Morgunblaðið - 13.01.1985, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1985
59
Athugasemd við athugasemd
forstjóra Landsvirkjunar
t Morgunblaðinu í dag er birt
athugasemd frá Halldóri Jóna-
tanssyni forstjóra Landsvirkj-
unar og Jóhanni Má Maríussyni
aðstoðarforstjóra við greinar-
gerð, sem undirritaður sendi
stjórn Landsvirkjunar í síðustu
viku. í tilefni af þessari athuga-
semd vill undirritaður taka
fram eftirfarandi:
1. Athugasemd forstjóranna
má skilja svo, að greinargerð-
inni hafi verið komið á framfæri
við þingflokka áður en stjórn-
inni barst hún í hendur. Hið
rétta er, að stjórnarmenn
Landsvirkjunar fengu greinar-
gerðina í hendur sl. mánudag. Á
miövikudag sendi ég afrit af
skýrslunni til formanna þing-
flokka. Þetta taldi ég sjálfsagða
skyldu mína í svo veigamiklu
máli, þar sem ég starfa í umboði
Alþingis að málefnum Lands-
virkjunar.
2. Mál þetta er engan veginn
nýtt af nálinni eins og ætla
mætti af viðbrögum forystu-
manna Landsvirkjunar. Á
stjórnarfundum 1. júlí 1983, 17.
nóvember 1983, 12. apríl 1984,
10. maí 1984 og 4. október 1984,
eða öllum þeim stjórnarfundum
Landsvirkjunar, sem ég hef set-
ið, hef ég vakið máls á þeim
meginatriðum, sem greinargerð-
in fjallar um. Jafnframt hef ég
ítrekað óskað eftir sérstökum
umræðum í stjórninni um þær
forsendur, sem lagðar hafa verið
til grundvallar við mat á virkj-
anaþörf Landsvirkjunar. Við-
brögð hafa hins vegar ekki verið
á þann veg, sem ég hafði kosið,
hvorki varðandi hið svokallaða
250 Gwst umframgetuskilyrði
eða framkvæmdaþörf Lands-
virkjunar á hverjum tíma.
3. í athugasemd sinni segja
forstjórarnir, að það sé gjör-
samlega út í hött, að orkuverð
til almenningsveitna sé allt að
50% hærra vegna umframorku-
getu í kerfinu. Rétt er að upp-
lýsa í þessu sambandi að við
umræðu um álsamningana á Al-
þingi á sl. hausti lögðu þeir sjálf-
ir fram útreikninga, þar sem þetta
kemur fram. í greinargerð, sem
ber heitið „Nokkur minnisatriði
varðandi kostnaðarverð raforku
úr kerfi LV“ dagsett 3. október
1984 kemur fram þeirra niður-
staða, að kostnaðarverð á raf-
orku til almenningsveitna á ár-
inu 1983 hafi verið 19 mill/kvst.
Sama ár þurftu almenningsveit-
ur hins vegar að greiða 34
mill/kvst fyrir orkuna, eða um
80% hærra verð en nemur út-
reiknuðu kostnaðarverði. Þegar
beðið var um skýringar á þess-
um mismun svöruðu forstjór-
arnir því þannig, að útreikn-
ingar Landsvirkjunar miðuðust
við fulla orkunýtingu og mis-
munurinn stafaði fyrst og fremst
af umframorku i kerfinu en að
öðru leyti vegna þess, að stóriðj-
an hefði greitt nokkru lægra
orkuverð á árinu 1983 en sam-
svaraði kostnaðarverði til henn-
ar. Umframorkuna töldu þeir
hækka orkuverðið til almenn-
ingsveitna um rúmlega 40%,
sem er sama niðurstaða og ég fæ
í minni greinargerð.
4. í athugasemd forstjóranna
segir, að samkvæmt orkuspá
hafi virst nauðsynlegt að ráðast
í orkuaukandi framkvæmdir á
Þjórsársvæðinu m.a. Sultar-
tangastíflu en hún hafi þó fyrst
og fremst verið reist til að auka
rekstraröryggi Búrfellsvirkjun-
ar. í greinargerð minni segir
m.a. um Sultartangastíflu: „Það
verður til dæmis ekki annað séð
en að öll viðbótarorka frá Sult-
artangastíflu sem komst í gagn-
ið á árinu 1983 sé enn óseld og
Landsvirkjun beri einungis
kostnað af þeirri framkvæmd
enn sem komið er. Erlendar
skuldir, sem rekja má til Sult-
artangastíflu einnar, nema nú
væntanlega um 25 milljónum
Bandaríkjadala eða um 1000
milljónum króna miðað við nú-
verandi gengi."
