Morgunblaðið - 18.12.1984, Side 83
MORGUNBLADID, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1984
83
Á8dís Valdimarsdóttir
„Endalaust hægt að
auka þekkinguna“
— segir Ásdís Valdimarsdóttir,
nemandi í lágfiðluleik við
Juilliard-tónlistarháskólann í New York
ÁSDÍS Valdimarsdóttir er 22 ára gömul og hefur undanfarin fjögur ár
hefur numið lágfiðluleik við hinn þekkta og virta Juilliard-tónlistar-
skóla í New York. Síðastliðið vor lauk hún BM-prófi frá skólanum og
næsta vor hyggst hún Ijúka MM-prófi þaðan. Ásdís er nú komin heim til
að dvelja í faðmi fjölskyldunnnar yfir hátíðirnar. Ekki í algeru fríi þó,
því hún leikur einleik á þriðju áskriftartónleikum íslensku hljómsveit-
arinnar sem haldnir verða í Bústaðakirkju miðvikudaginn 19. þ.m.
Sama dagskrá verður flutt á tónleikum í íþróttahúsinu í Keflavík
daginn áður, þann 18.
Blaðamanni þótti ekki úr vegi
að spjalla við Asdísi og forvitn-
ast nánar um hagi hennar. „Ég
byrjaði ung að læra hljóðfæra-
leik í Barnamúsíkskólanum, en
þá á fiðlu," sagði Ásdís. „Síðar
var ég við nám í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík með Rut Ing-
ólfsdóttur sem aðalkennara. Ár-
ið 1979 skipti ég síðan alfarið um
hljóðfæri og sneri mér að lág-
fiðlunni, þar sem mér þótti hún
skemmtilegra hljóðfæri. Árið
1980 hóf ég síðan nám við Ju-
illiard-tónlistarskólann og lýk
þaðan lokaprófi í vor. Þá hef ég
sótt fjölda sumarnámskeiða í
lágfiðluleik, í Bandaríkjunum,
Frakklandi og á ítaliu."
— Hvernig líkar þér svo í
Juilliard?
„Ég kann mjög vel við mig,
þetta er strangur skóli og sam-
keppnin mikil meðal nemenda. í
Juilliard er líka lögð meiri
áhersla á sjálfan hljóðfæraleik-
inn en á fræðilegu hliðina, sem
er öfugt við flesta tónlistarhá-
skólana í Bandaríkjunum. Af því
leiðir að tímasóknin er frekar
lítil en í staðinn æfum við okkur
heima þeim mun meira.“
— Reyndist það þér erfiðleik-
um bundið að komast inn í skól-
ann?
„Nei, ég þreytti inntökupróf
við skólann um haustið ásamt
fjölda annarra. Mér gekk alla-
vega nógu vel til að komast inn
þó að ég hefði í raun og veru
aldrei reiknað með þvi.“
— Hvernig er svo að búa í
stórborginni New York?
„Hún hefur sína galla, þar er
dýrt að lifa og glæpirnir
ógnvekjandi. Samt sem áður er
New York ákaflega spennandi
borg. Tónlistarlífið þar er mjög
frjótt og lifandi og margir
heimsfrægir hljóðfæraleikarar
sem manni gefst kostur á að sjá
leika. Énda er það stór þáttur í
náminu að sækja tónleika. Tvær
aðrar íslenskar stelpur eru við
tónlistarnarh í Juilliard og fleiri
íslendingar í öðrum skólum
borgarinnar, svo allavega er nóg
af vinum.“
— Hvað hefurðu í hyggju að
gera að loknu MM-prófinu í vor?
