Morgunblaðið - 19.12.1984, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984
UfSOBTO
★
★
*
S FISHER
skákar keppinautunum í verði og gæðum.
VHS P-618
myndsegulband
+
myndbands
spólur
á einu árí.
Allt þetta á aðeins
í3 I
stgr.
KR 39.900.
Jólaglaðningur sem endist ailt áríð
LAGMULA 7.
REYKJAVÍK - SÍMI 685333.
Þú kemur oq semur. _______.___
Fisher, fyrsta flokks. SJÓNVARPSBÚÐIN
Washington:
Sovéskur
flóttamað-
ur vill kom-
ast heim
Wa.shington. 17. deæmber. AP.
SOVÉSKUR hermaöur, sem flúði frá
Afganistan og lýsti síðar yfir, að
stríðsrekstur þjóðar sinnar þar væri
„lúaleg aðlor“ að afgönsku þjóðinni,
vill nú fara heim og sem allra fyrst,
að því er embættismenn í sovéska
sendiráðinu sögðu í dag.
Talsmaður sendiráðsins kvað
Sovétmanninn, Nikolai Ryzhkov,
sem er tvítugur að aldri, hafa haft
samband við sendiráðið fyrir
nokkrum dögum og beðið um að
mega fara heim, en hann flúði frá
herdeild sinni í Afganistan í júní
1983 og fluttist síðan til Banda-
ríkjanna.
Embættismenn í utanríkisráðu-
neytinu ræddu í dag við Ryzhkov
og kvað hann það satt og rétt, að
hann vildi fara heim.
Landssambandið
gegn áfengisbölinu:
Fylgni milli
slysa og áfeng-
isneyslu á
veitingahúsum
SEXTÁNDA þing Landssambands-
ins gegn áfengisbölinu ályktaði eftir-
farandi:
„Ákveðin fylgni virðist vera
milli áfengisneyslu á veitingahús-
um annars vegar og slysatíðni
hins vegar. Þetta sést m.a. á því að
í þjónaverkfallinu 1973 minnkuðu
slys stórlega, skv. upplýsingum
Slysavarðstofunnar, þó að sala hjá
ÁTVR væri þá með venjulegum
hætti.
1 verkfalli BSRB í ár voru útsöl-
ur ÁTVR lokaðar. Hins vegar voru
veitingahús opin. Tjón af völdum
slysa minnkaði ekkert framan af
þessum tíma. Hins vegar dró veru-
lega úr slysafjöldanum tvær síð-
ustu vikurnar en flest veitingahús
voru þá orðin uppiskroppa með
vínföng. Dragi hver af þessu þá
ályktun sem honum sýnist.
En þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu beinir af þess-
um ástæðum þeirri áskorun til
stjórnvalda að þau reisi sem
sterkastar skorður við vínveiting-
um veitingahúsa. í því sambandi
minnum við á tillögur nefndar um
mörkun opinberrar stefnu í áfeng-
ismálum þar sem bent er á hvern-
ig draga megi úr tjóni af völdum
áfengisneyslu."
reglulega af
ölhim
fjöldanum!