Morgunblaðið - 13.01.1985, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 1985
63
Gangbraut við blindbeygju. Sigurvegarinn í ritgerðareamkeppninni, Herborg
Hauksdóttir, 12 ára stúlka af Seltjarnarnesi, bendir á slysagildru við þessa
gangbraut, sem er vestur á Seltjaraarnesi, nánar tiltekið á Skólabrautinni,
gegnt Mýrarbúsaskóla. Gangbrautinni hefur verið valinn staður við blind-
beygju, beygjuna af Nesveginum inn á Skólabrautina. Og það eykur enn á
slysahættuna, hve bflstjórum er tamt að aka hratt i beygjuna. Fyrr en varir
eru bflarnir komnir að gangbrautinni.
Sif Ólafsdóttir, 10 ára, frá Egilsstöðum. Hún vekur séreUka athygli á hve
ökumenn aka hratt á Tjarnarbrautinni á Egilsstöðum. Þetta sé fjölfarin gata,
ekki sist af gangandi vegfarendum. Gangbraut er á Tjarnarbrautinni og að
sögn Sifjar hefur slysahætta minnkað verulega eftir að sett var „bunga“ við
gangbrautina. Bilstjórar hægi á sér og stöðvi oftar. „Fylgjum reglum. Enginn
vill lenda í slysi.“
Edda Sólveig Gísladóttir, 10 ára og búsett í Breiðbohi, hvetur ökumenn til að
aka með ökuljósin á, hvenær sólarhrings sem er á veturna. Hún telur líka
nauðsynlegt að fá fleiri gangbrautir í Hólahverfið. Og við þessa gangbraut, á
móts við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, vill hún helst fá gangbrautarljós.
Gatnamót Laugarásvegar og Langholtsvegar eru hættuleg gatnamót, segir
Helgi Snær Sigurðsson, 10 ára Reykvfkingur. Hann býr við Hjallaveg og fer
um þessi gatnamót á leið sinni f skólann. Helgi kveðnr meginhættuna stafa
af því hve bflstjórar alta hratt við gatnamótin. Urlausn hans era þrengingar f
göturnar og gangbrautarljós.
Anna Sigríður Gunnarsdóttir, 9 ára og býr í Breiðholtinu. Hún leggur áherelu
á að yfirvöld auki umferðarfræðslu í fjölmiðhim svo um muni, séretaklega í
sjónvarpinu. „Stuttir þættir eins og Baraið er lítid — biUwa er stór eru mjög
áhrífarfkir," segir hún í rítgerð sinni. Ef umferð skólabarna um einstakar
götur er mjög mikil, tehir Anna afar heppilegt að setja þrengingar í göturnar.
Guðný Guðjónsdóttir, 12 ára Akur-
nesingur. Hún brýnir fyrir yfirvöld-
um að setja upp gangbrautarljós við
hættulegar gangbrautir. Hún minn-
ist einnig á hve algengt það sé, að
ökumenn stansi ekki við gangbraut-
ir til að hleypa gangandi vegfarend-
um yfir. Guðný biður fólk ennfremur
um að fara sér hægar til vinnu á
morgnana. „Fólk flýtir sér of mikið
á morgnana, og það skapar hættu.“
Kjartan Hansson, 6 ára og býr f Ás-
garði Reykjavík. Hann hvetur alla
bflstjóra til að aka varlega og
gleyma ekki hjólreiðafólkinu. Kjart-
an er í Réttarholtsskólanum og fer
yfir gangbrautina á háhæð Réttar-
holtsvegar á leið sinni í skólann. Sá
hængur er þó á, að hann sér ekki
bflana neðst í götunni. Þess vegna
biður hann ökumenn að sýna varúð
og draga úr hraðanum við gang-
brautina. „En þurfa ekki ölramenn
að fara í umferðarskólann lika?
Muna þeir eftir okkur, stóru sex ára
pollunum í tannlausa bekknum?"
segir Kjartan í rítgerð sinni.
Hlín Ólafsdóttir, 8 ára og frá Egils-
stöðum. Eins og svo margir krakkar
í rítgerðareamkeppninni bendir hún
á nauðsyn þess að fólk noti endur-
skinsmerki. Auk þeas brýnir hún
fyrir öllum að gæta fyllstu varúðar
við gangbrautir. Ana til dæmis ekki
út á merkta gangbraut, enda stansi
bflstjórar eltki alltaf við merktar
gangbrautir tU að hleypa gangandi
vegfarendum yfir.
Hvað nefna þau
írítgerðum sínum?
Radarmælingar lögreglu við Suðurgötuna í þeim tilgangi að ná hraða bifreiða
niður eru gagnlegar, segir Auður Harpa Þórsdóttir. Auður er 12 ára og býr í
Skerjafirði. I rítgerð sinni minnist hún á ýmsar slysagildrur við Suðurgötuna
og ber gangbrautina við Háskóla íslands hæst Þar telur hún brýnt að setja
undirgöng eða að minnsta kosti gangbrautarljós. Hún kemur einnig með þá
tillögu að strætisvagnaleiðinni leið 5 verði breytt Vagninn verði látinn fara
framhiá Melaskóla og Hagaskóla.
Eirfkur Jónsson, 7 ára Akuraesingur, fékk aukaverðlaun fyrir bestu ritgerð barna á aldrinum 6—10 ára. Hann vekur
athygli á þeirri hættu, þegar krakkar elta aðra krakka f skyndi út á götu án þess að Ifta í kringum sig. Hann minnist
einnig á hraðaakstur bifreiða við slæmar aðstæður, eins og í snjó, hálku og vondu skyggni, slfkt aksturelag er til að
bjóða hættunni heim. Um notkun endurekinsmerkja segir Eirfkur að krakkar sem fullorðnir þurfi að eiga fieirí en
eitt merki, helst fyrir hverja yfirhöfn.
Heiðdfs Lilja Magnúsdóttir, 12 ára, frá Sauðárkróld. Hún kemur meðal
annare inn á fréttir í fjölmiðlum af slysum og hvetur fólk til að láta þessar
fréttir minna sig rækilega á að fara varlega í umferðinni. „Ég ber endur-
skinsmerki, þvf ekki vil ég láta aka á mig fyrir það eitt að vera f dökkblárrí
úlpu og gráum buxum,“ segir Heiðdís f rítgerð sinni. Það kemur ennfremur
fram hjá henni að engin umferðarljós eru á Sauðárkróki.