Morgunblaðið - 19.12.1984, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
Jólagjafir fyrir
100 milljarða
New York, 18. deoember. AP.
í Bandaríkjunum eru 85 milljónir heimila og er áætlað að þar í landi
verji menn 25 milljöröum dollara til jólagjafa, sem er jafnvirði 100
milljarða íslenzkra króna. Samsvarar þetta því að hver einasta fjöl-
skylda verji 300 dollurum til gjafa um þessi jól. Jafngildir þetta 7%
hærri eyðslu en í fyrra.
Stofnun, sem gert hefur þessa
spá, gerir ráð fyrir að 30% allra
fjölskyldna muni verja meira en
400 dollurum til jólagjafa að þessu
sinni, 35% milli 200 og 400 dollur-
um og 35% undir 200 dollurum.
Önnur stofnun, viðskiptasamtök
bandarískra leikfangaframleið-
enda, spáir því að Bandaríkja-
menn kaupi leikföng um þessi jól
Husqvarna
Saumavélar, með áratuga
reynslu meðal íslenskra hús-
mæðra.
Verð frá kr. 12.000,- stgr.
Micranett örbylgjuofninn
Verð kr. 19.788,- stgr.
SHG
Sjálfvirkar kaffikönnur.
Verð frá kr. 1.313,-.
Sjálfvirkir eggjasjóðarar |
fyrir 1-7 egg.
Verð kr. 1.571,-.
Gunnar Asgeirsson hf.
StMVtrUtixisix. Mit 16 SWto 91 35200
fyrir 12,5 milljarða dollara, eða 50
milljarða króna. Er þar um milli
20 og 25% aukningu að ræða frá í
fyrra er leikföng voru keypt fyrir
10,4 milljarða dollara.
Þjóöaratkvæðagreiðsla
í Pakistan:
Engin þörf á
skilríkjum
Islamabad, PakisUn, 18. desember. AP.
RÍKISSTJÓRN Mohammed Zia
Ul-Haqs, Pakistansforseta, til-
kynnti í gær, að kjósendur þyrftu
ekki að sýna persónuskilríki í
þjóðaratkvæðagreiðslunni á morg-
un, miðvikudag, en þá ætlar Zia
að biðja um blessun þjóðarinnar
yfir stjórn sinni og þeirri stefnu
að auka áhrif múhameðstrúarinn-
ar í landinu.
Enginn vafi þykir leika á að Zia
verði að ósk sinni og fái meiri-
hluta atkvæða enda er bannað að
mæla honum í mót að viðlagðri
langri fangelsisvist. Formaður yf-
irkjörstjórnar hafði raunar ákveð-
ið, að mönnum bæri að sýna per-
sónuskilríki á kjörstað en þegar
aðeins tveir sólarhringar voru til
stefnu ákvað stjómin, að það væri
óþarfi. Segja stjórnarandstæð-
ingar, að þar með sé atkvæða-
greiðslan orðin að markleysu.
Þjóðaratkvæðagreiðsla var síð-
ast í Pakistan árið 1977, fjórum
mánuðum áður en Zia hrifsaði til
sín völdin, en síðan hafa verið
herlög í landinu. Zia hefur heitið
þingkosningum í mars nk. en ætl-
ar þó ekki að leyfa starfsemi póli-
tískra flokka.
Símamynd/AP
EÞIOPIULEIÐTOGII MOSKVU
Mengistu Haile Mariam, leiðtogi marxistastjórnarinnar í Eþíópíu, átti í fyrradag viðræður við Konstantin
Chernenko, forseta Sovétríkjanna, og R.-Boris Ponomaryov, sem er einn af riturum miðstjórnar kommúnista-
flokksins. Til Moskvu kom hann frá Ilavana á Kúbu þar sem hann hitti að máli Fídel Castró.
Er olíuyerðstríð
í uppsiglingu?
OPEC-samtökin vara Noreg og Bretland
við afleiðingum verðlækkunar á olíu
Cienf, 18. desember. AP.
OPEC, samtök olíuútdutningsríkjanna, hafa enn einu sinni varað Noreg og
Bretland við því, að komi til olíuverðsstríðs muni þau lönd „tapa mestu“,
sem standa utan við þessi samtök.
INNLENT
Það var Mana Saeed Otaiba,
olíumálaráðherra Sameinuðu ar-
abísku 'furstadæmanna, sem bar
þessa aðvörun fram á fundi
OPEC-ríkjanna í Genf í dag. Þar
skýrði hann ennfremur frá því, að
helztu ríki OPEC-samtakanna
hefðu orðið sammála um að auka
ekki olíuframleiðsluna. í október
sl. náðist samkomulag um 16
millj. tunna á dag sem fram-
leiðsluhámark og var olíufram-
leiðsla samtakanna þá skorin
niður um 1,5 millj. tunna á dag.
