Morgunblaðið - 18.12.1984, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984
15
Noah Hathaway ríður flugdrekanum með hundshausinn I The Never-
ending Story.
Ekkert grandar
Hugarheimi
Kvíkmyndír
Árni Þórarinsson
BÍÓHÖLLIN: Sagan endalausa —
The Neverending Story ☆ ☆ ☆
Þýsk—bandarísk. Árgerð 1984.
Handrit: Wolfgang Petersen, Her-
man Weigel eftir sögu Michaels
Ende.
Leikstjóri: Wolfgang Petersen.
Aðalhlutverk: Barrett Oliver, Noah
Hathaway.
♦ Bestu vinir barnanna í bíó-
myndum núna eru heimilistölv-
ur, sjónvörp og tölvuleikir, sagði
ég í umsögn um Cloak and Dagg-
er, jólamynd Laugarásbiós, hér í
blaðinu fyrir helgina. Eg er
varla búinn að sleppa orðinu
þegar The Neverending Story
kemur á tjaldið í Bíóhöllinni og
þar er annað uppi á teningnum:
Besti vinur barnsins er bók.
Upphafsforsendur The Never-
ending Story og Cloak and Dagg-
er eru nákvæmlega þær sömu.
Þær fjalla báðar um unga drengi
sem hafa misst mæður sínar og
búa með feðrunum; feðurnir eru
uppteknir menn og í einsemd
sinni leita drengirnir á náðir
hugarflugsins, — eignast and-
lega félaga sem veita þeim meiri
fullnægju en hversdagsleikinn. í
Cloak and Dagger gegnir tölvu-
leikur þessu hlutverki; í The
Neverending Story er það bók-
lestur. Bastian flýr einmanaleik-
ann, skólann og fjandsamlega
jafnaldra inn í ævintýraheim
gamallar bókar, the Neverend-
ing Story, sem hann kemst í tæri
við. Þar heitir veröldin Fantasía,
hugarheimur, og þar búa álfar
og risar og undarlegt lið sem
standa frammi fyrir tortímingu
af völdum hins illa afls sem
nefnist Ekkert. Eins og segir í
auglýsingatexta myndarinnar:
Drengur sem þarfnast vinar
finnur heim sem þarfnast hetju.
Söguhetjan í bókinni er annar
drengur, Atreju og hann leggur í
mikla hættuför til að reyna að
bjarga Fantasíu frá eyðingu. En
lausnarorðið í þeirri björgun
leggur Bastian til, það er nafn
móður hans. Og þar með kemst
Bastian að því að hetjan í sög-
unni óendanlegu um líf hugar-
flugsins er hann sjálfur.
Höfundur bókarinnar sem
þessi kvikmynd byggir á og kom
út nú fyrir jólin í islenskri þýð-
ingu mun ekki vera sáttur við þá
meðferð sem sagan fær í henni;
mig grunar að honum þyki
boðskapurinn hafa orðið undir
þeim tæknilegu furðum sem
bíómyndin býður upp á. Ég hef
ekki lesið þessa sögu en naut
myndarinnar í botn, með fyrir-
vara um endalokin þar sem sög-
unni er rúllað upp með dálítið
glannafengnum, snöggum hætti.
The Neverending Story er
feiknalega skemmtilegt ævin-
týri, þar sem mannleg gildi eins
og þau birtast í tvöföldu ferða-
lagi drengjanna inn í hugarheim
haldast í hendur við tækniafrek
sem standa jafnt ef ekki framar
filmiskum hasarblöðum þeirra
Lucas og Spielbergs um Stjörnu-
stríð og Indiana Jones. Og það er
meiri hlýja á bak við allar kúnst-
irnar en hjá bandarísku séníun-
um. Förðun, gervi, leikmynd,
kvikmyndataka, tónlist og
tæknibrellur skapa hér aldeilis
stórbrotinn, síkvikan furðuheim
með innbyggðri spennu og
kímni. Yfir þessu verki öllu er
skynsöm, örugg leikstjórn
Wolfgangs Petersen sem sýndi
með kafbátamyndinni Das Boot
að hann er kvikmyndagerðar-
maður á heimsmælikvarða. Eins
og menn muna tók Petersen við
leikstjórn vísindaskáldskaparins
Enemy Mine sem Richard
Loncraine byrjaði á hérlendis í
sumar og varla eru þau skipti
tiltakanlega slæm. Og drengirn-
ir tveir, hetjur sögunnar, Barr-
ett Oliver og Noah Hathaway
standa sig ekki síður vel en þau
marghöfða undur sem fylla
þennan draumheim.