„Ég reikna með að fara í fram-
haldsnám til Evrópu, annað
hvort til Hollands eða Þýska-
lands. Maður getur endalaust
aukið kunnáttu sína svo ég hætti
örugglega ekki i námi á næst-
unni.“
Helgarskákmótið;
Tveir tólf ára drengir í
hópi efstu skákmanna
HELGARSKÁKMÓTIÐ, hið 27. í röðim
ósi og Skagaströnd nú um helgina 14.
hesta sína 32 skákmenn og uróu þeir e
Haukur Angantýsson með 6 vinninga.
anna vakti mikla athygli á þessum mt
Stefánsson, hafnaði í 5. til 7. sæti með
Að sögn Jóhanns Þóris Jónsson-
ar, hjá tímaritinu Skák, vakti
árangur yngstu skákmannanna
mikla athygli á þessu móti og
sagði hann að greinilegt væri að
íslendingar ættu marga mjög
efnilega skákmenn, sem vænta má
mikils af í framtíðinni. „Það er til
Ólafsvík:
Hvassviðri
Ólafsvík 17. desember.
HÉR GERÐl mikið sterkviðri að-
faranótt laugardagsins og stóð það
fram eftir degi með hámarki um há-
degisbil. Á ferðinni var hinn ábúð-
armikli Stóri-Sunnan sem við Ólsar-
ar höfum fyrir löngu drukkið dús og
erum nokkuð sáttir við þegar hann
er ekki með stórhríð í farangrinum
eins og löngum í fyrravetur.
Klukkan 18 á laugardag þegar
okkur fannst vera farið vel að
slakna, voru gefin upp 12 vindstig
á Gufuskálum og má á því sjá að
nokkuð hefur hann verið gustmik-
ill hér inn með fjallgarðinum.
Tjón varð ekki verulegt í ólafsvík.
Fáeinar þakplötur losnuðu og fuku
hér og þar og björgunarsveitin var
kölluð út til að afstýra foki á
gömlum útihúsum á Rauðatorgi
svonefndu. Ekki er mér kunnugt
um tjón á ökutækjum enda aka
menn ógjarnan um nema í brýnni
nauðsyn þegar svona blæs. Bátar
voru í höfn.
Jörð var marauð á laugardag en
með vestanáttinni gerði skóvarpa-
snjó, rétt hæfilegan fyrir jóla-
sveinana. Það er einlæg trú okkar
að ekki verði snjóasamt hér í vet-
ur. í því efni spyr maður mann því
okkur fannst ástandið síðastliðinn
vetur vera dálítið þreytandi. Ég
hringdi því í Þorgils i Hrísum í
fyrradag. Sagðist hann vera hinn
vonbesti hvað veturinn varðar.
ni, var haldið sameiginlega á Blöndu-
til 16. desember. Þar leiddu saman
stir og jafnir Elvar Guðmundsson og
Góð frammistaða yngstu skákmann-
ti og 12 ára drengur, Hannes Hlífar
> vinninga.
dæmis greinilegt að það er mikið
efni á ferðinni þar sem Hannes
Hlífar er því að á þessu móti
keppti hann á móti mjög sterkum
skákmönnum. Einnig mætti nefna
fleiri unga stráka sem vakið hafa
mikla athygli að undanförnu,"
sagði Jóhann Þórir. Unglingaverð-
um helgina
Minnti hann til dæmis á þá gömlu
trú manna að vera ætti líkt með
jólaföstu og lönguföstu. Helgi
Jólapóstur tefst
vegna veðurs
í GÆR rann út síðasti frestur til að
koma bréfum og bögglum í póst fyrir
jólin. Að sögn Kristjáns Hafliðason-
ar, yfirdeildarstjóra í Póstmiðstöð-
inni við Ármúla, var fólk eins og svo
oft áður, á síðasta snúningi að póst-
leggja og mjög margir komu á síð-
asta degi.
„Fólk virðist aldrei reka sig á“,
sagði Kristján. „Það kemur of
seint með jólapóstinn ár eftir ár
og virðist aldrei reikna með því að
veðrið geti sett strik í reikninginn.
