Morgunblaðið - 19.12.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
21
unni kjörviði í hendur. Fyrir ofan
garð í Kirkjubæ hneggja þeir bles-
arnir 4 enn, halda draumnum við,
kröfunum við. Og Sigurður bóndi
er á þanspretti með stóðið sitt, til
þess að gera gott betra. Vel hefir
honum tekizt, rétt fram ljúflings
hest, vin barna og öldunga, eftir-
læti keppnismanna. Og þetta eru
engar tilviljanir, heldur ræktun,
markviss ræktun, ár eftir ár koma
snillingarnir fram, raða sér í efstu
sætin á stórmótum, eða bera lítið
barn inn í gleðiheim, sem engin
orð fá lýst. Kirkjubær hefir rétt
þjóð okkar gjöf sem aldrei verður
metin til fjár, gleðin er það aldrei.
Þeir hneggja ekki aðeins fyrir
ofan garð blesarnir 4, þeir standa
við stalla hestunnandi manna í
dag, slá gleðihörpu í brjóstum
tuga manna.
Bók Hjalta Jóns lýsir ævintýr-
inu að Kirkjubæ mæta vel. Það
hefir verið unnið í lotning fyrir
verkefninu. Sagan er rakin,
stofnhrossin kynnt, snillingar eins
og Halldór Jónsson og Sigurbjörn
Bárðarson kallaðir til vitnisburð-
ar um hrossin, ásamt fjölda ann-
arra. Fyrir þetta er ég þakklátur,
en ég hefði viljað vita, hvort Jó-
hann Friðriksson hefði kunnað
orð um gleði sína af Væng, Sigur-
finnur Þorsteinsson um Núp. Það
sem ég á við er, ég hefði viljað vita
meir um snillingana sem frá
Kirkjubæ hafa komið, ris ævin-
týrsins, draumsins. Kannske er
þetta frekja, með þessari bók er
líka rétt fram myndband, þar sem
reiðsnillingar sýna kosti stofnsins.
Stíll höfundar er góður, léttur,
lipur. Tízkuorðin: í gegnum tíðina
koma of oft fyrir, nægjanlegt að
þau hrelli eyru, láti augu vera.
Höfundur hefir unnið úr efninu
mjög vel, lagt sig fram og niður-
staðan er kjörbók hestamanna í
ár.
Sjálfsagt leynast í ritinu villur,
annað væri ekki mennskt. Á síðu
61 hefir prófarkalesarinn dottað,
og á síðu 69 (benti vinur minn mér
á) er gersemin Rakel 4288 sett í
sæti Sunnu 3558, eins og sést, ef
bornar eru saman tölur á síðu 111
og 112. Útgáfan yrði lesendum
þakklát, ef henni yrði gert viðvart
um villur sem finnast, svo hægt
verði að lagfæra þær fyrir næstu
útgáfu, en á því er ekki nokkur
vafi að þessi selst upp.
Bókin er sönnun um það sem
íslenzki hesturinn getur og er, ef
við hann er lögð rækt af kunnáttu-
mönnum í líkingu við Eggert,
Stefán og Sigurð. Hafi þeir þökk
fyrir störf sín, betur og betur
munum við stressbörn borgarinn-
ar kunna að meta, hvað þeir hafa
fyrir okkur gert til heilsubótar,
yndisauka, íslenzk bændastétt
hlýtur líka að sjá, að óréttlátt er
að láta einn bera allan kostnað af
þessari merku tilraun í stofnrækt-
un.
Hafi Hjalti Jón þökk fyrir að
kynna starf Kirkjubæjarbóndans,
og útgáfan fyrir það, hvern metn-
að hún lagði í að gera góða bók.
Myndpappír er í síðum, listrænar
litmyndir, prentun eins og hún
gerist bezt. Þetta er bók til þess að
rétta þeim er þú óskar gleði.
Hrífandi
hljómpiata
komin í
hljómplötu-
verslanir.
FÁLKINN
Dagur ei meir
Morgunn í maí
Matthías Johannessen skáld les
eigin Ijóð við undirleik.