Morgunblaðið - 19.12.1984, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESBMBER 1984
Er aukin efnahagssamvinna á
Norðurlöndum í uppsiglingu?
Samtal við Erlend Einarsson, sem sæti á í Gyllenhammarnefndinni
— Meginástæðan fyrir stofnun
„Gyllenhammar“-nefndarinnar
var að fá menn úr atvinnulífinu til
að gefa norrænni samvinnu nýjar
hugmyndir um efnahagssamstarf,
sagði Erlendur í samtali við blm.
Mbl. Forsætisráðherranefnd
Norðurlandaráðs taldi að þrátt
fyrir ýmsar tilraunir á undanförn-
um árum til að auka efnahags-
samvinnu milli landanna, þá hefði
ekki orðið áþreifanlegur árangur
af þessu starfi.
— Hvernig var skipað í nefnd-
ina?
í umboði forsætisráðherra
Norðurlanda leitaði Olof Palme,
forsætisráðherra Svíþjóðar, til Dr.
Pehr G. Gyllenhammar, formanns
Volvo-samSteypunnar, um að hafa
forgöngu um að stofna þessa
nefnd. Valdi hann síðan með sér í
nefndina tvo nefndarmenn frá
hverju landi nema einn frá ís-
landi. Aðrir nefndarmenn eru,
fyrir utan formanninn: Poul J.
Svanholm, Danmörku, forstjóri
De Forenede Bryggerier; Georg
Poulsen, Danmörku, formaður Fé-
lags danskra járniðnaðarmanna;
Kari Kairamo, Finnlandi, for-
stjóri NOKIA; Ulf Sundqvist,
Finnlandi, bankastjóri Finnlands
Arbetarsparbank; Percy Barnevik,
Svíþjóð, forstjóri ASEA AB; Sör-
en Mannheimer, Svíþjóð, lögfræð-
ingur, borgarráðsfltr.; Gautaborg
Tor Moursund, Noregi, banka-
stjóri Kreditkassen; Torvild
Aakvaag, Noregi, aðalforstjóri
Norsk Hydro AS.
Tildrög þess að ég tók þátt í
þessu nefndarstarfi, eru þau að
Pehr Gyllenhammar hringdi til
mín í mars sl. og bað mig um að
sitja I nefndinni fyrir hönd ís-
lands. Þar sem hér var um mjög
áhugavert málefni að ræða, þá
ákvað ég að taka þessu boði.
Fyrsti fundurinnvar haldinn 30.
maí og síðan hafa verið haldnir
tveir fundir.
Nýjar hugmyndir
— Telur þú að það hafi verið
þörf fyrir eina nýja nefnd í viðbót
til að vinna að norrænu sam-
starfi?
— í dag eru Norðurlönd með
tiltölulega lítinn hagvöxt og um-
talsvert atvinnuleysi fyrir utan ís-
land. Því verður að finna leiðir til
úrbóta og ein leiðin er að auka
samvinnu milli Norðurlandanna
þannig að þau geti nýtt sameigin-
lega krafta sína til að standa
sterkar bæði innan Norðurland-
anna og í alþjóðasamkeppni. Unn-
ið hefur verið að þessum málum
meðal stjórnmála- og embættis-
manna innan Norðurlandaráðs á
liðnum árum, en með of litlum
árangri. Það var því talið æskilegt
að fá menn úr atvinnulífinu, sem
eru með aðra reynslu og skoðanir
til að koma fram með nýjar hug-
myndir.
Við verðum að gera okkur grein
fyrir því að hver einstök þjóð inn-
an Norðurlandanna er tiltölulega
lítil miðað við aðrar markaðs-
heildir á Vesturlöndum eins og
Bandaríkin og Efnahagsbanda-
lagslöndin. Ef Norðurlöndin geta
sameinast um að nýta þá kosti,
sem hvert einstakt land hefur og
koma meira fram sem ein heild á
sem flestum sviðum, þá gæti það
örvað efnahagsþróun á Norður-
löndum. Þess vegna var talið mik-
ilvægt að leita eftir tillögum frá
þátttakendum úr atvinnulífinu.
— Hvernig starfar nefndin?
