Morgunblaðið - 07.11.1984, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
41
Osta- og smjörsalan kynnti m.a. á sýningunni þrjár nýjar ostategundir.
Mbl./Emilia.
Reykjavíkurpylsa,
graflamb og ostakökur
— meðal nýjunga sem kynntar voru á sýningunni BU 84
Á sýningunni BÚ 84, sem
haldin var í Reykjavík dag-
ana 21. til 30. september sl.,
voru kynntar margvíslegar
nýjungar í búvörum. Þær
vörur voru seldar á lágu
kynningarverði og sýningar-
gestum boðið að bragða á
þeim.
Mjólkursamsalan kynnti tvær
nýjar tegundir af létt-jógúrt frá
MBF á Selfossi, annars vegar
með gulrótum og hveitikornshýði
og hins vegar með gulrótum, sell-
erii og eplum. Jógúrtin er seld í
hálfs lítra fernum og í stað syk-
urs er notað svokallað „aspart-
ame“-sætiefni (nutra sweet). Þá
kynnti Mjólkursamsalan tvær
nýjar vörur frá Mjólkursamlagi
Kaupfélags Borgfirðinga, annars
vegar kalda ítalska sósu, bragð-
bætta með kryddblöndu og hins
vegar Jalapeno“-ídýfu, bragð-
bætta með safa úr samnefndum
mexíkönskum piparávexti. Báðar
vörurnar eru unnar úr sýrðum
rjóma og innihalda fáar hitaein-
ingar.
Þriðja nýjungin frá Mjólkur-
samsölunni er tvær ostakökur
(cheese cake), annars vegar með
bláberjum og hins vegar með
kirsuberjum. Ostakökurnar, sem
framleiddar eru af Mjólkursam-
laginu í Búðardal, fást í tveimur
stærðum, þriggja og sex manna.
Þær eru geymdar frystar en látn-
ar standa í stofuhita í eina og
hálfa klukkustund fyrir neyslu.
Osta- og smjörsalan kynnti
m.a. á sýningunni þrjár nýjar
ostategundir, humar-smurost.
skinkuost og fjörost með hangi-
kjötsbitum. Landssamband veiði-
félaga kynnti auðvelda aðferð við
að roðfletta silung og sýnd var
ýmiss konar matreiðsla á honum.
Þá fengu sýningargestir að
bragða á gröfnum og reyktum sil-
ungi.
Sláturfélag Suðurlands kynnti
m.a. alls kyns kryddlegið kjöt og
nýtt sterkt franskt sinnep. Þá
voru kynntar þrjár nýjar áleggs-
pylsur, paradísarsalami, pipar-
salami og heimilissalami. Goði
kynnti á sýningunni graflamb,
sem selt er niðursneitt í neyt-
endaumbúðum og borðast á sama
hátt og graflax, þ.e. með sinn-
epssósu. Þá var kynnt ný tegund
af pylsu, svokölluð Reykjavíkur-
pylsa sem er í líkingu við Vínar-
pylsu nema fituminni. Kjöt og
álegg kynnti nýtt álegg unnið úr
lamba-, svína- og nautakjöti, sem
bragðbætt er með karrýi. fsmat
og Hagsmunasamtök hrossa-
bænda kynntu m.a. nýja sherrý-
skinku sem unnin er úr hrossa-
kjöti og svínakjöti.
Kartöfluverksmiðja Þykkva-
bæjar var m.a. með kynningu á
nýjum forsoðnum bökunarkart-
öflum sem einungis þarf að baka
í um 30 mínútur og Fransmann
kynnti forsoðnar mínútukartöfl-
ur, sem aðeins þarf að hita upp
eða brúna á pönnu. Þá var
Grænmetisverslun landbúnaðar-
ins með kynningu á ofnbökuðum
kartöflum, fylltum með lamba-
kjöti í karrýsósu, sem áætlað er
að selja til veitingahúsa.
Þessi stúlka sýndi auðvelda aðferð við að roðfletta silung, fyrir hönd Land-
sambands veiðifélaga.
