Morgunblaðið - 19.12.1984, Side 23

Morgunblaðið - 19.12.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984 23 Ljóðabelgir úr Vogunum Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Sveinbjörn I. Baldvinsson: LÍFDAGATAL. Ljóö. Almenna bókafélagið 1984. Lífdagatal Sveinbjörns I. Bald- vinssonar hefst á eins konar inn- gangi, stefnuyfirlýsingu skáldsins. Lesandinn er minntur á að Ijóð bókarinnar „fljúga ekki með þig/ líkt og albatros/ langt ofar skýj- um/ fjarri lýjandi gjálfri/ mann- hafsins" heldur er honum bent á hagnýtt gildi þeirra. Þeim er kaldhæðnislega líkt við fjaðrir sem vax drýpur af „og þú getur stungið þeim/ niður með ramman- um/ á speglinum í forstofunni". í samræmi við þessa yfirlýsingu yrkir skáldið eins konar dagbók- arljóð um líf sitt i Vogunum i Reykjavík. Ljóðaflokkurinn er samnefndur bókinni. Þessi ljóða- flokkur er keimlíkur nýlegu sjón- varpsleikriti höfundar: Þetta verður allt í lagi. t anda raunsæis er dregin upp mynd af borgara- legu umhverfi, kyrrlátu á yfir- borði, en undir niðri loga eldar: Um síðir umkringir vorið varnarlaus húsin læðist í skæruliðafötum upp úr koki jarðarinnar. frussar út úr sér laufi átrén grasi á blettinn og mottum á svalirnar óbreyttir borgarar yrkja ljóð sér til varnar. Sveinbjörn I. Baldvinsson Sveinbjörn I. Baldvinsson kappkostar að vera ekki hátíðleg- ur. Hann skopast að lífi borgar- anna og honum er tamt að horfa á mannlega viðleitni með bros á vör. í lok Ijóðaflokksins fyrrnefnda talar hann um að „lífdagarnir/ í Vogunum" líði „seiðandi" og „þrútnir af skáldskap/ hverfa þeir/ einn af öðrum/ í hálflukt auga/ hafsins". Þessir dagar sem eru „rauðgulir" eru kallaðir „ljóðabelgir“. Steinn orti um hálf- lukt auga eilífðarinnar. Slíkt dytti Sveinbirni ekki í hug. Dagarnir í hálfluktu auga hafsins eru ein- fal^lega Ijóðabelgir. Viss léttúð? En/ í anda skálda nýrrar kynslóð- ar: Segja má að Sveinbjörn I. Bald- vinsson haldi með góðum árangri áfram þeirri stefnu sem hann setti sér eftirminnilega í ljóðum handa hinum og þessum (1981). Lífdaga- tal er framhald þeirrar bokar. En vissulega hefur ýmislegt gerst í lífi skáldsins og list sem bregður öðrum svip yfir umhverfið. Það kemur vel fram í snjöllu ljóði: Pabbi fer til útlanda 18/6 1983, undirtitill Vökudeild: Gott að finna hraðan og heitan andardrátt þinn á hálsinum finna ótrúlega smáa hönd þína þú sofandi litill og brothættur en óyggjandi mun ég síðar einhvern tíma anda svona við háls þinn liggja svona með lokuð augun gamall og brothættur hræddur við allt og anda? í Lífdagatali eru ljóð sem vitna um aukin tök Sveinbjörns í glím- unni við hversdagsleikann, skorin- orða og gagnrýna afstöðu sem hæfir ljóðunum vel vegna þess að þau slaka ekki á listrænum kröf- um. Ljóð af þessu tagi, bæði mælsk, eru Parið á ströndinni og Hver. Sveinbjörn veldur hinum knappa stil ágætlega, en ég er ekki frá því að hann megi að ósekju láta meira eftir sér. Stystu ljóðin eru skemmtileg og með óvæntum niðurstöðum, en lengri ljóðin segja okkur meira um manninn. Annað sem Sveinbjörn I. Bald- vinsson og kynslóð hans þarf að hyggja £ÉÖ er það að góður húmor er gullvægur, en ýmsar freistingar liggja í leyni þegar honum er beitt. Þær freistingar geta verið eins og öðrum skáldum hljóðstafir og rím. En Sveinbjörn verður ekki sakaður um að vera ósmekklegur í þessu efni. Hann er skáld hófsemi. Slík skáld vinna einatt á. SKYRTUR BINDI SOKKAR HANZKAR PEYSUR NÁTTFÓT SLOPPAR SKÓR SNYRTIVÖRUR INNISKÓR FÖT FRAKKAR HATTAR HUFUR £ VANDAÐAR TREFLAR GOÐAR JÓLAGJAFIR FRÁ: HERRADEILD RITFANGADEILDIN BREYTIR UM SVIP OG VERÐUR ALLSHERJAR JÓLAMAKKAÐUR Jólakortin ryðja sér nú til rúms. Kertamarkaðui haslarsér völl í fyrsta sinn hjá okkur með kertum í þúsundatali. Jólatrésskrautið þekur borð og hillur. VANTI ÞIG HUGMYND AB GÓÐRI GJÖF ÞA FÆRÐU HANA HER Við nefnum sem dœmi: Vasatölvur, penna og pennasett, skjalatöskur, undirlegg úr leðri og statíf á skrifborðið, hnattlíkön, margs konar leiki og spil, Ijósálfa og töfl. Síðast en ekki síst: Gífurlegt úrval af innrömmuðum myndum [30x40sm): teikningum og plakötum og svo myndaramma, t.d. smelliramma [2 st., 9x13 sm, kosta 80 krónurj og sœnska tréramma í mörgum litun Hér hœttum við að telja. Sjón ersögu ríkari. OG KÓRÓNAN Á ALLT SAMAN.■ Sjálfur jólapappírinn, merkispjöldin og slaufumar frá okkur standast að sjálfsögðu allan samanburð, nú sem endranœr. Ekki mega sjálfir jólapakkarnir verða sviplausir. Eins og þú sérð, fœrðu nánast allt hjá Eymundsson, nema tréð. En er nokkurt mál að verða sér úti um það? EYMUNDSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.