Morgunblaðið - 19.12.1984, Page 22

Morgunblaðið - 19.12.1984, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984 Að ná valdi yfir hugum annarra Bókmenntír Jóhanna Kristjónsdóttir Isaac Bashevis Singer: Sjosja hýðandi: Hjörtur Pálsson. Útg. Setberg 1984. Áreiðanlega voru þeir ekki ýkja margir hérlendis sem vissu mikil deili á Singer, áður en hann fékk Bókmenntaverðlaun Nóbels fyrir sex árum. Síðan hafa íslenzk for- lög sýnt verkum hans lofsverðan áhuga og hjá Setbergi mun þetta nú vera fjórða bókin sem þar er gefin út, en einnig hefur smá- sagnasafniö Óvinir komið út á ís- lensku. Singer er ákaflega margslung- inn höfundur og honum tekst jafn- an að laða fram óvenjulega áhrifa- mikið andrúmsloft og sögupersón- ur hans, svo framandi sem þær kunna nú að virðast í fyrstu, bregða ljóslifandi á leik í huga les- andans. Hér er sögusviðið Varsjá fyrir heimsstyrjöldina. Gyðingar hafa jjegar skynjað að útrýmingin bíð- ur þeirra. Þó verður lífið að ganga sinn gang í skugga þeirrar ógnun- ar. Og kannski er ekki hægt að vænta þess að þeir bjargist af, bölvun annarra í garð gyðinga í alda rás, vanmáttarkenndin sem á svo kyndugan hátt er blönduð hrokanum yfir því að vera þrátt fyrir allt guðs útvalin þjóð, Singer vefur úr þessu mikla voð sem er efnismikil og listileg. Það er eiginlega of flókið mál að ætla sér að rekja þráð þessarar bókar. Ekki vegna þess að hann megi ekki með vandvirkni endur- segja, heldur vegna þess hversu mikið myndi vanta af litadýrð í þá endursögn. Aaron sögumaður gæti allt eins verið einhver hluti af Singer sjálfum. Kannski er ekki hægt að skrifa intímt nema það sé tekið úr hans eigin lífsreynslu. Lýsingin á Sosju, undarlega full- orðinsbarnsins sem Arele kvænist eftir að hafa fetað fjölbreytilega stigu í ástamálum, er falleg, en ekki jafn myndræn og persónan Aaron. Hljómleikaplata? Hljóm plotur 9 Finnbogi Marinósson Ég hef vanist því hingað til að góðar hljómleikaplötur endur- spegli stemmninguna á hljóm- leikunum sem þær eru teknar upp á. Stemmningin er fólgin í að áheyrendur taka þátt í því sem hljómsveitin er að gera. Og flytjandinn gerir það sem áheyr- endur koma til þess að sjá hann gera. Hljómleikar eru jú fyrst og fremst skemmtun þar sem hver og einn reynir að fá sem mest út úr líðandi stund. Oftast er það þannig að hljómsveitin peppar upp áheyrendur og fær þá á sitt vald. En ein og ein hljómsveit á því láni að fagna að þurfa næst- um ekkert fyrir þessu að hafa. Ein af þessum hljómsveitum heitir Duran Duran. Nýlega sendi þessi gífurlega vinsæli flokkur frá sér sína fjórðu plötu. Hún er tekin upp á hljómleikum víðsvegar um heim- inn að einu lagi undanskildu. Wild Boys heitir það og ætti að vera flestum kunnugt. Þar sem mikið hefur verið talað um að stemmningin sé mikil á hljóm- leikum Duran og þeir rómaðir fyrir gæði þá hlakkaði ég til að heyra hvernig þessi hljómleika- plata væri. Auk þess fýsti mig að vita hvernig þeir ætluöu að láta eitt stúdíólag koma vel út á hljómleikaplötu. Eftir að hafa hlustað á plöt- una einu sinni var mér ljóst hvernig þetta með stúdíólagið var fóðrað. Öll lögin á plötunni eru látin hljóma eins og þau séu tekin upp í hljóðveri. Um leið fær platan steindauðan heild- arsvip og hið óborganlega hljómleikayfirbragð er hvergi að finna. Það er eins og áheyrendur séu ekki til og útkoman er gott safn laga sem er svo þurrt og leiðinlegt að einungis harðir að- dáendur hafa gaman af. En ef þetta er ekki tekið með í reikninginn kemur þessi plata vel út. Lagavalið er gott og upp- röðun þeirra góð. Dalvíkursaga Barnaljóð Bókmenntir Sigurjón Björnsson Kristmundur Bjarnason: Saga Dalvíkur 3. bindi. Utgefandi Dalvík- urbær. 