Morgunblaðið - 19.12.1984, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 19.12.1984, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1984 67 Minning: Guöbjörg Þorsteins- dóttir, Hafnarfirði Vestmannaeyjar voru henni ofar- lega í huga og fylgdist hún alla tíð vel með því sem þar fór fram. Um tvítugt fór Jóhanna til Ólafsfjarðar og starfaði þar um 5 ára skeið. Laust eftir 1940 fluttist Jó- hanna frá Ólafsfirði til Reykjavík- ur og átti þar síðan heimili sitt. í Reykjavik kynntist hún eftirlif- andi manni sinum, Valdimar Guð- mundssyni, fyrrv. skipstjóra frá Þingeyri. Þau gengu í hjónaband árið 1946. Sama ár keyptu þau húsið við Bárugötu 16 og áttu þar heima síðan. Heimili þeirra Jó- hönnu og Valdimars var þeim til mikils sóma. Þau voru ákaflega samhent um að hlúa að öllu á heimilinu á sem myndarlegastan hátt. Þar ríkti einstök snyrti- mennska og mikil gestrisni. Jó- hanna var mikil húsmóðir og gekk að öllu sem heimilinu laut með sérstakri alúð og umhyggju. Ég er þess fullviss, að þeim fjölmörgu, sem sóttu þau hjón heim mun nú minnisstæð sú sérstaka rausn og hlýja sem húsráðendur sýndu gestum sínum. Börn þeirra hjóna urðu þrjú. Elstur er Valdimar, kvæntur Þor- gerði Einarsdóttur, þau eiga þrjú börn. Næstelstur er Eyjólfur, kvæntur undirritaðri, þau eiga tvö börn. Yngst er Helga, kvænt Óskari Alfreðssyni, þau eiga tvö börn. Öll börn Jóhönnu eru búsett í Reykjavík. Náin samskipti voru ætíð milli hennar, barnanna og fjölskyldna þeirra. Barnabörnin áttu hjá henni mikið og gott at- hvarf enda hafði hún sérstakt lag á börnum. Mikill er missir þeirra þegar þau njóta ekki lengur sam- vista við ömmu sína. Vegna starfs síns var Valdimar löngum fjarverandi frá heimili sínu og féll það þá að miklu leyti í hlut Jóhönnu að annast heimilið og uppeldi barnanna. Það gerði hún með þeim myndarskap og um- hyggju sem henni var eðlislæg. Kom sér þá vel kjarkur hennar og dugnaður. Ég mun ætíð minnast fyrstu heimsóknar minnar á Bárugötu 16. Jóhanna og Valdimar tóku mér opnum örmum og glöggt mátti finna, að í því húsi ríkti góður andi. Eftir þennan fyrsta fund okkar Jóhönnu leyndist mér ekki, að hún var mörgum góðum kost- um búin. Ég taldi mig ekki þurfa að kvíða því að eignast hana fyrir tengdamóður. Það hugboð mitt reyndist rétt. þau ár sem síðan eru liðin hef ég og fjölskylda mín ótal sinnum notið elskulegrar hjálpfýsi hennar og greiðvikni. Jóhanna var ráðagóð með afbrigðum og ekkert var henni fjær skapi en hugarvíl og uppgjöf. Það var því ævinlega uppörvandi að leita til hennar þegar á þurfti að halda. Fyrir allt þetta er mér nú efst í huga inni- legt þakklæti. Síðustu ár var Jóhanna ekki alltaf heilsuhraust, en hún eyddi gjarna öllu tali um veikindi ef á var minnst. Fyrir fáum vikum lagðist Jóhanna inn á sjúkrahús og stoðu góðar vonir til að hún myndi fá góðan bata við meini sínu. Þegar vonir rættust ekki því í ljós kom, að veikindi hennar voru mun alvarlegri en ætlað var í fyrstu. Jóhanna tók sjúkleika sín- um með aðdáunarverðu þreki og æðruleysi. Sunnudaginn 9. september sl. var sonarsonur Jóhönnu skírður í kapellu Landakotsspítala. Rúm- liggjandi var hún viðstödd ásamt öðrum allra nánustu ættingjum barnsins. Að athöfninni lokinni óskaði hún barninu allrar gæfu og síðan kvaddi hún fólk sitt glaðlega eins og hennar var vandi. Að tæpri stundu liðinni slokknaði lífsljós þessarar mætu og góðu konu. Tengdafaðir minn hefur misst lífsförunaut sinn. Ég veit, að góð- ar minningar um trausta og kæra eiginkonu munu verða honum mikill styrkur. Ég og fjölskylda mín minnumst nú ástkærrar móður, tengdamóð- ur og ömmu með virðingu og sökn- uði, og þökkum fyrir allt sem hún var okkur fyrr og síðar. Blessuð