Morgunblaðið - 07.11.1984, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
43
Stykkishólmur:
Kirkjubyggingu miðar vel
StykkÍHhólmi, 29. oklóber.
„Við byggjum kirkju", er orötak
Hólmara um þessar mundir, en í ár
hefir veriö talsveröur skriður á bygg-
ingarframkvæmdum viö nýja kirkju
sem nú er í smíðum í Stykkishólmi.
Ýmsar góðar gjafir hafa verið
færðar sóknarnefnd í þessum til-
Myndir Eddu
Ingólfsdóttur
sýndar á Mors
Jnnnhúni í scpt.
Á EYJUNNI Mors í Limafirðin-
um býr íslenzk kona ásamt fjöl-
skyldu sinni. Edda heitir hún og
er Ingólfsdóttir Davíðssonar
grasafræðings. Edda er mjög list-
ræn og hefur lengi sýnt hæfileika
sína og tjáð hugsanir sínar í
„applíkeruðum“ myndum. í
sumar var henni boðið að taka
þátt í sýningu listamanna, sem
búsettir eru á Mors.
Sýningin stóð allan ágúst-
mánuð og sýndu þar 26 lista-
menn. Hún var haldin í gömlu
pakkhúsi, sem breytt hefur
verið í sýningarsali, í Nyköb-
ing, höfuðborg Mors. í sam-
bandi við sýninguna var einnig
annar listflutningur, en þar
voru hljómleikar, upplestrar,
leiksýningar og dans. Alls
þessa var oftlega getið í fjöl-
miðlum þar norður frá.
Eyjan Mors hefur verið köll-
uð perla Limafjarðarins og víst
er um það, að hún er gróðursæl
og fögur. Þar búa um 25 þús-
und manns og er eyjan tengd
með tveimur brúm við land,
annars vegar til Thy og hins
vegar til Salling. Sérstaklega
er þar þekktur forkunnarfagur
blómagarður skammt frá Sall-
ingsunds-brúnni, Jesperhus
Blomsterpark.
{ sýningarskrá segir Edda,
að hún hafi dvalið í Danmörku
í 17 ár og þótt breytingin erfið.
Hún gerði myndir sínar til að
fá útrás fyrir tilfinningar sín-
ar til íslands, til að lýsa hinni
stórkostlegu náttúru heima og
rifja upp gamlar sagnir. Það
dró úr heimþránni og hún
dvaldi í huganum heima.
Myndir Eddu vöktu athygli á
sýningunni einkum fyrir
sterka liti og fallegt landslag,
sem er eins og lofsöngur til
náttúrunnar og tjáir mikla
lífsgleði, segir í einu dagblað-
anna.
Edda Ingólfsdóttir býr í frið-
sælli sveit nálægt Elsö á Mors
ásamt manni sinum, Jörgen
Hansen, og ungum syni, Sölva
Davíð. Þar hefur hún útbúið
verkstæði í gömlu útihúsi og
unir sér vel við að hanna og
sauma myndirnar og fallegt
handbragð leynir sér ekki.
Edda segir það vera heitustu
ósk sína að fá tækifæri til að
sýna heima á íslandi.
G.L.Ásg.
gangi. Sl. sunnudag var fjáröflun-
ardagur fyrir bygginguna. Þá sá
kirkjukór Stykkishólms um fjöl-
skylduhátíð í félagsheimilinu, þar
sem kirkjukórinn söng undir
stjórn Jóhönnu Guðmundsdóttur
og einnig var spilað bingó og síðan
kaffi fram borið af kórfélögum.
Var þessi hátíð mjög fjölmenn og
hin ágætasta. Messa var í kirkj-
unni um daginn og önnuðust karl-
arnir í kirkjukórnum sönginn
meðan kvenþjóðin undirbjó hátíð-
ina í félagsheimilinu, sérstaklega
undirbúning veitinga. Þótti þetta
góð tilbreyting.
Fréttaritari.
p irl
Gódan daginn!