Morgunblaðið - 18.12.1984, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 18.12.1984, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984 „Björgunarsveitir hafa ekki bolmagn til slíkra undirboða" — eftir Jón Aðalbjörn Jónsson Nú undanfarna daga hafa hlý- indi og milt loftslag verið ríkjandi hér á höfuðborgarsvæðinu, en þrátt fyrir slíka veðursæld vitum við að kominn er jólamánuðurinn, desember, og honum fylgir gífur- leg vinna við undirbúning jólahá- tíðarinnar. Tími björgunarsveita Þessi tími er sá tími sem fjár- hagslegur grundvöllur björgun- arsveita er byggður á. Nú í des- emberbyrjun opnuðu nokkrar björgunarsveitir jólatrjáasölu- markaði x»g á milli jóla og nýárs munu fjölmargar hjálparsveitir opna sína árlegu flugeldamarkaði. UndirboÖ og nýir leikmenn Heimur viðskiptanna er bæði stór og strangur en því fá björgun- ar- og hjálparsveitir óspart að kynnast nú í mánuðinum í formi undirboða einkafyrirtækja á jóla- trjáamarkaðinum og nýrra leik- manna á fótboltavelli flugelda- markaðarins. Björgunarsveitir hafa ekki bolmagn né fjárhags- lega getu til að svara slíkum und- irboðum einkafyrirtækjanna. Kaup á jólatrjám og flugeldum geta haft tví- þættan tilgang Reikna má með að flestallar fjölskyldur á höfuðborgarsvæðinu skreyti heimili sín með jólatrjám nú um hátíðirnar og skjóti upp einhverju magni af flugeldum til að fagna nýju ári og fastlega reikna ég með því að fjölskyldur þeirra sem nú nýlega var leitað við Laugarvatn með góðum árangri, kaupi allan slíkan varning hjá björgunar- og hjálparsveitum. En er þannig farið með þig? Ef svo er ekki vil ég biðja þig að íhuga mál- ið aðeins nánar: Imynduð skíöaferð Láttu nú hugann reika örlítið framá við, hugsaðu þér að þú sért að fara með fjölskyldu þinni á gönguskíði í Bláfjöll. Þið komið í Bláfjöll og vegna þess hve gott veður er þá ákveðið þið að fara aðeins aðra leið en venjulega og til þess þurfið þið að yfirgefa merkt- ar gönguslóðir. Þið hafið nú ge'ngið í þrjár klukkustundir og veðrið er auð- sjáanlega að versna þannig að ákveðið er að snúa við og fara heim. Klukkustund seinna Þið eigið eftir u.þ.b. eins og hátfs tíma gang að bílnum og veðrið er orðið afgerandi slæmt. Áttirnar tapast og kuldinn vex, þið komið ykkur í skjól og ákveðið að halda kyrru fyrir þar til veðr- inu slotar eitthvað. Kl. 19.00 Ekkert lát er á veðrinu og þið haldið á ykkur hita með því að berja hvert annað og hoppa um. 19.10 Lögreglunni berst tilkynning frá stúlku sem saknar foreldra sinna og tveggja systkina sem hafi ætlað að fara á gönguskíði í Blá- fjöll og koma aftur ekki seinna en kl. 17.30 vegna þess að til stóð að fara í leikhús þá um kvöldið. 19.20 Lögreglan gerir björgunar- og hjálparsveitum viðvart eftir að gengið hefur verið úr skugga um að þið séuð hvorki í skíðaskálum á svæðinu né á hinu almenna skíða- svæði, auk þess hefur bíll ykkar fundist mannlaus á bílastæðinu við skálann. Geturðu komið í útkall strax? Hafist er handa við að kalla út allt tiltækt björgunarlið á höfuð- Jón Aöalbjörn Jónsson „„Þú sem hefur rétt til þess að kalla á hjálp eða aðstoð björgunar- og hjálparsveita á neyð- arstundu“ þú getur með því að styrkja björgun- ar- og hjálparsveitirnar nú um hátíðirnar haft svo afgerandi þýðingu fyrir starfsemi sveit- anna að segja má með sanni að við getum ekki án þín verið en þú getur heldur ekki án okkar verið.