1984. 434 bls. Kristmundur Bjarnason lætur ekki deigan síga. Nú er útkomið þriðja bindið af Dalvíkursögu hans. Er þá verkið orðið hátt á fjórtánda hundrað síður. Og enn er fjórða bókin eftir, sem væntanl- ega verður aö drjúgum hluta skrár miklar yfir verkið allt. Þegar Dalvíkingar, og raunar Svarfdæl- ingar allir, hafa undir höndum þessi fjögur bindi og bindin tvö af Svarfdælingum Stefáns Aðal- steinssonar verða þeir naumast í vandræðum þegar þá fýsir að fræðast um fólk og sögu heima- sveitar sinnar. Skilst mér raunar að þegar séu þessi rit (það sem út er komið) mikið notuð sem upp- flettirit. Sá hlýtur einmitt að vera megintilgangur rita sem þessara, að heimamenn grípi sem oftast til þeirra, skerpi þannig og leiðrétti minni sitt, auki á fróðleik sinn og taki fremur en áður að skoða sjálfa sig í sögulegu samhengi og líta á sig sem náttúrulegan hluta — en ekki áhrifalausan, af hinni miklu verðandi. Kristmundur Bjarnason er góð- ur leiðsögumaður því að hann er mjög metnaðarfullur fræðimaður. Hann lætur einskis ófreistað að leita uppi allar fáanlegar heimild- ir, sópa hvern kima sem vendi- legast, kanna þær og vinna svo úr að þær verði aðgengilegar. Gott dæmi er úr þriðja bindi þessa verks. Kristmundur þarf að segja eitthvað um bókaeign Svarfdæl- inga á 19. öldinni. Þá gerir hann sér lítið fyrir og safnar saman uppskriftum sextíu dánarbúa og dregur af því e.k. meðaltalsálykt- un, með öllum fyrirvörum og upp- lýsingum um frávik. Svipað er að segja um ræktun garðávaxta. Um það eru miklar skýrslur frá ári til árs. Og yfirleitt lætur hann sér ekki nægja heimildir einnar sveit- ar. Til þess að gildi þeirra verði bert þarf hann oft að fella þær í stærra samhengi til samanburðar. Af þessum sökum m.a. verða þessi ritverk hans harla stór í sniðum (Sauðárkrókssaga hans er t.a.m. þrjú þykk bindi). Og samning þeirra og rannsóknir sem að baki liggja verða ekki hristar fram úr erminni á skammri stund. Vinna að Dalvíkursögunni mun taka einn áratug í fullri vinnu. Og líklega vinnudagurinn stundum nokkuð langur. Nú getur bókum af þessu tagi hætt til að verða heldur þurrar aflestrar og lítt fallnar til skemmtunar. Ekki vil ég nú bein- línis segja að Dalvíkursaga sé allt- af skemmtilestur. Fáir lesa skýrslur um aflamagn, heyfeng, fermetra í túnrækt, garðnytjar og peningseign sér til hreinnar skemmtunar. En Kristmundur hefur undragott lag á því að gera efni sitt eins aðgengilegt og auðið er. Hann er góður og lipur rithöf- undur. Vel kann hann að segja sögu. Honum er lagið að orða hugsun sína skýrt og vafninga- á: Isaac Bashevis Singer Samfélagsmyndin er í heild sterk og áhrifamikil, skrifuð af kærleika en Singer er fjarri nokk- ur skýjaglópur, þvert á móti er raunsæi og hispursleiki aðal hans í frásögninni af gyðingunum í Varsjá og stöðu þeirra. Þegar ég var að lesa þessa bók, fannst mér ég ekki vera að lesa þýdda bók eftir Singer. Mér fannst ég einfaldlega vera að lesa Singer. Það segir sitt um árangur Hjartar