Morgunblaðið - 18.12.1984, Síða 81
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAoUR 18. DESEMBER 1984
81
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rðgnvaldsson
„Að mínu mati voru þetu einir bestu hljómleikar Mezzoforte hvað varðar spiiamennskuna," sagði hljóðmeistarinn fri Englandi, Geoff Calver, eftir að þeir
höfðu spilað í Háskólabíói á sunnudagskvöld. Calver kom sérstaklega frá Englandi til að annast hljómblöndun á hljómleikunum.
Einir bestu
hljómleikar
Mezzoforte
„ÞAÐ var mjög gaman, mjög
gaman. Það er verst að þurfa
að setja upp svona stóra
hljómleika, koma sér í gott
form og spila síðan aðeins í
kvöld. Það hefði verið gaman
að geta spilað oftar, en það er
ólíklegt að úr því verði a.m.k.
ekki með öllum þessum
sviðsbúnaði," sagði Eyþór
Gunnarsson, einn liðsmanna
Mezzoforte, eftir hljómleika
sveitarinnar í Háskólabíói á
sunnudagskvöld.
Mezzoforte spilaði á tvennum
tónleikum á sunnudaginn, þeir
fyrri voru fyrir einhverf börn og
aðstandendur þeirra, en þeir síð-
ari voru haldnir til styrktar ein-
hverfum börnum. Þrátt fyrir
þetta og von um góða tónlist
seldust ekki allir miðar á hljóm-
leikana. En strákarnir létu það
ekki á sig fá og spiluöu af fingr-
um fram og hlutu undir lokin
góðar undirtektir áhorfenda. Sáu
áhorfendur í fyrsta skipti nýlið-
ann í hljómsveitinni, Danann
Niels Macholm, sem fyllti skarð
Kristins Svavarssonar sem hætti
fyrr á árinu í hljómsveitinni.
„Strákarnir spiluðu vel á tónleik-
unum, sem voru góðir, en mér
hefur oft tekist betur upp en í
kvöld," sagði Niels í samtali við
Morgunblaðið. „Það er virkilega
gaman að spila með Mezzoforte,
því maður fær mikið svigrúm til
að spila létt og taka sóló annað
slagið."
Tveir kollegar á saxófón raula hér viðlag af innlifun, Krístinn Svavarason
fyrrverandi saxófónleikari Mezzoforte og núverandi „sazarí", Daninn Niels
Macholm, skemmta sér greinilega hió besta saman, en sá fyrrnefndi tók
nokknr lög með Mezzoforte á sunnudaginn.
GENGUR
ENDURMINNINGAR SIGURÐAR THORODDSEN
EINS OG GENGUR er óvenjuleg endurminningabók, óvenju-
leg vegna þess hve hún er skemmtileg.
Siguröur Thoroddsen varö þjóökunnur fyrir verkfræöistörf
sin, en honum var margt fleira til lista lagt. í þessum endurminn-
ingum, sem hann skráöi siðustu árin sem hann lifði, segir hann
frá uppvaxtarárum á Bessastööum og í Vonarstræti 12, náms-
árum hér heima og í Kaupmannahöfn, feröalögum um land allt i
sambandi við virkjanir, frá Bretavinnu og þingmennsku, en lika
árangurslitlum tilraunum sínum á sviöi uppfinninga og fyrstu
skopmyndasýningunni, sem haldin varí Reykjavík.
Siguröur hafði næmt auga fyrir kátlegum hliöum tilverunnar,
og hann var alveg laus við sjálfsupphafningu og óþarfa hátíö-
leika. Samferöamönnum sínum lýsir hann hispurslaust en af
sanngirni, og kryddar frásögn sina ótal smáþáttum og ein-
kennilegum visum, þar á meðal áöur óbirtum kvæöum eftir Jón
Helgason og Halldór Laxness.
íbókinnierfjöldimynda.
Verökr.1170.-
Félagsverð kr. 995. —
(jefumcjóðarbœkur
og menning
Lóðbyssur
Lóðboltar
Málbönd
Ódýr topp
lyklasett
í úrvali
Vald Paulsen
Suöurlandsbraut 10,
Sími 686499