Morgunblaðið - 19.12.1984, Síða 55

Morgunblaðið - 19.12.1984, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984 55 Höfundur þessarar greinar, dr. Páimi Möller, er prófessor við tannlæknadeild Háskólans í Ala- hama. Hann er fæddur á Saudár- króki og kvæntur Málfríði Óskars- dóttur. Pau eiga þrjú börn, Pálma, tölvufræðing, Oskar, lækni og Jó- hönnu háskólanema. Pálmi Möller lauk stúdentsprófi frá stærófræóideild Menntaskól- ans í Reykjavík vorið 1943. Hann var við nám í læknadeild Háskóla íslands veturinn 1943—'44 en hóf nám í tannlæknisfræði haustið 1944 við Tufts University í Boston, Bandáríkjunum, og lauk þar prófi í febrúar 1948. Lagði stund á almenn tann- læknisstörf í Reykjavík á tímabil- inu 1948 til 1958. Fór til framhaldsnáms í tann- læknisfræðum við tannlæknaskóla Háskólans í Alabama í Bandaríkj- unum haustið 1958. Lauk þar „Master of Science“-prófi vorið 1962 og fjallaði MS-ritgerðin um tíðni og dreifingu munnsjúkdóma í íslenskum börnum („Oral Health Survey of Preschool Children in Iceland"). Var við kennslu við tannlækna- skólann í Alabama, jafnframt framhaldsnáminu. Var ráðinn Ass- ociate Professor við tannlækna- skóla Háskólans í Alabama árið 1963 og skipaður prófessor við sama skóla haustið 1970. Tannslæknaskólinn í Alabama er vel kunnur í íslenskri tann- læknastétt, þar sem fjöldi ís- lenskra tannlækna hefur dvalist þar við sérfræðinám. Hefur tekið þátt í og stjórnað hluta af umfangsmiklum rann- sóknum í munnsjúkdómum meðal íslendinga. Þessar rannsóknir voru í sameiginlegri umsjá Há- skóla íslands og Háskóla Ala- bama-fylkis. Meginþáttum þessara rannsókna er nú lokið, og hafa niðurstöður þeirra verið birtar í kunnum fagtímaritum. Var veittur „Reasearch Career Development Award“ árið 1966 af National Institutes of Health í Bandaríkjunum, sem gerði honum kleift að einbeita sér að rannsókn- um á skarði í vör og holgómum meðal íslendinga. Dvaldi á íslandi nær tvö ár við söfnun gagna um þessa sköpunargalla og varði rit- gerð um þetta efni árjð 1971 við læknadeild Háskóla íslands, og var þá kjörinn doktor í tannlækna- fræðum. Dr. Pálmi Möller var kjörinn heiðursfélagi í Tannlæknafélagi íslands árið 1982. 1970 Mynd 4 1983 10 ára 12 ára 14 ára Heilar 70% Hlutfoll skemmdra, fjarlægðra, viðgerðra og heilbrigðra fullorðinst- anna, 1970 og 1983. i] 12 II 10 9 8 Meðal- tala tanna6 5 4 3 2 I DMF Ar ;;v,wii AI2UR 70 83 70 83 70 83 I II III 8-8 70 83 70 83 I II 9-11 70 83 III 70 83 I 70 83 70 81 II III 12-14 Skemmdar, fjarlægðar og viðgerðar fullorðinstennur (DMF) eftir svæði og aldri, 1970 og 1983. ið skipulagðra fyrirbyggjandi að- gerða gegn tannskemmdum. Enn- fremur gerir tryggingalöggjöfin um tannlækningar ekki ráð fyrir slíku, og megnið af almennings- fræðslu um tannheilbrigði hefur verið á vegum Tannlæknafélags íslands. Samkvæmt þeim gögnum, sem hér hafa verið talin, virðist lækk- un á tíðni tannskemmda fara vax- andi eftir því sem meiri áhersla er lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir. Niðurlag Það liggur í augum uppi, að að- stoð hins opinbera við kostnað- arhlið tannlækningaþjónustunnar