Morgunblaðið - 19.12.1984, Síða 17

Morgunblaðið - 19.12.1984, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984 17 ÁNÆGJUGJAFIOG ÆTÍÐ TIL REIÐU - ER NÆÐI GEFST Á FERÐ UM ÍSLAND Danska skáldið Martin A. Hansen ferðaðist í jeppa víðs vegar um fsland ásamt málaranum Sven Havsteen-Mikkelsen vorið og sumarið 1952. Þá varð bókin Á FERÐ UM ISLAND til -einhver skilningsríkasta og viðfelldnasta bók sem útlendingur hefur ritað um þetta land. „Úti sáust varla handaskil fyrir moldroki, sem þó var að lægja, en glöggt mátti heyra, að nú gengu ósköpin yfir hinum megin fjarðarins, þar sem landnámskonan Geirríður lét setja skála sinn á þjóðbraut þvera, svo að hún gæti sýnt vegfarendum sem mesta gestrisni; þannig var hennar kristilega hugarþel. Hún var móðir Þórólfs. Einkennilegt fólk.“ „Á fyrri bænum skundaði húsfreyjan tafarlaust til fundar við okkur - af því að við stönsuðum við hliðið til þess að spyrjast fyrir um, hvort fært væri yfir Sandárkvíslarnar, sem eru hvorki fleiri né færri en sex - og bauð okkur til stofu, flýtti sér svo að hita kaffi, og leið þá ekki á löngu, þangað til hún töfraði fram heljarstóra stríðstertu og brúðarmeyjar hennar, smákökurnar, að okkur svöngum og ásjáandi. Að vörmu spori hvarf hún aftur fram í eldhús, og í sama mund og við gerðum áhlaup á innri virkisveggi stríðstertunnar í félagsskap sonar hennar, sem var að skemmta okkur, kom hún inn aftur með smurt brauð á fati, sem var á stærð við vagnhjól og skrautlegt á litinn. Við þá dýrðarsýn reis sonur hennar á fætur og fór út, ekki af gremju, heldur kurteisi, því að nú tóku gestirnir fyrst til matar síns af fullum krafti, og á það horfir enginn." (sland kringum 1950, fjöll þess og fólk, dýr og blóm, rís upp af síðum bókarinnar, og í baksýn birtast persónur (slendingasagna - saga og nútími renna saman í einaglitrandi heild. Enda var sagt um bókina við útkomu hennar: Sjaldan hafa höfundur og land tekist svo innilega í hendurog ísland og Martin A. Hansen í þessari bÓk 243 bls. Verð kr. 988,- BÓKER BEST VINA ÖSKRIÐ Nýr höfundur, Lilja K. Möller, kveður sér hljóðs í sterkri og bersögulli frásögn af átakamikilli atburðarás í lífi ungrar konu sem sjálf vill fá að móta líf sitt, springa út og sprengja af sér fjötra. öskrið er áhrifamikil skáldsaga, í senr) átakanleg og spaugileg, um unga og draumlynda konu. Hún leitar að ást og skilningi í tilfinningaspauðum heimi og berst fyrir því að halda einstaklingseðli sínu. 188 bls. Verð kr. 697,- SÍÐASTA BINDI DALALÍFS Nú er komið út þriðja og síðasta bindi Dalalífs, hins sérkennilega og skemmtilega sagnabálks skáldkonunnar frá Lundi - þess sem gerði hana að mest lesna höfundi fslendinga. 586 bls. Verð kr. 988,- UfMsöfffAl Ljóð Sveinbjarnar I. Baldvinssonar eru við fyrstu sýn slétt og tær. En þau eru líka djúp og undir niðri leynist geislavirkur kjarni sem kemur róti á hið lygna yfirborð, og þá ekki síður hugi lesendanna, jafnskjótt og hann er fundinn. Sveinbjörn er lágmæltur og beitir listrænni smekkvísi, en hann er líka skemmtilega kíminn og orð hans hitta í mark. 48 bls. Verð kr. 494,- Úr dagbókum Einars Magg Við fáum að glugga í dagbækur Einars Magnússonar, fyrrverandi rektors Menntaskól- ans í Reykjavík, allt frá því á fermingardaginn hans, í gegn um námstímann í Menntaskólanum og þartil hann snýr heim úr langri og ævintýra- legri reisu út í heiminn. Einar lýsir fádæma vel lífi og kjörum fólks í Reykjavík á öðrum tug aldarinnar, barnslegri og fagurri trú sinni, en jafnframt mannlegum breyskleika, - og dregur fátt undan. 416 bls., auk mynda Verð kr. 1.197,- KVÆÐI 84 eftir Kristján Karlsson I einni af fyrri Ijóðabókum sínum segir Kristján Karlsson að „kvæði sé hús sem hreyfist." Hann hefur ennfremur látið svo um mælt að „kvæði eigi hvorki að vera flöt rökræða né blaut dula, það verður að rísa af pappírnum af eigin rammleik. Ef það gerir það ekki væri efni þess betur komið í öðru formi. Hugsun kvæðisins og tilfinning er ekkert annað en kvæðið sjálft: Hús þess.“ 90 bls. Verð kr. 617,- NÍU ÁR í NEÐRA eítir Svein Einarsson Sveinn Einarsson var leikhússtjóri í Iðnó á gróskuárum Leikfélags Reykjavíkur 1963-1972. Þá voru tekin til sýningar hin margvíslegustu leikverk, sum sannarlega mikils háttar, og leikhúsið var afar vel sótt. „En ég man það, að Jökull Jakobsson sagði mér það oftar en einu sinni, að Guðlaugur Rósinkranz hefði hafnað fyrsta leikritinu hans, Pókók, á þeim forsendum, að það væri frasi og Þjóðleikhúsið sýndi ekki frasa. (Frasi mun hafa verið mismæli fyrir farsi).“ Níu ár í neðra íjallar um þá Iðnó sem leik- husgestum er elclci sýnd. 220 bls., auk mynda Verð kr. 988,- Kri»'l»n Kvæði S4 HANS Giöfin skærgula GRÖFIN SKÆRGULA eítir Hans Hansen Gröfin skærgula fjallar um unglinginn Andrés. Móðir hans er flutt að heiman. Hann og stjúpi hans búa einir í húsinu. Hann veit það eitt að hann sættir sig ekki við þetta ástand. En hvað hefur gerst? Enginn gefur honum neina skýringu. Hann verður sjálfur að finna hana og reyna að koma málunum í lag. En það getur orðið erfitt. Hver er Vívían? Þessi með blárauðu neglurnar í himinbláu skónum? Og samtímis þessum torráðnu vandamálum fær hann sjálfur reynslu af ástinni. 94 bls. Verð kr. 589,- Gylmir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.