Morgunblaðið - 07.11.1984, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
49
Oldfield
iðinn við
kolann
Hljóm-
plótur
Siguröur Sverrisson
Mike Oldfield
Discovery And The Lake
Virgin/Steinar hf.
Loks þegar Mike Oldfield öðl-
aðist heimsfrægðina á ný með
plötunni Five Miles Out, sem
kom út 1982, virðist sem hann
hafi verið orðinn illa þyrstur í
hana eftir langt hlé, sem varð
eftir að Tubular Bells sló í gegn
1973. Oldfield heldur nefnilega
enn fast í þá uppskrift, sem
færði Five Miles Out heims-
frægð. Gott og vel, menn á borð
við Oldfield komast upp með ým-
islegt í Ijósi snilli sinnar og
vissulega er Discovery And The
Lake traust plata.
Crises, sem kom út í fyrra,
byggir alveg á sömu uppskrift og
Five Miles Out og nú Discovery
And The Lake. Þróunin hefur
hins vegar verið sú á þessum
plötum, að söngur hefur orðið æ
meira áberandi. Ekki aðeins
syngur Maggie Reilly á þessari
plötu sem og hinum tveimur síð-
ustu heldur mætir Barry Palmer
til leiks og gerir það gott.
Nú þegar Oldfield beitir sömu
formúlunni rétt eina ferðina
verður manni á að spyrja hvort
ekki hafi verið hægt að koma
með eitthvað öðruvísi. Konan
mín taldi það hins vegar
ósanngjarnt að krefjast þess sí-
fellt að hljómlistarmenn kæmu
stöðugt fram með nýjungar. Hún
hefur nokkuð til síns máls en
einhvern veginn er það nú svo,
að maður gerir meiri kröfur til
Oldfield en kappa á borð við Rod
Stewart, Status Quo, Fleetwood
Mac og nú síðast jafnvel Bruce
Springsteen, sem komast upp
með að senda frá sér staðlað
efni.
Sú hilla, sem Oldfield hefur nú
komið sér fyrir á, ætlar að reyn-
ast honum vel. Sjálfur hefur
Oldfield komið sér niður á frem-
ur afmarkað form tónsmíða. Öll
lögin fimm á fyrri hlið Discovery
And The Lake falla t.d. mjög
auðveldlega undir þennan
ramma. Til glöggvunar má geta
þess að lög á borð við Moonlight
Shadow og Family Man, jafnvel
Five Miles Out, eru öll innan
hans líka. Með Maggie Reilly sér
vð hönd er enda hægt að gera
ýmislegt. Hún syngur yndislega.
Palmer skilar sínu vel og Simon
Phillips trommar þétt og ákveð-
ið. Sjálfur leikur Oldfield á önn-
ur hljóðfæri.
Það er erfitt að tína út einstök
lög af þessari síðustu plötu
Oldfield. Tvö þeirra, To France
og Tricks Of The Light, hafa
þegar náð nokkrum vinsældum.
Nokkur önnur standa þeim á
sporði — þetta er aðeins spurn-
ing um smekk hvers og eins.
Sjálfur hafði ég afar gaman af
þessari plötu, sem og Crises í
fyrra og Five Miles Out árið þar
á undan.
Gömlu lummurnar — 3:
Reagan og hinir ræningjarnir
Árni Þórarinsson
Gamlar bíómyndir sem fáanlegar
eru á myndböndum hérlendis voru
til meðferðar í síðasta dálki fyrir
verkfall. Ég sagði þar frá tveggja
mynda spólunum frá Kingston
Video. í nokkrum dálkum til viðbót-
ar ætla ég að benda á fleiri gamlar
lummur sem menn geta skoðað í
stofunni heima ef þeir vilja.
Bandaríska kvikmyndin The
Killers telst að vísu ekki fjörgöm-
ul; hún er tuttugu ára, gerð 1964.
En hún er á vissan hátt söguleg
mynd. Ef menn vilja sjá forseta
Bandaríkjanna löðrunga fallega
konu, ræna póstbíl dulbúinn sem
lögreglumaður og myrða með
köldu blóði, þá eiga menn einmitt
kost á því í The Killers. Þetta mun
vera síðasta myndih sem Ronald
Reagan, núverandi forseti Banda-
ríkjanna, lék í áður eri hann sneri
sér alveg að stjórnmálum. Og satt
að segja leikur hann hættulegan
undirheimastórlax með meiri ele-
gans en hann stýrir Bandaríkjun-
um.
