Morgunblaðið - 25.11.1984, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984
Léttu
Tónlist
Egill Friöleifsson
Háskólmbíó 22. nóvember 1984.
Flytjandi: Sinfóníuhljómsveit Is-
Imnds.
Stjórnandi: Robert Henderson.
Einsöngvari: Thomas Carey.
Efnisskri: Þættir úr bandarískum
söngleikjum.
Og þá var komið að aukatón-
leikunum, árvissum atburði, þar
sem slegið er á hina svokölluðu
léttu strengi. Það var hress
Bandaríkjamaður, Robert Hend-
erson að nafni, sem stjórnaði
hljómsveitinni okkar með vest-
urheimskum tilþrifum. Hann
hafði fengið til liðs við sig þeld-
ökkan landa sinn, söngvarann
Thomas Carey, og sameiginlega
glöddu þeir hjörtu söngleikj-
aunnenda með list sinni i Há-
skólabíói sl. fimmtudagskvöld.
Aukatónleikarnir hafa alltaf
nokkra sérstöðu í starfi hljóm-
sveitarinnar. Þá sækja fólk, sem
sjást ekki i annan tima og með
því næst til breiðari áheyrenda-
hóps. Þörfum fleiri er sinnt og
hljómsveitin er nær því að vera
„hljómsveitin okkar“. Þrátt fyrir
stefnuræðu háttvirts forsætis-
ráðherra, beina útsendingu í
sjónvarpinu og mótmælastöðu
svekktra launþega, létu áheyr-
endur ekki á sér standa. Húsið
var næstum fullsetið og
strengirnir
stemmning ágæt. Þannig á það
að vera.
Tónleikarnir hófust með lif-
seigum slögurum úr „My Fair
Lady“ og rak síðan hvert atríði
annað við góðar undirtektir
viðstaddra. Stjórnandi var sem
fyrr segir Robert Henderson og
reyndist hann vel liðtækur.
Hann féll þó i sama pyttinn og
flestir aðrir. Hljómsveitin lék
oftast of sterkt þegar einsöngv-
arinn hóf upp raust sína. Thom-
as Carey hefur volduga, fallega
rödd og beitti henni af myndug-
leik. Hann verður ekki sakaður
um lélegan hljómburð eða til-
litsleysi stjórnandans. Eöa hve
margir heyrðu almennilega hið
fallega lag Cole Porters „Begin
the Beguine"? Ástæðan var of
sterkur leikur hljómsveitarinn-
ar. Af hverju gekk betur í „I Got
Plenty of Nothing" eftir Ger-
shwin? Ástæðan er sú, að hljóm-
sveitarútsetningin er þannig að
röddin nýtur sín (strengirnir
geta ekki spilað sterkt pizzicato).
Ekki veit ég hversu oft hefur
verið hamrað á þessum gegnum-
gangandi galla hér á síðum
Morgunblaðsins. Að minnsta
kosti er aldrei tekið hið minnsta
tillit til þess. Sennilega eru þess-
ir pistlar rödd hrópandans f
eyðimörkinni. Ég ætla samt að
benda Sigurði Björnssyni á lftið
ráð. Næst, þegar stjórnandi
vinnur með söngvara, gefðu hon-
um þá tækifæri smá stund til að
Robert Henderson
setjast f sæti 22 á 12. bekk, og
láttu einhvern annan leiða
hljómsveitina á meðan. Spurðu
hann svo hvað hann heyri (frá
því sjónarhorni skyggir stjórn-
andinn á söngvarann svo ekki er
einu sinni hægt að lesa af vörum
hans). Hluturinn er nefnilega sá,
að áheyrandinn, sem greitt hef-
ur kr. 400 fyrir miðann sinn, á
heimtingu á að heyra hvað fram
fer á sviðinu. Stjórnandi, sem
ekki skilur þetta, er ekki starfi
sínu vaxinn. Og af hverju voru
skermarnir teknir frá baksvið-
inu á sínum tfma? Þeir voru til
bóta. Þess vegna voru þeir settir
upp. Voru þeir teknir frá til að
hljómurinn gæti óhindrað leikið
um plasthimin og plasttjaldið og
þaðan á plastdúkinn i salnum?
