Morgunblaðið - 29.12.1984, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1984
11
Loðdýrabændur bjart-
sýnir eftir skinna-
uppboðin í desember
Skinn fyrir 15 milljónir send utan fyrir jól
UNDANFARNA daga hafa farið um
tíu þúsund refa- og minkaskinn á
vegum Sambands íslenskra loðdýra-
ræktenda til Kaupmannahafnar þar
sem skinnin verða boðin upp í byrj-
un febrúar. Verðmæti þessara
skinna er um 15 milljónir kr. Loð-
dýrabændur eru bjartsýnir á að fá
gott verð fyrir skinnin vegna þess
hvað salan hefur verið góð og verðið
hátt á þeim uppboðum sem haldin
hafa verið í desember.
Nýlega var stærsta loðskinna-
uppboð desembermánaðar haldið í
Helsingfors. Að sögn Jóns Ragn-
ars Björnssonar, framkvæmda-
stjóra SÍL, hækkuðu blárefaskinn-
in um 2% frá fyrra desember-
uppboðinu i Helsingi ef borin eru
saman skinn af sömu gæðum. Boð-
in voru upp eitthvað á þriðja
hundrað þúsund blárefaskinn og
seldust 98% þeirra fyrir 2.060 kr.
íslenskar að meðaltali. Skugga-
skinnin seldust fyrir 2.438 kr. að
meðaltali sem er um 8% hækkun
frá fyrra uppboðinu miðað við
sömu gæði. Seldust öll skugga-
skinnin og var söluhlutfallið á
þessu uppboði almennt mjög gott
að sögn Jóns Ragnars. Það góða
verð sem fékkst fyrir minkaskinn
á nýlegu uppboði i Kaupmanna-
höfn hélst í Helsingi ef borin eru
saman skinn af sömu gæðum. Silf-
urbláskinn seldust fyrir 3.975
krónur að meðaltali.
Jón Ragnar sagði að markaður-
inn stæði vel eftir desemberupp-
boðin. Allt annað væri við þetta að
eiga nú en í desember í fyrra þeg-
ar verð féll, því verðið frá því í
vor, þegar það var sem hæst, hefði
haldið sér. Sagði hann að menn
væru almennt bjartsýnir á góða
sölu á uppboðunum í Kaupmanna-
höfn þegar islensku skinnin yrðu
boðin upp.
Morgunblaðið/Bj arn i
Nýr stórmarkaður í Garðabæ
NÝR stórmarkaður hefur verið
opnaður í Garðabæ og ber hann
heitið Garðakaup. Eigendur eru
Torfi Torfason og Ólafur Torfa-
son. Gólfflötur verslunarinnar
er 1320 fermetrar, auk 5—600
fermetra vörugeymslu i kjallara.
Þá eru í framtíðinni fyrirhugað-
ar sérverslanir á svölum á 900
fermetra gólffleti. Garðakaup er
verslun með alla almenna mat-
vöru og þar er opið virka daga
frá kl. 9—19, nema laugardaga
frá kl. 9—16 og lokað á sunnu-
dögum.
Myndin er frá hófi sem haldið
var á Þorlkasmessu í tilefni af
opnun fyrsta stórmarkaðarins í
Garðabæ. Jón Gauti Jónsson,
bæjarstjóri í Garðabæ fremst á
myndinni.
Þannig lítur hráefnið út þegar búió
er að slíta halann af.
Morgunbladid/Arnór.
Humarsúpa framleidd úr klóm og haus skreytt með tveimur klóm sem
innihalda mikil bragðgæði.
Gleðilegt nýtt ár!
Þökkum fyrir viðskiptin á liðnum árum. Við reikn-
um með að fasteignaviðskiptin verði fjörug fljót-
lega upp úr áramótunum og bendum ykkur því á
að láta okkur skoða og verðmeta sem fyrst, jafn-
vel í dag eða á
Eignaþjónustan morgun, þannig að
þið séuð tilbúin í
slaginn þegar að
fjörið byrjar. Erum
með margar góðar
r,CTC^,„ __________ eignir í ákveðinni
FASTEIGNA- OG SKIPASALA .?, ~ ., , .
HVERFISGÖTU 98 SOlu. Opið I dag Og
(horni Barónstígs). á morgun frá kl.
Sími 26650, 27380 1—3.
Framleiðsla að hefjast á humarsúpu í Sandgerði:
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
LOGM JOH Þ0RÐARS0N HDL
Framleidd úr hausum og klóm sem
hingað til hafa ekki veriö nýttar
Garði, 26. deaember.
Á NÆSTUNNI mun .'yrirtækið Ara-
son og Co. hf. í Sandgerði hefja
framleiðslu á humarsúpu sem fram-
leidd er úr humarhausum og klóm
humarsins, en til þessa hefir aðeins
verið hirtur hali humarsins, en hann
er aðeins Vi af vigt humars.
Að sögn Jóhannesar Arasonar,
eins af eigendum Arasonar og Co.,
hafa tvö fyrirtæki staðið að þess-
ari tilraun. Hraðfrystihús Bald-
vins Njálssonar í Garði hefir séó
um hráefnisöflun og frystingu
hráefnisins. Þá hefir og þurft að
semja við sjómenn um að halda
þessum hluta humarsins til haga,
en honum er oftast hent.
Ýmsar leiðir hafa verið skoðað-
ar í sambandi við sölu afurðanna.
