Morgunblaðið - 13.01.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1985
Heilbrigðisráðherra:
Hjartaskurðlækn-
ingar hefjist hér á
landi á þessu ári
„VONIR STANDA til að hjartaskurðlækningar geti hafist hér fyrir lok þessa
árs og unnið er af fullum krafti til að gera það mögulegt,“ sagði Matthías
Bjarnason, heilbrigðisráðherra, er hann var spurður hvað liði undirbúningi
þessa máls. Haft var eftir Símoni Steingrímssyni, framkvæmdastjóra ríkis-
spitalanna, í frétt Mbl. á miðvikudag, að ekki skorti mikið á, að aðstaða til
spítalanna og málin hafa þróast í
rétta átt, þannig að reikna má
með að hjartaskurðlækningar geti
hafist hér seint á þessu ári, ef allt
gengur að óskum," sagði Matthías
Bjarnason.
Heilbrigðisráðherra gat þess
ennfremur að nokkur töf hefði
orðið á hjartaþræðingunni og
byggingunni og væru þær fram-
kvæmdir um tveimur mánuðum á
eftir áætlun.
þessara aðgerða væri til hér á landi.
„Ég skrifaði stjórnarnefnd rík-
isspítalanna og fól henni tilteknar
athuganir og lagði fram ákveðnar
spurningar sem hún hefur svo
svarað. I framhaldi af því hef ég
aftur skrifað stjórnarnefnd ríkis-
99
Viljum selja
vín í matvöru-
verslunum“
MorgunblaAiA/ Július.
Árangurslaus fundur í sjómannadeilunni
Á föstudag var haldinn annar fundur sáttasemjara í kjaradeilu Siómannasambands íslands vegna undir-
manna á fiskiskipum við útvegsmenn og Vinnuveitendasambands lslands. Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambandsins, sagði í samtali við Mbl. að sáttafundurinn hefði verið árangurslaus. Sagði hann að strax
eftir helgina væru fyrirhugaðar viðræður fulltrúa sjómanna og forsætisráðherra um ýmis mál sem sneru að
stjórnvöldum.
son,
segir Ólafur Björns-
formaður Félags-
matvörukaupmanna
„VIÐ RITUÐUM fjármálaráð-
berra bréf í fyrra, þar sem við
fórum þess á leit við hann að
heimilað yrði að selja matarvín (
matvönivershinum landsins,"
sagði Ólafur Björnsson, formað-
ur Félags matvörukaupmanna.
ólafur og Jóhannes Jónsson,
formaður Félags kjötverslana,
rituðu bréf til Alberts Guð-
mundssonar hinn 31. janúar í
fyrra, en svar ráðherra var á
þá leið, að ekki væri hljóm-
grunnur fyrir slikum ákvörð-
unum innan ríkisstjórnarinn-
ar. ólafur sagði, að kaupmenn
heföu viljað auka við úrval i
verslunum sínum, enda væru
margir sem litu á kaup létt-
víns sem matarkaup. „Það eru
ekki allir viðskiptavinir ÁTVR
að kaupa sterk vín og ef við
fengjum leyfi til að selja mat-
arvinin myndi það létta á út-
sölustöðum ÁTVR, sem eru
aðeins þrír á Reykjavíkur-
svæðinu," sagði ólafur. „For-
stjóri ÁTVR segir sjálfur, að
útsölustaðir séu of fáir og
þessi hugmynd okkar á fylgi
að fagna meðal kaupmanna og
viðskiptavina. Að sjálfsögðu
yrði að setja reglur um slika
sölu, svo tryggt yrði að fólk
undir 20 ára aldri gæti ekki
nálgast áfengi í verslununum."
ólafur sagði, að kaupmenn
ætluðu að ítreka þessa hug-
mynd sína við fjármálaráð-
herra, enda hlyti það að vera
ÁTVR í hag, ef álag á útsölu-
stöðum þeirra minnkaði og
hægt væri að fresta byggingu
nýrra staða.
Stefnumörkun í örygg-
ismálum sjómanna
Samgönguráðherra framkvæmir 17 tillögur þingmanna
TILLÖGUR Öryggismálanefndar sjó-
manna um aðgerðir í öryggismálum
sjómanna voru kynntar á blaða-
mannafundi Matthíasar Bjarnasonar
samgönguráðherra í fyrradag, en ráð-
herra hefur ákveðið að framkvæma
allar tillögurnar 17 sem nefndin skil-
aði til hans í haust. Öryggismála-
nefndin, sem er skipuð 9 þingmönn-
um undir forsæti Péturs Sigurðsson-
ar, var ákveðin í kjölfar Helliseyjar-
slyssins sl. vetur. Fjölmargir aðilar í
samtökum sjómanna og úr röðum
slysavarnafélaga og skólum sjómanna
hafa fagnað tillögum Öryggismála-
nefndarinnar og bent á að með fram-
kvæmd þeirra verði um algjöra bylt-
ingu að ræða í öryggismálum sjó-
manna. Alþingi og ríkisstjórn hefur
ákveðið að verja 6,4 millj. kr. til ör-
yggismála sjómanna á þessu ári.
