Morgunblaðið - 07.11.1984, Síða 64
ETTT KORT ALLS SIAÐAR
MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1984
Samningar ASÍ og VSÍ undirritaðir í gær:
Samið um 24% hækkun
launa til loka næsta árs
Tvöfalda launakerfið afnumið, uppsagnarheimild 1. september
NÝR kjarasamningur milii aðildar-
félaga Alþýóusambands íslands og
Vinnuveitendasambands íslands var
undirritaóur í húsakynnum VSf kl.
rúmlega 18 í gær, en þá hafói samn-
ingafundur staðió samtals í um 32
klukkustundir, eóa frí því kl. 10 í
fyrramorgun. Samningurinn gerir
ráó fyrir um 24% hækkunum launa
yfir samningslímabilió aó meóaltali.
I*á veróur unnt meó samningunum
að afnema tvöfalda launakerfið í
maímánuóí nk. Samningurinn gildir
út na-sta ár frá undirskriftardegi.
Ákvæói er um aó fulltrúar ASÍ og
VSÍ skuli hefja vióræóur um mögu
lefa framlengingu samningsins fyrir
aprfllok 1985 og náist ekki sam-
komulag um framlcngingu fyrir 25.
júní verói launaliðir samningsins
lausir frá og meó 1. september.
Verzlunarmannafélat; Reykja-
víkur var ekki aðili að samningn-
im or hefur félatrið óskað eftir
sérstökum viðræðum við VSÍ fyrir
hönd Apótekarafélat;s fslands um
sérsamnint?a fyrir lyfjatækna.
Magnús L. Sveinsson formaður
VR sagði, að þeir vildu að sjálf-
sögðu ekki vera bundnir af þessum
samningum fyrr en á það hefði
reynt, hvort apótekarar meintu
eitthvað með því, sem þeir hefðu
gefið í skyn, þess efnis að þeir séu
reiðubúnir að semja um eitthvað
umfram þessa samninga fyrir
lyfjatækna.
Samkvæmt samningunum verð-
ur hækkun á taxtavísitölu ASf
12,9% við undirritun, 4,8% 1. jan.
nk., 2,3% 1. mars og 2,3% 1. maí.
Uppsafnað gerir þetta 23,9%, en
hækkun frá upphafi til meðaltals
21,9%. Hækkun á almennum laun-
um, þ.e. án lágmarkstekna og bón-
usvinnu í fiskvinnslu, er 12,9% við
undirritun, 5,0% 1. janúar, 2,4% 1.
mars og 2,4% 1. maí. Samtals er
þetta 24,3% uppsafnað, en frá
upphafi til meðaltals 21,4%.
Nokkuð er um tilfærslur í launa-
flokkum og innan starfsaldurs-
flokka og verða til dæmis tveir
neðstu flokkarnir strax skornir
neðan af, þ.e. 9. og 10. flokkur og
aðrir flokkar færðir upp um einn.
Reiknað var með að til undirrit-
unar samninganna gæti komið
laust eftir kl. 14 í gær, en vegna
innabyrðis deilna innan ASÍ dróst
undirritunin til kl. 18. Skarst í
odda með ASÍ mönnum vegna
ákvæða í samningnum um að að-
ildarfélög ASÍ skuli standa sam-
einuð að endurskoðun samning-
anna og ákvörðun um framleng-
ingu eða uppsögn. Aðildarfélögin
hafa nú sjálf ákvörðunarrétt um
uppsagnir sinna samninga og
vildu margir að ekki kæmi til
breytinga á því. Niðurstaða um-
ræðnanna í gær var sú, að bíða
með frekari viðræður og ákvörðun
um málið þar til ný miðstjórn hef-
ur verið kjörin á Alþýðusam-
bandsþingi síðar í mánuðinum.
Það kemur fram í viðtölum við
samningamenn ASÍ og VSÍ í blað-
inu í dag, að þeir óttast að samn-
ingarnir séu verðbólguhvetjandi
og geti kallað á gengisbreytingar.
Þá kemur fram í viðtali við Guð-
mund J. Guðmundsson, formann
Dagsbrúnar og Verkamannasam-
bandsins, að yfirlýsing hafi borist
á lokafund samningsaðila, um að í
samráði við heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra staðfesti forsætis-
ráðherra, að fyrirhugað sé að
hækka ellilífeyri, atvinnuleysis-
bætur og lífeyrissjóðsgreiðslur í
samræmi við umsamdar
kauphækkanir.
Sjá samninginn ASÍ og VSÍ í heild
á bls. 36 og viótöl vió forustumenn
ASÍ og VSl á bls. 4 og 5.
Morgunblaðið/Olafur K. Magnúsaon.
Aóilar takast í hendur aó lokinni undirskrift síódegis í gær, frá vinstri: Björn Þórhallsson, Ásmundur Stefánsson, Páll Sigurjónsson, Magnús Gunnarsson og
Haraldur Sveinsson.
Rætt um breytingar á ríkisstjóminni:
Hugmynd um stjórnarþátt-
töku Alþýðuflokks hafnaö
STAÐA ríkisstjórnarinnar, í Ijósi
þeirra atburða sem gerst hafa og eft-
ir aó samningar tókust um kaup og
kjör, hefur verió töluvert til umræóu
meóal forystumanna stjórnarflokk-
anna, ráóherra og þingmanna. Hefur
þaó meðal annars verió lauslega
rætt hvort hugsanlegt sé aó Fram-
sóknarflokkur og Sjálfstæóisflokkur
hefji stjórnarsamstarf vió Alþýóu-
flokkinn.