Markmiðið með þessum sam-
drætti var að knýja fram hækkun
á olíuverðinu. Þessi ráðstöfun hef-
ur samt ekki náð þeim tilgangi,
enda er talið víst, að sum ÖPEC-
ríkjanna hafi haldið áfram að
framleiða olíu umfram það magn,
sem þeim var heimilað samkvæmt
samkomulaginu í haust.
Otaiba kenndi hins vegar olíu-
ríkjunum við Norðursjó um hve
veikur olíumarkaðurinn væri nú,
en þessi ríki lækkuðu verð á olíu
sinni í haust. Þá ætti mild veðr-
átta í haust einnig nokkra sök á
minni olíueftirspurn, en búizt
hafði verið við.
ísrael:
Stjórnarkreppa
enn yfirvofandi
leniulom Ift rlou AP
Svetlana í úti-
stöðum við ætt-
ingja og yfirvöld
Washington, 17. desember. AP.
SVETLANA Alliluyeva, dóttir Jósefs Stalín, hefur rifist við ætt-
ingja sína og átt í útistöðum viö yfirvöld, aöeins mánuöi eftir aö 17
ára útlegð hennar á Vesturlöndum lauk og hún sneri til Moskvu,
að því er vikuritið US News and World Report heldur fram.
Blaðið hefur eftir ónafn-
greindum vinum Svetlönu að
hún hafi þegar lent í rifrildi við
suma þá ættingja, sem hún
þráði mest að sjá aftur, og henni
hafi tekist að setja skólayfirvöld
Moskvuborgar út af laginu.
Skólayfirvöld úrskurðuðu að
Olga, 13 ára dóttir Svetlönu,
væri óhæf til að setjast i bekkj-
ardeild með jafnöldrum. Þá
kastaðist enn frekar í kekki er
Olga mætti með krossfesti um
hálsinn í skólann, þar sem guð-
leysi er meðal kennslugreina.
Samkvæmt fregninni er
Svetlana enn að leita sér að
dvalarstað í sovézka lýðveldinu
Georgíu, þar sem Stalín fæddist.
Hefur henni verið boðin þar
íbúð og einkakennarar fyrir
Olgu. Svetlana Stalin
Jerúsaletn, 18. des. AP.
STJÓRNARKREPPA voBr enn yfir
ísrael, þar sem Likud-bandalagiö
heldur fast við þá hótun sína að
segja sig úr stjórninni. Shimon Per-
es forsætisráðherra skoraði í dag á
Likud-bandalagið að veita stjórninni
einnar viku frest, því aö þegar hefði
tekizt að jafna ágreininginn að veru-
legu leyti.
Afsögn Yitzhak Peretz, sem er
leiðtogi trúarsamtaka gyðinga af
austurlenzkum uppruna, tók gildi
í dag, en hann hafði átt sæti í
stjórninni sem ráðherra án ráðu-
neytis. Hefur flokkur hans fjögur
þingsæti og er í tengslum við
Likud-bandalagið. Það er afsögn
Langreyður
ber beinin
llusum, 18. desember. AP.
KISASTÓR langreyður, á milli
40 og 60 tonn að þyngd, bar
beinin á norðurströnd V-I>ýzka-
lands nærri Hamborg, eftir að
hafa strandað á útfallinu. Lang-
reyðurin mældist 19 metrar að
lengd.
Hvalurinn drapst á mánu-
dagsmorgni og hefst krufning
skrokksins í dag. Langreyður
er sjaldgæf í Norðursjó, heim-
kynni hennar eru úti í Atl-
antshafi. Tveir smærri hvalir
hafa borið beinin á strönd
V-Þýzkalands á síðustu tveim-
ur vikum.
Peretz sem er ásteytingarsteinn-
inn í stjórnarsamstarfinu nú og
verður ekki séð að svo komnu,
hvernig ísraelsstjórn kemst fram
hjá honum.
V-Þýskaland:
Uppsetning
eldflauga
er lögleg
Karlsruhe, 18. desember AP.
HÆSTIRÉTTUR í Vestur-Þýska-
landi vísaði í dag frá máli, sem
Græningjaflokkurinn hafði höfðað,
en þar var því haldið fram, að upp-
setning meðaldrægra eldflauga á
vestur-þýskri grund bryti í bága við
stjórnarskrána.
Helstu rök Græningja voru þau,
að uppsetning eldflauganna væri
ólögleg nema til kæmu sérstök lög
frá þinginu en hæstiréttur úr-
skurðaði, að uppsetningin helgað-
ist af lögum frá 1955 þegar aðild
Vestur-Þjóðverja að Atlantshafs-
bandalaginu var samþykkt og
ákveðið, að þrjú bandalagsríkj-
anna hefðu her í landinu. Þegar
fallist var á aðildina að NATO
hefðu Vestur-Þjóðverjar einnig
fallist á að laga stefnu sína i varn-
armálum að stefnu annarra
bandalagsríkja og styrkja varn-
irnar eftir þörfum. Var þetta
niðurstaða sjö dómara af átta.