Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
495 bófar hand-
teknir á Formósu
Taipei, 18. desember. AP.
LÖUiREGLAN segist hafa handtekið 495 meinta glæpamenn og
geyma þá bak við lás og slá frá því tilraunir til aA uppræta undir-
heimastarfsemi hófust fyrir röskum mánuAi.
Flestir voru handteknir í Taip-
ei eða 139, 81 í Kaohsiung, en aðr-
ir í öðrum borgum. Meðal hinna
Castró yill
deila Ól.
milli Kóreu-
ríkjanna
San Juan, 18. desember. AP.
FIDEL ('astro Kúbuforseti hef-
ur skorað á Alþjóðaólympíu-
nefndina að skipta keppnis-
greinum Olympíuleikanna 1988
á milli Norður- og Suður-Kóreu í
bréfi, sem hann reit nefndinni í
fyrra.
Castro segir tillögu sína
stuðla að því að „afstýra
kreppu í íþróttaheiminum,
sem kynni að reynast varan-
leg“. Kveðst honum ókunnugt
um undirtektir Kóreuríkjanna
við þessa hugmynd.
Vangaveltur eru á kreiki um
að tillaga Castro sé í raun
samin í herbúðum stjórnar
Norður-Kóreu, en í bréfinu
kveður Castro hugmyndina
vera sína eigin og um einstakl-
ingsframtak sitt að ræða.
Sovétmenn hafa lýst efa-
semdum um þátttöku Rússa í
leikunum í Seoul 1988 á sama
tíma og fylgiríki Sovétríkj-
anna hafa lýst áhugaleysi á
þátttöku í samskonar aðgerð-
um og á þessu ári.
handteknu er glæpaforinginn
Chen Chi-li, 39 ára, og Wu Tun,
34 ára, sem eftirlýstir eru í sam-
bandi við morð á kínversk-
amerískum blaðamanni, Henry
Liu, sem myrtur var 15. október
sl. í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Liu skrifaði um stjórnmál fyrir
kínversku útgáfuna af San Fran-
cisco Journal og er höfundur bók-
ar, sem talin er gagnrýnin á Chi-
ang Ching-kud forseta Formósu.
Bandarískir embættismenn segja
Chen og Wu hafa komist undan
til Formósu eftir morðið.
Aðför lögreglunnar gegn undir-
heimastarfseminni er gerð vegna
fjölgunar ofbeldisglæpa. Enn er
leitað um 500 meintra bófa.
THATCHER I PEKING
Frú Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands og Wu Xuegian, utanríkisráðherra Kína á flugvellinum í
Peking í gær. Frú Thatcher var tekið með mikilli viðhöfn og vinsemd. Þannig fóru kínversk dagblöð mjög
vinsamlegum orðum um stjórnmálaferil frú Thatcher og lýstu samkomulagi því, sem náðst hefði um framtíð
Hong Kong sem mjög mikilvægum atburði.
Undirritar yfírlýsingu
um framtíð Hong Kong
Frú Margaret Thatcher tekið með viðhöfn í Peking í gær
Peking, 18. desember. AP.
FRÚ Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, kom til Peking í
morgun. Hún mun ásamt Zhao Ziy-
ang, forsætisráðherra Kína, undir-
rita á morgun, miðvikudag, sameig-
inlega yfirlýsingu um framtíð Hong
Kong, þar sem Bretar samþykkja að
láta af hendi yfirráð yfir nýlendunni,
sem þeir hafa stjórnað síðan 1841.
Samkvæmt samkomulagi því,
sem náðst hefur um framtíð ný-
lendunnar, lofa Kínverjar því að
Evrópubandalagið:
Slakt ár að kveðja
í bifreiðaiðnaðinum
BrtiHHel. 18. desember AP.
BÍLASALA og framleiðsla minnkaði í heild um 2% og 5% hlutfallslega á því
ári, sem nú er að kveðja, í þeim tíu löndum, sem aðild eiga að Evrópubanda-
laginu. 1983 var hins vegar um nokkra aukningu að ræða að sögn talsmanns
bifreiðaiðnaðarins.
„Vegna aðeins meiri bifreiða-
sölu á árinu 1983 hefur fjárhags-
leg staða ýmissa framleiðenda
batnað nokkuð en aðrir stríða enn
við mikinn hallarekstur," sagði í
tilkynningu CLCA, sem eru sam-
tök bifreiðaframleiðenda í Vest-
ur-Þýskalandi, Frakklandi, Bret-
landi, Belgíu, Hollandi og Italíu.
Sagði framkvæmdastjóri samtak-
anna, að miðað við fyrstu níu
mánuði þessa árs hefði framleiðsl-
an minnkað um 5% og salan um
2%. Kenndi hann aðallega um að-
gerðum stjórnvalda I aðildarríkj-
unum, langvinnum verkföllum í
ÞAÐ VEUA ALLIR
m
UÓSALAMPA
IP ÞÝZK-ÍSLENZKA
vestur-þýskum og frönskum bíla-
smiðjum, vaxandi innflutningi frá
Japan og yfirvofandi lögum um að
hreinsibúnaður verði á öllum bíl-
vélum.
Bifreiðaiðnaðinum hefur vegnað
mjög misvel í aðildarlöndunum og
verst í Frakklandi, Vestur-Þýska-
landi og Bretlandi. í Frakklandi
minnkaði salan um 12,9% miðað
við fyrra ár, í Vestur-Þýskalandi
um 2,7% og í Bretlandi um 1,6%.
