Morgunblaðið - 18.12.1984, Qupperneq 4
4
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984
MorgunblaAið/Öl.K.Mag.
f gær var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík útför Þorsteins Hjálmars-
sonar dómvarðar I Hestarétti íslands. Sjö dómarar Hcstaréttar og
haestaréttarritari báru kistu hins látna úr kirkju. Hefur það ekki áður
gersL Líkmenn eru talið frá hægri: Magnús Þ. Torfason, Sigurgeir
Jónsson, Halldór Þorbjörnsson, Magnús Thoroddsen, Þór Vilhjálms-
son, Guðmundur Skaftason, Guðmundur Jónsson og Björn Helga&on.
Björn Sveinbjörnsson hæstaréttardómari átti að bera kistuna en forfall-
aðist vegna veikinda. ______________________________________
Iðnaðarráðherra um afstöðu Náttúruvemdarráðs til Kísiliðjunnar:
Þetta kann að vera
vandi næstu aldar
Afgreiði beiðni Kísiliðjunnar um leið og hún berst mér
„ÞAÐ kann að vera að sá vandi komi upp á næstu öld að ástæða verði til að
kanna þetta nánar, en það verður vandamál þess tíma. Ég afgreiði þessa
beiðni Kísiliðjunnar samstundis og hún kemur á mitt borð. Eg veit ekki
hversu valdsvið Náttúruverndarráðs er mikið, en ég mun halda fast við það
að Kísiliðjan geti starfað áfram,“ sagði Sverrir Hermannsson iðnaðarráð-
herra, er borin var undir hann frétt Mbl. um að Náttúruverndarráð
ætli að mótmæla því að Kísiliðjan við Mývatn fái endurnýjað námaleyfí sitt
til 20 ára.
Hákon Björnsson framkvæmda-
stjóri Kísiliðjunnar sagði í viðtali
við Mbl., að námaleyfið rynni út
1986 og að þeir hefðu sótt um
endurnýjun i ágústmánuði sl.
Hann sagði að þar væri ekki farið
fram á 20 ára tímabil, en aftur á
móti hefðu þeir lýst því yfir að
æskilegt væri að fá leyfið í þann
Nýtt hlutafélag stofnað í dag:
Til eflingar fyrir-
tækjum í einkarekstri
STOFNFUNDUR hlutafélags til eflingar fyrirtækjum í einkarekstri verður
haldinn í dag á Hótel Loftleiðum, Vfltingasal, og hefst hann kl. 15. Að sögn
Árna Árnasonar framkvæmdastjóra Verzlunarráðs íslands, sem er einn af
undirbúningsaðilum að félagsstofnuninni, er hugmyndin sú að virkja saman
í eitt félag menn úr ýmsum greinum einkarekstrar til að takast á við nýjar
hugmyndir í atvinnulífinu og koma til aðstoðar við starfandi fyrirtæki í
tímabundnum erflðleikum.
Árni Árnason sagði að við und-
irbúning að stofnun félagsins
hefði verið unnið eftir fyrirmynd-
um erlendis frá og væri nýjasta
dæmið félag sem stofnað hefði
verið í Noregi á þessu ári. í félagi
sem þessu væri hugmyndin sú, að
þrenns konar aðilar gerðust hlut-
hafar. 1 fyrsta lagi fjármögnunar-
fyrirtæki, í öðru lagi ráðgjafa-,
sérfræðiþjónustu- og tæknifyrir-
tæki. Og í þriðja lagi fyrirtæki al-
mennt í einkarekstri, iðnaði,
verzlun eða sjávarútvegi.
Árni sagði ennfremur, að hug-
myndin væri sú að þegar upp
kæmu verkefni sem virtust álitleg
yrði gerð úttekt á verkefninu og
málið síðan kynnt fyrir hluthöfun-
um og unnið að því f samvinnu við
þá og þá jafnvel með utanaðkom-
andi fjármagni. Ekki væri verið að
tala um mikið hlutafé í félaginu,
e.t.v. 10 milljónir króna, og því
væri ekki gert ráð fyrir að félagið
sjálft fjármagnaði stóra hluti.
Árin þöglu
í ævi Jesú
Þjóðsaga gefur út bók dr. Potters
sem byggð er á Dauðahafshandritunum
BÓKAÚTGÁFAN Þjóðsaga hefur
sent frá sér bókina Árin þöglu (
ævi Jesú, eftir dr. Charles Francis
Potter. Bókin er þýdd af Árelíusi
Níelssyni og Gísla Olafssyni.