Um helgina versnaði veður víða
um land og í gær var lítið sem
ekkert flogið. Því hefur hálfgert
vandræðaástand nú skapast og
póstflutningar utan af landi og út
á land komnir í nokkuð strand. Ef
veðrið skánar ekki fljótlega er alls
óvíst að landsmenn fái allir jóla-
póstinn í tæka tíð.“
Kristján sagði ennfremur að í
dag væri fyrirhugað að senda
vöruflutningabíla með póst til
Austfjarða en það tekur um sól-
arhring að aka þangað.
laun, sem eru þrenn á þessu móti,
skiptust þannig: Fyrstu verðlaun
hlaut Hannes Hlífar Stefánsson,
önnur verðlaun Davíð ólafsson og
þriðju verðlaun hlutu Þröstur
Árnason, Þröstur Þórhallsson og
Haraldur Baldursson.
Úrslitin á mótinu voru annars
sem hér segir: í 3. til 4. sæti voru
Dan Iiansson og Jóhannes Gísli
Jónsson með 5Ví> vinning, í 5. til 7.
sæti voru Sævar Bjarnason, Ás-
geir Þór Árnason og Hannes Hlíf-
ar Stefánsson 12 ára, með 5 vinn-
inga. Davíð Ólafsson unglinga-
meistari íslands varð í 8. sæti með
4% vinning, Þröstur Árnason, sem
er 12 ára varð í 9. sæti með 4 vinn-
inga og í 10. sæti varð Þröstur
Þórhallsson, sem einnig er úr hópi
yngstu skákmannanna, með 4
vinninga. Sturla Pétursson og
Benóný Benediktsson skiptu með
sér öldungaverðlaunum. Sérstök
verðlaun voru veitt fyrir bestu
frammistöðu dreifbýlismanns og
þau hlaut Sigurður Daníelsson.
Besta árangri heimamanns náði
Jóhann Guðmundsson, Holti i
Svínadal. Að sögn Jóhanns Þóris
Jónssonar fór mótið mjög vel fram
og er mikill hugur í heimamönn-
um að standa að alþjóðlegu móti á
næstunni.
Vestmannaeyjar:
Jólatónleikar
í Landakirkju
Vestmannaeyjum, 17. desember.
ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ 18. des-
ember klukkan 21.00 verður efnt til
jólatónleika í Landakirkju í Vest-
mannaeyjum. Sigríður Ella Magn-
úsdóttir messósópran og Geir Jón
Þórisson bariton syngja ásamt kór
Landakirkju við undirleik Guð-
mundar H. Guðjónssonar.
Flutt verða innlend og erlend
jólalög. Jólatónleikar í Landa-
kirkju hafa verið árlegur viðburð-
ur í Vestmannaeyjum síðustu ár.
Þeir hafa mælst vel fyrir og fer
þeim fjölgandi frá ári til árs sem
hafa sótt þá. — hkj
Melabo
snúrulaus - makalaus borvél
Hentug til notkunar í sumarbústöðum,
uppi á þaki og í nýbyggingum, þar sem ekki
er hægt að draga marga metra af
snúru á eftir sér.
Metabo Akku borvélin er tveggja hraða,
snýst aftur á bak og áfram,
er með 10 mm patrónu og höggbor.
Hleðslutæki fyrir rafmagn fylgir.
Hleðslutæki fyrir sígarettukveikjara bilsins
fáanlegt.
Metabo Akku er kraftmikil og hentug borvél
fyrir þá sem vilja ekki draga snúrur
á eftir sér.
METABO = Kraftur, ending, öryggi.
B.B.BYGGINGAVÖKUR HF
Nethyl 2, Artúnsholti, Simi 687447 og Suðurlandsbraut 4, Simi 33331
Halló krakkarl
18 skíöagleraugu frá Blkarnum og
Sportvali í tilefnl dagsins.
Vinningsnúmer. 31053,63886,_____
118200.167568.667, 59720,1505,
100982, 142386, 46202, 190042,
131431. 105158,180506, 36702,
11139.52644,454.
Upplýsingar um afhendingu vinn-
inga eru gefnar hjá SÁÁ /'
sfma 91-82399.
Vinningsnúmer t nær: 74380,
182266, 126534, 140829, 187433,
216867, 213079, 61148, 82701,
172087, 26232, 221468, 162094,
178963, 186628, 139050, 68814.
P.s. Nú er betra að fara að borga
miðana til þess að geta unnið
Toyotu á aðfangadag.