Morgunblaðið - 22.11.1984, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984
Punktar frá bæjarstjórn Akureyrar
AkBreyri, 21. aéTenber.
Slæm greiAslustaða bæjarsjóðs
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar
í gær var lagt fram reikningsyfirlit
bæjarsjóðs f októberlok. Eru niður-
stöðutölur á yfirlitinu kr.
657.963.786.-. Fram kom í máli bæj-
arritara, Valgarðs Baldvinssonar,
að innheimtur gjalda til sjóðsins
eru nú um 4,5% lakari en á sama
tíma í fyrra. Sérstaklega eru það
fyrirtæki í bænum sem lakar
standa í skilum nú. Þetta veldur þvf
að bæjarsjóður safnar nú lausa-
skuldum og námu þær f lok október
alls um 22 millj. kr.
Svipað atvinnuleysi
Hinn 31. október sl. voru 82
skráðir atvinnulausir á Akureyri,
’ 52 karlar og 30 konur. Skráðir voru
1200 heilir atvinnuleysisdagar f
mánuðinum, sem svarar til þess að
52 hafi verið án atvinnu allan mán-
uðinn. t sept. voru skráðir atvinnu-
lausir 83,32 karla og 51 kona. Þess
má geta, að í október í fyrra voru
skráðir atvinnulausir á Akureyri
129.
Forsendur fjárhagsáætlunar 1985
Hagsýslustjóri hefur lagt fram
tillögur sfnar að forsendum við gerð
fjárhagsáætlunar fyrir bæjarsjóð á
árinu 1985. Bæjarráð hefur sam-
þykkt forsendurnar, þó með þeim
fyrirvara, að taka verði mið af
væntanlegum efnahagsaðgerðum
ríkisstjórnarinnar. 1 tillögum hag-
sýslustjóra er gert ráð fyrir að laun
hækki um 10—12% frá nóvember-
launum á þessu ári og að meðalverð
vöru og þjónustu hækki um 25%.
Lód undir kvikmyndahús
Kvikmyndagerðarfyrirtækið
Nýtt líf sf. hefur sótt um lóð undir
kvikmyndahús sem það hyggst
reisa og reka á Akureyri. Sótti
fyrirtækið um 1500 fermetra lóð á
horni Kaupvangsstrætis og Drottn-
ingarbrautar. Bæjarráð og bæjar-
stjórn hafa fyrir sitt leyti sam-
þykkt úthlutun umræddrar lóðar til
fyrirtækisin8 og hefur falið bygg-
inganefnd afgreiðslu málsins.
Bygginganefnd samþykkti sfðan að
veita umsækjendum vilyrði fyrir
umræddri lóð, en endanleg lóðar-
veiting getur ekki farið fram fyrr
en gengið hefur verið frá bygginga-
og skipulagsskilmálum.
Lciktækjasalir enn á dagskrá
Rekstur leiktækjasala komst
óvart á dagskrá bæjarstjórnar einn
ganginn enn, þegar bæjarstjórn
fékk til meðferðar umsókn Bjarka
Tryggvasonar um nætursöluleyfi
um söluop í leiktækjasal við
Strandgötu 6. Þegar málið var til
afgreiðslu i bæjarstjórn vakti Val-
gerður Bjarnadóttir athygli á því að
þrátt fyrir að nær eitt ár væri liðið
frá þvf bæjarstjórn samþykkti ýt-
arlegar reglur um rekstur slfkra
staöa, væru enn þrjár leiktækja-
stofur reknar í bænum, allar án til-
skilinna leyfa. Bar Valgerður síðan
fram tillögu, ásamt Sigríði Stef-
ánsdóttur og Úlfhildi Rögnvalds-
dóttur þess efnis að bæjarfógeta
yrði fyrirskipað að loka þegar í stað
þessum leiktækjastofum. I máli
Sigurðar J. Sigurðssonar, bæjar-
fulltrúa, kom fram, að allar þessar
stofur hafa sótt um leyfi til rekstr-
arins, en yfirstjórn Akureyrarbæj-
ar hefði enn ekki gefið sér tfma til
að ganga frá samningum við stof-
urnar. Valgerður vildi samt láta
loka og dró ekki tillögu sfna til
baka, fyrr en Jón Sigurðarson (F)
hét henni stuðningi við tillöguna að
hálfum mánuði liðnum, á næsta
bæjarstjórnarfundi, ef yfirvöld
bæjarins hefðu þá ekki gengið frá
málum við eigendur.
GBerg
Rikshaw í Safarí
FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 22. nóvember, heldur hljómsveitin
Rikshaw opnunartónleika sína í veitingahúsinu Safari við Skúla-
götu. Tónlist þeirra flokkast undir nýbylgju og er öll frumsamin.
Hljómsveitina skipa: Sigurður Hannesson trommur, Dagur Hilm-
arsson bassi, Richard Scobie söngur og hljómborð, Sigurður Grön-
dal gítar og Ingólfur Guðjónsson hljómborð. Húsið verður opnað kl.
22.00.
Das Kapital á Hótel Borg
FIMMTUDAGINN 22. nóvember
verða tónleikar á Hótel Borg.
Hljómsveitin Das Kapital mun
þar kynna efni af nýrri plötu sinni
sem kemur út um helgina.
