Morgunblaðið - 19.12.1984, Síða 42

Morgunblaðið - 19.12.1984, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984 Nýtt skip Sambandsins sjósett Akureyri: Alda umferðaróhappa fylgdi fyrsta snjónum Akureyri, 17. desember. FYRSTI umtalsverði snjór- inn á þessum vetri féll á Ak- ureyri í dag og fylgdi mikil hálka, sem bifreiöastjórar áttu erfitt með að vara sig á. Samkvæmt upplýsingum Skjálfti á Skjálfanda: Mældist fjór- ir á Richter- kvarða SNARPUR jarðskjálfti fannst á Norðurlandi sl. sunnudagsmorg- un um kl. 9.30. Var upptök hans að finna fimm til tíu kflómetra norðvestur af Flatey á Skjálfanda og reyndist styrkur hans vera fjórir á Richterkvarða. Að sögn Ragnars Stefánsson- ar jarðskjálftafræðings fannst fyrst lítill skjálfti en skömmu síðar aðalskjálftinn. Fannst hann alla leið vestur að Hrauni á Skaga og austur á Tjörnes. Einnig varð hans vart í Gríms- ey. Sterkastur var skjálftinn á Húsavík, Dalvík, ólafsfirði og Siglufirði, þar sem fólk mun hafa vaknað upp við kippinn. Ekkert tjón varð af völdum jarðskjálftans. Sýning Jóhanns framlengd JÓHANN G. Jóhannsson hefur framlengt sýningu sína LITRÓF í sýningarsal Listamiðstöðvarinnar, Lækjartorgi, til. laugardagskvölds 22. desember og verður sýningin opin til kl. 23 það kvöld. Aðra daga verður sýningin opin samkvæmt verslunartíma. Á sýningunni, sem er sölusýn: ing, eru 68 vatnslitamyndir. í innri sýningarsal Listamiðstöðv- arinnar eru einnig til sýnis og sölu nokkur af verkum Jóhanns G. Jóhannssonar og Hauks Hall- dórssonar sem þeir unnu í sam- einingu og sýndu í desember í fyrra á sama stað undir heitinu DESER ’83. í sama sal eru einnig til sýnis, sölu og leigu fjöldi verka, graf- íkmyndir, teikningar, málverk, vatnslitamyndir og fleira eftir fjölda innlendra og erlendra listamanna, þar á meðal eru margir nafnkunnir listamenn. (FrétUtilkynninjf) Bókin um Mugg seldist upp BÓKIN Muggur eftir Björn Th. Björnsson er uppseld hjá útgáf- unni, Lögbergi. Önnur prentun er væntanleg í bókaverzlanir á morg- un, fimmtudag. lögreglunnar höfðu orðið átta árekstarar í bænum frá því í morgun og fram til klukkan 18.00. Alvarlegasti áreksturinn varð um klukkan 13.00 á gatnamótum Austursíðu, Bugðusíðu og Fjöln- isgötu, en þar lentu þrír bílar í árekstri. Flytja varð farþega úr einum bílnum í sjúkrahús vegna höfuðhöggs, en meiðsli munu ekki hafa verið alvarleg. Þá var ekið á 18 ára gamla stúlku í Skógarlundi klukkan 16.00 í dag. Meiðsli henn- ar munu hafa verið óveruleg. „ÞAÐ ER meginregla í vinnurétti, að vinnusamningar aðila, þ.e. vinnu- veitanda og launþega, eru gagn- kvæmir á þann hátt, að skylda ann- ars aðilans til þess að inna af hendi sitt framlag er almennt háð því, að mótaðilinn efni sinn hluta skyldunn- ar. Af því leiðir, að ekki er vafi á því, að launþegi, sem er í verkfalli, á ekki rétt til launa fyrir þá daga, sem hann er í verkfallinu,“ segir meðal annars í dómi Félagsdóms í máli BSRB, fyrir hönd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, á hendur borg- arstjóranum í Reykjavík, fyrir hönd Reykjavíkurborgar, en eins og greint var frá í frétt Morgunblaðsins var Reykjavíkurborg sýknuð af kröf- um stefnanda, að henni hafi borið að greiða laun fyrirfram hinn 1. októ- ber sl. Mál þetta