Á Ítalíu jókst hins vegar salan um
5,5% og hvorki meira né minna en
um 19,8% í Danmörku. í Belgíu
jókst hún um 11%, í Grikklandi
um 6,7% og í Lúxemborg um 4,7%.
Á írlandi minnkaði hún um 6,1%
og í Hollandi um 0,1%.
Framkvæmdastjórinn sagði, að
útlitið væri svartast í Vestur-
Þýskalandi en frá áramótum 1989
verða allir bílar að vera komnir
með hreinsibúnað og árinu fyrr
þeir, sem hafa tveggja lítra vél eða
stærri. Hefur þetta valdið því, að
menn halda að sér höndum með
kaup á nýjum bíl.
láta kapítalistiskt hagkerfi henn-
ar halda sér í 50 ár og að íbúarnir
þar fái víðtæka sjálfstjórn. Hin
sameiginlega yfirlýsing verður
undirrituð við hátíðlega athöfn í
Höll alþýðunnar og verður Deng
Xiaoping, leiðtogi kínverska
kommúnistaflokksins, viðstaddur
athöfnina.
Von er á um hundrað áhrifa-
mönnum úr stjórnmála- og við-
skiptalífi Hong Kong til athafnar-
innar á morgun og koma þeir í
boði stjórnvalda í Peking. Dagblað
alþýðunnar, málgagn kínverska
kommúnistaflokksins, fór mjög
lofsamlegum orðum um frú
Thatcher í dag. Þá rakti blaðið
feril hennar ítarlega sem stjórn-
málamanns og sagði, að hún legði
kapp á að „efla vestræna sam-
vinnu og NATO“ en væri jafn-
framt fylgjandi auknum viðræð-
um milli austurs og vesturs og
aukinni samvinnu viö samveldis-
löndin og lönd þriðja heimsins.
Á fimmtudagsmorgun fer frú
Thatcher til Hong Kong og daginn
eftir heldur hún til Washington til
viðræðna við Ronald Reagan for-
seta.
Níu deyja
í eldsvoða
Varsjá. 18. deserober. Al*.
NÍtJ manns, þar af átta börn, létust í
eldsvoða, sem upp kom í barnaheim-
ili í Vestur-Póllandi. Skýrðj PAP,
pólska fréttastofan, frá þessu í dag.
Eldurinn kom upp í barnaheim-
ili í bænum Wronki í Vestur-
Póllandi og varð reykeitrun fólk-
inu að bana, átta börnum á aldrin-
um þriggja til átta ára og for-
stöðumanninum. Öðrum tókst að
bjarga úr húsinu á síðustu stundu.
Gerði það björgunarmönnum erf-
iðara um vik, að eldurinn kom upp
um miðja nótt auk þess sem frost
var hart.
V-Þjóðverjar skrifa ekki
undir samning um aðlögun
— vegna úrsagnar Grænlands úr EB
(.rjtnlandi, 18. deaember. Frá Nils Jörgen Bruun, frétUritara Mbl.
KISIÐ hafa ný vandamál í sambandi við úrsögn Grænlands úr Evrópu-
bandalaginu eftir að Vestur-Þýskaland hefur neitað að skrifa undir
samning um aðlögunartíma, meðan beðið er staðfestingar aðildarland-
anna á úrsögn Grænlands.
Var þess vænst að staðfestingin
fengist fyrir 1. janúar, en nú er
sýnt að dráttur verður á af-
greiðslu málsins af hálfu írlands,
Frakklands og Ítalíu. Og þess
vegna er þörf sérstaks samnings
um aðlögunartíma til að tryggja
tollfrelsi og samkomulag um fisk-
veiðar, sem kveðið er á um í samn-
ingnum um úrsögn Iandsins.
Vestur-Þýskaland tilkynnti á
ráðherrafundi í Brússel, að aðlög-
unarsamningur þessi yrði ekki
samþykktur, þar sem ekki gæti
orðið af því að Vestur-Þjóðverjar
fengju að veiða við Vestur-Græn-
land á árinu 1985. Á árinu 1984
hafði Evrópubandalagið þar
12.000 tonna þorskkvóta, sem að
langmestu leyti kom í hlut Vest-
ur-Þjóðverja, en Grænlendingar
máttu sjálfir veiða 35 tonn af
þorski.
Nú segja fiskifræðingar, að á
árinu 1985 megi aðeins veiða
35.000 tonn af þorski við Vestur-
Grænland. Og þar með getur ekki
orðið af neinum veiðum Vestur-
Þjóðverja.
Evrópubandalagið greiðir
Grænlandi upphæð sem samsvar-
ar um 770 milljónum ísl. kr. fyrir
fiskveiðiréttindi við
Vestur-Grænland, þar á meðal til
að veiða þorsk, en einnig talsvert
af karfa við Austur-Grænland.
Jonathan Motzfeldt, formaður
landsstjórnarinnar, sagði við
grænlenska útvarpið, að eins og
málið liti út frá sjónarhóli fiski-
fræðinga yrði ekki um neinar
veiðar Vestur-Þjóðverja að ræða,
hvorki þorskveiðar né rækjuveið-
ar. Hins vegar hefur Grænland
boðið i staðinn aukinn karfakvóta,
sandsíli og grálúðu.
Ekki er vitað, hver afstaða
Vestur-Þjóðverja verður til úr-
sagnar Grænlands úr bandalag-
inu.