T.d. voru send sýnishorn til
Bandaríkjanna í sumar af frystum
humarklóm og er hugsanlegt að
eitthvað megi selja af þeim, en
verði verður þó að stilla mjög í
hóf. Þá hefir verið athugað að
selja kraft sem kemur af að sjóða
hausana og klærnar, en útlit er
fyrir að langbesta útkoman verði í
sölu humarsúpu tilbúinni á borð
neytandans en þá er súpan sett í
dósir og hafðar tvær klær með til
skrauts og neyzlu.
Helztu viðskiptalönd nú í fyrstu
tilraun eru Holland, Belgía,
Þýzkaland og Frakkland, en til
allra þessara landa hafa verið
sendar prufur sem hafa fengið
mjög jákvæðar undirtektir, eink-
um í Frakklandi.
Að sögn Jóhannesar Arasonar
er ársveiði á humri hérlendis
1600—2000 tonn, þannig að hugs-
anlega er hér um að ræða 3—4000
tonn af hráefni sem hent er í sjó-
inn. Þá gat Jóhannes þess að haft
væri eftir fiskifræðingum að með
því að henda klóm og haus í tog-
slóð eins og nú er gert, rýrni vaxt-
arskilyrði óveidds humars þar sem
rotnun úrgangsins taki til sín súr-
efni sem ella nýttist óveiddum
humri.
Félags- og fræðslustarf SRFÍ
FÉLAGS- og fræðslustarf Sálar-
rannsóknafélags íslands á nýju ári
hefst 3. janúar með erindi sem Loft-
ur Reimar Gissurarson flytur um til-
raunafélagið og Indriða miðil. Um
þessar mundir eru 80 ár liðin frá
stofnun Tilraunafélagsins, sem var
undanfari Sálarrannsóknafélags ís-
lands.
Verkefni Tilraunafélagsins voru
rannsóknir og tilraunir með sál-
ræn fyrirbæri og þá sérstaklega
þau fyrirbæri sem gerðust hjá
Indriða Indriðasyni miðli. Loftur
Reimar Gissurarson lauk nýlega
BA-prófi í sálfræði frá Háskóla
íslands og lokaritgerð hans fjall-
aði einmitt um rannsóknir Til-
raunafélagsins á miðilsfyrirbær-
um hjá Indriða miðli, sem voru
hin mögnuðustu og vöktu á sínum
tíma mikla umræðu og deilur.
Fundurinn verður fimmtudag, 3.
janúar, kl. 20.30 á Hótel Hofi. Aðr-
ir fræðslufundir félagsins verða
fyrsta fimmtudag hvers mánaðar
á sama stað og tíma, en efni þeirra
verður auglýst síðar. Félagið mun
einnig fá til starfa einstaklinga
sem búa yfir dulrænum hæfileik-
um í ríkara mæli en almennt ger-
ist og verða fundir þeirra auglýst-
ir síðar. Skrifstofa Sálarrann-
sóknafélagsins er opin mánudaga
til föstudaga kl. 13—17 og þar eru
gefnar nánari upplýsingar um
starfsemi félagsins.
(Fréiutilk. frá Sálarraniuókntfél. fnlnnds.)
Til sýnis og sölu auk annarra eigna:
2ja herb. íbúöir viö:
Austurbrún: 4. hæö um 56 fm, lyftuhús, ágæt sameign, mikið útsýni.
Vesturberg: 5. hæö um 60 fm, lýtuhús, mjög góð, mikiö útsýni.
Efstasund: 2. hæö um 55 fm, mjög góö, endurbætt, nýtt gler, skuldlaus.
Lokastig: rishæð um 58 fm, sérhitaveita, ágæt sameign, samþykkt, útsýni.
3ja herb. íbúöir viö:
Geitland: 1. hæö um 95 fm, stór og góö, sórhiti, sólsvalir.
Kjarrhólma: 4. hæö um 80 fm, sérþvottahús, sólsvalir, útsýni.
Hringbraut: 3. hæö um 80 fm í enda, vel með farin, risherb. fylgir.
Hverfisgötu: 2. hæö 60 fm, steinhús, sérhiti, sérinngangur, ódýr.
4ra herb. íbúöir viö:
Krummahóla: 2. hæö um 100 fm, lyftuhús, góö sameign, góöur bilskúr.
Engihjalla: 6. hæö, lyftuhús, tvennar svalir, góö sameign. útsýni.
Barónsstíg: tvær góöar 4ra herb. hasöir í sama húsi, sérhiti.
Einbýlishús
Nýleg og góð einbýlishús viö Garðaflöt í Garöabæ, Vorsabæ i Árbæj-
arhverfi, Reykjaveg i Mosfellssveit.
Kynniö ykkur teikningar á skrifstofunni.
Raöhús
Nýleg og góö raöhús m.a. viö Hlíðarbyggð í Garöabæ, Hjallaveg i
Kleppsholti, Hryggjarsel i Seljahverfi, Unufell og Torfufell i Fellahverfi,
Bakkasel í Seljahverfi.
Kynnið ykkur teikningar á skrifstofunni.
Margskonar eignaskipti möguleg.
Fjöidi fjársterkra kaupenda
Höfum á skrá fjölda fjársterkra kaupenda. Sórstaklega óskast 2ja og 3ja
herb. íbúðir miösvæðis i borginni.
Ennfremur góöar góöar sérhæöir i borginni.
i mörgum tilfellum óvenju miklar útborganir fyrir rétta eign.
Opið i dag laugardag frá
kl. 1 til kl. 5 síödegis
ALMENNA
HSTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Arnór.