er nauðsynleg þeim, sem áhuga hafa á bættri tannheilbrigði barna sinna, en skortir fé til þess að viðhalda tönnum þeirra. Samt sem áður hlýtur sú spurning að vakna, hvort núverandi löggjöf um tannlækningatryggingar sé þann- ig úr gerði gerð, að vonast megi eftir miklum umbótum á tannh- ætti að gefa gott yfirlit yfir ásig- komulag tannheilbrigði meðal ís- lenskra ungmenna utan Reykja- víkursvæðisins. Breytingar á tryggingalöggjöf- inni virðast aðkallandi, og þá í þá átt að leggja höfuðáherslu á fyrir- byggjandi aðgerðir gegn tann- skemmdum. Framfarir undanfarinna ára í baráttunni við tannskemmdir í Svíþjóð og Danmörku ættu að vera nægileg hvatning til þess, að íslensk heilbrigðisyfirvöld skipu- leggi sem fyrst fyrirbyggjandi að- gerðir gegn tannskemmdum, með líku sniði og þar tíðkast. Skipuleggja þarf almennings- fræðslu um tennur, tannhirðu og tannheilbrigði. Skipulag fræðslu- þáttanna ætti að vera þannig, að sérstakir þættir fjölluðu um vandamál vissra aldursflokka, allt frá börnum til aldraðra. Til dæmis ætti að halda uppi fræðsluþáttum, sem stefndu að foreldrum barna innan skólaskyldualdurs. Slíkir þættir myndu gera foreldrunum kleift, að mestu leyti, að sjá sjálf- um um fræðslu barna sinna við- komandi tönnum og tannhirðu. Auka þarf fræðslu um tennur, hollt mataræði og tannhirðu í barna- og unglingaskólum lands- ins. Gögn til slíkra fræðsluþátta ættu að vera fáanleg hjá Trygg- ingastofnun ríkisins og Tann- læknafélagi íslands, en flytjendur ættu að vera tannlæknar, héraðs- læknar, hjúkrunarkonur og kenn- arar skólanna. Þá þarf að skipuleggja og koma í framkvæmd fyrirbyggjandi að- gerðum gegn tannskemmdum í öllum barna- og unglingaskólum landsins. Tannlæknar hvers skóla- svæðis ættu að sjá iim fyrirkomu- lag og eftirlit þessara aðgerða, en framkvæmdir, svo sem munnskol- un með fluor-upplausn á sjö til fjórtán daga fresti, gætu verið á vegum hjúkrunarkvenna og kenn- ara skólanna. Þar sem munnskol- unaraðgerðir hafa verið skipu-'1 „ lagðar, hefur komið í ljós, að ekki þarf nema 5—10 mínútur til að- gerðanna í hvert sinn fyrir hvern bekk. Stofnkostnaður slíkra aðgerða ætti ekki að vera óviðráðanlegur, þar sem meiri hluti starfsfólksins, sem með þyrfti, er þegar til staðar í skólum landsins (þ.e. kennarar og/eða hjúkrunarkonur). Þar að auki myndi kostnaður hins opin- bera við þessar aðgerðir fljótlega bera ávöxt með minnkandi nauð- syn á tannviðgerðarþjónustu og þar með lækkun á framlagi ríkis og sveitarfélaga til viðhalds á tönnum íslenskra ungmenna. 1. Monograph, 1981, liniversity of Alabama in Birmingham. 2. Leknablaðid, 1980, 7:212—223 og 9:272-277. 3. Tandlægebladet, 1971,75:861—882. 4. Nor. Tandlaegeforen. Tid., 1973, 83:2—6. 5. Carien Res., 1972, 6:355—376. 6. OdonL Revy, 1971, 22:1—32. 