— Nefndin kemur saman árs-
fjórðungslega, en sérstök skrif-
stofa undir stjórn norðmannsins
Lars Buer sér um daglegan rekst-
ur og framkvæmdir. Á fyrsta
fundi nefndarinnar var lögð fram
vinnuáætlun fyrir þau verkefni,
sem nefndin ætlar að fást við.
Hún hefur fengið ráðgjafafyrir-
tæki til að annast um framkvæmd
einstakra verkefna.
Helstu viðfangsefni
— Hver eru helstu viðfangsefni
nefndarinnar?
— Verkefni nefndarinnar
skiptast í stórum dráttum í þrjá
meginflokka. í fyrsta lagi að
skilgreina hverjar séu opinberar
hindranir á samstarfi milli Norð-
urlandanna og benda á leiðir til að
fjarlægja þær. í öðru lagi er að
gera úttekt á samkeppnisstöðu
Norðurlandanna og síðan koma
fram með tillögur um það hvernig
ná mætti betri árangri með auknu
samstarfi. í þriðja lagi að finna
leiðir til að fá fram jákvæð við-
horf íbúa á Norðurlöndum til nor-
ræns samstarfs.
Nefndin vinnur nú að eftirfar-
andi málum.
Industriökonomisk Institutt í
Noregi er að gera athugun á því
sem kallast „Komparative For-
trinn i Nordisk Perspektiv" en þar
er reynt að finna hvar Norður-
löndin hafa yfirburði gagnvart
samkeppnisaðilum á vestrænum
mörkuðum. Þessi athugun skiptist
í fjóra þætti.
1. Kortleggja þau svið, þar sem
hver einstök þjóð innan Norð-
urlandanna hefur eða ætti að
geta þróað sterka samkeppn-
isstöðu.
2. Skilgreina þá þætti, sem hafa
áhrif á stöðu hverrar atvinnu-
greinar. Sem dæmi um slíka
þætti má nefna stærð, tækni-
búnað, þekkingu, markaðsstarf
o.s.frv. Síðan að meta hvernig
fyrirtæki á Norðurlöndum virð-
ast hafa þróast miðað við valda
áhrifaþætti.
3. Benda á atvinnugreinar, þar
sem samstarf milli norrænna
fyrirtækja ætti að geta leitt til
hagkvæmari uppbyggingu
fyrirtækja í framtíðinni en er í
dag.
4. Koma með ákveðnar tillögur
um hvað á að gera.
Sama stofnun er einnig að
kanna hvernig Norðurlöndin geta
verið betur í stakk búin að mæta
því upplýsinga- og samræmingar-
vandamáli sem fylgir því að búa
við mikla óvissu í markaðsmálum.
M.a. hefur verið gerð úttekt á því
hvernig Japan og Frakkland hafa
staðið að þessum þáttum. Þessi at-
hugun ber heitið „Det nordiske al-
ternativ til den Japanske modell-
en“. Það er æskilegt að kanna
hvort Norðurlönd geti ekki hag-
nýtt sér þær aðferðir, sem Japanir
hafa beitt með góðum árangri til
að örva hagvöxt.
Verið er að gera athugun á inn-
byrðis viðskiptum á milli Norður-
landanna og hve mikið er um
eignaaðildir í fyrirtækjum í fleiri
en einu Norðurlandanna.
Gyllenhammen-nefndin hefur
einnig unnið að verkefnum, sem
hafa það markmið að auka almenn
samskipti milli Noröurlandanna.
Helstu verkefni eru „Kvinna í
Norden“, en ákveðið er að halda
kvennaráðstefnu í Kaupmanna-
höfn dagana 5.-8. júní 1985. fs-
lensk kvennasamtök eiga fulltrúa
í undirbúningsnefnd þessarar
ráðstefnu og hefur verið haldinn
einn fundur í nefndinni.
Nefndin er að vinna að verkefni,
sem nefnist „Nordjobb 85“.
Áformað er að skipuleggja víðtæk
vinnuskipti launþega á aldrinum
18 til 25 ára næsta sumar. Þetta
verkefni var falið ráðgjafafyrir-
tækinu AB Samhállsraadet í Sví-
þjóð.
Eins er verð að athuga um
möguleikanna á aö halda norræna
ráðstefnu fyrir ungt fólk í ágúst á
næsta ári.