„Þetta er bær Þorbjargar Sveins-
dóttur ljósmóður," sagði sam-
ferðakona mín, benti á litla
steinbæinn og bætti við: „Hún var
mikill höfðingi og stórbrotin kona
sem betra þótti að hafa með sér en
móti, en smælingjarnir áttu þar
hauk í horni...“ og hermdi mér
dæmi þess.« Þorbjörg Sveinsdóttir
var kvenskörungur í orðsins
fyllsta skilningi.
Brutu blað í stjórnmálasögunni
nefnir Björg þátt um Þórunni Jón-
assen, Guðrúnu Björnsdóttur og
Katrínu Magnússen. Þarna er og
þáttur um Jóhönnu Egilsdóttur:
Verkakona krefst réttlætis. Þóra
Melsted er einnig meðal þeirra
kvenna sem Björg minnist í þessu
bindi: Stofnandi Kvennaskólans í
Rcykjavík. Er óhætt að fullyrða að
allar hafi konur þessar þokað mál-
um i þá áttina að íslenskar konur
mættu standa körlum jafnfætis í
þjóðfélaginu.
Sama máli gegnir ef til vill um
Thoru Friðriksson þó með allt öðr-
um hætti væri. fslendingur og al-
heimsborgari heitir þátturinn af
henni. »Sá slóði,« segir Björg,
»sem hún lét eftir í menningar-
sögu okkar er fjölþættur og litrík-
ur en hefur ef til vill verið minni
gaumur gefinn en skyldi.«
Og raunar má segja hið sama
um aðrar konur sem Björg greinir
frá í þáttum sínum. Þær unnu
stórmikið starf hver á sínu sviði
en hafa eigi að siður staðið í
skugganum þegar minnst hefur
verið þeirra einstaklinga sem öðr-
um fremur eru taldir hafa mótað
söguna. Hér er verið að bæta fyrir
þá yfirsjón.
Það er stór kostur við þessa bók
að þættir Bjargar Einarsdóttur
eru bæði lifandi og skemmtilegir;
og svo auðvitað fróðlegir; en sem
betur fer lausir við þarflausar
staðreyndir. Eins og vera ber í
góðri sagnfræði er skemmtun og
fróðleik blandað hér saman í
ákjósanlegum hlutföllum. Að ytri
gerð er bókin hin vandaðasta. Og
vel myndskreytt. Útlitið minnir á
gömlu góðu dagana þegar bækur
voru að fullu og öllu unnar í hönd-
um og viðhöfn og glæsibragur
þótti sjálfsagður búnaður utan um
gott efni.
A
luk þess mun jólasveinninn
þessum kvöldum. ■
aö sjálfsögðu veröa gestur okkar á
Jólasveinninn færir nokkrum gestum jóla-
gjafir. Salir veröa fagurlega skreyttir meö
jólatrjám og jólaskrauti og á boðstólum verö-
ur jólaglögg og piparkökur.
lin stórkostlega stórhljóm-
sveit Gunnars Þórðarsonar
með söngvurunum Björgvini
Halldórssyni, Sverri Guðjóns-
syni og Þuríði Sigurðardóttur
halda síðan hátíðarstemmn-
ingu fram á nótt.
JÓLAHÁTÍÐARNAR:
FÖSTUDAGSKVÖLD, 21. DESEMBER, KL. 19.00
LAUGARDAGSKVÖLD, 22. DESEMBER, KL. 19.00
II. í JÓLUM, 26. DESEMBER, KL. 19.00
FÖSTUDAGSKVÖLD, 28. DESEMBER, KL. 19.00
LAUGARKVÖLD, 29. DESEMBER, KL. 19.00
serta með Ríó og gestum þeirra. Ríó koma fram í hátíöarskapi og
kynna meöal annars hina frábæru söngkonu Shady Owens sem
dvelur nú hér á landi um jólin.
BCCACM'Ay
í tilefni jólanna höfum við ákveöiö að efna til sérstakra jólakon-
FRAMREIDDUR VERÐUR ÞRÍRÉTTAÐUR HÁTÍÐARMATSEÐILL ÖLL KVÖLDIN
BáöAÖVW
Hittumst í hátíóarskapi á jólahátíö í Broadway.