7. Dental Health ( are in Scandinavia, 1983, 21-43. Mynd 5 BFEVTINGAR A TÍMII TANNSKEMMDA f FULLORÐINSTÖNNUM UNDANFARIN AR f FIFM LÖNDUM TIMA- BREYTING (%) A FMFS TÖLU EFTIR ALDRI ( -» lækkun, + r hækkun) LAND BIL 6 ára 7 ár\a 8 ára 9 ára 10 ára 11 ára 12 ára 13 ára 14 ára. (8) 1971 DANMÖRK 1979 -77 -69 -72 -58 -45 -63 -64 -53 -49 (9,10) 1970 ENGLAND 1980 -42 -35 -36 (11) 1972 H0LLAND 1978 -36 -42 -21 (12-14) 1967 SVfíJÖÐ 1979 -45 -53 -53 fSLAND 1970 -27 +25 -13 -9 -23 +10 -22 -1 -13 1983 ingar orðið á tannheilbrigði barna og unglinga innan hvers ran- nsóknarsvæðis. Það er athyglisv- ert, að tíðni tannskemmda er miklu lægri í sveitabörnum en kaupstaðabörnum, en þessi mis- munur gerði einnig vart við sig árið 1970. Án efa er takmörkun á tækifærum til sætindaáts til sveita höfuðástæðan fyrir þessari lægri tíðni tannskemmda meðal sveitabarnanna. Samanburður á breytingum undanfarin ár á tannheilbrigði barna og unglinga í nokkrum löndum er gerður í meðfylgjandi töflu. Börnin í þessum samanburði voru búsett á svæðum með flu- orsnautt drykkjarvatn og höfðu öll notið ókeypis tannviðgerða á samanburðartímabilunum. Ef löndunum er raðað eftir heildarlækkun á tíðni tann- skemmda kemur í ljós, að mesta lækkunin hefur orðið í Danmörku (61%) og Svíþjóð (50%), þá koma England (38%) og Holland (33%), en ísland (9%) rekur lestina. Notkun fluor-tannkrems hefur verið við lýði undanfarin ár í öll- um samanburðarlöndunum, en aðrar fyrirbyggjandi aðgerðir eru mjög svo breytilegar frá landi til lands. Síðastliðin 10 ár hafa heilbrigð- isyfirvöld í Danmörku og Svíþjóð staðið fyrir mjög vel skipulögðum fyrirbyggjandi aðgerðum gegn tannskemmdum. Þessar aðgerðir byggjast á almenningsfræðslu um tannheilbrigði, mataræði og tannhirðu, ásamt skipulagðri munnskolun meðal skólabarna með fluor-skolvatni (0,2% NaF) á sjö til fjórtán daga fresti. Þá eru einnig gerðar sérstakar aðgerðir til þess að hefta bakteríugróður („plaque“) á tönnum þeirra barna, sem virðast næmust fyrir tannátu. Frá því árið 1968 hefur vel skipulagðri almenningsfræðslu um tannvernd verið haldið uppi í Hollandi (Haag). Dreift hefur ver- ið fræðiritum til foreldra bama yngri en fjögurra ára og beint til barna eldri en fjögurra ára í for- skólum og barnaskólum. Einnig hefur notkun á fluor-töflum auk- ist mjög í Hollandi, þótt dreifing þeirra sé ekki á vegum heilbrigðis- yfirvalda þar. í Englandi hefur hið opinbera ekki staðið fyrir neinum skipu- lögðum fyrirbyggjandi aðgerðum gegn tannskemmdum, og er lækk- unin á tíðni tannskemmda þar í landi talin orsök aukinnar notkun- ar á fluor-tannkremi og vaxandi skilnings almennings á afleiðing- um óhóflegs sætindaáts. Þótt fluor-skolun hafi farið fram i skólum á Akranesi og í Vestmannaeyjum tvisvar á ári, er ekki hægt að segja, að börnin, sem þátt tóku í rannsókninni, hafi not- eilbrigði íslenskra barna og ungl- inga á næstunni. Samkvæmt þeim niðurstöðum, sem hér hafa verið birtar, virðist lítið tilefni . til bjartsýni, að minnsta kosti á þeim svæðum, sem rannsóknirnar ná til. En ástandið á rannsóknarsvæðunum S. Comm. DenL Oral Kpklemiol, 1982, 10:345—351. 9. Caries Res. 1982, 16:257-264. 10. J. DenL Res., 1982, 61.1311—1316. 11. Comm. DenL Oral Kpidemiol., 1981, 9:55-60. 12. Comm. DenL Oral Kpidemiol., 1982, 10:178—181. 13. Swed. DenL 1., 1980, 4:217—229. 14. Swed. DenL J., 1979, 3:193—203.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.