Morgunblaðið - 18.12.1984, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984
69
Minning:
Bjarni Erlendsson
húsasmíðameistari
Þekktur Hafnfirðingur, Bjarni
Erlendsson húsasmíðameistari,
lést 9. desember sl. 86 ára að aldri.
Bjarni var einn þeirra athafna-
sömu og dugmiklu manna, sem
tóku þátt í hinni miklu uppbygg-
ingu og framförum íslensku þjóð-
arinnar í byrjun þessarar aldar.
Lét hann ekki sinn hlut eftir
liggja, enda kjarkmikill og áræð-
inn afkastamaður.
Bjarni var fæddur 3. desember
1898 að Arnarstöðum i FLóa, í
Árnessýslu, sonur hjónanna Gróu
Bjarnadóttur og Erlendar Jóns-
sonar. Systkinin voru fjögur, tvær
systur og tveir bræður og var
Bjarni næstyngstur.
Foreldrar Bjarna fluttu frá
Arnarstöðum að Bakkakoti á
Seltjarnarnesi og þaðan til Hafn-
arfjarðar árið 1907. Fluttu þau þá
í lítið hús er þau keyptu og þá var
Suðurgata 23 en síðar breyttist
húsnúmerið og varð Suðurgata 49.
Þegar Bjarni var að alast upp
var hann í sveit á sumrin hjá
frændfólki sínu að Arabæ í Flóa
en 16 ára gamall hóf hann nám í
húsasmíði hjá Ingibergi Þorkels-
syni frá Smádölum og var síðan
við skipasmíðar hjá Júlíusi V.J.
Nyborg.
Bjarni kvæntist 24. nóvember
1923 Júlíu Magnúsdóttur frá
Kolsholtshelli í Flóa. Eru börn
þeirra sjö og öll búsett I Hafnar-
firði. Barnabörnin eru orðin 21 og
barnabarnabörnin 23. Árið 1928
byggði Bjarni nýtt hús að Suður-
götu 49. Var það stórt hús miðað
við það sem þá gerðist, vel vandað
og þótti eitt af fegurstu húsum
bæjarins. Þar bjó Bjarni til ævi-
loka.
Heimili þeirra Bjarna og Júlíu
var myndarlegt og vel var búið að
barnahópnum, enda allt kapp lagt
á að hlynna sem best að þeim bæði
á meðan þau voru í heimahúsum
og rétta þeim hjálparhönd síðar ef
með þurfti. Það var gott að leita
ráða hjá Bjarna og hann var
hjálpfús þegar á þurfti að halda.
Smíðar voru ævistarf Bjarna.
Hann vann við mikinn fjölda
bygginga, stærri og smærri, bæði
sjálfstætt og með öðrum. Væri lít-
ið að gera hér í bænum var vinnu
leitað utan bæjar, því ekki þótti
gott að láta verk úr hendi falla.
Jafnframt vann Bjarni að smíði
ýmissa hluta á verkstæði sínu,
sem hann hafði i kjallara húss
síns.
Þegar ég kynntist Bjarna vann
hann við skipaviðgerðir hjá Skipa-
smíðastöð Hafnarfjarðar, en hún
var rekin af Júlíusi VJ. Nyborg.
Júlíus vildi koma upp dráttar-
braut á lóð Skipasmíðastöðvarinn-
ar en var synjað af skipulags-
ástæðum. Varð því ekkert af slík-
um framkvæmdum. Starfs-
mönnum Skipasmíðastöðvarinnar
þótti óörugg vinna við skipaþjón-
ustu ef ekki yrði byggð dráttar-
braut og kom því upp sú umræða
að taka sig saman um að hrinda
því máli í framkvæmd. Varð fljótt
mikill áhugi hjá mönnum og var
stofnað hlutafélag, sem hlaut
nafnið Skipasmíðastöðin Dröfn hf.
