Morgunblaðið - 18.12.1984, Blaðsíða 74
74
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984
DOLLY PARTON
„Mig hefur
alltaf langað
til að
eignast barn“
Dolly Parton hefur oft
verið á síðum erlendra
tímarita og verið sett í sam-
band við hina ýmsu karl- .
menn. Dolly hefur samt sem
áður verið gift sama mannin-
um í upp undir tuttugu ár og
segist í viðtali vera ákaflega
hamingjusöm. Er hún var
spurð út í allar sðgusagnirn-
ar um t.d. Burt Reynolds og
Sylvester Stallone sagði hún
að vissulega væri hún mann-
eskja og oft hafi ýmislegt
freistað, en hún elski mann-
inn sinn of mikið til að særa
hann og vera honum ótrú.
Hún sagði: „Kannski hefur
hann átt sín saklausu ævin-
týri, en á milli okkar ríkir
fullur skilningur í þessum
efnum. Ef hann ætti ástkonu
einhvern tíma, er ég ekki viss
um að mig myndi langa að
vita það. Ég vil ekki heldur
vera særð.“ Hún sagði eig-
inmann sinn hafa flest til að
bera sem kona getur óskað
sér. Það er aðeins einn hlut
sem áþreifanlega vantar í
hjónabandið og það er barn,
sagði Dolly. „Allt lífið hefur
mig langað til að eignast
barn, en mér hefur aldrei
hlotnast það. Það er eitthvað
að mér og mér óar við til-
hugsuninni um uppskurði
Þau hjónin hyggjast ættleiða
barn á næstu árum, lfklega
þegar þau fagna tuttugu ára
brúðkaupsdeginum eftir tvö
ár.
LINDA OG PAUL MCCARTNEY
Sífelldar
líf- og
ránshótanir
Eins og blm. hefur oft minnst
á áður hér á síðunni er þaö
ekki alltaf tekið út með sældinni
að vera frægur. Linda og Paul
McCartney verða að búa svo til
einangruð með börnum sínum á
bóndabænum sínum i Sussex
með mikinn mannskap á vakt,
því það eru daglega sífelldar líf-
láts- og ránshótanir sem bíða
þeirra.
KEITH SEM Nt
HEITIR STEPHANIE:
„Ég skildi aldrei
af hverju ég leit
út eins og karlmaður“
Stephanie Anne Lloyd fæddist
sem karlmaðurinn Keith
Michael Hull er síðar gifti sig og
eignaöist þrjú börn. Hann átti
samt sem áður alltaf í baráttu við
sig því það var honum ómeðvituð
árátta að líkjast konu. Síðastliðið
ár fór Keith í kynskiptingu og er
skilgreindur sem kona í dag. Eftir
áralanga baráttu við sjálfan sig og
vanlíðan ákvað hann þetta. Það
var mikið sem átti eftir að breyt-
ast í kjölfar þessa. Hann missti
allt, eiginkonuna auðvitað, en alla
fjölskylduna einnig, heimilið, og
alla vini. Stephanie gerir sér grein
fyrir því að þessi fórn færði henni
líka þá staðreynd að alltaf mun
verða litið á hana sem skrítna
persónu og allt öðruvisi en annað
fólk.
Frá barnsaldri kom þessi til-
hneiging fram hjá henni t.d. i því
að leika sér frekar að dóti sem
stúlkur aðhylltust en ekki taka
þátt í leikjum með drengjum.
Jafnvel fötin fannst honum óþægi-
leg og þegar enginn vissi átti hann
það til að máta og vera í kvenföt-
um. Þegar æskuárin voru á enda
reyndi hann að fylgja fjöldanum
og segir: „Ég hataði að raka mig
og það minnti mig á karlmanninn
í mér sem ég gat ekki losnað við.
Ég skildi ekki hversvegna ég leit
út eins og maður, en var í rauninni
kona í mér. I raun hélt ég að ég
væri geðveikur. Stundum kom það
fyrir að mér datt í hug að ég hefði
lent í bílslysi, væri meðvitundar-
laus og myndi bráðum vakna upp
sem kona.“
f skóla var hann aldrei með
stúlkum og gat ekki heldur hugsað
sér að vera með karlmönnum.
Einu sinni löngu seinna varð hann
yfir sig ástfanginn af konu er var
gjaldkeri og hugsaði: „Ég er orð-
inn ástfanginn af kvenmanni. Hún
hafði þannig áhrif á mig sem
engri konu hafði tekist áður. Þetta
var allt sem mig vantaði, hélt ég,
að finna einhvern til að elska.
Þegar hún varð ófrísk eftir að við
höfðum gift okkur varð ég ham-
ingjusamari en orðum tekur að
Aðallinn í „Putalandi“
w
Amyndinni má sjá Teresu og Henri prins í Luxemborg, ásamt börn-
um sínum Felix sem er sex mánaða og Guillaume þriggja ára.
Fjölskyldan hefur lengi verið fræg fyrir að vilja ekki ljósmyndatökur, en
hefur í þessu tilfelli brugðið út af venjunni og leyft myndasmiðnum að
nálgast.