Morgunblaðið - 30.11.1984, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1984
Vel heppnaður
frumburður
Sigurður Sverrisson
Tic T»c
Poseidon sefur
MHM-001
Kvintettinn Tic Tac frá Akra-
nesi hefur sent frá sér sína
fyrstu plötu þrátt fyrir ungan
meöalaldur meðlimanna. Án til-
lits til þess atriðis verður að
segjast að þessi frumraun fimm-
menninganna frá sementsbæn-
um Akranesi lofar mjög góðu um
framhaldið sé það á annað borð
á döfinni.
Það eru þeir Bjarni Jónsson,
Jón Bjarki Bentsson, Júlíus
Björgvinsson, Friðþjófur Árna-
son og Ólafur Friðriksson sem
skipa Tic Tac og i núverandi
mynd er sveitin ekki nema nokk-
urra mánaða gömul. Júlíus tók
við af Gunnari Ársælssyni, sem
varð að hvila á sér löppina eftir
linnulausan bassatrommuáslátt.
Það er kannski gott dæmi um
þær þrengingar, sem nú virðast
vera i íslenskri hljómplötuút-
gáfu, að enginn sá sér fært að
gefa plötu Tic Tac út svo þeir
gerðu það bara sjálfir. Fyrir vik-
ið verður útkoman e.t.v. eitthvað
ódýrari en ella, einkum með til-
liti til „sánds", en ég er þeirrar
skoðunar, að Poseidon sefur sé
eitthvert besta byrjunarverk ís-
lenskrar hljómsveitar.
Lögin á Poseidon sefur eru að-
eins fjögur talsins og það fer
ekki leynt, að hinar nýrri bresku
sveitir á borð bið U2 hafa sett
svip sinn á Tic Tac. Þó er aldrei
um neinar beinar stælingar að
ræða — fjarri því. Að mínu viti
er lagið A song for the sun best,
svo kemur Seymour. Mér finnst
hins vegar ekki eins mikið til
Kitchen song og Joy koma. Tic
Tac getur vel við unað með þessa
fyrstu plötu sína og Bjarni
Jónsson er söngvari, sem vert er
að gefa nánari gætur.
Metsölublaó á hverjum degi!
Jólamarkaður FEF í Traðarkoti
FÉLAG einstæðra foreldra heldur
árlegan jólamarkað sinn á morg-
un, laugardag 1. desember og
verður markaðurinn haldinn i
Traðarkotssundi 6, þar sem
skrifstofa FEF er til húsa. Opnað
verður kl. 11 f.h. Á boðstólum er
úrval heimagerðra tuskuleik-
fanga, jólaskraut, bútasaumspúð-
ar, prjónles, kökur og fleira girni-
legt.
Aðfaranótt laugardags verður
opið hús í Traðarkoti fyrir þá fé-
iagsmenn sem eiga eftir að skila
munum, eða vilja hjálpa til við að
leggja síðustu hönd á undirbún-
ing.
Athyglisverð bók
— eftir Björn
Pálsson
Hagfræði og stjórnmál.
Höfundur Dr. Magni Guðmundsson.
Bókinni er skift í þrjá aðalkafla: 1.
Verðlagsstjórn, 2. Stjórn peninga-
mála, 3. Skattkerfið.
I inngangi gerir höfundur
lauslegan samanburð á stjórn
peningamála á tímabilinu
1919-39 og 1960-1980. Bókinni
fylgja tðflur í viðauka yfir geng-
isbreytingar íslenzku krónunnar
frá 1922-39 og frá 1960-80.
Fleiri töflur og línurit fylgja bók-
inni sem þægilegt er að gripa til,
vilji menn átta sig á þróun pen-
ingamála undanfarna áratugi.
Dr. Magni hefur lagt mikla vinnu
i þessa bók. Hann er dr. i hag-
fræði frá Manitoba-háskóla,
sérgreinar ríkisfjármál, verðlags-
og markaðsmál, banka- og pen-
ingamál. Það er um þessa mála-
flokka sem dr. Magni fjallar um i
bók sinni. Hann vitnar gjarnan
til hagfræðinga f Kanada og
Bandaríkjunum. Aðalefni bókar-
innar er þó um íslenzk málefni.
Skoðanir sinar setur dr. Magni
fram skýrt og hlutdrægnislaust,
að því er virðist, enda hvorki háð-
ur stjórnmálaflokkum eða fjár-
málastofnunum. Þess er eigi að
vænta að allir verði sammála um
þær skoðanir, sem dr. Magni
heldur fram i bók sinni. Hag-
fræðinga greinir á um ýmsa hluti
og þó menn séu sammála um
markmið þá greinir þá oft á um
leiðir. Slíkt er eðlilegt og málin
skýrast við umræður og umhugs-
un. Tiltölulega lítið hefur verið
skrifað hér á landi um þau mál-
efni, sem bók dr. Magna fjallar
um. Þó snerta þau mál afkomu
flestra landsmanna. Það er þvi
æskilegt að sem flestir skilji og
fylgist með efnahags- og við-
skiptamálum þjóðarinnar. Ýmis-
legt hefur gerzt og er að gerast í
þjóðarbúskap okkar, sem teljast
má til mistaka. Eigi er ólfklegt að
ástæðan fyrir þeim mistökum sé
að einhverju leyti af því, að þeir
sem ráða framkvæmdum skilja
þá hluti eigi rétt, sem þeir eru að
fást við. Tímabil bókaviðskipta á
þessu ári eru að hefjast. Menn
kaupa gjarnan bækur, fyrir jólin,
sem eigi krefjast mikillar um-
hugsunar og auka þá heldur eigi
vizku lesandans að mun. Bók dr.
Magna krefst íhugunar og hana
þarf helzt að lesa oftar en einu
sinni. Bókin er 117 bls. og lætur
litið yfir sér.
Ég held að þeir, sem áhuga
hafa á þeim málum, sem bókin
Qallar um, ættu að kaupa hana.
Eg hefi þvi viljað vekja athygli á
þessari efnismiklu og málefna-
legu bók með þessum linum.
Björn Pilsson er /ýrrrenndi <1
þingismndur.
Stykkishólmur:
Margt gert fyrir
eldri borgarana
StjkkkMBÍ 23. *6n.
Stykkisbólmshreppur hefir nú ým-
is umsvif á vegum eldri borgara hér
í bæ. Tvo daga f hverri viku koma
þeir saman f föndur og annað sem
má vera til að gleðja og um leið gefa
þeim Uekifæri til að útbúa bæði
verklega og skemmtilega hluti. Er
þetta starf mjög vinsælL
Forstöðu um þetta starf hefir
Heiðrún Rútsdóttir og fær svo oft
sjálfboðaliða til að leiðbeina og
hjálpa. Ég leit þarna inn einn
laugardag og það verð ég að segja
að ég var mjög ánægður með alla
tilhögun og allt starfið í heild og
óafvitandi varð mér hugsað til
eldri daga þar sem ekki þótti taka
þvf að hafa svona starf. Og um leið
varð mér hugsað til þeirra breyt-
inga á högum eldri kynslóðarinnar
nú þegar hún skilar af sér merk-
um störfum til afkomendanna.
Ráðamenn f Stykkishólmi skilja
þessa þörf vel og þá má geta þess
að félögin í Hólminum hafa alltaf
eldriborgaraskemmtanir, þar sem
þeim er boðið til kaffidrykkju og
um leið mörg fræði og skemmti-
efni á borð borin. Nú nk. sunnudag
eru það Rotaryklúbburinn og
Leikfélagið Grímnir sem standa
að boðinu. Árui