Morgunblaðið - 18.12.1984, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 18.12.1984, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984 Sanyo HiFi system 234 ®SANYO er með á nótunum O Stórglæsileg hljómtækjasamstæða í vönduðum skáp með reyklituðum gler- hurðum. O 2x40 watta magnarl með innbyggðum 5 banda tónjafnara. 0 Þriggja bylgju stereo útvarp með 5 FM stöðva minni. O Segulbandstæki fyrir allar snældugerð- Ir, með „soft touch" rofum og Dolby suðeyði. 0 Hálfsjálfvirkur tveggja hraða reimdrif- inn plötuspilari. Allt þetta fyrir aðeins kr. 29.900." stgr. Gunnar Ásgeirsson hf. Suöurlandsbraut 16 Simi 9135200 // GLIMRANDl GIAFIR // Jólin nálgast óðfluga. Nú gefa allir gjafir sem hafa notagildi og létta störfin, ekki síst í eldhúsinu. Komið við hjá okkur á Hverfisgötu 37. Við bjóðum vönduð og ódýr heimilistæki sem gera meir en að gleðja á jólunum. GIRMI KJÖLUR SF. Hverfisgötu 37, Reykjavík sími 21490 Víkurbraut 13, Keflavík sími 2121 Hendricks í Nýlistasafni Myndlíst Valtýr Pétursson Ungur listamaður frá Banda- ríkjunum sýnir í Nýlistasafninu eins og stendur. Hann hefur sýnt víða í Evrópu að undanförnu, og nú er komið að Islandi. Hér er á ferð mikill gerningamaður, og í fremri sal Nýlistasafnsins eru einkum ljósmyndir af Hendricks í alls konar uppákomum, og í innri sal er öllu fyrirkomið eins og um sé að ræða hluta af gern- ingi. Þar eru fallin lauf á gólfi og haustlegt. Einnig er þar járn- rúm með lurkum, sem minna á mannslíkama, og laufin þekja umhverfið. Upp við vegg eru reistir tveir stigar og milli stiga- þrepanna er komið fyrir vatns- litamyndum. Meðfram veggjum standa stærri verk, gerð eftir skýjafari, og mætti í gamni kalla nokkurs konar veðurkort. Þarna eru líka myndraðir af mánanaum vaðandi í rosaskýj- um, og hafi ég tekið rétt eftir, eru þetta dagþækur um veður- far, mig minnir í Berlín. Þessar myndir eru gerðar með mjúkum og varfærnum litum, og segja manni ekki ýkja mikið um sjálf- an listamanninn sem málara. En hinu verður ekki neitað, að nokk- ur frumleiki er í sýningu þessari sem heild. Þarna er ekki á ferð neitt, sem getur minnt á ný- bylgjuna í málverki og er mjög á oddinum eins og stendur, en lík- legast er hér meir hallast að konseptinu, þótt mér virðist nokkuð langt í land með að flokka þessa sýningu undir þann hatt. Máluð stígvél standa þarna á miðju gólfi og taka sig ágæt- lega út. Þarna notar listamaður- inn enn sína veðurathugun, og ég fæ ekki betur séð en það sé skýjafar á þessum ágætu stíg- vélum. Ekki er ég viss um, að ég hafi skilið þessi ágætu stfgvél fyllilega. Ef einhver boðskapur er þar innifalinn, hefur hann farið framhjá mér. En sé þetta almenn fyndni, þá mun ég leggja þann skilning í verkið, að lista- maðurinn væri að sýna, hvernig aurug stígvél geta orðið að ljúf- lyndis himinskýjum. Ef til vill er þetta útúrdúr við alvarlega list. Ekki meir um það. í heild er þarna um nokkuð óvenjulega sýningu að ræða, og eins og ég hef þegar sagt, nokkuð frumlega. Það er nú einu sinni svo, að þeir sem hafa stundað mynlist allt að því mannsaldur, eru nokkuð fastir í sínu fari og oft á tíðum seinir til að meðtaka nýjan og ferskan boðskap. Þótt maður sé allur af vilja gerður, getur það komið fyrir, að maður standi á gati fyrir framan lífsskoðanir þeirra, er annað uppeldi hafa hlotið. Við þessir eldri leggjum annað og meira upp úr því, að málverk verði til en þarna virðist gert, en það er löng og fjölþætt saga og verður ekki rakin hér. Barnaljós Bókmenntir Jenna Jensdóttir Brúðubíllinn. Afmælisdagurinn hans Lilla. Brúður, leiktjöld og texti eftir Helgu Steffensen. Ljósmyndir: Svipmyndir/Rut Hall- grímsdóttir. Forlagið Reykjavfk 1984. Brúðubíllinn, brúðurnar og að- standendur þeirra eiga miklum vinsældum að fagna hjá yngstu kynslóðinni. Nú er komin út lítil bók eftir Helgu Steffensen um apann Lilla og afmælið hans. Þar koma við sögu stóri apinn Gústi, frændi Lilla, sem segir honum skemmti- lega ævintýrið um ungana litlu, sem byggðu sér hús — en áttu í brösum við rebba gamla, sem bók- staflega át húsin hvert á fætur öðru þar til ... Auðvitað kemur brúðubíllinn með alla vinina hans Lilla og af- mælisgjafirnar í afmælisveisluna. Amma hefur ekki við að baka bestu pönnukökur í heimi — handa afmælisgestunum. Prýðilegar myndir af Lilla og vinum hans skreyta hverja síðu hjá texta sem er vel og skemmti- lega saminn. Nær áreiðanlega eyr- um og hug yngsta fólksins á já- kvæðan þroskandi hátt. Þau eru ótalin skiptin sem brúðuleikhús þeirra Helgu hafa skilið eftir sig geislandi barnsandlitin og smit- andi gleði í umhverfi öllu að lok- inni leiksýningu. Við hin eldri höfum fyllst þakk- læti og glaðst með er pollar og tátur hafa komið heim til pabba og mömmu eða afa og ömmu og bókstaflega lýst upp í kring um sig af kátínu og áhuga í frásögn sinni af þessum skemmtilegu undrum dagsins. En ekki veit ég hvort við í vit- undinni höfum velt því fyrir okkur eða gert okkur grein fyrir því, hve mikið og ómetanlegt uppeldisgildi þetta hefur í för með sér fyrir yngsta fólkið. Hér er allt unnið af stakri vand- virkni og trú á hið bjarta og góða í tilverunni. Þess vegna er það viðburður fyrir litla fólkið þegar svona ágæt bók kemur út og hann á að endur- speglast i viðhorfi okkar til henn- ar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.