Hljómsveitin Das Kapital var
stofnuð sl. sumar og hana skipa
þeir Bubbi Morthens sem syng-
ur og spilar á gítar, Mike Poll-
ock á gítar, Jakob Magnússon á
bassa, Guðmundur Gunnarsson
á trommur og Jens Hansson á
saxófón.
Bubbi Morthens er flestum
kunnur eftir að hafa verið í
Utangarðsmönnum og síðar
hljómsveitinni Egó. Mike Poll-
ock var einnig í Utangarðs-
mönnum á sínum tfma og hefur
spilað með hinum ýmsu
hljómsveitum t.d. Bodies,
Frökkum og Baðvörðum. Þeir
Jakob og Guðmundur eru fyrr-
verandi meðlimir í Tappa Tík-
arassi. Jens Hansson var
upphaflega aðstoðarmaður á
plötunni en gerðist síðan fastur
liðsmaður hljómsveitarinnar.
Plata Das Kapital ber heitið
Lili Marlene og á henni er fjöl-
breytt efni allt frá rómantísk-
um söngvum til sterkra ádeilu-
texta. Það er Grammið sem sér
um útgáfuna.
Ennfremur er væntanlegt
blað frá Das Kapital sem inni-
heldur efni frá þeim félögum. í
blaði þessu er einnig tekin fyrir
málefni sem hafa haft áhrif á
lagasmíðar þeirra.
(FrétUtilkynning)
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Ráöstefna um íþrótta- og
æskulýösmál
varöur haldin í Valhöll, laugardaginn 24. nóvambar og hafat kl.
10—17.
A dagakrá ar
Satning: Júlíus Hafstein formaöur.
ÆakulýöamAI: Ömar Bnarsson framkvæmdast(órl æskulýösráös Rvfk.
fþróttamál: Hermann Slgtryggsson íþróttafulltrúi Akureyri.
fþrótta- og arakulýóaatarl f landafjóróungum: Dóra Gunnarsdóttlr
Fáskrúösfiröi. Asdis Jónsdóttir Gefdingaholti og Jóhannes Finnur
Halldórsson Akranesi.
Vðm gagn áfangi og ffkniafnum: Séra Blrgir Asgeirsson Mosfellssveit.
Hédagtavaróur Avarp hr. Albert Guömundsson fjármálaráöherra.
Hvaó ar aó garaat f ráóunaytinu: Reynir Karlsson íþróttafulltrúi rfkisins.
Hópvinna. Niöurstööur umræöna.
Kafflhlá.
Ahnannar umræöur.
Ráóatafnualft.
Ráóatafnuatjórf ar HHmar Guólaugaaon borgarfulltrúi.
Suöurlandskjördæmi
Aöalfundur kjördæmisráös Sjálfstæölsflokkslns f Suöurlandskjör-
dæmi veröur haldinn á Hellu laugardaginn 24. nóvember kl. 13.00 f
Hellubfói. Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Avörp alþingismanna: Þorsteinn Pálsson
formaöur Sjálfstæöisflokksins, Arnl John-
sen, Fggert Haukdal.
3. Kynníg á hugmyndum aö breyttum próf-
kjörsreglum. Framsögumaöur: Friörik
Friöriksson framkvæmdastjóri þingflokks
sjálfstæöismanna.
4. Almennar umræöur.
Aö fundinum loknum veröur opiö hús i Hellu-
bfói fyrir sjálfstæöisfólk.
Sjálfsfæðisfélg Akureyrar
— Aðalfundur
Aöalfundur veröur haldinn fimmtudaglnn 22. nóvember 1984 kl.
20.30 f húsnæöi flokksins aö Kaupangi.
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf.
Breytingar á lögum félagsins.
Samskipti og mætingar nefndarmanna á vegum Akureyrarbæjar á
fundum Sjálfstæöisfélagsins.
önnur mál.
Fétagsmenn eru hvattir til aö fjölmenna á fundlnn.
Sljórnin.
Keflavík
Heimir, FUS. heldur almennan félagsfund í sjálfstæöishúsinu fimmtu-
daginn 22. nóvember kl. 20.30. Fundarefnl:
1. Kynning á störfum bæjarstjórnar. Framsögu hefur Hjörtur Zakarf-
asson bæjarfulltrúi.
2. Umræöur um nefndarstörf. Fulltrúar Heimis i nefndum og ráöum á
vegum bæjarins stýra umræöuhópum.
Ungt sjálfstæöisfólk sem vill kynnast störfum okkar i bæjarmálum er
hvatt til þátttöku.
St/órnln.
Fulltrúaráð Mýrasýslu
Aöalfundur fulltrúaráöslns veröur haldlnn fimmtudaginn 22. nóvem-
ber kl. 21.00 f sjálfstæöishúsinu Borgarnesi.
Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Hreppsnefndarmennirnir Gfsli Kjartansson og
Jóhann Kjartansson skýra frá hreppsmálum f
Borgarnesi.
3. Önnur mál.
Stjórnln.
Aðalfundur
Fulltrúaráös Sjálfstæöisfélaganna á Akureyri veröur haldinn í Kaup-
angi laugardaginn 24. nóvember kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Ræöa: Halldór Blöndal alþinglsmaöur.
3. Önnur mál.
Stjómin.