Morgunblaðið - 31.01.1985, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1985
Kindakjötssalan hefur
dregist saman um þús. tonn
SALA á kindakjöti hér innanlands
var taepum eitt þúsund tonnum
minni á síðastliönu ári en á árinu
1983. Framleiðslan minnkaði cinnig
en útflutningur jókst hins vegar
verulega. Þessi sala jafngildir því að
hvert mannsbarn hafí neytt 40,5 kg.
jáf kindakjöti á árinu, en samsvar-
andi neysla var um 45 kg. á árinu
1983.
í ársbyrjun voru birgðir af
kindakjöti samtals 10.621 tonn,
9.315 tonn af dilkakjöti og 1.306
tonn af kjöti af fullorðnu. Fram-
leiðslan á árinu var samtals 12.236
tonn, 10.650 tonn af dilkakjöti og
1.586 tonn af kjöti af fullorðnu.
Salan var 9.739 tonn í heildina,
8.073 tonn af dilkakjöti og 1.666
tonn af kjöti af fullorðnu. Salan
Deilan um afurða-
lánin enn óleyst
„DEILAN stendur um það, að Bún-
aðarbankinn telur sérstaklega, að sú
leið sem Seðlabankinn hefur lagt til
að farinn verði tryggi ekki hagsmuni
bankanna eða bankans. Málið er því
í meðferð og er verið að fjalla um
það þessa dagana,“ sagði forsætis-
ráðherra, Steingrímur Hermanns-
son, er hann var spurður um þter
deilur sem verið hafa um tillögur
Seðlabankans og viðskiptaráðherra
varðandi bindiskyldu viðskiptabank-
anna við Seðlabankann og endur-
kaup afurðalána á innlendum mark-
aðL
Eins og Mbl. skýrði frá í gær
hefur tillögum þessum sérstaklega
verið mótmælt af hálfu forráða-
manna Búnaðarbankans og for-
ystumanna í landbúnaði. Stein-
grímur sagði ennfremur vegna
þessa máls: „Ríkisstjórnin sam-
þykkti að færa afurðalánin yfir í
viðskiptabankana og það er búið
að framkvæma það varðandi sjáv-
arútveginn. Það hefur alltaf fylgt
þeirri ákvörðun af okkar hálfu, að
ekki yrði hætta á því að ýmsum
viðskiptavinum yrði sagt upp og
dregið úr fjarmagni til atvinnu-
veganna, auk þess sem atvinnu-
vegimir verða að hafa sérstakan
forgang. Um það stendur deilan."
Fimm prestaköll
laus til umsóknar
BISKUP íslands hefur auglýst prófastsdæmi, Háls í Þingeyj-
fimm prestaköll laus til um-
sóknar. Þau eru Djúpivogur í
Austfjarðaprófastsdæmi, Rauf-
i rhöfn í Þingeyjarprófasts-
dæmi, Staðarfell í Þingeyjar-
arprófastsdæmi og Sauðlauks-
dalur í Barðastrandaprófasts-
dæmi.
Umsóknarfrestur er til 27.
febrúar nk.
(Frétutilkynning)
1983 var 8.843 tonn af dilkakjöti
og 1.891 tonn af kjöti af fullorðnu
eða samtals 10.734 tonn. Aukning-
in á milli ára er því 995 tonn.
Útflutningur var 3.562 tonn í
heildina, 3.530 tonn af dilkakjöti
og 32 tonn af kjöti af fullorðnu.
Árið 1983 voru flutt úr 2.675 tonn
af kindakjöti alls, 2.119 tonn af
dilkakjöti og 556 tonn af kjöti af
fullorðnu. Útflutningsaukningin á
milli ára er því 887 tonn. í árslok
voru birgðir kindakjöts í landinu
9.315 tonn samtals, 8.149 tonn af
dilkakjöti og 1.166 tonn af kjöti af
fullorðnu. Er það 1.306 tonnum
minni kjötbirgðir en á sama tíma
árið áður. Birgðirnar slaga því
hátt í árssölu á kindakjöti hér inn-
anlands, en við þann samanburð
þarf auðvitað að hafa það í huga
að sláturtíðinni var tiltölulega ný-
lokið um áramótin.
RIO — nýr skemmtistaður
UM HELGINA verður opnaður
nýr skemmtistaður á Smiðjuvegi
1 í Kópavogi. Þetta húsnæði sem
áður var bíósalur hefur nú
breytt um svip, bíósæti hafa ver-
ið fjarlægð og borð og stólar sett
í staðinn. Sæti eru fyrir 200—
250 manns en húsrými er fyrir
460. Standa mun til að brydda
upp á ýmsu öðru en dansleikja-
haldi, sem verður þá ráðstefnu-
og fundahald, bingó- og spila-
kvöld, ferða-, vöru- og tísku-
kynningar, leiksýningar o.fl.