í kynningu útgáfu bókarinnar
segir m.a.: Eins og nafn þessarar
bókar ber með sér fjallar hún
um „þöglu árin“ i ævi Jesú, sem
biblían er undarlega þögul um.
Það hefur öldum saman verið
ráðgáta unnendum biblíunnar og
fræðimönnum sem rannsakað
hafa hana, hvar Jesús dvaldi
þessi átján ár af ævi sinni, frá
tólf ára aldri þegar hann hlýddi
á lærimeistarana í helgidóm
Gyðinga í Jerúsalem og allir
undruðust spurningar hans og
andsvör, og þar til hann þrítugur
að aldri, kom fram á sjónar-
sviðið sem prédikari og boðberi
nýrra sanninda.
Hið mikla handritasafn, bóka-
safn Essena, sem fannst i
Kúmran-hellunum við Dauða-
hafið árið 1945 og næstu ár á
eftir, gefur að áliti höfundar
svar við þessari aldagömlu
spurningu. Hann leiðir að því
sterkar lkur, að Jesús hafi á
þessum þroskaárum sínum haft
náin kynni af þessu merka bóka-
safni Essena og hinni háþróuðu
menningu sem ríkti i samfélagi
þeirra. Hann hafi þvi verið há-
menntaður þegar hann hóf trú-
boðsferil sinn en ekki óupplýstur
farandprédikari sem fyrir
skyndilegan innblástur og guð-
legan uppruna sinn stóð alskap-
aður meðal lýðsins og boðaði
honum nýja trú.
Dr. Potter kallar bók sina
„ögrun við kristindóminn" og á
þá við að biblían, sem kristin
kirkja byggir boðskap sinn á,
þurfi í ýmsum mikilvægum at-
riðum endurskoðunar við í ljósi
þess sem fundist hefur i bóka-
safni Essena. Þar megi finna
óvæntan skyldleika við fjöl-
margt í boðskap Jesú, sem bendi
til að hann hafi haft náin kynni
af bókum Essena Hann er einn-
ig ósáttur við ýmsar þær breyt-
ingar á bibliunni, sem fornir
kirkjufeður gerðu á þingum sin-
um, ýmist brottfellingar eða
innibætur, og þá einkum útilok-
un Enoksbókar og þær útstrik-
anir sem gera varð á tilvitnun-
um í þá bók í ýmsum ritum Nýja
testamentisins. Hann hefur
einnig sínar efasemdir um ýms-
ar kenningar biblíunnar, svo
sem kenningarnar um heilaga
þrenningu, meyjarfæðinguna og
guðlegan uppruna Jesú og vitnar
þeim efasemdum til stuðnings i
bókasafn Essena.
Dr. Potter vekur athygli á
þeirri undarlegu þögn sem rikt
hafi meðal kirkjunnar manna
um Dauðahafshandritin og telur
hana stafa af ótta þeirra við að
kynni almennings af þeim kunni
að vekja efasemdir um eitt og
annað i boðskap kirkjunnar.
tíma vegna ýmissa ástæðna, svo
sem markaðsmála, ákvarðana um
fjárfestingar, atvinnuöryggi o.fl.
Vegna yfirlýsinga Arnþórs Garð-
arssonar liffræðings í blaðinu i
gær sagði Hákon: „Varðandi það
hvaða áhrif þetta hefur á Iífrfkið
þá eru liffræðingar færari um að
dæma það heldur en við, en hingað
til hafa umsagnir líffræðinga og
þá sérstaklega Arnþórs frá mín-
um bæjardyrum séð einungis ver-
ið staðhæfingar, án þess að að
baki liggi nein vísindaleg rök. Eg
er því alveg sammála Þóroddi
Þóroddssyni formanni stjórnar
Rannsóknarstöðvar Laxár og Mý-
vatns, að það er þörf á meiri vitn-
eskju um áhrif úrtökunnar. Það er
því óþarfi að vera með upphrópan-
ir og sleggjudóma, án þess að hafa
nánari bakgrunn á bak við slíkar
yfirlýsingar."
Páll Flygenring ráðuneytis-
stjóri í iðnaðarráðuneytinu sagði,
að þessi ákvörðun Náttúruvernd-
arráðs væri í hæsta máta óþægi-
leg. Hann sagðist hafa haft sam-
band við framkvæmdastjóra Nátt-
úruverndarráðs í þeim tilgangi að
biðja hann að koma á fundi í sam-
starfsnefnd iðnaðarráðuneytis og
Náttúruverndarráðs um orkumál.
