Morgunblaðið - 18.12.1984, Síða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984
Björn Björnsson heiðursrædismaöur fslands, Kristín Jónasdóttir nemi í Minneapolis, Ellen Schmid-
er, sem mun kenna næsta ir í Reykjavík, og Gunnar Biering læknir.
Valdimar Björnsson og Randa, sem stúderaði i ís-
landi en kennir nú í Kaliforníu.
Námsmanna- og kennaraskipti
HÍ og Minnesota-háskóla
— eftir Valdimar
Björnsson
Fimmtán íslendingar eru nú við
framhaldsnám í háskóla Minne-
sotaríkis í Minneapolis. Talan hef-
ur varla verið jafnhá síðan á
stríðsárunum er 28 manns frá ís-
landi voru við nám í Minnesota, 32
í Berkeley, California, og um 300 í
Ameríku alls. Nú er heildartala ís-
lenskra námsmanna á ýmsum
stigum hartnær 500 hér í landi,
dreifðum á menntasetrum víðs-
vegar í Bandaríkjunum.
Talsverð áherzla er nú lögð á
námsmanna- og kennaraskipti
milli háskólanna á íslandi og í
Minnesota. C. Peter Magrath, þá
rektur Minnesota háskólans, tók
byrjunarskrefin 1982 þegar hann
heimsótti ísland og ræddi við
Guðmund H. Magnússon rektor
Háskóla fslands, Halldór Guð-
jónsson og aðra. Guðmundur rekt-
or hefur heimsótt Minnesota há-
skólann og aðrar stofnanir vestra,
i svipuðu augnamiði.
Frú Carol Pazandak stendur nú
aðallega fyrir skiptunum milli há-
skólanna. Hún kenndi sjálf við há-
skólann í Reykjavík í sinni sér-
grein, sálfræði, og líka í „student
counselling", hálft námsárið 1984
og mun hún vera við háskólann i
Reykjavík skamman tíma aftur,
snemma á næsta ári, í febrúar.
Hún ber titilinn „Assistant to the
President". Skiptin við ísland eru
í hennar verkahring og hefur nún
myndað nefnd til aðstoðar í því
starfi hér sem hefur fjárstyrk að-
allega á dagskrá. Hún stofnaði
University of Minnesota Alumni
Assosiation í Reykjavík 1983, fé-
lag þeirra sem hafa fengið gráður
við Minnesota háskólann og
stundað framhaldsnám þar eða á
Mayo-stofnuninni í Rochester,
sem hefur haft náið samband við
háskólann í áraraðir. Auðólfur
Gunnarsson læknir í Reykjavík
veitir félaginu forstöðu nú og tók
hann við að Sigurbirni Þor-
björnssyni skattstjóra.
Dr. Pazandak er alnorsk að ætt-
erni sjálf en Bruce maður hennar
rekur föðurætt sína til Tékkóslóv-
akíu en móðir hans er sænsk. Þau
hjónin og aðrir starfsmenn við
Minnesota háskólann héldu meiri-
háttar kvöldboð á Pazandak heim-
ilinu í sumar sem leið og eru
myndirnar sem fylgja þessari
grein teknar við það tækifæri.
Heiðursgestir voru Gunnar Bier-
ing barnalæknir og Herdís Jóns-
dóttir hjúkrunarkona, kona hans;
þau voru þá hér á ferð. Bæði hjón-
in voru um tímabil í Minnesota
háskólanum fyrir nokkrum árum.
Þar voru mætt nokkrir sem
verða við Háskóla íslands við
kennslu eða framhaldsnám á
næstunni. Þar á meðal frú Mary
Ellen Schmider, Dean Abraham-
son, og Clarke Channing, sem
koma til þess að kenna í Reykja-
vík, hún í félagsfræði, Dean Abra-
hamson i stjórnfræði og Clarke
Chambers í Ameriskri sögu. Dean
Abrahamson byrjar ekki við
kennslu á íslandi fyrr en næsta ár
en hann fór til íslands núna í sept-
ember ásamt konu sinni Sigrúnu
Stefánsdóttur. Þau giftust í fyrra í
Minneapolis þar sem Sigrún var
að Ijúka námi í sambandi við
meistaragráðu í fjölmiðlafræði.