sé minning hennar. Hanna Unnsteinsdóttir I dag verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, Guð- björg Þorsteinsdóttir, en hún lést á Sólvangi þann 12. desember sl. 29. júlí komum við saman vinir og ættingjar á heimili sonarsonar hennar og fögnuðum 90 ára af- mælisdegi hennar. Þetta var ham- ingjudagur í lífi Guðbjargar. Hún tók gestum fagnandi, gladdist yfir að fá að sjá þá og njóta nærveru þeirra. Það var líka eins og hún vildi nota tækifærið og kveðja fyrir samfylgdina. Þessi dagur var óvenju sólríkur og fagur og ósjálfrátt tengdi ég hann lífi Guð- bjargar, svo hljóðlátur, bjartur og óendanlega gjöfull. Því það var Kveðjuorð: Fæddur 3. aprfl 1918 Dáinn 28. nóvember 1984 Þann 28. nóvember síðastliðinn lést á Landspítalanum í Reykjavík Ögmundur Hannesson, Stóru- Sandvík. Ég veit að hans verður minnst á verðugan hátt en það sem hér verður sagt eru aðeins hugleiðingar mínar við mikil þáttaskil. Það er á árinu 1944 þegar ég gerist Árnesingur, sem mín fyrstu kynni við Ögmund verða. Þau eru að vísu ekki mjög mikil fyrstu ár- in, en eftir því sem tíminn hefur liðið, hafa atvikin hagað því svo, að við höfum átt þess kost að eiga marga samfundi. í mörgum ferða- lögum og á öðrum stundum þegar við sveitungarnir komum saman, geislaði gáski og lífsorka frá Ög- mundi. Hann var jafn heill í gleði og starfi. Hann vildi hafa hreyf- ingu og líf í samskiptum við fólk, en enga hlédrægni eða roluskap. Hrifning hans og þakklátsemi var líka heils hugar ef vel tókst til að hans mati. Þeir sem þess nutu munu geyma það í minni. Ög- mundur vildi hafa allt á hreinu. samdóma álit allra sem hana þekktu að þar færi hjartahrein, trúuð kona, sem aldrei sagði eða framkvæmdi neitt sem hugsan- lega gæti sært aðra. Guðbjörg fæddist í Ytri-Njarð- vík dóttir hjónanna Þorsteins Sig- urðssonar og Þóru Jónsdóttur. Ár- ið 1916 giftist hún Jóni Ólafssyni frá Höfnum en hann lést 1952. Son eignuðust þau 1918 sem skírður var Ólafur Sigurjón en misstu hann aðeins 3ja mánaða gamlan. Þau ólu upp kjörson, Þorstein, sem lést fyrir fáum árum. Ég kynntist Guðbjörgu ekki fyrr en hún var orðin mjög full- orðin kona. Með okkur tókst strax Loforð sem ekki var staðið við voru honum ekki að skapi. I skoð- unum um menn og málefni var ekki farið í felur með neitt og um- ræðan var hrein og afdráttarlaus. Hafi einhverjum ekki líkað slíkt, er það þeirra mál. Vinnan göfgar manninn. Og vinnan var Ögmundi mikil lífsfyll- ing. í störfum við búreksturinn í Stóru-Sandvík hlífði hann síst af öllu sjálfum sér. Það held ég að ekkert verði undan skilið og ekki var spurt hvort öðrum bæri að vinna verkið. það sem hægt var að gera í dag var ekki geymt til morguns. Þó hið mesta regn streymdi úr lofti mátti sjá Ög- mung úti í gulum galla. Þá var hann var að fjarlægja óvelkomin grös úr garði sinum. Hið sama gilti í málefnum sveit- arfélagsins; að ganga til verks af fullum krafti. Mér er næst að halda að Ögmundir hafi verið sáttastur við sjálfan sig eftir vel unnið dagsverk. Hann lét ekki fá- nýta hluti trufla sig frá vinnu en var jafn fús að vera veitull og fagnandi í hópi fólks, þegar dags- ins önn var lokið. góð vinátta sem hélst óslitið með- an hún lifði. Það er nokkuð óvenjulegt þegar þess er gætt að hún var 52 árum eldri en ég. En fyrir því held að hvorug okkar í ljósi þessara orða kom það mjög á óvart að sumarið 1982 verður Ögmundur að leggjast inn á sjúkrahús. Að rannsókn lokinni er niðurstaðan sú að gerð er mikil skurðaðgerð. Tíminn líður og horf- ur eru allgóðar um að bati muni nást. Það er komið fram í sept- ember. Ég er staddur í Reykjavík í smá erindagerðum. Vestan úr bæ er nokkur spölur að fara, þangað sem Landspítalinn er. Ég