Eigendur staðarins eru Guð-
finnur G. Þórðarson og Bjarni R.
Þórðarson.
Myndakvöld Útivistar
í KVÖLD verður fyrsta mynda-
kvöld Útivistar á árinu. Að þessu
sinni er það haldið í Fóstbræðra-
heimilinu, Langholtsvegi 109.
Sýndar verða myndir úr
haust- og vetrarferðum félags-
ins, frá Núpsstaðarskógum, Eld-
gjá, Jökulgili, Haustblóti á Snæ-
fellsnesi, aðventuferð og ára-
mótaferðum í Þórsmörk.
Allir eru velkomnir og í hléi
eru kaffiveitingar, sem kvenna-
nefnd Útivistar sér um. Mynda-
kvöldin verða framvegis haldin á
þessum stað síðasta fimmtudag
hvers mánaðar.
„Dá“ heldur tónleika í Safari
HUÓMSVEITIN „Dá“ heldur
tónleika í Safari í kvöld ásamt
dansflokki. Hljómsveitin mun
flytja verkið „Allt sem andar-
drátt hefir" ásamt dansflokkn-
um, en verkið var samið í sam-
vinnu við hann. Hljómsveitina
skipa Heimir Barðason, bassi,
Hlynur Höskuldsson, bassi, Eyj-
ólfur Jóhannsson, gítar, Helgi
Pétursson, hljómborð, Krist-
mundur Jónasson, trommur, og
Jóhanna Steina Hjálmtýsdóttir,
söngur.
Kennsla verði tryggð“ Peningagjöfum varið til tækjakaupa
1 'VII 4 VL' t „llt L.ri. fiin/fi uliArn'.|..nnni. t ol
Á FUNDI er haldinn var í Flens-
borgarskólanura í Hafnarfírði fyrir
nokkru samþykktu forsvarsmenn
nemendafélaga á Suðurlandi eftir-
farandi ályktun varðandi uppsagnir
kennara sem ganga í gildi 1. mars
næstkomandi.
„Innan okkar skóla kennir mik-
ið af hæfu fólki, hvert á sínu sviði,
og eins og staðan er í dag er allt
útlit fyrir að við missum þetta
fólk í önnur störf. Það hlýtur að
vera skýlaus krafa okkar að hafn-
ar séu viðræður þegar í stað og að
okkur sé tryggð kennsla eftir 1.
mars því hér eru gífurlegir hags-
munir í húfi fyrir þúsundir nem-
enda sem og menntakerfið í heild.
UNDANFARIÐ hafa veglegar gjafír
borist styrktarsjóði St. Jósefsspítala.
Til minningar um Unni Olafsdóttur
barst gjöf að upphæð 200.000, Kjart-
an Ólafsson apótekari hefur gefíð
sjóðnum 50.000 krónur og sama upp-
hæð hefur borist frá aðila, er vill
ekki láta nafns síns getið.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja
starfsemi St. Jósefsspítala og á
fundi stjórnarinnar í desember sl.
var ákveðið að verja ofangreind-
um gjöfum til kaupa á gamma-
myndavél fyrir spítalann. Tæki
þetta er ætlað til rannsókna á hin-
um ýmsu líffærum, svo sem heila,
skjaldkirtli, beinum, lungum, lifur
og nýrum með geislavirkum efn-
Björn R. Einarsson kemur fram hjá
Jazzklúbbi Reykjavíkur í kvöld
ásamt gömlum félögum.
Jazzklúbbur Reykjavíkur:
Spuni í kvöld
FYRSTI spuni (djamm-sessjón)
Jazzklúbbs Reykjavíkur á nýju ári
fer fram í Lækjarhvammi Hótels
Sögu í kvöld og hefst kl. 21.
Kristján Magnússon og tríó
ríða á vaðið á þessum nýja sam-
komustað Jazzklúbbs Reykjavík-
ur. Friðrik Theódórsson og ný
hljómsveit hans láta einnig til sín
heyra.
Björn R. Einarsson blæs nokkur
lög með gömlum félögum og ef til
vill kemur Big Band ’81 í heim-
sókn.
Loks leiða menn saman hesta
sína í spuna. (FrétUlilkynning.)
Heimsmeistaraeinvígið, 47. skákin:
Sannfærandi sigur Kasparovs
Skák
Margeir Pétursson
EFTIR fjórtán jafnteflisskákir í
röð, sem margar voru æsispenn-
andi, tókst Kasparov loksins í
gærkvöldi að taka af skarið og
minnka bilið milli sín og heims-
meistarans Karpovs í 5—2. Eftir
fremur kæruleysislega byrjun
Karpovs í 47. skákinni, sem tefld
var I gærkvöldi, náði Kasparov
frumkvæðinu í drottningariau.su
miðtafli. Framhaldið tefídi áskor-
andinn af mikilli nákvæmni, hann
hagnýtti sér slæma stöðu hvíta
kóngsins á miðborðinu og þegar
Karpov gafst upp í 33. leik var mik-
ið liðstap óumflýjanlegt.