Stofnendur voru tólf og var Bjarni
Erlendsson einn þeirra og mjög
áhugasamur um framgang máls-
ins. Allir áttu jafnan hlut og til-
gangurinn var að tryggja atvinnu
minnugir erfiðleika kreppuár-
anna. Dröfn tók til starfa vorið
1942 og var þá jöfnum höndum
unnið að skipaviðgeröum og smíð-
um og byggingu húsa. Þar kom að
það þótti hentugra að stofna ann-
að félag, sem sæi um húsbygg-
ingar, og var þá Byggingafélagið
Þór hf. stofnað og var Bjarni í
stjórn þess á meðan það starfaði
sjálfstætt.
Hluthafarnir lögðu á sig mikla
sjálfboöavinnu við að byggja
fyrirtækin upp og lá Bjarni þar
ekki á liði sínu. Ávallt var mjög
góð samvinna milli eigenda hluta-
félaganna Drafnar og Þórs og ent-
ist hún alla tíð.
Bjarni var einn af stofnendum
Iðnaðarmannafélags Hafnarfjarð-
ar og heiðursfélagi þess síðustu
árin. Trésmiðafélag Hafnarfjarð-
ar var stofnað 1920 en varð ekki
Fædd 22. nóvember 1901
Diin 28. nóvember 1984
Ég kveð mína kæru systur og
þakka allar góðar og dásamlegar
minningar frá æskuárunum í for-
eldrahúsum. Þau gieymast ekki
æskuárin okkar. Við sváfum sam-
an frá 4—6 ára aldri til tvítugs að
leiðir skildu og við stofnuðum
okkar eigin heimili. Við unnum
saman og aldrei urðum við ósátt-
langlíft. Það var síðan endurvakið
árið 1924 og voru stofnendurnir 15
trésmiðir. Bjarni var einn þeirra
og átti hann sæti í fyrstu stjórn
þess. Bjarni var mjög söngelskur
ar, systrakærleikurinn hefur ekki
rofnað til þessa.
Mín kæra systir hvíli í friði og
hafi kærar þakkir fyrir allt.
Sólveig Steinunn Pilsdóttir
★
í minningargrein um Rebekku
hér i Mbl. 8. desember féll niöur
nafn afa Rebekku. Það var Hall-
dór Hermannsson bóndi á Naut-
eyri.
og söng í Karlakórnum Þresti um
skeið og einnig var hann í kirkju-
kór Hafnarfjarðarkirkju.
Með Bjarna er mætur maður
genginn. Fólki þótti gott að hafa
hann í vinnu. Hann var traustur,
stóð við orð sín, mikilvirkur og
vinnusamur. Það var gott að vinna
með honum og mörgum lærlingn-
um sagði hann til verka. Vini átti
hann marga og var vinfastur. Líf-
ið var ekki ávallt dans á rósum en
erfiðleikum var mætt með jafnað-
argeði og ekki gefist upp, enda
þurfti að sinna stóru heimili.
Glaðst var af hógværð þegar vel
gekk. Má í fáum orðum segja að
farsæld hafi einkennt líf og starf
Bjarna. Við kveðjum og þökkum
góðum samferðarmanni, samferð-
armanni, sem gott var að kynnast
og gott að vera með. Konu hans,
börnum og öðrum aðstandendum
flytjum við innilegar samúðar-
kveðjur. Guðs blessun fylgi góðum
dreng.
Páll V. Daníelsson
Rebekka Pálsdótt-
ir Bæjum — Kveðja
. . . UM HINN HREINA TÓN —
TELETON hljómflutningstœkin eru látlaus. einföld og falleg hid ytra. En innra með
þeim býr náhvœmnin. tœhnifágunin — fullhomleihinn.Þaðan hemur
HINN HREINI TÓNN - TELETON.
TELETON-sawslíPðfl er mynduð úr plötuspilara. magnara. útvarpi. segulbandi og
sháp auh tveggja hátalara. En þú getur líha valið sjálfur í þína samstæðu —
haft hana stóra eða litla:aðalatriðið er að HINN HREINI TÓNN berist til þín —
með TELETON.
umt
&SAMBANDSINS