Morgunblaðinu er um það kunn-
ugt að um helgina var það rætt
meðal forystumanna Sjálfstæð-
islfokksins, hvort samstarf stjórn-
arflokkanna við Alþýðuflokkinn
væri fýsilegur kostur. Niðurstað-
an al peim umræðum var sú, að
svo væri ekki. Hins vegar eru uppi
raddir um það innan Sjálfstæðis-
flokksins og í þingflokki hans nú
eins og áður, að breytingar verði á
ríkisstjórninni meðal annars á
þann veg að skipt verði um menn í
ráðherraembættum.
A fundum framsóknarmanna
víðsvegar um land og í blaði þeirra
NT hefur undanfarið verið látið að
því liggja, að nauðsynlegt sé að
gera breytingu á ríkisstjórninni
eftir þau átök sem orðið hafa á
vettvangi stjórnmálanna. Stein-
grímur Hermannsson, forsætis-
ráðherra, hefur látið í Ijós áhuga'á
að breytingar verði á ríkisstjórn-
inni bæði að því er skipan manna i
einstök ráðherraembætti varðar
og einnig hitt hvaða menn eigi þar
sæti.
Innan raða sjálfstæðismanna
hníga umræður einnig í þá átt að
stöðu stjórnarinnar þurfi að
styrkja með breytingum á henni.
Engar ákveðnar hugmyndir hafa
komið fram með hvaða hætti það
verði gert. Leitað hefur verið álits
forystumanna í Alþýðuflokknum á
þvi, hvort þeir hefðu hug á stjórn-
arsetu. Hefur þetta verið gert með
þá röksemd að leiðarljósi, að
nauðsynlegt sé fyrir ríkisstjórnina
að styrkja sig meðal áhrifaaðila í
verkalýðshreyfingunni.
Alþýðuflokkurinn býr sig nú
undir flokksþing. Þar verða uppi
raddir um að flokkurinn eigi að
snúa sér til vinstri og sigla eins
nærri Alþýðubandalaginu og frek-
ast er unnt. Ekki eru þó allir á
þeirri skoðun. Sumir telja, að
flokkurinn ætti, gæfist honum
tækifæri, að eiga samstarf við
Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn-
arflokkinn. Þó er ekki líklegt að
bein tillaga um það komi fram á
flokksþinginu, því að þær lauslegu
umræður og athuganir sem fram
hafa farið um slíkt samstarf
benda til að það sé ekki i mynd-
inni.
OPIÐ ALLA DAGA FRA
KL. 11.45-23.30
AUSTURSTRÆTI 22
INNSTRÆTl, SlMI 11633
___________\________
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Morgunblaftið/G.Berg.
Skógarhögg
í Vaðlareit
Akureyri, 6. nóvember.
í gær hófst skógarhögg í Vaóla-
reit, 50 ára gömlum skógarreit,
sem Skógræktarfélag Eyflróinga
hefur haft á leigu hjá bændum
austan Akureyrar. Ástæða þess aó
þarna er nú haflð allstórfellt skóg-
arhögg, er sú að einmitt um þenn-
an reit á hinn nýi Vaólavegur, frá
Akureyri austur um Leirur, að
liggja frá sjó og norður Vaólaheiði
þar til hann tengist Svalbarós-
strandarveginum.
Samkvæmt upplýsingum
Guðmundar Svafarssonar hjá
Vegagerð ríkisins á Akureyri, er
frestur til að skila tilboðum í
þennan áfanga Leiruvegarins til
19. nóvember. Er þar um að
ræða vegarlögn frá enda 1.
áfanga og upp á Svalbarðs-
strandarveg, alls um 2.680
metra, af því eru um 1.700 metr-
ar innan Vaðlareits Skógrækt-
arfélagsins. Samkomulag var á
sínum tíma gert við Skógrækt-
arfélagið og bændur um bætur
vegna landsins og trjágróðurs,
sem fella verður og námu þær
samtals einni og hálfri milljón.
Það eru starfsmenn Skóg-
ræktarfélagsins sem vinna að
skógarhögginu þarna, en félagið
fór fram á að fá að sjá um
verkið til þess að tryggt væri að
ekki væri meira höggvið en
nauðsyn ber til. GBerg
Þorskafli mið-
ist við 350
þúsund lestir
Á FISKIÞINGI í gær kom fram
hugmynd um flskveiðiáætlun til
flmm ára í senn og yrói þá mióað vió
350.000 lesta þorskafla með 10%frá-
viki ár hvert. Afli annarra botnlægra
tegunda yrói þá mióaður við 300.000
lestir og loónuafli vió 660.000 lestir.
Þá yrói aflamarkió lagt niður vió
stjórnun flskveióa.
Hugmyndir þessar komu fram í
framsögu varafiskimálastjóra,
Jóns Páls Halldórssonar, um
stjórnun fiskveiða. Mjög skiptar
skoðanir voru á þinginu um þessar
hugmyndir en rætt var um þrjár
leiðir, sem helztu kosti við stjórn-
un veiðanna á næsta ári; afla-
mark, sóknarmark og tegunda-
mark (skrapdagakerfið).
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri LIÚ, segir í samtali
við Morgunblaðiö í dag, að verði
þorskaflinn dreginn saman um
57.000 lestir, þýði það tekjuskerð-
ingu sem nemi 855 milljónum
króna miðað við afla upp úr sjó og
1,7 milljarð miöað við útflutn-
ingstekjur.
Sjá nánar erindi Jóns Páls Hall-
dórssonar á bls. 22 og 23, viótal
vió Kristján Ragnarsson á bls. 2
og fréttir af Fiskiþingi á bls. 34.