Ég tel, að orkuspá hafi ekki
sýnt að Sultartangastífla væri
nauðsynleg. Varðandi öryggis-
sjónarmiðið má benda á, að Búr-
fellsvirkjun hafi verið keyrð á
annan áratug án þess að nokkur
Sultartangastífla væri til stað-
ar. Sem hagfræðingur tel ég að
færa megi rök að því að hag-
kvæmara hefði verið frá efna-
hagslegu sjónarmiði, að erlend-
ar skuldir væru nú u.þ.b. einum
milljarði lægri eða þá að sömu
upphæð hefði verið varið til
nýsköpunar í atvinnulífinu
fremur en að Sultartangastífla
kæmi inn nokkrum árum fyrr en
seinna af öryggisástæðum ein-
um saman.
5. f athugasemd forstjóranna
segir ennfremur, að samkvæmt
orkuspá hafi virst nauðsynlegt
að ráðast í aðrar orkuaukandi
aðgerðir á Þjórsársvæðinu s.s.
kvíslaveitur. í umræðum um
framkvæmdaþörf Landsvirkj-
unar á árinu 1984 dró ég í efa og
bókaði fyr'rvara um að þörf
væri fyrir allar þær fram-
kvæmdir, sem fyrirhugaðar
voru á því ári. Nú er ljóst, að þá
þegar lágu fyrir upplýsingar,
sem hefðu sýnt að orkuaukandi
aðgerðir voru ónauðsynlegar.
Frestun þeirra hefði gert ríkis-
stjórninni kleift að draga veru-
lega úr erlendum lántökum á sl.
ári.
6. í greinargerð forstjóranna
er vikið að hinu svokallaða 250
Gwst umframgetuskilyrði
Landsvirkjunar, sem ég hef gert
athugasemdir við og óskað eftir
umræðum um frá því á fyrsta
fundi núverandi stjórnar Lands-
virkjunar, sem haldinn var á
Akureyri 1. júlí 1983. Upphaf-
lega komu þessar 250 Gwst til
vegna þess að það var talið
nauðsynlegt að hafa þessa orku
til reiðu til að fullnægja skuld-
bindingum um afgangsorkusölu
til Járnblendifélagsins. Síðan
var farið að kalla þetta öryggis-
orku m.a. eftir að bent hafði
verið á, að í forsendum um verð
á afgangsorku til Járnblendifé-
lagsins hefði alls ekki verið gert
Mótmæli og
óeirðir í Ecuador
ráð fyrir að ráðast þyrfti í sér-
stakar virkjanaframkvæmdir
vegna afgangsorkusölunnar.
Þetta 250 Gwst umframgetu-
skilyrði kallar á um 1600 millj-
ónir króna í viðbótarfjárfest-
ingu í orkukerfinu.
í greinargerð minni kemur
fram, að með hliðstæðum örygg-
iskröfum og í Noregi megi
lækka þetta öryggismark niður í
um 90 Gwst og spara með því
um einn milljarð í fjárfestingu.
Forstjórarnir telja Noreg varla
viðmiðunarhæfan í þessu sam-
bandi og er ég sammála því. Ég
dreg hins vegar aðra ályktun af
þeirri staðreynd en þeir gera.
Kostnaður Norðmanna af sam-
bærilegri öryggisorku er marg-
falt lægri en okkar. Þeir geta í
flestum tilvikum selt sína ör-
yggisorku til landa, sem annars
framleiddu orkuna með olíu, og
hætt orkusölunni þegar þeir
þurfa sjálfir á orkunni að halda.
Að teknu tilliti til þessara mis-
munandi fjárhagslegu forsenda
ætti hlutfall öryggisorku af
örkuþörf almenningsveitna að
vera enn lægra hér ef eitthvað
er.
Varðandi þá skoðun forstjóra
Landsvirkjunar að rétt sé að
miða við Nýja Sjáland í þessum
samhengi er nauðsynlegt að
upplýsa, að þar er reiknað með
að geta kerfisins sé um 7%
hærri en orkueftirspurn. Orku-
sala Landsvirkjunar til almenn-
ingsveitna á árinu 1985 er áætl-
uð 1342 Gwst. Þetta ðryggis-
hlutfall mundi því þýða um 100
Gwst í öryggisorku hér á landi
en ekki 250 Gwst.