“ borgarsvæðinu ásamt sérþjálfuð- um hundum til slíkra leita. Menn streyma að aðalstöðvum sveita sinna og jafnóðum eru bílar hlaðnir mönnum sendir af stað til Ieitarsvæðisins. Svæðið er leitað skipulega en sökum veðurs og myrkurs verður að takmarka leit- ina við leit með ljósum. Kl. 00.30 Þið eruð orðin heldur vonlítil um að veðrinu sloti í bráð og eruð með sjálfum ykkur farin að vonast til þess að leit hafi verið kölluð út. Börnin eru orðin helköld og gráta stöðugt. Skyndilega sjáið þið Ijósgeisla til hliðar við ykkur, þið kallið og fáið svar, leitarmenn hafa fundið ykkur og geta því fegnir látið þau boð berast að þið séuð fundin heil á húfi. Þið voruð heppin, þið fundust snemma. Á leiðinni til baka er ykkur sagt að um fimm hundruð manns hafi tek- ið þátt í leitinni að ykkur. „Ódýr leit á mælikvaröa björgunarsveita“ Þessi leit er dæmi um ódýra leit á mælikvarða björgunarsveita en til að gefa þér aðeins hugmynd um þennan mælikvarða getur þú margfaldað töluna 500 (fjöldi leit- armanna) x 90 (lélegt tímakaup) x 6 (tíminn frá því að fyrstu menn mættu til leitar og þar til þeir komust til heimila sinna aftur) en úr þessum útreikningi færð þú að- eins þann launakostnað sem björgunarmenn gáfu til leitarinn- ar eða kr. 270.000,00. ótalinn er sá kostnaður sem myndast óhjá- kvæmilega vegna kaupa, viðhalds og endurnýjunar á tækjabúnaði eða sá kostnaður sem til kemur vegna tíðra æfingaferða sveit- anna. „Lengri leitir augljós- lega dýr útgerð“ Af þessu má sjá að leit svipuð þessari eða lengri (leitir hafa farið upp í 16 daga) eru afskaplega dýr útgerð og ekki á færi björgunar- sveitarmanna einna að stunda hana en það er einmitt þarna sem þú kemur inn í dæmið. „Þú sem hefur rétt til þess að kalla i hjálp Síðumúla23 Sími 687960 - ný hársnyrtistofa Villa rakara Þaö er margt nýtt og skemmtilegt á Aristókratanum. Eitt af því er símanúmerið: 687960 ...og við biðjum þig vinsamlegast um að skrifa það hjá þér þar sem númerið er enn ekki skráð í símaskrána. öruggara er að panta tíma með fyrirvara til þess að forðast óþarfa bið. Dömu- og herraklippingar eins og þær gerast bestar eöa aðstoó björgunar- og hjálpar- sveita á neyðarstundu". Þú getur með því að styrkja björgunar- og hjálparsveitirnar nú um hátíðirn- ar haft svo afgerandi þýðingu fyrir starfsemi sveitanna að segja má með sanni að við getum ekki án þín verið en þú getur heldur ekki án okkar verið. Með þetta í huga vil ég hvetja þig til þess að eiga góð viðskipti við sveitirnar nú um hátíðirnar þannig að þú getir með sjálfum þér vitað að þú hefur beinlínis tek- ið þátt í björgun mannslífa. Með fyrirfram þökk fyrir við- skiptin, Jón Aðalbjörn Jónsson er félagi í Björgvnarsreit Ingólfs í Keykjarík. Þriðja bókin um Glaum- bæjarfólkið Guöjón Sveinsson BÓKAFORLAG Odds Björnssonar hefur gefiö út bókina Enn er annríkt í Glaumbæ eftir Guöjón Sveinsson. í frétt frá útgefanda segir að þetta sé þriðja bókin um fjölskyld- una í Glaumbæ. „Fjölskyldan rat- ar í mörg ævintýr eins og kafla- heitin bera með sér: „Málarinn mjói o.fl. málarar", „Ærsl og upp- skera“, „Ný verkefni í vændum", „Töfratækið" og „Súkkulaðistrák- arnir“. En gleðin er ekki einráð, það skiptast á skin og skúrir í þessari tilveru og sorgin drepur á dyr.“ „Enn er annríkt í Glaumbæ" er fimmtánda bók Guðjóns Sveins- sonar. Bókin er 148 blaðsíður, prentuð og bundin hjá Prentverki Odds Björnssonar hf., Akureyri. Jólatilboð Snæbjarnar 20% afsláttur af öllum Bókaverslun Snæbjarnar, erlendum bókum til jóla Hafnarstræti 4, sími 14281.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.