Morgunblaðið - 07.11.1984, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
Norrænir
„vinir“ vega
enn í sama
knérunn
— eftir Hall Hallsson, stjórnar-
mann í handknattleiksdeild Víkings
• Gudmundur Guömundsson Víkingur á fullri forö í leik gogn Vol. Hann leikur ásamt félögum sínum í kvöld
og á morgun í Norogi.
VÍKINGAR leika viö norska liöiö
Fjeldhammer í Evrópukeppni
bikarhafa í handknattleik í þoss-
ari viku. Alþjóöahandknattleiks-
sambandiö úrskuröaöi í síöustu
viku aö Víkingum bæri aö leika
báöa leiki sína í Noregi og auk
þoss aö bera verulegan fjárhags-
legan kostnaö af för sinni til Nor-
egs. Moö úrskuröi sínum hefur
Alþjóöahandknattleikssamband-
iö, IHF, gengiö þvert á allar reglu-
geröir um Evrópukeppni og
gengur gróflega á hlut annars aö-
ila — Víkings.
Þaö er grundvallarregla í Evr-
ópukeppni aö leikiö er heima og
heiman — nema um annaö semjist
af hálfu liða, sem eigast viö og er
þaö vel þekkt aö liö „selji“ rétt sinn
til heimaleiks. Fyrir tæpum tveimur
árum fengu KR-ingar júgóslavn-
eskt liö hingaö upp í Evrópukeppni
i handknattleik og greiddu allan
kostnaö. Víkingar höföu samiö viö
Norðmennina um aö leika báöa
leikina hér á landi og höföu
skuldbundiö sig til aö greiöa
norska liöinu um 100 þúsund krón-
ur og auk þess allan dvalarkostnaö
hér á landi. Þannig tóku KR-ingar
og Víkingar áhættu — félögin tóku
á sig mikinn kostnaö. Og ástæöan
er einföld — forráöamenn félag-
anna töldu aö meö því ykjust
möguleikar þeirra á aö komast
áfram i keppninni.
Úrskuröur IHF er gróf mismun-
un — hann er óíþróttamannslegur
og eykur möguleika norska liösins
á aö komast áfram. Hann er
móögun viö islenzka íþróttahreyf-
ingu. Þá gengur IHF á skjön viö þá
meginreglu sambandsins, aö
gestgjafar greiöi allan kostnaö af
dvöl gesta sinna. Víkingum er gert
aö greiöa hótelkostnaö í Noregi —
í Osló, dýrustu höfuöborg Evrópu.
Hagsmunir íslenzka félagsins eru
fyrir borö bornir á grófan hátt. Vík-
ingar veröa aö bera þungan fjár-
hagslegan bagga af för sinni á
meðan norska liöiö hefur allt sitt á
þurru. I viötali viö Mbl. á laugar-
dag, sagöi Svíinn Kurt Wadmark,
sem sæti á í stjórn IHF og undirrit-
aói úrskurö sambandsins, aó
norska liöiö væri fjárhagslega illa
stætt meö litla íþróttahöll og hefói
þvi ekki bolmagn til aö greiöa
meira af kostnaöi viö för Víkings
en raun ber vitni. Þaö er rétt eins
og maöurinn haldi aö íslenzk
íþróttafélög vaöi í peningum og
muni ekkert um 200 þúsund krón-
ur.
Þegar Ijóst var aö Víkingur
mætti norska liöinu Fjeldhammer,
ákvaö stjórn handknattleiksdeildar
aö freista þess aö fá báöa leikina
leikna hér heima. Aö greiöa norska
liöinu um 100 þúsund krónur og
auk þess bera allan kostnaö af
dvöl þeirra hér. Norömenn féllust
strax á þetta, því þar meö var Ijóst
aó félagiö bæri ekki tap af þátt-
töku sinni. Síöan skall á verkfall
BSRB — Víkingar reyndu að fá
borgaryfirvöld til aö sækja um
undanþágu fyrir Laugardalshöll, en
því var hafnaö. Því varö aö fresta
leikjunum og IHF geröi þaö.