Að lokum skal þetta tekið
fram: Allir útreikningar mínir á
umframorkunni og áætluðum
fjárfestingarkostnaði hennar
vegna eru byggðir á gögnum,
sem Landsvirkjun hefur lagt
fram. Athugasemd forstjóranna
breytir ekki niðurstöðum grein-
argerðarinnar um að umfram-
orkan sé á bilinu 700—750 Gwst,
að fjárfestingarkostnaður vegna
umframorkunnar nemi 4—4,5
milljörðum króna, að orkuverð í
árslok 1984 hafi veirð um 40%
hærra vegna umframorkunnar
og að unnt sé að lækka fjárfest-
ingarþörf Landsvirkjunar á
næsta ári um a.m.k. 400 milljón-
ir króna.
Reykjavík, II. janúar 1985.
Finnbogi Jónsson.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
Fabian C. Ver
Filippseyjan
Ver verði
ákærður vegna
dauða Aquinos
MuiU, 8. juúu. AP.
SKKSTÖK saksóknarnefnd á Filipps-
eyjum hefur mælt meó því, að Fabian
C. Ver yfirhersböfdingi og 25 menn
aðrir verði ákærðir fyrir tvö morð, það
er vegna dauða Benignos Aquino leið-
toga stjórnarandstöðunnar í landinu og
manns þess, sem gefið var að sök að
hafa myrt Aquino.
Kftir 10 mánaða rannsóknir komst
nefndin að þeirri niðurstöðu, að
Aquino hefði ekki verið myrtur af
meintum útsendara kommúnista,
Rolando Galman, eins og yfirstjórn
hersins hefur haldið fram, heldur af
hermanni, sem verið hefði þátttak-
andi í samsæri, þar sem Ver og 24
menn aðrir úr hernum voru i vitorði
auk eins manns, sem ekki var I hern-
um.
Ver hefur lýst því yfir, að hann sé
saklaus og sama máli gegnir um alla
hina, sem nú eiga ákæru um morð
yfir höfði sér. Ver var á sínum tíma
leystur frá störfum sem yfirmaður
hersins vegna máls þessa.
^__, 10. juíw. AP.
ÞÚSUNDIR manna fóru um götur
allra helztu borga og bæja í Ecu-
ador í gær í mótmælagöngum á
fyrra degi allsherjar verkfalls sem
befur verið boðað í landinu vegna
hækkanna á olíu- og benzínverði.
Mikil þátttaka var í verkfall-
inu og mótmælaaðgerðunum.
Opinberar heimildir segja að
vitað sé um þrjá sem létust í
átökum sem brutust út við lög-
reglu og að minnsta kosti tíu
manns hafi slasast.
DS Computing er alþjóðlegt hugbúnaöartyrirtæki. Viö sérhæfum okkur í hönnun, þróun og breytingum
á viðamiklum kerfum, aðallega fyrir IBM 308X, 4300 og HP3000 tölvur. Aöalskrifstofa okkar er í
Kaupmannahöfn, en viö höfum einnig skrifstofur í Noregi, Finnlandi, Bandaríkjunum og Ástralíu.
Fyrirtækið er i stöðugum vexti.
Vegna verkefna í Noregi, Finnlandi og Danmörku vantar okkur nú hæfa tölvufræöinga með starfs-
reynslu. Við gerum miklar kröfur og starfið er ábatasamt.
Krafist er a.m.k. fjögurra ára starfsreynslu við IBM tölvur (308X og 4300), gagnagrunnskerfi. Einnig er
krafist háskólamenntunar helst í gagnavinnslu. Mjög góð enskukunnátta er skilyröi, auk dönsku,
norsku eöa sænsku.
Umsækjandi þarf að hafa frumkvæði, vera duglegur og fljótur að tileinka sér nýjungar. Jafnframt þarf
hann aö geta fellt gamlar aðferðir aö nýjum verkefnum. Hann þarf einnig að vera samstarfsfús og
eiga auðvelt meö aö laga sig aö nýjum og oft óvenjulegum aðstæöum.
Viðkomandi mun starfa í þeim löndum sem starfsemi okkar nær til annaðhvort sem kerfisfræðingur
eða kerfisforritari. Starfið mun felast í hópvinnu eða yfirumsjón með verkefnum.
Viö væntum mikils af viðkomandi karti eða konu, en bjóðum góð laun og friöindi i samræmi viö dugnað
starfsmannsins.
Fyrirtækiö sér um aö útvega húsnæöi.
Umsóknir á ensku eða einhverju Noröurlandamálanna sendist til:
Tryggve Ross, DS Computing International, Kometgránden 1A, SF-02210 Esbo, Finnland.
Frekari upplýsingar veita Trygve Roos og Gun Söderholm i sima +358-0-8036188.