Hvernig væri þá að kaupa plast-
fiðlur handa bandinu til að hafa
nú allt í stíl? Thomas Carey átti
f erfiðleikum með salinn. Það er
von. Það eiga allir í erfiðleikum f
þessum sal. Við þurfum nýjan
sal, nýtt hús — Hús tónlistar-
innar — og það sem fyrst. Við
þurfum öll að leggjast á eitt með
að gera þann draum að veru-
leika. Frammi f anddyrinu lá
fréttabréf frá samtökum um
byggingu tónlistarhúss. Þetta
eru fjölmenn samtök. Hér með
er skorað á alla tónlistarmenn,
og þá ekki sfst meðlimi Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, að ganga
til liðs við samtökin og sýna í
verki hug sinn til þessa nauð-
synjamáls. í dag eru aðstæður
erfiðar. En hvað sagði Gershwin
á tónleikunum „It Ain’t Necess-
arily So“. Getum við ekki verið
sammála þvi? Lagið er gott,
hugmyndin enn betri.
Háskólafyr-
irlestrar um
skjalasöfn
Páfagarðs
SÉRA Frank E. Bullivant heldur
tvo fyrirlestra við Háskóla íslands í
boði Árnastofnunar og guðfræði-
deildar Háskólans, miðvikudaginn
28. og fimmtudaginn 29. nóvember.
Báðir fyrirlestrarnir munu fjalla um
skjalasöfn Páfagarðs. Hinn fyrri
verður almennur yfírlitslestur um
söfnin, en hinn síðari um rannsókn-
ir íslenskra heimilda sem þar er að
finna.
Séra Bullivant er mörgum
kunnur hér á landi. Að loknu
meistaraprófi f fornensku og ger-
mönskum málum dvaldist hann
hér árlangt og nam fslensku við
Háskólann. Síðan var hann um
skeið háskólakennari í heimalandi
sínu, en hóf þá prestnám og var
vígður f Rómaborg árið 1967.
Hann starfar á vegum alþjóðlegr-
ar trúboðsreglu, OMI, sem kennd
er við hina flekklausu Guðsmóður,
og hefur verið sendur á vegum
hennar viða um lönd, en haft aðal-
aðsetur í Róm. Hann er mikill vin-
ur íslenskra fræða og hefur dval-
ist hér f orlofum sinum við rann-
sóknir f Árnastofnun, en f skjala-
söfnum Páfagarðs hefur hann
grafið upp skjöl varðandi ísland
frá miðöldum.
Fyrirlestrarnir verða fluttir á
ensku og er öllum heimill aðgang-
ur.
(Fréttatilkynning)
skre
ðriivis
Við eigum allt efni í
aðventukransinn.
Lítið inn og fylgist
með réttum hand-
brögðum við gerð
aðventuskreytinga.
Helgartilboð:
Jólastjarna frá kr. 175
PARKET
Nýtt Nýtt
Einu sinni enn er Tarkett-parket í far-
arbroddi í parket-framleiöslu.
• Á markaðinn er nú komið parket með
nýrri lakkáferö, sem er þrisvar sinnum
endingarbetri en venjulegt lakk.
• Veitir helmingi betri endingu gegn risp-
um en venjulegt lakk.
• Gefur skýrari og fallegri áferð.
• Betra í öllu viöhaldi.
• Komið og kynnið ykkur þessa nýju og
glæsilegu framleiöslu frá Tarkett.
• Alger bylting á íslenska parket-markaö-
inum.
Harðviðarval hf.,
Skemmuvegi 40, Kópavogi,
sími 74111.