Krlendur Einarsson
Nefndin vill örva efnahagssam-
vinnu á milli lítilla og meðalstórra
iðnfyrirtækja á Norðurlöndum.
Til að vinna að þessu verkefni, þá
hefur verið komið á fót verkefni,
sem ber nafnið NORSAM. Það
hefur verið rætt um að NORSAM
verði varanleg stofnun sem hefði
það hlutverk að vera tengiliður
milli smærri fyrirtækja á Norður-
löndunum til að örva viðskipti og
samvinnu í vöruþróun, fram-
leiðslu og markaðsmálum. Áform-
að er að NORSAM veiti aðstoð
bæði á sviði lögfræði og reksturs
til að auðvelda fyrirtækjum að
koma á fót samstarfi, og jafnvel
veita fjárhagsaðstoð til mikil-
vægra verkefna.
Þegar hefur verið valið sem til-
raunaverkefni efling samstarfs
fyrirtækja í Þelamörk í Noregi og
Smálöndum í Svíþjóð.
Nefndin mun stofna stýrihóp til
að vinna með NIB (Nordiska In-
vesteringsbanken) við að koma á
fót samstarfi á milli þeirra lána-
stofnana á Norðurlöndum, sem
veita útflutningslán og útflutn-
ingstryggingar.
Verið er að gera úttekt á fjár-
magnsflutningum á milli Norður-
landa m.a. til að finna leiðir til að
fjarlægja ýmsar hindranir sem
gætu torveldað samstarf fyrir-
tækja.
Ég vil minnast á verkefnið
„SCÁN-LINK". Þar er verið að
gera könnun á því hvernig hægt er
að minnka fjarlægðir á Norður-
löndum með bættum samgöngum.
Er þá leitað allra ráða til að stytta
flutningaleiðir á landi frá Norður-
löndum til meginlands Evrópu. I
þessu sambandi hefur verið rætt
um byggingu brúa yfir Eyrarsund
og Stórabelti.
Ég taldi æskilegt að einnig yrði
gerð athugun sá samgöngum á
milli Færeyja, íslands og Græn-
lands. Það væri jákvætt fyrir
þetta svæði ef Norðurlandaþjóð-
irnar stæðu saman að lausn
ákveðinna verkefna t.d. að bæta
flugsamgöngur, kannski með því
að gera millilandaflugvöll á Aust-
urlandi (Egilsstöðum) til að færa
nágrannalöndin nær okkur.
Þá hafa komið á borð nefndar-
innar hugmyndir um stuðning at-
vinnufyrirtækja við menningarlíf
og listir á Norðurlöndum.
Getum haft beinan hag
af mörgum verkefnum
— Nú virðist sem néfndin sé að
vinna að verkefnum, sem tengjast
ekki beint atvinnulífinu. Af hverju
stendur nefndin fyrir kvennaráð-
stefnu, sumarvinnu ungs fólks og
menningarstarfsemi?
— Ein grundvallarforsenda
þess að hægt verði að efla efna-
hagssamvinnu milli Norðurland-
anna er að fólkið sjálft hafi áhuga
á norrænum málefnum og finni til
norrænnar samkenndar.
— Er hér ekki aðallega um að
ræða aukna samvinnu Skandi-
navíu og hætta á því að ísland
muni gleymast?
— Eg tel að nefndin hafi til
^888 tekið verulegt tillit til okkar
lendinga. Það eru mörg verkefni,
sem nú er unnið að, þar sem við
íslendingar gætum haft beinan
hag af.
Verið er að athuga hvort hægt
sé að auka viðskipti á milli Norð-
urlanda og nefnist verkefnið
„Norðurlöndin sem heimamarkað-
ur“. Þar gætu skapast nýir mögu-
leikar sem erfitt er að meta eins
og er.
Með starfi nefndarinnar gæti
orðið til vettvangur (NORSAM)
sem tslendingar gætu leitað til
varðandi samstarfsaðila um iðn-
aðaruppbyggingu hér á landi.
Eins er verið að athuga um
möguleika á samstarfi fyrirtækja
á Norðurlöndum um markaðssetn-
ingu utan Norðurlandanna.