í tillögunum sem samgönguráð-
herra hefur samþykkt og komið til
framkvæmda kemur fram m.a., að
endurskoðuð verði lög um Siglinga-
málastofnun og verður nefnd skip-
uð í málið á næstu dögum. Undan-
þágur til skipstjórnar- og vélstjórn-
arstarfa verði veittar tímabundið,
en yfir 1000 einstaklingar fengu
undanþágur sl. ár. Komið verður á
fót námskeiðum í öryggismálum í
öllum helstu verstöðvum landsins
og verði slík námskeið fastur liður.
Fjölgað verður skyldutilkynningum
skipa og sektarákvæðum beitt gegn
vanrækslu. Sett verða sjálfvirk
bjöllutæki í íslenska flotann, Sel-
call, en þá er unnt að kalla upp skip
með hringingu frá landi. Allir ís-
lenskir bátar verða skyldaðir til að
hafa VHS-talstöð um borð. Stöðug-
leiki eldri skipa verður mældur með
skipulögðu átaki í þeim efnum und-
ir stjórn Siglingamálastofnunar. Á
næstu dögum verður skipuð nefnd
til að fjalla um rannsóknir sjóslysa
til þess að koma þeirri vinnu í nú-
tímalegra horf. Landhelgisgæsl-
unni verður heimilað að fram-
kvæma skyndiskoðanir í höfnum
sem úti á sjó, en yfirumsjón slíks
verður þó áfram hjá Sjóslysanefnd.
Björgunarnetið Markús verður
lögskipað í íslensk skip til viðbótar
öðrum öryggisbúnaði. Sjálflýsandi
merkingar verða lögskipaðar á
hlífðarfatnaði sjómanna og björg-
unarvesti með hífingarhönkum og
ljósi lögskipuð, svo og að reykköf-
unarbúnaði verði komið fyrir þar
sem því verður við komið. Hrint
verði í framkvæmd lögskipun um
yfirbyggða björgunarbáta á farskip
og björgunargalla þeirra bjargbáta
sem ekki eru yfirbyggðir. Komið
verður á fót sérstökum lána- og
styrktarsjóði fyrir þá sem ætla að
helga starf sitt sjósókn og sigling-
um. Allur sjálfvirkur sleppibúnaður
björgunarbáta verður tekinn til ít-
arlegrar prófunar af Tæknideild
Fiskifélags íslands, gerð og mögu-
leikar hverrar tegundar og stað-
setning á skipum og uppsetning.
Víðtæk áróðursherferð verður í ör-
yggismálum sjómanna og hefst hún
á næstu vikum og mánuðum.
Sjá tillögur Öryggismálanefndar
sjómanna sem samgönguráðherra
hefur hrundið í framkvæmd á bls.
6b.
Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra:
Húsnæöismálastofnun
verður breytt í banka
KÍKISSTJÓRNIN ræddi á fundi sín-
um á fimmtudag fyrirhugaðar breyt-
ingar á skipan húsnæðismála. Að sögn
félagsmálaráðherra, Alexanders Stef-
ánssonar, eru breytingar á döfinni
varðandi útlánafyrirkomulag, enn-
Ámi Grétar Finnsson stjórnarmaður í Landsvirkjun:
Hvað ætlaði Hjörleifur
að gera við rafmagnið?
ÁRNI Grétar Finnsson fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins f stjórn
Landsvirkjunar lagði þrjár spurn-
ingar fyrir Finnboga Jónsson vara-
mann Ólafs Ragnars Grímssonar
Alþýðubandalagi í stjórn Lands-
virkjunar á fundinum, þegar
Finnbogi lagði fram greinargerð
sína, sem greint hefur veríð frá í
fréttum. Árni sagði spurningarnar
tilkomnar vegna þeirrar staðreynd-
ar, að alþýðubandalagsmenn hefðu
f tíð síðustu ríkisstjórnar stöðugt
hamrað á því að ráðast ætti f nýjar
virkjanir, en aldrei gert tillögur
um hvernig nýta ætti orkuna. Það
kæmi sér því á óvart að fá allt í
einu fullyrðingar um að þeir teldu
raforkuna of mikla í landinu svo
næmi beilli virkjun.