Heimsmeistarinn náði 5—0
forystu í einvíginu eftir 27 skák-
ir og hefur síðan þá aðeins þurft
einn sigur tii viðbótar til að
ljúka einvíginu, en jafntefli eru
ekki talin með, sá sigrar sem
fyrr vinnur sex skákir. Eftir að
Kasparov tókst loks að komast á
biað í 32. skákinni hefur hann
teflt af mun meiri krafti en
Karpov, en þrásinnis misst niður
vænlegar stöður í jafntefli.
Þessu mesta maraþoneinvígi
gjörvallrar skáksögunnar er því
ekki nærri því lokið. Rifja má
upp að í heimsmeistaraeinvíginu
í Baguio á Filippseyjum árið
1978 hafði Karpov um tíma 5—2
forystu eins og nú, en Korchnoi
tókst að jafna metin, 5—5. Þá
varð Korchnoi of bráður, hugðist
strax koma nýju höggi á Karpov
eftir að hafa jafnað metin, og
tapaði úrslitaskákinni.
Aðstoðarmenn Kasparovs
sögðu í gær að þessi sigur væri
eðlilegt framhald af batnandi
taflmennsku áskorandans. Að
sögn fréttamanna AP-frétta-
stofunnar lék Karpov síðustu
leikjunum blóðrjóður, en er
hann hafði gefist upp skoðuðu
þeir Kasparov samt skákina í
u.þ.b. 20 mínútur.
47. skákin:
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart Gary Kasparov
Drottningarbragó
1. Rf3 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. d4 —
d5, 4. Rc3 — c6, 5. Bg5
Áður hefur Karpov jafnan
leikið 5. e3 í þessari stöðu. Nú
beinir Kasparov taflinu yfir í
Cambridge-Springs-afbrigðið af
drottningarbragði, en Smyslov
beitti því einmitt gegn honum
sjálfum í einvígi sl. vor.
5. - Rbd7, 6. e3 — Da5, 7. cxd5
— Rxd5, 8. Dd2 — R7b6, 9. Rxd5
Þessi leikur Karpovs, og
reyndar einnig 12. leikur hans,
benda til þess að hann hafi ekki
verið í miklu baráttuskapi.
Svartur hefur engin vandamál
við að glíma eftir drottninga-
kaupin og 9. Bd3 því mun eðli-
legra.
9. - Dxd2+ 10. Rxd2 — exd5, 11.
Bd3 - a5! 12. a4?!
Gefur svörtum ævarandi yfir-
ráð yfir reitnum b4.
12. — Bb4, 13. Ke2 — Bg4+!?
Það er athyglisvert að Kasp-
arov er reiðubúinn til að eyða
þremur leikjum í að ná upp-
skiptum á „góða biskup" hvíts.
14.13 — Rh5, 15. h4 - 04), 16. g4
— Bg6, 17. b3 — Bxd3+ 18. Kxd3
- Hfe8, 19. Hacl — c5!
Kasparov rýfur peðakeðju
sína, en nær í staðinn öflugu
spili á miðborðinu. Ef nú 20.
dxc5 þá Rd7. Þó drottningarnar
séu farnar af borðinu stendur
hvíti kóngurinn illa á miðborð-
inu.
20. Bf4 — Hac8, 21. dxc5 — Rd7,
22. c6
22. Bd6 — Hc6! (hótar 23. —
b6) 23. e4 má svara með 23. —
Bxd2, 24. exd5 — Hxd6!
22. — bxc6,23. Hhdl — Rc5+, 24.
Kc2 — f6, 25. Rfl — Re6, 26. Bg3
— Hed8, 27. Bf2 — c5
Svartur hefur afar fallega
stöðu enda er atlögunnar
skammt að bíða.
28. Rd2 — c4! 29. bxc4 — Rc5
„Gary er að vinna,“ sagði
stórmeistarinn Dorfman, að-
stoðarmaður Kasparovs, eftir
þennan öfluga leik.
30. e4?
Síðasti möguleikinn var 30.
Hal.
30. - d4! 31. Rbl,
Eða 31. Rb3 - d3+, 32. Kb2 -
Rxa4+, 33. Kal — Rc3 o.s.frv.
31. — d3+, 32. Kb2 — d2 og hvít-
ur gafst upp.
Svart: Kasparov.
b c d • I g h
Hvítt Karpov.