Brezkur mið-
ill til íslands
BRESKI miðillinn Mavis Pittilla er
vaentanleg til landsins miðvikudaginn
7. nóvember. Hún mun starfa á vegum
Sálarrannsóknafélagsins dagana
8. —20. nóv.
Hún heidur skyggnilýsingafundi
mánudaginn 12. nóvember og mánu-
daginn 19. nóvember að Hótel Hofi
við Rauðarárstíg. Einnig heldur hún
fámennari fundi fyrir félagsmenn í
húsakynnum félagsins, Garðastræti
9. Mavis Pittilla hefur ekki komið
áður til íslands, hún hefur þó ferð-
ast mikið og m.a. starfað í Banda-
rfkjunum, Gíbraltar, á írlandi og
Nýja-Sjálandi. Hún hefur starfað
sem miðill í 20 ár.
Fréttatilkynning.
Mavis Pittilla miðill.
Ragnar Lár teikn-
ar kynlega kvisti
Akureyri, 6. nóvember.
Ragnar Lár, myndlistar-
maður á Akureyri, hefur
hafíð útgáfu á seríu sáld-
þrykksmynda af kynlegum
kvistum síðari hluta 19. aid-
ar og byrjun þessarar aldar.
Fyrstur í þessari seríu er
Guömundur dúllari, en ætl-
un Ragnars mun vera að á
eftir fylgi myndir m.a. af
Símoni Dalaskáldi, Sæfinni
á sextán skóm, Ástar-
Brandi og Sölva Helgasyni,
svo einhverjir séu nefndir.
Guðmundur dúllari
hvílir í kirkjugarðinum á
Hlíðarenda í Fljótshlíð.
Hann reisti sjálfum sér
bautastein og lét letra á
hann þá upp og niður við
efri góm, en við það
mynduðustu dillandi hljóð
í mörgum tilbrigðum. Til
þess að auka á tilbreytn-
ina dillaði hann litla- og
vísifingri í vinstri hlust-
inni meðan hann dúllaði
lagið.
Guðmundur dúllari
ferðaðist víða um land og
var vel liðið góðmenni.
Um skeið var hann
„einkaritari" Símonar
Dalaskálds og áttu þeir
nokkuð saman að sælda.
Guðmundur skrifaði smáa
og sæmilega hönd, en
sama varð ekki sagt um
Guómundur dúllan
Saldbrykk
hann: „Hér hvílir Guð-
mundur Árnason. Fæddur
7. júlí 1833, dáinn 20. apríl
1913. Þjóðkunn list, sem
þessi gjörði, þar fyrir er
steinninn reistur. Gripi
átti gulli skærri, höndin
frjáls, og heilsu góða,
einnig þar með afbragðs
sinni. S.s.s.G.Á."
Þekktastur var Guð-
mundur fyrir dúllið, en
auk þess var hann kveð-
skaparmaður góður. Dúll-
ið var hans eigin uppfinn-
ing, en það framkvæmdi
hann oftast á þann hátt
að sitja við borð, styðja
vinstri olnboganum á
borðið og hafa eitthvað
undir honum, s.s. vettling,
húfu eða snýtuklút, en
best kvað hann dúllið
hljóma ef hann hefði
kvensvuntu undir. Síðan
söng hann eða raulaði
eitthvert lag, án orða.
Tungubroddinum velti
Símon. Ef þeir urðu sam-
ferða um götur Reykja-
víkur gekk Guðmundur
jafnan nokkrum skrefum
á eftir meistaranum, en
það mun hafa verið að
undirlagi Símonar, sem
taldi sér ekki samboðið að
ganga við hliðina á svo lít-
ilsigldum manni sem Guð-
mundi dúllara.
Ragnar Lár hefur unnið
myndina af Guðmundi
dúllara eftir gamalli
ljósmynd, og gefur mynd-
ina út í 200 tölusettum og
árituðum eintökum.
Myndin er sáldþrykkt í
Teiknistofunni Stíl á Ak-
ureyri og er stærð
myndflatar 25x35 sm, en
pappírsstærð 31x44 sm.
Hvert einstak kostar
300 krónur og er hægt að
panta eintak hjá Ragnari
Lár á Akureyri í símum
26562 og 23688.
GBerg