Morgunblaðið - 25.11.1984, Blaðsíða 1
U2SÍÐUR
SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vetrarleg veðurblíða
HorgunbUAiA/Júltus
Fyrir nokkrnm dögum tíndi strákhnokki nýútsprungna fffla rið Berg-
staðastnetid og úr Mýrdalnum bárust þær fréttir i vikunni ad þar hefði
húsfreyjan á einum bænum verið að taka upp gulrætur. Sannarlega
frábcrt veður og í takt við þá niðurstððu Hagvangskönnunar að íslend-
ingar séu öðrum þjóðum fremur í sólskinsskapi. — Tjarnarmyndin hérna
er enn ein sönnun blíðunnar sem við hér á suðvesturhorninu að minnsta
kosti höfum orðið aðnjótandL
„Byssukúlur, blóð og
ofbeldi“ ekki lausnin
232. tbl. 71. irg.
Farþega-
þotu rænt
Nairobi, Keojm, 24. ■órember. AP.
SÓMALÍSKRI farþegaþotu af gerð-
inni Boeing 707 var r*nt i dag á leið
frá Mogadishu í Sómalíu til Jeddah í
Saudi-Arabíu og snúið til Addis Ab-
aba, höfuðborgar Eþíópíu. Eru þessar
fréttir hafðar eftir breskum frétta-
manni, sem sá flugvélina lenda.
Að sðgn fréttamannsins, Mike
Wooldridge, umkringdu hermenn
vélina strax eftir lendingu en ekk-
ert er enn vitað um fjölda farþega
eða hverjir rændu henni. Yfirvöld í
Eþíópíu hafa ekkert látið frá sér
fara um málið á þessari stundu en
grunnt er á því góða með þeim og
stjórnvöldum i Sómalfu.
Uruguay;
Fyrstu kosn-
ingar í 13 ár
Montevídeo, 24. BAvember. AP.
GENGIÐ verður til kosninga i Uru-
guay í dag, fyrstu forseta- og þing-
kosninga i landinu í 13 ár, og munu
þær binda enda á herstjórn í landinu
sem haft hefur völdin í rúmlega 10 ár.
Kosningabaráttunni, sem lýst var
sem mjög fjölskrúðugri, lauk sam-
kvæmt landslögum á föstudagskvöld-
ið og herma fregnir að lítið eða ekk-
ert ofbeldi hafi fylgt benni, þvert á
móti hafi verið góður andi svífandi
yfir vötnum.
Tugir þúsunda landsmanna
flykktust út á götur. á föstudags-
kvöldið, veifuðu fánum og hrópuðu
slagorð. Allir níu forsetaframbjóð-
endurnir stóðu fyrir miklum úti-
fundum, þeir best sóttu voru hjá
Alberto Zumaran leiðtoga Þjóðar-
flokksins og Julio Sanguinetti leið-
toga Colorado-flokksins. Þeir hafa
mesta fylgið og búist er fastlega
við því að annar þeirri verði kjör-
inn forseti.
Auk þess að kjósa forseta munu
landsmenn kjósa varaforseta, 30
öldungadeildarþingmenn, 99 vara-
þingmenn og hundruð embætt-
ismanna af ýmsu tagi, m.a. sýslu-
menn yfir 19 sýslur landsins. Her-
stjórnin hefur samþykkt að hinir
nýju valdhafar muni taka sæti 1.
mars næstkomandi.
Su Sihidor, Muifu, 24. ■Aranber. AP.
JOSE Napoleon Duarte, forseti E1
Salvador, kvaðst í gær ekki sjá hilla
undir vopnahlé I landinu fyrr en
skæruliðar féllust á lýðræðislega
þátttöku í stjórnmálum landsins og
hættu að reyna að ná völdunum með
ofbeldi. í Managua í Nicaragua hefur
ritskoðun verid hert og hér eftir má
útvarpsstöð kirkjunnar ekki flytja
neitt efni, sem stjórnvöld hafa ekki
samþykkL
„Vopnahlé i landinu hlýtur að
verða síðasti áfanginn i samning-
um um frið,“ sagði Duarte, forseti,
á fréttamannafundi í San Salvador
í gær og bætti þvi við, að sér virt-
ust skæruliðar hafa mestan áhuga
á „byssukúlum, blóði og ofbeldi".