Er hún komin aftur í starf sitt við
Sjónvarpið.
Útnefning kennara frá Háskóla
íslands sem munu fara til Minne-
sota á næstunni er enn í undirbún-
ingi og er eins með suma sem fara
héðan til Reykjavíkur.
Auk þeirra fimmtán sem stunda
nám hér frá íslandi við Háskólann
er ein á Macalester College í St.
Paul. Snædís Snæbjörnsdóttir.
Margeir Gissurarson og Hulda
Biering kona hans eru i
framhaldsnámi en í deildum sem
eru á „St. Paul Campus", hann í
matvælafræði og hún í hann-
yrðakennslufræði. Helgi Jó-
hannsson stundar landbúnaðar-
verkfræði og Gunnlaug Einars-
dóttir kona hans, efnafræði. Árni
Sigurðsson er í verkfræði, Hildur
Sigurðardóttir kona hans, hjúkr-
unarfræði. Frú Sölvína Konráðs-
dóttir er nú á öðru ári við fram-
haldsnám í sálfræði og Ásgeir
Eiríksson langt kominn með auka-
nám sitt í rafmagnsfræði. Ragnar
Björnsson er nýkominn í haust og
heldur sig við tölvufræði á meðan
að Kristín Jónasdóttir kona hans
nemur félagsfræði. Friðrik Ey-
steinsson er í meistaragráðunámi
við hagfræði og er kona hans hér
úti líka, Valgerður Oddsdóttir.
Þórunn Bjarnadóttir er í fjöl-
miðlafræði og Seth, amerískur
maður hennar, er með. Ágústa
Gunnarsdóttir heldur áfram í
sálfræði, Bima Björnsdóttir í
fjöimiðlafræði og Arnór
Guðmundsson í félagsfræði.
Aðrir í boðinu mikla hjá frú
Razandak í surnar voru Val Sea-
berg, skiptinemi héðan við Há-
skóla íslands í fyrra og Randa
Mulford, nýfarin til Palo Alto,
Kaliforníu, þar sem hún kennir
við Leland Stanford University
„Child Development", eða þroskun
barna. Hún var meira en ár við
nám í Reykjavík og talar íslenzku
vel.
Prestar úr þjóðkirkju íslands
hafa komið hingað síðari árin og
verið mismunandi lengi á Luther
Northwestern Theological Semi-
nary í St. Paul — upprunalega
norsk-lútherskur prestaskóli. Nú
er Séra Þorvaldur Karl Helgason
kominn í þeim erindum ásamt
Þóru Kristinsdóttur konu hans;
Séra Þorvaldur er þjónandi prest-
ur í Njarðvíkum. Á undan honum
í St. Paul var Séra Sigfinnur Þor-
leifsson, kona hans, Bjarnheiður
Guðmundsdóttir og börnin, farin
heim til sín fyrir nokkru. Séra
Birgir Ásgeirsson, prestur á Mos-
felli, er líka farinn heim í sína
sókn eftir að hafa fylgst með að-
ferðum á Hazelden-hælinu um
tíma, hér skammt fyrir norðan.
Frk. Guðrún Margeirsdóttir,
hjúkrunarkona frá Hæli í Vest-
mannaeyjum fór heim í starf sitt
við svæfingar á Landspítalanum
22. nóvember eftir nokkurra vikna
dvöl hér. Hún starfaði á ýmsum
sjúkrahúsum í Minneapolis og St.
Paul fyrir nokkrum árum og kom
aftur til frekari kynningar í grein
sinni. Aðrir hafa komið og farið
eins og vant er. Fríða Ingvars sem
vinnur á ferðaskrifstofu skammt
frá Tjörninni kom í mjög snögga
heimsókn fyrir skemmstu til móð-
ursystur sinnar, frú Guðrúnar
Jónsdóttur, konu Valdimars
Björnssonar. Páll Gíslason læknir
og Soffía Stefánsdóttir kona hans
voru hér nokkra daga á meðan
Páll sótti læknafundi í Minne-
sota-háskólanum. Var ferðinni
síðan heitið til San Francisco, þar
sem hann sat fundi með þúsund
skurðlæknum er komu víðsvegar
að. Orðinn frægur hér um slóðir
sem skurðlæknir í hjartaaðgerð-
um, Örn Arnar og Margrét Krist-
jánsdóttir kona hans skruppu til
íslands í sumar með fjögur börn-
in, þar sem örn sótti stúdenta-
afmælishóf. Anna dóttir þeirra
hefur unnið í Reykjavík um tíma-
bil og verið við nám þar um leið.