ákveð að fá mér göngutúr þessa leið. Það er komið kvöld, úti er stormur og regn. Fyrstu laufin falla af trján- um og fjúka um götur borgarinn- ar. Og þar sem ég er þarna á ferð er ég að hugleiða vanmátt sjálfs mín þegar ég sé fólki líða illa. Fyrr en varir er ég kominn inn í ganga hafi fundið. Það var gaman að heimsækja Guðbjörgu að Mjó- sundi 1. Hún kunni þá list að taka á móti gestum, hún var ágætlega ræðin, hlý og oft glettin. Hún kunni frá möfgu að segja, talaði þó ekki mikið um fortíðina nema um væri spurt. Þó er mér ekki ókunnugt um að ekki átti hún allt- af meðbyr að fagna á lífsleiðinni. En það var aldrei til umræðu, það jákvæða og góða hafði alltaf yfir- höndina. Guðbjörg var lengst af heilsu- hraust og stundaði vinnu utan heimilis langt fram á áttræðisald- ur. Nú síðast var heilsan farin að gefa sig, sér í lagi sjónin. Hún dvaldi á Sólvangi síðustu árin, þar leið henni vel, fékk góða umönnun og var starfsfólkinu þar öllu ákaf- lega þakklát. Ég bið Guð að blessa hana á ókunnum stigum. Vinkonu minnar mun ég ætíð minnast með hlýhug og virðingu. Aðstandendum votta ég samúð mína. Auóur Kristinsdóttir. þessarar voldugu byggingar og mér er vísuð leið að rúmi Ög- mundar. Ég sé að hann Iiggur út af og er að lesa í bók. Mér er í minni gleðisvipur Ögmundar við komu mína; við ræddum góða stund saman, síðan var niðurstað- an sú að taka fremur létt á mál- um. Næsta dag þá skein sól í heiði. Ég kom að kveðja Ögmund. Þá sagði hann: „Ég fer að koma heim," og bætti við: „Þú gast ekki gert mér betra en að koma í þessa heimsókn." Og Ögmundur kom heim. Heim til síns bjarta og fal- lega heimiiis og naut umhyggju sinnar traustu konu, Hrefnu Gísladóttur. Svo er líka nafni sem er sólargeisli afa. í sumar 1984. Ögmundur kemur t heimsókn. Við drekkum kaffi saman og höfum smá birtu með. Síðan sátum við úti í bíl hans og ég er hinn fávísi spyrjandi. Ég tel samt að Ögmundi hafi ekki verið neitt á móti skapi að tala um sín mál. Nokkrir mánuðir skiptu ekki máli, svo væri þessu lokið. Fram til síðustu stundar var Ögmundur trúr sjálfum sér. Hann lét jafnvel leiða sig til vinnu með- an kraftar entust. Það er ekki langt síðan ég tók i hönd þessa viljasterka manns. Það var hinsta kveðjan. Með þessum línum vil ég þakka samstarf og djúpstæð kynni. Hrefnu og hennar fólki er færð innileg samúðarkveðja frá okkur öllum. Brynjólfur Þorsteinsson t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns mins, HELGA GUÐMUNDSSONAR, Mánageröi 6, Grindavfk. Fyrir hönd sona okkar og annarra vandamanna, Guórún Kristinsdóttir. t Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdafööurog afa, STEFÁNS L. STEFÁNSSONAR, Hjaröarhaga 58. Ella Stefónsdóttir, Stefón G. Stefónsson, Gyóa Ólafsdóttir, Hafdfs Hannesdóttir og barnabörn. + Alúöarþakkir fyrir samúö og vinsemd viö andlát og jaröarför systur okkar, ÓLAFAR HALLDÓRSDÓTTUR fró Stóru-Skógum, Stigahlíó 20, Reykjavlk. Aóalsteinn Halldórsson, Emilla Grönrold, Sigurþór Halldórsson, Jóhannes Halldórsson. + Þökkum auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför JÓHANNS KRISTINS PÉTURSSONAR, Dalbæ, Dalvík. Sérstaklega þökkum viö starfsfólki dvalarheimilis Dalbæjar og Fjóröungssjúkrahússins á Akureyri fyrir umönnun og hjúkrun i veikindum hans. Viglundur Pétursson, Sigrún Pétursdóttir, Trausti Pétursson, Anna Pétursdóttir, Maron Pétursson, Frióbjörg Pétursdóttir, Steinunn Pétursdóttir, Þóra Pétursdóttir. Margrét Jónsdóttir, María Rögnvaidsdóttir, Árni Valmundarson, Kristfn Bjarnadóttir, Sigurbjörn Þórarinsson, Jóhannes Haraldsson, Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Ögmundur Hannes- son, Stóru-Sandvík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.