Nefndin er að kanna möguleik-
ana á samræmingu á útflutnings-
lánum (exportkredit) og útflutn-
ingstryggingum (exportgaranti)
sem gæti komið okkur til góða í
framtíðinni.
NORSAM verkefnið, sem er ætl-
að að örva samstarf minni fyrir-
tækja á Norðurlöndum, getur gef-
ið íslenskum fyrirtækjum mögu-
leika á auknum verkefnum.
Rætt er um að efla menntun á
tæknisviðinu. Norðurlönd hafa
ekki náð nægjanlegum árangri á
vissum sviðum tækniiðnaðar. Þar
gætu opnast möguleikar fyrir ís-
lendinga til að hafa aðgang að
samnorrænum tæknistofnunum
og fræðslu.
Iönþróun á íslandi
— Eru einhver ákveðin verk-
efni fyrirliggjandi hjá nefndinni,
sem tengjast íslandi?
— Verið er að athuga sérstak-
lega um samnorrænt verkefni sem
kæmi íslandi sérstaklega til góða.
Áformað er að koma fram með
ákveðnar tillögur um verkefni í
marsmánuði næsta ár, en þá mun
dr. Pehr Gyllenhammar, formaður
nefndarinnar, heimsækja ísland
og kynna þetta verkefni.
Ef þau markmið, sem nefndin
hefur sett sér, nást, ætti að fást
betri skilyrði fyrir iðnþróun á Is-
landi. Það er hinsvegar einni
spurningu ósvarað, en það er
hvort unnt verður að ryðja úr vegi
ýmsum hindrunum í sambandi við
verndun atvinnugreina. Fyrir
okkur tslendinga er mjög mikil-
vægt að stuðningur Norðurlanda-
þjóðanna við sjávarútveg verði
ekki til þess að rýra lífskjör okkar
íslendinga. Einnig er það afger-
andi að við fslendingar getum
komið okkar eigin efnahagsmálum
þannig fyrir, að við séum gjald-
gengir í efnahagssamvinnu við hin
Norðurlöndin. Það er t.d. í þessu
sambandi mjög þýðingarmikið, að
verðbólga hér á landi sé svipuð og
hjá hinum Norðurlandaþjóðunum.
— Nú hefur nefndin unnið mik-
ið starf og ráðið fjölda af ráðgjöf-
um til að vinna að ýmsum verk-
efnum. Hvernig er þetta starf
fjármagnað?
— Leitað hefur verið til opin-
berra stofnana um fjárhagsað-
stoð. Norræni fjárfestingarbank-
inn hefur lagt fram fjármagn til
að fjármagna ákveðin verkefni,
sem nú er unnið að. Leitað verður
til fleiri aðila, en þótt nefndin
sjálf taki engin laun, er ljóst að
það kostar verulegt fjármagn að
vinna og skila tillögum um þau
mörgu verkefni, sem nefndin vinn-
ur að. I lok nóvember 1985 er gert
ráð fyrir að nefndin skili tillögum
sínum til forsætisráðherra Norð-
urlandanna.
Leirlist við Laugaveg
f SUMAR var stofnað nýtt listiðn-
aðarfyrirtæki sem ber nafnið ísleir
hf. og er til húsa á Laugavegi 34b.
Leirsmiðurinn er ungur maður,
Reynir Már Einarsson, og gerir
hann margt nýstárlegra muna, en
meginuppistaða framleiðslunnar er
þó hin sígildu myndverk Guðmund-
ar Einarssonar frá Miðdal, sem
Reynir Már mótar í frummynda-
mótunum.
Guðmundur Einarsson frá
Miðdal stofnaði fyrstu leir-
brennsluna á íslandi, Listvina-
húsið, árið 1927. Listmunir hans
hlutu margvíslega viðurkenningu
hér heima og erlendis og eru nú
orðnir eftirsóttir safngripir. Und-
anfarna áratugi hefur lítið verið
framleitt af þeim, því gerð þeirra
er handíð með gamla laginu þar
sem engum vélum verður við
komið. En nú hefur Reynir Már,
sonarsonur Guðmundar, tekið
upp þráðinn að nýju í trausti þess
að landsmenn kunni enn að meta
gott handbragð.