The Killers er hnýsileg fyrir
fleiri sakir en forsetann. Hún er
byggð á sögu eftir Ernest Hem-
ingway og var upphaflega gerð
fyrir sjónvarp, en hafnaði i bíóun-
um vegna ruddafenginna ofbeldis-
atriða. Það kemur ekki á óvart því
leikstjórinn er Don Siegel, sem
þekktur er fyrir hörkulegar og
Forseti Bandaríkjanna sýnir ágætan
leik sem undirheimastórlax í The
Killers.
snarpar hasarmyndir en hefur
reyndar gert fjölda góðra mynda
af öðru tagi. Strax á fyrstu sek-
úndum The Killers kemur hand-
bragð hins góða leikstjóra í ljós:
Nærmynd af harðneskjulegu and-
liti með sólgleraugu. í gleraugun-
um speglast annað harðneskjulegt
andlit sem einnig er með sólgler-
augu. Myndavélin eltir þessa tvo
menn ganga upp að húsi sem
merkt er „blindraheimili". Úti á
blettinum fyrir framan húsið eru
litlir strákar í bófahasar og drepa
hver annan í plati. Með beitingu
myndavélar og tónlistar er sterk-
lega gefið til kynna að mennirnir
með sólgleraugun séu ekki að fara
heim til sin á blindraheimilið og
þeir séu ekki á leið í venjulega
heimsókn. Þarna er alvöru bófa-
hasar í uppsiglingu. Mennirnir
tveir eiga það erindi á blindra-
heimilið að skjóta niður einn af
kennurum þess fyrir framan dauð
augu vistfólksins. Þetta er sterk
byrjun á þriller.
Þótt sama skerpa einkenni að
vísu ekki öll atriði The Killers og
flýt.isvinnubrögð sjónvarpsmynda
verði stundum áberandi, er mynd-
in afþreying vel yfir meðallagi.
Lee Marvin og Clu Gulager leika
leigumorðingjana tvo. Fórnar-
lamb þeirra er John Cassavetes.
Hann er fýrrum kappaksturs-
hetja. Þeir Marvin og Gulager
ákveða að forvitnast um fortíð
hans; komast að því hvers vegna
þeir voru ráðnir til að myrða
hann. í bakleiftrum (flashbacks)
er sagt frá því hvernig Cassavetes
kemst í tæri við „femme fatale",
Angie Dickinson, sem leiðir hann
á refilstigu. Hann tekur þátt í að
ræna milljón dollurum með henni
og ástmanni hennar, glæpafor-
ingjanum sem forseti Bandaríkj-
anna leikur. Sainstarfið einkenn-
ist af svikum á svik ofan og í
seinni hluta myndarinnar er lýst
leit leigumorðingjanna tveggja að
ránsfengnum. Mannlegt eðli fær
ekki háa einkunn i The Killers.
Sem þriller stenst myndin hins
vegar prófið með sóma.
Stjörnugjöf: The Killers A * 'h
Miðaðu við
IBMPC
Skjár án auka-
endurkasts.
Létt og auðvelt
lyklaborð.
mimmm,- m_________Æ.«uT... £.........O
Söluumboð fyrir IBM PC einkatölvuna:
Ef þú ert að hugleiða kaup á
tölvu, hagaðu þér þá eins og þeir
sem reynsluna hafa.
Flestir tölvuframleiðendur og
nær allir framleiðendur hugbún-
aðar miða við IBM PC.tölvuna,
sem tók beint strik á toppinn Hér-
lendis eíns og hvarvetna í belttiin-
um. Betri meðmæli eru vandfund-
in.
IBM PC er ekkert frekar tölva
fyrir byrjendur þó að hún henti
þeim mjög vel. Þú þarft heldur
ekki eingöngu að ætla henni byrj-
unar-hlutverk. Verkefnasvið IBM
PC er afar yíðfeðmt hvort sem
hún er sjálfstæð eða í tengslum
við aðrar tölvur.
Við að kynnast kostum IBM PC
kemstu fljótt að raun um hve dýr-
mæt hún er. Pantaðu kynningu á
JBM PC strax hj£ næsta söluum-
boði.
Gísli J. Johnsen
Skrifstofubúnaður sf., Smiðjuvegi 8,
Kópavogi, sími 73111
Skrifstofuvélar hf.
Ottó A. Michelsen, Hverfisgötu 33,
Reykjavik, simi 20560
Örtölvutækni sf., Ármúla38.
Reykjavík, sími 687220 __'
^ &