Pálssonar. ■■ -Jfe. J.. .. - ~0 laust á fallegu og hreinu máli. Þegar sá gállinn er á honum gríp- ur hann stundum til fágætra gam- alla orða, enda kunna þau að vera nærtæk í heimildum hans. Oft bregður fyrir glettni og kímni og fundvís er hann á hinar spaugi- legri hliðar tilverunnar. Fyrsta bindi Dalvíkursögu er eins konar aðför að efninu. Þar segir frá staðháttum og Iandnámi og Upsaströndinni er lýst. Síðan kemur kafli um sveitarhætti á 18. öldinni. Þá er vikið að 19. öldinni. Er fyrst rætt um Svarfaðardalinn, einkum sjósókn þaðan, og síðan er komið að „Upsaströnd og Sandi“ og upphafi byggðar á Dalvík. Hin eiginlega Dalvíkursaga hefst því með 2. bindi. En í því bindi eru teknir til umfjöllunar allmargir þættir úr atvinnulífi, félagslífi o.m.fl. fyrir tímabilið ca. 1880-1920. í þriðja og fjórða bindi er rakin Bókmenntír Siguröur Haukur Guöjónsson Barnaljóð Níunda bindi Ijóðasafns Höfundur: Jóhannes úr Kötlum Prentun: Hólar hf. Útgefandi: Mál og menning Það var gaman að vera barn og fá Jólin koma í hendur, þessi leik- andi léttu ljóð, sem eins og sungu sig inní sál drengsins, ýmist struku honum um vanga svo tár féllu, eða helltu yfír hann ógn og skelfing, svo fætur voru dregnir að höku undir sæng. Og drengurinn las aftur og aftur, þar til hann þurfti ekki bókina lengur, ljóðin höfðu flutt sig af síðum bókarinn- ar inn í hug hans, lifðu þar með töfra sína og hljómfall. Síðan komu Ömmusögur og drengurinn vissi ekki, hvert skáldið var að leiða hann. Klárinn dansaði kúna við, kúna við aftur á bak og út á hlið út á hlið. Það hlaut að vera gaman að vera skáld, geta leyft sér að láta Grána gamla bjóða Skjöldu upp. En var slíkt leyfilegt, átti dreng- urinn að hlæja eða gráta? Þá komu Bakkabræður í hlað og nú varð hláturinn ekki haminn leng- ur: Og út þeir bera húfurnar og hella myrkrinu úr, og til þess nú að hagnast meira á hverjum slíkum túr, þeir fylla þær af sólskini og ber inn í bæ. Þeir hafa nógu lengi kastað Ijósinu á glæ. Það var lesið og hlegið. Og þá, þá kom skáldið sjálft á bæ drengs- ins. Víst urðu það nokkur von- brigði, þvt skáldið leit út sem ann- að fólk, gekk á tveim fótum og hafði ekki ýkja stærra höfuð en aðrir, en skáldið bar Ijóma bjartr- ar sálar, sem stafaði hlýju frá gegnum skær, ástrík augu. Og ungur drengur og lífsreyndur maður, hugsuður, urðu vinir. Síð- þróun fjölmargra mála fram undir miðbik þessarar aldar. Þar ræðst af efni hvort sú saga hefst fyrir aldamót eða síðar. I þessu þriðja bindi eru 16 málaþættir reifaðir. Það sem eftir er kemur í næsta bindi, sem höfundur segir í for- mála að væntanlega sé á næsta ári. Hinir 16 málaþættir þessa bind- is bera nöfnin: Búnaðarhagir, Barna- og unglingafræðsla, Lestr- arfélag og bókaramennt, Kirkjur og kennidómur, Staða kvenna og félagsmál, Verkalýðsfélag Dalvík- ur, Sundskóli Svarfdæla, Dalvík- urskjálftarnir 1934, Leiklist, Verði ljós! (þ.e. um rafvæðingu), Verslun á Dalvík, Húsagerð og hýbýlakost- ur á Dalvík um 1936, Samgöngu- mál, Slysavarnasveitir á Dalvík, Hafnargerð á Dalvík, Félagssam- tök útvegsmanna og sjómanna. Hver og einn getur skilið að ógerlegt er að fara í saumana á riti sem þessu kafla fyrir kafla í dagblaðsumsögn. Slíkt á annars staðar heima og verður væntan- lega gert af þar til fróðum mönnum. Mun almennari úttekt, ef svo skyldi kalla, verður