í framhaldi af því hófust samn-
ingaviöræöur. Stjórn handknatt-
leiksdeildar Víkings hækkaöi til-
boö sitt til Norðmanna um aö leika
báöa leikina hér. Bauö 30 þúsund
norskar krónur og uppihald. Bauö
einnig aö leika báöa leikina i Nor-
egi og þá gegn sams konar
skuldbindingum Norömanna.
Stjórn handknattleiksdeildar Vík-
ings lagði einnig til aö leikiö yröi
heima og heiman og baö Norö-
menn aö nefna leikdaga.
Forráöamenn Fjeldhammer
vildu í engu semja - þeir sögöu aö
bezt væri aö láta IHF úrskurða um
leikina. Og IHF úrskuröaöi á miö-
vikudag í síöustu viku um aö leik-
irnir færu fram í Reykjavík og Osló.
Þessu mótmæltu Norömenn og
báru viö vinnutapi leikmanna. Þaó
var eins og viö manninn mælt. IHF
endurskoöaöi afstööu sína og úr-
skurðaði aö leikiö skyldi i Osló í
þessari viku og auk þess var Vík-
ingum gert aö greiða hótelkostnaö
sinn.
Þessi úrskuröur á sér ekki for-
dæmi. Hann er fjárhagslega og
íþróttalega ósanngjarn. Víkingi er
gert aö leika báöa leikina í Noregi,
sem þýöir aö möguleikar norska
liösins á aö komast áfram aukast
mjög. Þetta brýtur í bága viö reglur
IHF um að leikiö skuli heima og
heiman í Evrópukeppni. Víkingum
er gert aö greiöa hótelkostnaö.
Þaö brýtur einnig í bága viö reglur
IHF, sem kveöa á um aö gestgjafar
skuli greiöa kostnaö af dvöl gesta
sinna.
IHF tók til greina rök Norö-
manna um aö leikmenn þeirra yröu
fyrir tveggja daga vinnutapi. Meö
fyrri úrskuröi sínum heföi vinnutap
leikmanna oröiö jafnt — þaö er
leikmenn Víkings heföu oröiö fyrir
tveggja daga vinnutapi, jafnt og
leikmenn norska liðsins. IHF upp á
eigin spýtur ákvaö aö leikmenn
Víkings veröi fyrir fjögurra daga
vinnutapi. Þaö er rétt eins og þess-
ir háu herrar telji aö íslendingar
vinni ekki neitt — aö þeir haldi aö
viö gerum ekki annaö en aö vera í
verkfalli.
íþróttasamband islands á aö
mótmæla þessum gerræöislegu
vinnubrögöum IHF — á aö beita
sér þegar hagsmunir íslenzkra fé-
laga eru svo gróflega fyrir borö
bornir. Handknattleikssamband
íslands hefur beitt sér mjög í þessu
máli og krafiö IHF skýringa og aö
ákvöröun sambandsins veröi aft-
urkölluö. HSÍ mótmælti þessum
vinnubrögöum harölega og mun
taka þetta mál upp á þingi IHF.
Mótmæli HSÍ uröu til þess aó IHF
— sem greinilega skammast sín,
beindi þeim tilmælum „kröftug-
lega“ til Norömanna um að þeir
auki verulega greiöslur sínar til
Víkinga vegna j^ess kostnaöar sem
félagiö þarf aö bera. En forráða-
menn Víkings binda ekki miklar
vonir viö aö Norömenn láti mikiö
af hendi rakna þrátt fyrir „kröftug-
leg“ tilmæli IHF.
Víkingar hafa ekki svo góóa
reynslu af forráöamönnum norska
liösins. Þaö er Ijóst aó hverju þeir
stefndu — í fyrsta lagi aö fá báöa
leikina til Noregs án þess aö bera
mikinn kostnaö og í ööru lagi aö
Víkingur drægi sig úr keppni, eöa
yröi úrskuröaö úr keppni. Þeir
sýndu þaö þegar þeir í engu sinntu
tilmælum Víkings um samkomulag
um leikdaga eftir aö IHF frestaöi
leikjunum.