Læknishjónin og börn þeirra fóru
í ferðalag á íslandi í sumar, ak-
andi þvert yfir land frá Neskaup-
stað til tsafjarðar í dásamlegu
veðri sem þau nutu vel eftir bleyt-
una í höfuðborginni.
Um dreifingu íslenzkra náms-
manna hér í landi eru nærtæk
dæmi innan fjölskyldunnar. Stef-
anía systir, gift manni sem kennir
stærðfræði við Ohio University í
Athens, segir frá heimsóknum
reglulega frá einum sex íslending-
um sem þar eru við nám, og Helga
dóttir okkar, gift manni sem er við
kennslu og rannsóknir í eðlisfræði
í Alabama University í Tusca-
loosa, minnist á fleiri tslendinga
sem sækja þar nám og aðra mjög
nær sem stunda nám í Birming-
ham, Alabama, þar sem Pálmi
Möller hefur kennt tannlækna-
fræði í mörg ár.
Um landa hér svo víða á þessum
árum mætti heimfæra nokkrar
línur úr leikriti Björnstjerne
Björnssonar, Sigurd Jorsalfar:
Norröna-folket, det vil fare
det vil före kraft til andre.
Kampens gladvind kaster
gjenglans,
aeren öker folkets arbeid.
Valdimar Björnsson er fyrrverandi
fjármálaráðherra í Minnesota.
Sælgætisverzlunin
„Sextfu og níu“
NÝLEGA var opnuð í Reykjavík sæl-
gætisverslun á Hverfisgötu 69 undir
nafninu Sextíu og níu. í raun er hér um
enduropnun að ræða þar sem samskon-
ar verslun var rekin á sama stað fyrir
allmörgum árum, lengst af undir nafn-
inu Florida en síðar sem Dísafell. Hús-
næði verslunarinnar hefir verið lag-
fært á smekklegan hátt og geta við-
skiptavinir nú verslað innan dyra í stað
þess að standa úti í kulda og trekki.
Mikið og gott úrval er af alls kyns
sælgæti, bæði innlendu og erlendu,
ásamt tóbaki, öli og gosdrykkjum, ís,
samlokum o.m.fl. Einnig verður fjöl-
breytt úrval af konfektkössum í öllum
stærðum og gerðum og geta viðskipta-
vinir fengið kössunum pakkað inn i
gjafaumbúðir. Öll dag- og helgarblöð
eru seld, einnig tímarit.
Verslunin er opin alla daga frá kl.
9—23.30. Eigandi er Svanhvít Árna-
dóttir.
Jólablað Húsfreyjunnar
um jólahald og jólasiði
JÓLABLAÐ Húsfreyjunnar, blaös
Kvenfélagasambands íslands, er
komið út yfir 60 síður að stærð og
með mynd af jólasmákökuborði á
forsíðu. í ávarpsorðum ritstjórnar
segir m.a.: „Senn líður að jólum og
jólaundirbúningurinn er í fullum
gangi. í þessu blaði ræðum við
m.a. við fjórar húsmæður um jóla-
hald og jólasiði. Sagt er frá kristn-
um jólum á Indlandi. Stefanía og
Ingibjörg Þórarinsdóttir gefa upp-
skriftir af jólahandavinnu og jóla-
kökum. Björg Einarsdóttir segir
frá stúlkunni í Garðhúsum, sem
varð greifafrú í útlöndum. í neyt-
endaþættinum eru gefin ýmis góð
ráð til sparnaðar. Þau ættu að
koma öllum að góðum notum, ekki
síst nú eftir langvinnt verkfall,
sem hefur haft áhrif á allan þjóðar-
búskapinn.
Ritstjórn Húsfreyjunnar skipa
Ingibjörg Bergsveinsdóttir, Sigríð-
ur Ingimarsdóttir, Stefanía Magn-
úsdóttir, Sigríður Thorlacius og
Ingibjörg Þórarinsdóttir.