að duga hér. Það sem mér er efst í huga er hversu ritið ber mikilli vandvirkni og nákvæmni vott. Hin mikla skrá heimilda sýnir að víða hefur verið leitað fanga bæði í prentuðum og óprentuðum gögnum. Gamlar dagbækur hafa verið dregnar fram, viðtöl höfð við fjölda manns. Yfir allri frásögninni er gott og eðlilegt jafnvægi. Mál eru reifuð skipulega og skýrt og án alls flausturs eða flýtis og ályktanir eru hóflegar og eðlilegar. Höfund- ur er mjög laus við fullyrðinga- semi og sleggjudóma og fjarri er honum að vera með nokkurt hnútukast. En samt sem áður er Jóhannes úr Kötlum an hefi ég lesið allt sem skáldið sendi frá sér, ekki alltaf jafn hrif- inn eða glaður, en þá Jóhannes leyfði skáldfáknum að svífa frjáls- um, reyndi ekki að hrella hann með erlendum stöngum eða er- lendum hlekkjum á fótum, þá voru grip fáksins slík að gleðihljóð hófslagsins söng í hverju ljóðelsku hjarta. Já, Jóhannes var meistari stuðlamálsins, fimur svo af bar. Ljóðin hans urðu börnum kær, fluttu þau í ævintýraheim sem hreif þau að kynnast. Vel er þeim sem að því standa að safna barna- ljóðum hans í eina bók. Auk þess sem ég hefi áður talið, þá er í þessu safni Ljóðið um labbakút, Vísur Ingu Dóru og fleiri ljóðperl- ur fyrir börn. Sjálfsagt hefir ekki þótt við hæfi að láta myndir frumgerð- anna fylgja með, slíkt tíðkast ekki, en af hverju ekki? Af hverju þurftu barnaljóð Jóhannesar úr Kötlum að líta út eins og venjuleg ljóðabók? Það kunnu fá skáld að láta hörpu ljóðsins hljóma fyrir börn sem hann. Meðan hann var og hét og hafði tillögurétt, þá valdi hann þessum ljóðum sínum myndir að fylgd. Slíkt hefði ég líka viljað sjá nú. Frágangur allur er góður, þeim er unnu til sóma. Hafi útgáfan þökk fyrir frábæra ljóðabók. hann lesandanum ávallt nálægur með góðlátlegu og glettnu hisp- ursleysi. Erfitt er að gera upp á milli kafla, enda hlýtur það ávallt að vera smekksatriði, hvað lesandan- um fellur best í geð. Þurrir, skýrslulegir þættir skiptast á við léttari og fjörmeiri frásögn. Ég held að mér þyki einna mest vert um hina miklu breidd og fjöl- breytni ritsins. Séu öll bindin þrjú lesin í samhengi verður maður vitni að stórkostlegri — stórkost- legri í allri smæð sinni og fátækt — framrás lífs í afskekktu sveit- arfélagi í rúma öld. Skýrslur sýna staðreyndir efnalegrar afkomu, „menningarneyslu", þjónustu o.fl. Inn á milli birtast okkur frásagnir af sameiginlegum átökum, sam- vinnu þegar á reynir eða sundr- ungu og ríg. Persónur koma fram í sérstæði sínu, erfiðleikum, hetju- dáðum, framtakssemi, hugsjónum eða skrítinni sérvisku og kannski einnig miður æskilegum eiginleik- um. Sem dyggur og sannferðugur sagnaritari hefur höfundur sett á svið eins trúverðuga og honum var auðið „drama" hins einfalda raunveruleika og sýnt okkur þann grundvöll, „er vér nú stöndum á“. Geysimikið af myndum prýðir þessa bók, eins og hinar fyrri, bæði af mannvirkjum og fólki. Sjálfsagt kemur meirihluti þeirra hér á prent í fyrsta sinn og líklegt þykir mér að tilkoma þessa verks hafi bjargað mörgum þeirra frá glötun. Þá eru nokkrar gullfalleg- ar heilsíðulitmyndir. Ég á bágt með að trúa öðru en Dalvíkursaga, þegar hún er öll komin, eigi eftir að verða Dalvík- ingum, Svarfdælingum og þeim sem þaðan eru runnir kærkominn fylginautur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.