Spurningarnar sem Árni
Grétar lagði fram eru svohljóð-
andi: 1. Hvers vegna hefur full-
trúi Alþýðubandalagsins i stjórn
Landsvirkjunar ekki stutt tillög-
ur mfnar um að fresta Blöndu-
virkjun, úr því að hann telur
vera til staðar svo mikla ónotaða
umframorku í raforkukerfinu?
2. Hvernig ætlaði Hjörleifur
Guttormsson þáverandi orku-
ráðherra Alþýðubandalagsins að
nýta rafmagnið frá Blönduvirkj-
un og Fljótsdalsvirkjun?
3. í bréfi Hjörleifs Guttorms-
sonar þáverandi orkuráðherra
Alþýðubandalagsins til Lands-
virkjunar dagsett 5. október 1981
kemur fram að vænta megi að
raforkuþörf hér á landi muni
aukast umfram almenna mark-
aðinn um 1.800 til 2.400
GWh/ári næstu 10 til 15 árin. Á
hvaða forsendum byggði ráð-
herra Alþýðubandalagsins þessa
skoðun sína og hverjum ætlaði
hann að selja raforkuna?
Árni Grétar sagði aðspurður,
að ekki hefði hann fengið nein
svör við spurningum sínum.
fremur sagði hann að verið væri að
skoða, hvort ekki væri kominn tími til
að hefja undirbúning að því að breyta
Húsnæðismálastofnun ríkisins f
hankastofnun. Alexander segir, að út-
lán Byggingarsjóðs ríkisins og Bygg-
ingarsjóðs verkamanna hafi aldrei
verið meiri en á síðasta ári, eða tæp-
lega tveir milljarðar króna. Þá er
fyrirhugað að stofna sérstakan sjóð til
aðstoðar við unga húsbyggjendur,
sem lent hafa í erfiðleikum við að
standa skil á afborgunum lána. Alex-
ander segist hafa gert að tillögu sinni
að aflað verði fjármuna í sjóðinn með
skyldusparnaði á hátekjur og stór-
eignasköttum.
Samkvæmt bráðabirgðatölum,
sem félagsmálaráðherra hefur bor-
ist frá Húsnæðismálastofnun,
námu útlán Byggingarsjóðs ríkisins
á síðasta ári 1 milljarði 427 millj.
og 205 þús. kr. til 4.504 einstaklinga.
Hefur þessi upphæð aldrei verið
hærri og hið sama er að segja um
fjölda lána. Árið 1982 var úthlutað
lánum til 4.214 einstaklinga og er
það mesti fjöldi sem úthlutað hefur
verið til á einu ári fram að sfðasta
ári. Þar að auki lánaði Byggingar-
sjóðurinn um 140 millj. kr. í viðbót-
arlán á árinu 1984 frá fyrra ári. Þá
lánaði Byggingarsjóður verka-
manna 409 millj. kr., sem skiptist á
183 ný lán í verkamannabústaði og
167 endursölulán.
Samtals nema lánin tæpum 2
milljörðum, sem er að sögn Alex-
anders talsvert yfir lánsfjáráætlun,
en þar var gert ráð fyrir 1.550 til
1.600 millj. kr. Hann sagði enn-
fremur að í desembermánuði hefði
orðið að fresta yfir í janúar og
febrúar lánveitingum fyrir u.þ.b.
400 millj. kr., aðallega til kaupa á
eldra húsnæði.
Félagsmálaráðherra sagði að
stærsti hluti fjármögnunar lána á
síðasta ári hefði verið með lántök-
um. Hann sagði að kaup lffeyris-
sjóðanna á ríkisskuldabréfum
hefðu numið 70—75% af áætlaðri
heildarupphæð, sem var um 690
millj. kr., þannig að fjármunir frá
lífeyrissjóðunum hefðu skilað sér
betur en ætlað hefði verið.
Alexander Stefánsson var spurð-
ur hverjar horfur væru á lánveit-
ingum til húsnæðismála á þessu ári.
Hann sagði að samkvæmt láns-
fjáráætlunarfrumvarpinu væri gert
ráð fyrir að lán úr byggingarsjóð-
unum yrðu um 2,5 milljarðar kr. Þá
væri ákveðin yfir 100% hækkun á
ríkisframlagi á fjárlögum ársins
1985 til sjóðanna, eða 904 millj. kr.,
sem verið hefði um 400 millj. kr. á
síðasta ári. Gert væri ráð fyrir að
fjármunum til húsnæðislána yrði
einvörðungu aflað á innlendum
markaði, nema vegna tæknilána.
Hann sagði stefnuna þá, að tiltölu-
lega stærri hluta yrði varið á árinu
til bygginga félagslegra íbúða, þ.e.
leiguíbúða sveitarfélaga og annarra
aðila, svo sem námsmanna og ör-
yrkja.