Mál þetta hefði enn ekki verið
rætt og hefði ráðið því engar nýjar
upplýsingar í málinu. „Þar hefur
ekki verið fjallað um málið og ég
ætla að biðja þá snarlega að leggja
það frekar fyrir nefndina, áður en
þetta er afgreitt, þar sem mig
grunar að þá skorti upplýsingar,"
sagði ráðuneytisstjóri.
Aðspurður um hverjir hefðu
rétt á að gerast hluthafar sagði
Árni: „Það geta eiginlega allir að-
ilar sem vinna að markmiði fé-
lagsins, það er að taka þátt i nýj-
ungum í atvinnulífinu og endur-
reisnarstarfi. Við gerum ekki
greinarmun á atvinnugreinum, en
við erum að hugsa um fyrirtæki í
einkarekstri."
Ýmsir aðilar hafa unnið að und-
irbúningi að stofnun félagsins, en
undirbúningsnefnd stofnfundar
skipa Páll Sigurjónsson formaður
Vinnuveitendasambands Islands,
Ragnar S. Halldórsson formaður
Verzlunarráðs íslands og Víglund-
ur Þorsteinsson formaður Félags
ísl. iðnrekenda.
túni í Helgafellssveit á Snæfells-
nesi 1898, sonur Jóhannesar Ein-
arssonar og Guðbjargar Jónsdótt-
ur. Ungur að árum fór hann í fóst-
ur til séra Jóns Magnússonar og
konu hans Steinunnar Þorsteins-
dóttur í Bjarnarhöfn á Snæfells-
nesi. Tvítugur að aldri flutti hann
til Reykjavíkur og hóf þar versl-
unarstörf, en réðst síðan til starfa
við Landsbanka Islands þar sem
hann starfaði óslitið í yfir 40 ár.
Var Jóhann einn af stofnendum
Starfsmannafélags Landsbanka
íslands. Á allra síðustu árum
starfaði Jóhann við Kassagerð
Reykjavíkur. Jóhann starfaði
einnig um áratuga skeið sem öku-
kennari og munu margir einnig
minnast hans úr því starfi.
Jöhann Jóhannesson
fyrrv. bankafulltrúi látinn
Látinn er í Reykjavík Jóhann Jó-
hannesson fyrrverandi banka-
fulltrúi, 86 ára að aldri.
Jóhann var fæddur aö Undir-
Eftirlifandi kona Jóhanns er
Sigurbjörg Siggeirsdóttir og eign-
uðust þau þrjú börn, önnu Sigríði,
Val og Örn.
Heimsmeistaraeinvígið:
Kasparov hótaði
tvfyegis máti
GARY Kasparov áskorandi heims-
meistarans í skák virðist heldur bet-
ur vera að sekja í sig veðrið ef
marka má tvær síðustu einvígisskák-
ir. Kasparov hlaut sinn fyrata vinn-
ing er 32. skákin var tefld á mið-
vikudaginn var og í gær tefldi hann
af krafti með svörtu, jafnaði taflið,
að því er virtist án erfiðleika, og áð-
ur en samið var í 20. leik hafði hann
tvisvar tiótað að máta Karpov.
33. skákin:
Hvftt: Karpov
Svart: Kasparov
Slavnesk vörn
1. Rf3 — d5, 2. d4 — Rf6, 3. c4 —
e6, 4. Rc3 — c6, 5. e3 — Rbd7, 6.
Dc2 — Bd6, 7. e4 — e5I?
Nýr leikur í stöðunni. Hér er
næstum alltaf leikið 7. — dxe4.
Kasparov fórnar peði, en nær því
síðan aftur og hefur þá létt mjög á
stöðu sinni.
8. cxd5 — cxd5, 9. exd5 — exd4, 10.
Rxd4 — 0-0, 11. Be2 — Rb6, 12. 00
— Rbxd5, 13. Rxd5 — Rxd5, 14.
Hdl
Hér hefði 14. Bf3? verið grófur
afleikur vegna 14. — Dh4!
— De7, 15. Bf3
Nú héldu ýmsir skákskýrendur í
Moskvu að Kasparov væri kominn
í vandræði, en hann bjargar sér
með tveimur máthótunum í röð:
15. — He8I, 16. g3 - Bh3I, 17. Bd2
— Be5,18. Bxd5 — Bxd4,19. Bc3 —
Bxc3, 20. Dxc3 og nú var samið
jafntefli. Eftir skákina skoðuðu
þeir Karpov og Kasparov ýmsa
möguleika saman, en fátítt er að
keppendur í heimsmeistaraeinvígi
geri slíkt.