dæmdu Bjarni Krist- inn Bjarnason, Björn Helgason, Gunnlaugur Briem, Ragnar Hall- dór Hall og Sigurfinnur Sigurðs- son. Dómkröfur stefnanda voru þær, „að Félagsdómur dæmi, að sú ákvörðun stefnda að greiða þann NÝTT skip Skipadeildar Sambands- ins var nýlega sjósett í Appledore- Skipasmíðastöðinni í Devon í Eng- landi. Skipið er sérhannað til flutn- inga á gámum og frystivöru en getur jafnframt annast almenna vöruflutn- inga. Það verður afhent eigendum í janúar og mun verða í flutningum milli íslands og Norður-Ameríku. Burðargeta skipsins er u.þ.b. 3.000 tonn og heildarlengd 94 1. október 1984 einungis laun fyrir tímabilið 1.—3. október 1984 til þeirra starfsmanna sinna, sem starfað hafa a.m.k. eitt ár samfellt hjá stefnda og hafa skriflega á þar til gerð eyðublöð óskað eftir fyrir- framgreiðslu fastra launa, enda sé viðkomandi starfsmaður í a.m.k. 50% starfi, sé ólögmæt og brjóti í bága við sérkjarasamning aðila frá 3. maí 1984 og reglugerð um réttindi og skyldur starfsmanna Reykj avíkurborgar." Fjórir af fimm dómurum Fé- lagsdóms voru sammála um þá niðurstöðu að Reykjavíkurborg hefði ekki borið skylda til að greiða októberlaunin, en Sigur- finnur Sigurðsson skilaði sérat- kvæði þar sem tekið var undir kröfur stefnanda. Auk þess, sem getið er í upphafi segir ennfremur í niðurstöðum dómsins: „Þá er það einnig meginregla á sviði vinnuréttarins, að launþeg- inn þurfi fyrst að láta vinnu sína af hendi, áður en hann öðlast rétt á gagngjaldinu þ.e. launum sínum. metrar. Aðalvél hins nýja skips er 4.080 hestafla Wártsil' Vasa &R32 og ganghraði u.þ.b. 14 sjómílur. Rúmmál frystilesta er 165.000 ten- ingsfet og gámarými 164 stk. 20 feta gámaeiningar. Frá Islandi mun skipið flytja frosinn fisk í frystilestum og gáma á þilfari en jafnframt má nýta lestar þess til gámaflutninga Frá síðastgreindri meginreglu var brugðið í lögskiptum aðilanna, þegar stefndi samþykkti hinn 3. maí 1984, að tilteknir starfsmenn hans fengju föst laun sín greidd mánaðarlega fyrirfram fyrsta virkan dag hvers mánaðar. Þegar kjarasamningur var und- irritaður framangreindan dag, virðast engar umræður hafa átt sér stað um það, hvernig við skyldi bregðast með fyrirframgreiðslu launanna, ef til verkfalls starfs- manna Reykjavíkurborgar kæmi, og enginn fyrirvari er skráður um þetta í sjálfum samningnum. Verður eigi á það fallist með stefnanda, að úrslit málsins eigi að ráðast af því, að stefndi sam- þykkti kjarasamninginn án sér- staks fyrirvara um þetta samn- ingsákvæði. Á það þykir mega fallast með stefnda, að samningsákvæðið um fyrirframgreiðslu launa eigi ekki að skýra svo bókstaflega að það hafi átt að tryggja félagsmönnum stefnanda launagreiðslur fyrir eftir að fiskinum hefur verið land- að. Forstöðumenn skipasmíða- stöðvarinnar hafa lýst því yfir í blaðaviðtölum að hið nýja skip Skipadeildar Sambandsins sé hið fjölhæfasta sem þar hafi verið smíðað. Þeir bera lof á hönnun skipsins, sem gefur fjölmarga val- kosti við flutninga, segir í frétt frá Sambandinu. tímabil, sem þeir fyrirsjáanlega yrðu í verkfalli. Breytir engu í því sambandi þótt stefndi ætti þess kost að draga kaupið fyrir verk- fallsdagana frá launum, sem starfsmenn ynnu fyrir síðar," eins og segir m.a. í niðurstöðu