Morgunblaðið - 07.11.1984, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 07.11.1984, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984 31 IVfesUi „fjárdrátlarmáli" í sögu Noregs er nú lokið með algerri sýknu aðalsakborningsins, Helge Nordahls, formanns Norræna barnahjálpar- sjóðsins. Hér er Helge (Lv.) ásamt verjanda sínum. Formaður Norræna barna- hjálparsjóðsins sýkn saka Mesta „fjárdráttarmál“ í sögu Noregs reyndist ekkert vera við nánari rannsókn „Ég hef alltaf verið viss um sakleysi Helge og hverjum skyldi hafa staðið það nsr en einmitt mér, móður hans,“ sagði Marie Nordahi eftir að sonur hennar, Helge Nordahl, hafði verið sýkn- aður af öllum ákærum um að hafa dregið sér fé frá Norræna barna- hjálparsjóðnum. Málið gegn Helge Nordahl hófst 10. júní árið 1981, klukkan 10 fyrir hádegi. Þá stormuðu lögreglumenn inn á skrifstofur barnahjálparsjóðsins, lögðu hald á reikninga og önnur gögn og greindu Helge frá því, að hann væri grunaður um stórkostlegan fjárdrátt. Samtímis var gripið til aðgerða gegn þremur fyrir- tækjum, sem sáu um reiknings- hald og ýmsa þjónustu aðra fyrir sjóðinni. Fyrstu ákærurnar gegn Helge voru þær, að hann hefði misfarið með 18 milljónir norskra kr. af fé sjóðsins en þær tölur áttu eft- ir að hækka verulega, fyrst upp í 22 milljónir og loks í 32,4 millj- ónir. f Noregi var talað um mál- ið, sem mesta fjárdráttarmál frá upphafi og hneykslið þótti enn verra fyrir það, að um var að ræða barnahjálparsjóð, sem safnaði meðal almennings fé fyrir sveltandi börn í þriðja heiminum. Við réttarhöldin var Helge sakaður um að hafa notað fé sjóðsins til mikilla ferðalaga er- lendis, í bíla og aðra neyslu og auk þess komið 750.000 nkr. á bankareikning í Sviss. Átti Helge að hafa verið höfuðpaur- inn í þessu svindli en notið við það góðrar aðstoðar endurskoð- andans Odds Haralds Rosenlind. Fyrir héraðsdómi voru þeir báð- ir dæmdir í fangelsi, Helge í tvö ár og Rosenlind í hálft annað ár, en þó ekki fyrir fjárdrátt, sem ekkert sannaðist um, heldur fyr- ir „fjármálaóreiðu". Þegar málið kom fyrir hæsta- rétt var niðurstöðu héraðsdóms- ins hrundið og fyrst og fremst á þeirri forsendu, að sakborn- ingarnir hefðu verið dæmdir eft- ir öðrum lögum en kveðið var á um í ákærunni. Nýtt mál var því höfðað áhendur þeim og nú er því lokið með algerri sýknu Helge Nordahls. Noregur: Merk nýjung í læknisfræði Unnt að finna bólgur og blóðtappa fyrr en áður í Noregi hefur verið fundin upp aðferð við að finna bólgur og blóðtappa í æðum miklu fyrr en hingað til hefur verið unnt. Hafa læknar og aðrir vísindamenn þau orð um uppfinninguna, að hún sé byltingarkennd. Það er dr. Erling Sundrehagen, sem á heiðurinn af þessari nýju aðferð, en hann vann að henni í samvinnu við orkufræðistofnun- ina norsku. Er hún fólgin í því að gera geislavirkt málmsambandið technetium, sem síðan binst blóðfrumunum og gefur til kynna hvar í líkamanum meinið er. Þannig er farið að, að sjúklingn- um eða þeim, sem er skoðaður, er tekið blóð og blóðfrumurnar skild- ar að í skilvindu. Með því er unnt að einangra ákveðnar frumur, sem síðan eru merktar efninu. Ef talið er, að um bólgur sé að ræða, verða hvítu blóðkornin fyrir valinu og eftir að þær hafa verið merktar er þeim sprautað í æðar sjúklingsins á ný. Hvítu blóðkornin leita uppi bólguna eins og þeim er eiginlegt og með mælitækjum má sjá hvar merkisberarnir eru flestir sam- ankomnir. Hann var á dögum fyrir 1,6 milljónum ára og aðeins 12 ára þegar hann hvarf af þessum heimi. Forfeðurnir jafnhá- ir og nútíðarmenn? Nairobi. Kenya. AP. NÝLEGA fannst á strönd Turkana- vatns í norðurhluta landsins mjög heilleg beinagrind af kröftugum 12 ára snáða, sem horfið hefur af þess- um heimi fyrir um 1,6 milljónum ára, að sögn Rirhards læakeys, for- stöðumanns Þjóðminjasafns Kenva. Meðal þess sem fannst var hauskúpan, neðri kjálkinn, rif- beinin, hryggurinn og útlimabein- in. Var þetta sýnt á blaðamanna- fundi í Nairobi fyrir skemmstu, að sögn AP-fréttastofunnar. Af þess- um steingerðu beinabrotum, alls 70 talsins, hafa vísindamenn getað dregið þá ályktun, að drengurinn muni hafa verið u.þ.b. 1,50 m á hæð og vegið um 65 kg um það leyti sem hann dó. Ef hann hefði náð fullorðinsaldri, hefði hann sennilega orðið 1,80 m á hæð, að sögn Leakeys. — Það hefur almennt verið álitið, að forfeður okkar hafi verið lægri vexti en við nútímafólk, en þessi beinafundur virðist renna stoðum undir, að í rauninni hafi þeir verið álíka á hæð og við, sagði hann. Samkvæmt því sem Leakey seg- ir ber beinagrindin engin merki um áverka. Hugsanlega hefur drengurinn látist af völdum lungnabólgu. vinnubröað byrjaáréttri nugsun Við eigum á lager og getum útvegað með stuttum fyrirvara margar gerðir af smærri rafmagnslyfturum og handlyftivögnum. Allt viðurkennd, dönsk gæðavara. Þessir lyftarar og handlyftivagnar hafa ýmsa ótrúlega kosti við allskonar birgðahald og vörugeymslur innanhúss. • Ótrúleg lyftigeta og lyftihaf miðað við stærð frá 20 cm. í 6 metra. • Mjóar akstursleiðir - betri nýting geymslurýmis. • Lipurð í meðförum - hámarks notagildi. • Rekstra- og viðhaldskostnaður í lágmarki, nánast enginn í sumum tilfellum. Veitum fúslega allar upplýsingar. B.V. Handlyftivagnar og litlir lyftarar. — Létta störf auka afköst. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN LÁGMÚLI5. 108 REYKJA VIK, SÍMI: 91-685222 PÓSTHÚLF: 887, 121REYKJAVÍK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.