árið. Ein er sú jurt, sem ég hef
reyndar þekkt frá bernsku, sem
mér fór að þykja sérstaklega vænt
um í sumar. Hún vex nú víða með
vegköntum, virðist vera fyrsti
landneminn í aurskriðum hér uppi
í fjalli og víða myndar hún satt að
segja stóran hluta gróðurþekjunn-
ar, en ekki haglendis, því að bú-
fénaður lítur ekki við henni. Ég
hafði reyndar veitt henni athygli
áður á milli rofabarða á Brúarör-
æfum, en þetta er ljónslappinn.
Mig langar þá að ljúkja máli
mínu með tilvitnun í Göngur og
réttir; úr kaflanum um göngur og
réttir Miðfirðinga eftir Magnús F.
Jónsson, en þar segir: „Virðist að
bændum þá hafi verið Ijóst að
beitilönd hverrar jarðar eru eigi
að síður mikilsverð fyrir afkom-
una en slægjulönd, en aðgæsla og
hófsöm nýting á beitilöndum er
gildur þáttur í þeirri meginskyldu
hvers bónda að hafa sterkan varn-
að á því að jörð í umsjón hans falli
ekki í örtröð að neinu leyti, því að
jörðin er aðal arfur frá kynslóð til
kynslóðar."
Bergþófa Sigurðardóttir er heilsu-
gæslulæknir í ísnfírði.
vonir til að bygging þessi verði
15—20% undir þeim normum
sem menntamálaráðuneytið set-
ur um byggingu skólamann-
virkja. í samningi milli ráðu-
neytis og Akraneskaupstaðar er
kveðið á um að ríkissjóður greiði
84% móti 16% sem er hluti
Akraneskaupstaðar. Því eru
miklar líkur á að þessi bygging
verði ekki þungur baggi á bæj-
arsjóði. Byggingarstjóri hefur
verið Baldur Ólafsson og hefur
hann skilað verki sínu á frábær-
an hátt.
JG.
Rofabörð á Brúaröræfum. Ljónslappi fremst á myndinni.
íslensk eyðimörk norðan Vatnajökuls. Stefnum við á þetta?
Yið bjíxkimbér \ikuferð
London
ámánu-
daghm
kemur!
Verd frá kr. 14.117.- pr. mann
Innifalið flug, gisting og morgunmatur
FerðeLskrifstofan Farandi verður með
sérstakar vikuferðir (pakkaferðir) til
Lundúnaborgar á hverjum mánudégi í
allam vetur.
Verðið er ctfskaplega gott, - frá kr.
14.117.- pr. mann. Innifalið í verðinu er
flug, gisting og morgunmatur. Auk þess
útvegum við aðgöngumiða á hljóm-
leika, í leikhús, á íþróttaleiki, nætur-
klúbba o.m.fl.
Hægt er að velja á milli eftirfarandi
hótela: Cavendish, Regent Crest,
Leinst- er Towers, Park Lane.
Komið og rabbið við okkur sem fyrst.
Það er alltaf gaman að fá gott fólk í
heimsókn.
&
Irarandí
'Vesturqötu 4, simi 17445
CITROÉN*^™™
Citroén-eigendur
athugið!
NÚ BJÓÐUM VIÐ YKKUR VETRARSKOÐUN Á ÖLLUM GERÐUM
CITROÉN-BIFREIÐA ÞAR SEM VIÐ FRAMKVÆMUM
EFTIRTALIN ATRIÐI:
.. Vélaþvottur.
2. Ath. á geymasamböndum og
viftureimum.
3. Mældur rafgeymir og hleðsla.
4. Mældur frostlögur og ath. kæli-
kerfi.
5. Ath. á LMH vökvakerfi.
6. Skipt um kerti og platínur
(kveikjulok og hamar).
7. Ath. á loftsíu.
8. Vélarstilling.
9. Kveikja rakavarin.
10. Ath. slag í kúplingu.
11. Ath. hjólbarðar, loftþrýstingur —
misslit.
12. Yfirfarin Ijós og stillt.
13. Frostvari settur á rúðusprautu.
14. Smurðar hurðarlæsingar og lamir.
VERD KR. 1.590 MEÐ SÖLUSKATTI
Ath.:
Kerti, platínur, kveikjulok og hamar er ekki innifaliö í verði.
CITROÉN * CITROÉN * CITROÉN*
G/obusi
é
LAGMULI b. SIMI81555