Forráöamenn norska liösins
hafa greinilega treyst fulltrúum
Noröurlanda í stjórn IHF til þess aö
úrskuröa sér í hag. Og þessir full-
trúar Noröurlanda brugöust ekki
vonum þeirra. Kurt Wadmark, sem
áöur hefur komiö viö sögu hjá ís-
lenzkum handknattleik, skrifaöi
undir skeytiö þar sem afarkostirnir
voru settir fram — þess efnis aö
leikirnir fari fram í Osló. Hagsmunir
Víkings voru settir til hliöar —
hagsmunir norska liösins settir í
öndvegi.
Mönnum er enn í fersku minni
þegar Kurt Wadmark beitti sér
fyrir því aö Víkingur var dæmdur
úr leik eftir aö hafa slegiö út
sænska liðiö Ystad í Evrópu-
keppni. Ummæli hans frá þessum
árum bera merki um hroka og fít-
ilsviröingu í garö íslendinga. Þá var
haft eftir honum í íslenzkum fjöl-
miölum: „Ég þekki til islendinga.
Þú þarft ekkert aö segja mér —
þeir hafa áöur oröiö til vandræöa
víöa um Evrópu." Þá eins og nú
var norræn samvinna um aö setja
íslenzka hagsmuni til hliðar. Meö-
dómandi Wadmark þá var Carl
Wang frá Noregi. Leikmenn Ystad
lýstu furöu sinni meö dóm þessara
herra á sínum tíma, enda kæröu
þeir ekki heldur var þaö Wadmark
sjálfur sem tók máliö upp og
kæröi. Fordómar hans í garö ís-
lendinga ættu aö vera öllum Ijósir.
„Norrænir vinir" hafa enn vegiö í
sama knérunn. Fyrir sex árum voru
þaö Norðrnaöur og Svíi, sem felldu
dóm sem ekki á sér fordæmi. Nú
beita forráöamenn norska liösins
Fjeldhammer sér fyrir því aö okkar
hagsmunir séu settir til hliöar —
aö á okkar rétt er gengið og fá til
liös viö sig sænskan stjórnarmann
í IHF, en sambandiö haföi faliö
honum umsjón meö leikjunum.
Menn guma mjög af norrænni
samvinnu — í veizlum lyfta menn
glösum, halda fagrar ræöur um
menningararfleifð íslendinga —
um fornbókmenntir islendinga,
sem hafi átt stærstan þátt í aö
varðveita glæsta sögu norrænna
þjóöa — síöan er skálaö og okkur
klappaö á kollinn. Viö erum nokk-
urs konar stofustáss til aö minnast
þegar menn skála. Lengra nær
velviljinn ekki hjá svo mörgum —
því miöur.
Guðmundur kjörinn
leikmaður Fram 1984
Guömundur Steinsson með viöurkenningarnar sem hann hlaut í
hófinu um helgina.
GUDMUNDUR Steinsson var
kjörinn knattspyrnumaöur árs-
ins hjé Fram í sumar. Lokahóf
fólagsins var haldið um helgina
— og hlaut Guömundur þá
styttu vegna kjörsins, og auk
þess fær hann helgarferð til
London frá Samvinnuferöum-
Landsýn.
Guömundur fékk einnig viöur-
kenningu fyrir aó hafa leikiö 100
leiki með Fram — svo og Sverrir
Einarsson. Þá fékk Trausti Har-
aldsson viöurkenningu fyrir 200
leiki.
Einnig voru valdir leikmenn
yngri flokkanna:
2. fl.: Jónas Guöjónsson
3. fl.: Þórhallur Víkingsson
4. fl.: Arnar Sigtryggsson
5. fl.: Guðmundur Gíslason
6. fl.: Sigurgeir Kristjánsson
Kvennafl.: Katla Kristjánsdóttir.
Framfarabikar Fram hlaut
Andri Laxdal, leikmaöur 2.
flokks. Arnljótur Davíösson, 3.
flokki, var markakóngur Fram —
skoraöi 27 mörk í sumar.
Dómari ársins hjá Fram var
valinn Ólafur Sveinsson. Þá fékk
Sverrir Einarsson viöurkenningu
fyrir bestu æfingasókn í meist-
araflokki.