Sumir leiðtogar skæruliða, þeir,
sem kenna sig við kommúnisma,
segja skæruliðahreyfinguna vera
fulltrúa fyrir alþýðu manna í land-
inu og að þess vegna sé ekki ástæða
til að leyfa nema einn flokk og
fleiri flokkar óþarfir. Þeir hafa líka
sett það skilyrði fyrir friði, að
skæruliðar, sem þeir vita einir tölu
á, verði teknir í stjórnarherinn.
Nýjar viðræður eru fyrirhugaðar
milli stjórnvalda og skæruliða á
næstunni og hefur Duarte falið
Arturo Rivera y Damas, erkibisk-
upi i San Salvador, að vera milli-
göngumaður. Skæruliðar hafa sak-
að hann um að taka málstað
stjórnvalda en Duarte hafði um
það að segja, að ef ekki væri hægt
að treysta kirkjunni eftir öll þessi
ár, þá væri engum treystandi.
Damas, erkibiskup, hefur alla tið
gagnrýnt stjórnvöld mjðg harðlega
jafnt sem skæruliða.
Stjórnvöld í Nicaragua hafa
ákveðið, að hér eftir megi út-
varpsstöð kirkjunnar ekki flytja
neitt efni, sem þeim er ekki þókn-
anlegt, hvorki messur né annað.
Verður því að taka upp allt efni
fyrirfram og afhenda ritskoðurum
stjórnarinnar til athugunar. Getur
það tekið þá nokkurn tíma. Nokkuð
var slakað á ritskoðuninni í kring-
um kosningarnar 4. nóvember en
nú er augljóst, að það átti ekki að
verða til frambúðar.
Lögreglu-
maöur myrt-
ur á Spáni
Su SebuUu. 24. ■Araaber. AP.
Grímuklæddir óbótamenn
myrtu í gær spænskan lögreglu-
mann og særðu tvo til viðbótar,
þar af annan lífshættulega, nærri
borginni Irun skammt frá frönsku
landamærunum.
Lögreglumaðurinn sem lést
var þriggja barna faðir og fer-
tugasta fórnarlamb pólitisks
ofbeldis á Spáni á þessu ári. Tal-
ið er víst að liðsmenn ETA, að-
skilnaðarhreyfingar Baska, hafi
staðið fyrir morðinu. Þeir vörp-
uðu handsprengju að lögreglu-
bifreið sem hinn látni og félagar
hans tveir óku.
Nýtt stig hreinsana í Kína:
Skírteini 40 milljón
félaga endurskoðuö
Pektag. 24. aAranber. AP.
KÍNVERSK stjórnvöld hafa lýst
yfir að fyrir dyrum standi meiri
háttar aðgerðir í landinu, þ.e. end-
uskráning í Kommúnistaflokkinn,
en hann skipa 40 milljónir manna.
Er talið að um aðför að öfgasinn-
uðum andstæðingum Deng Xiao-
pings forsætisráðherra sé að ræða.
Háttsettir embættismenn inn-
an flokksins sem vildu ekki láta
nafns síns getið sögðu dagsetn-
ingu ekki hafa verið ákveðna.
Einnig sögðu þeir þetta ekki svo
flókið mál og þyrfti ekki að taka
lengri tíma en svo sem mánuð.
Vestrænir stjórnarerindrekar
segja þetta líklega lokastig að-
farar Dengs forsætisráðherra
Deng Xiaoping forsætisráðherra
Kína.
gegn „óþekkum" flokksmönnum,
aðför sem hófst á síðasta ári er
margir flokksmenn voru reknir
fyrir meint lagabrot og „fyrir að
sverta flokkinn", eins og það var
orðað.
Hreinsanirnar áttu að standa
yfir i þrjú ár, eða svo hafði Deng
sagt og er ekki ljóst hví þetta
lokaskref er stigið nú. Einn vest-
rænn stjórnarerindreki sagði:
„Nú standa flokksmenn and-
spænis orðstir sínum i flokknum
og taka annaðhvort við hóli eða
svara fyrir gagnrýni. Eða eru
reknir með skömm. Þetta verður
trúlega viðkvæmasti iiðurinn í
hreinsunum.“