Morgunblaðið - 30.11.1984, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1984
51
velvakaíÍdi
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
nv {/jjSraft''uÞ\
Fagurt fordæmi
Steindórs
Jónas Pétursson fyrrv. alþingis-
maður skrifar:
Fyrir skömmu var í fréttatíma
útvarpsins viðtal fréttamanns
við Steindór Pálmason frá
Garðshorni á Þelamörk út af því
að Steindór hafði nýlega gefið
tvær milljónir króna til Heilsu-
ræktarstöðvar í Kjarnaskógi
sem Náttúrulækningafélag Ak-
ureyrar er að koma upp. f viðtal-
inu gerði Steindór ekki mikið úr
upphæðinni, enda maðurinn
aldrei verið hneigður til að ber-
ast á. Bn í lok samtalsins lét
hann í ljós, að jafnframt því að
styðja framkvæmdina með þessu
fjárframlagi vildi hann ekki sið-
ur með þessari gerð vísa öðrum
leiðina, vera til fyrirmyndar í
því að styðja með fjárframlagi
þessa þörfu framkvæmd, til
dæmis rosknu fólki, sem ætti
þess kost, við nána yfirvegun, að
leggja Heilsuræktinni í Kjarna-
skógi lið.
Með þessum orðum vil ég
vekja frekari athygli á gerð
Jónas Pétursson
Steindórs Pálmasonar og orðum
þeim, er hann lét fylgja.
Dúsa fyrir
íslendinga
Siggi flug skrifar:
Kæri Velvakandi minn.
Ekki ætla ég nú að gerast mik-
ill rithöfundur og skrifa þér á
hverjum degi, en ég gat ekki orða
bundist er ég sá Morgunblaðið
(aukablaðið) í morgun.
í aukablaðinu gefur að líta
„könnun Hagvangs á gildismati
og mannlegum viðhorfum fslend-
inga“, hvorki meira né minna.
Þetta mun vera nokkurskonar
prófverkefni Hagvangs til þess
að komast inn hjá Gallup-stofun-
inni, og kallast marktækir á slík-
ar kannanir.
Ég held, að þessi könnun sé
gerð í sérstökum tilgangi, ein-
mitt núna, og sé í raun og veru
eins og nokkurskonar dúsa
(snuð) fyrir okkur fslendinga til
þess að sjúga í þessu gengis-máli,
sem auðvitað varðar okkur öll
eins og allt er í pottinn búið.
Dúsa til þess að draga athyglina
frá því raunverulega, sem er auð-
vitað gengislækkunin.
Núverandi ríkisstjórn fór vel
af stað enda þótt ráðstafanir
hennar hafi bitnað á þeim er
lægst hafa kjörin. Eftir góðæri
striðsáranna er kominn tími til
fyrir okkur að strengja ólina
nokkuð og borga til baka það sem
við höfum etið fram yfir alla
getu okkar á því sviði. Nú er
komið að skuldadögunum, við
verðum að borga til baka það
sem við höfum eytt fram yfir það
sem við höfðum ráð á.
NÖTOLACT orkugjafi fyrir kýr, til að
fyrirbyggja súrdoða og auka sykurmagn í
blóðinu. Einn pakki 21 kg. hæfilegur skammtur
fyrir eina kú, daglega fyrir og eftir burð (6
vikur).
NÖTACÉT (fljótandi) til að eyða súrdoða sem
þegar er fyrir hendi og hækka blóðsykur
magnið. Fljótvirkt og árangursríkt. Einn brúsi
1.8 lítrar hæfilegur skammtur fyrir eina kú.
GAMATOX baðduft, eyðir tilteknum
sníkjudýrum úr húð og hári húsdýra.
í ár er baðár, eigum baðduftið til í 500 g
pökkum og er það sérstaklega ætlað til
böðunar sauðfjár.
Einnig NUTRICHIP vítamín fyrir hesta og
saltsteinar, hvítir, rauðir og bláir.
Selt í kaupfélögunum um land allt og í verslun
okkar Ármúla 3.
Leiðbeiningar á íslensku fyrir öll þessi efni.
BUNADARDEILD
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
HAGRÆOINGhf
starfsmenn stjóinun skipulag
Námskeið í
sölusálfræði
og samskiptafræði
Hagræöing hf. heldur enn eitt námskeiöiö í sölusál-
fræöi og samskiptatækni helgina 1. og 2. desember
1984 í Eiríksbúð Hótel Loftleiöum kl. 9—16 báöa
dagana.
Efni:
— Opin og leynd samskipti og mikilvægi þeirra viö
kaup og sölu.
— Atferlisgerðir og áhrif þeirra á kaup og sölu.
— Samtalstækni.
— Ákvaröanataka og hvernig má hafa áhrif á hana
viö kaup og sölu.
— Tilboð, eöli þeirra og uppbygging.
— Samningar og hin ýmsu stig þeirra
— Mikilvægi tvíbindingar samninga (sölubinding/-
sálfræðileg binding)
— Persónuleikaþættir og samskiptagerðir, nýting
þeirra til áhrifa í sölu
Þátttakendur:
Námskeiöiö er ætlaö sölufólki, innkaupastjórum,
verslunarstjórum, afgreiðslufólki og „andlitum fyrir-
tækja útáviö".
Leiðbeinendur:
Bjarni Ingvarsson, MA. Bjarni hefur stundaö nám í
skipulags- og vinnusálfræöi viö Háskólann í Lancast-
er, Englandi. Hann er aö Ijúka doktorsnámi frá sama
skóla. Hann hefur stundaö rannsóknir heima og er-
lendis. Hann er nú starfsmaður Hagfræöingar hf.
Hagræöing hf. er ráögjafa- og fræöslufyrirtæki á
sviöi starfsmanna Ltd. í Englandi. Viö bjóöum uppá
m.a.: „AMP-stjórnunarráögjöf, starfsmannasvipm-
ynd, ýmis námskeiö og leiötogaseminar.
Nánari upplýsingar og tilkynningar um þátttöku í
síma 84379.
Okka*.. _
jSfödSís*
“BLDM&WEXTIR
Hafnarttrmti 3.
- VTD MIKLATORC.