dómsins. Eyrarbakki: Allverulegt atvinnuleysi — þrátt fyrir óvenju- góða tíö til róðra Kvrarbakka, 18. desember. EINS OG fram hefur komið í frétt- um hefur togarinn Bjarni Herjólfs- son verið seldur á nauðungarupp- boði eftir langvarandi taprekstur. Til þess að reyna aö tryggja Hraðfrysti- stöð Eyrarbakka hráefni var í haust keyptur hingað 50 lesta stálbátur. Síðan hann kom hefur hann stundað línuveiðar og aflað þokkalcga, fjórar til fimm lestir í róðri að jafnaði af góðri ýsu. Þrátt fyrir óvenjugóða tíð til róðra og nokkra sfldarfrystingu hefur þó verið allverulegt atvinnu- leysi hérna undanfarið. í lok síðustu viku kom til Reykjavíkur vélbáturinn Sæberg en Hraðfrystistöð Eyrarbakka og Vigfús Markússon hafa keypt þann bát í sameiningu. Sæbergið er um 50 lesta stálbátur og verður Vigfús formaður á honum. Loks er að geta þess að einstaklingar hér í þorpinu hafa fest kaup á vélbátn- um Mánatindi, sem er 100 lesta stálbátur, og verður hann afhent- ur nýju eigendunum í janúar. Við kaupin hafa þeir hvorki notið full- tingis hreppsins né Hraðfrysti- stöðvarinnar. Útlit er fyrir því að fimm bátar verði gerðir út frá Eyrarbakka í vetur, auk þess sem nokkrir bátar annars staðar frá verði hér í viðskiptum, þannig að nokkuð tryggt ætti að vera að nægur afli berist á land til að halda uppi at- vinnu á komandi vertíð. Óskar Niðurstaða Félagsdóms um októberlaunin: Munum haga okkar upp- sögnum öðruvísi næst — segir Haraldur Hannesson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar „ÞESSI niðurstaða veldur okkur auðvitað vonbrigðum enda töldum við í upphafi að rétturinn væri okkar,“ sagði Haraldur Hannesson, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, er Morgunblaðið innti hann álits á niðurstöðum dóms Félagsdóms þar sem Reykjavíkurborg var sýknuð af kröfum um að henni hafi borið að greiða laun fyrirfram hinn 1. október síðastliðinn. Haraldur Hannesson sagði ennfremur að menn væru nú reynslunni ríkari og myndu standa öðruvísi að þessum mál- um næst í Ijósi þessarar niður- stöðu. „í sjálfu sér breytir þessi niðurstaða ekki svo ýkja miklu fyrir okkur í framtíðinni, nema að við munum haga okkar upp- sögnum öðruvísi næst. Launa- sviptingin kom okkur vissulega í opna skjöldu og kom illa við marga félagsmenn og við trúð- um þvi að rétturinn væri okkar megin. En við erum reynslunni ríkari og munum því aldrei stilla verkfalli svona upp aftur," sagði Haraldur Hannesson. Kristján Thorlacius, formaður BSRB, sagði í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins að ekki tjáði að deila við dómarann í þessum efnum. Hins vegar væri hér aðeins um að ræða annað málið af tveimur, sem BSRB hefði haft til athugunar vegna októberlaunanna. Hitt væri í at- hugun, í samráði við lögfræðing BSRB, Gest Jónsson hæstarétt- arlögmann, hvort BSRB fer í mál fyrir undirrétti vegna októberlauna ríkisstarfsmanna, en það mál yrði rekið fyrir al- mennum dómstólum en ekki fyr- ir Félagsdómi eins og mál borg- arstarfsmanna, að sögn Krist- jáns Thorlacius. G.Berg. Félagsdómur um októberlaunin: Ekki skylt að greiða laun nema vinna sé innt af hendi LK nzia THORELLA Laugavegs Apóteki THORELLA Miðbæ við Háaleitisbraut *A

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.