Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.03.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985 3 Alþjóðlegt skákmót í Kaupmannahöfn: Skin og skúrir hjá Jóhanni og Helga JÓHANN Hjartarson og Helgi Ólafsson fengu óskabyrjun á alþjóólega skákmótinu í Kaupmannahöfn, sem hófst um helgina. Jóhann sigraði sænska stórmeistarann Lars Karlsson og Helgi sigraði Carsten Hoi frá Danmörku. Hins vegar kom bakslag í seglin hjá þeim í 2. umferð. Báðir töpuðu, Jóhann fyrir Christiansen frá Danmörku eftir að Daninn hafði komið Jóhanni á óvart í byrjuninni og Helgi fyrir Smyslov. Helgi lék peði af sér og Smyslov náði að nýta sér mistök Helga með óaðfinnanlegri taflmennsku. í 3. umferð tefldi Jóhann við Mortensen frá Danmörku og lykt- aði viðureign þeirra með jafntefli en Helgi á biðskák við Curt Han- sen frá Danmörku og stendur Helgi til vinnings. Ungverski stórmeistarinn Josef Pinter hefur náð öruggri forustu á mótinu, hefur lagt alla andstæð- inga sína að velli. Hann sigraði Nick DeFirmian í 1. umferð, Mort- ensen frá Danmörku í 2. umferð og Jens Christiansen í þriðju um- ferð. Plaskett frá Englandi er í 2. sæti með tvo vinninga. Jóhann Hjartarson hefur einn Seilumst ekki í bæjarsjóðinn — segir Gísli Konráös- son, annar fram- kvæmdastjóra UA „ÞVÍ betur höfum við ekki lagt það í vana okkar að seilast í bæjarsjóð. Það hefur ekki komið fyrir síðan 1968,“ sagði Gísli Konráðsson, ann- ar framkvæmdastjóra Útgerðarfé- lags Akureyringa, í samtali við blm. Morgunblaðsins. Gísli Konráðsson sagði, að menn vissu aldrei hvaða erfið- leikatímar kynnu að koma, en hann vonaðist til, að ÚA þyrfti ekki á aðstoð bæjarsjóðs að halda í framtíðinni. Rekstur fyrirtækis- ins miðaðist við, að það væri rekið sem sjálfstæð eining og svo yrði áfram. og hálfan vinning og Helgi ólafs- son einn vinning og biðskák gegn Dananum Curt Hansen. Heigi stendur til vinnings. Úrslit hafa orðið: 1. umferð: Hansen — Vassily Smyslov 'k — 'k. Helgi — Carsten Hoi 1—0. Plaskett — Bent Larsen lk — 'k. Jóhann — Lars Karlson 1—0. Pinter — Christiansen 1—0. Mortensen — DeFirmian 'k — 'k. 2. umferð: Smyslov — Helgi 1—0. Hoi — Larsen 'k—'k. Plask- ett — Karlsson 1—0. Christiansen — Jóhann 1—0. Mortensen — Pinter 0—1. DeFirmian — Hansen 0-1. 3. umferð: Smyslov — Larsen biðskák. Helgi — Hansen biðskák. Karlson — Hoi biðskák. Christiansen — Plaskett 'k — 'k. Mortensen — Jóhann 'k — 'k. DeFirmian - Pinter 0—1. „Mótið er haldið í tilefni 50 ára afmælis Bronshoj-skákklúbbsins. Á mánudag hélt Bent Larsen upp á fimmtugs afmæli sitt og hefur þátttaka Larsens í mótinu vakið mikla athygli í fjölmiðlum. Mikið hefur verið skrifað um mótið í dönsk blöð og aðsókn mikil á danska vísu — um 300 manns á hverri umferð. Húsið hefur verið troðfullt allar umferðir og augu manna fyrst og fremst beinst að Larsen," sagði Jóhann Hjartarson, sem sendir Mbl. fréttir af mótinu. Hins vegar sagði Jóhann að að- stæður á skákstað væru afleitar, að minnsta kosti miðað við það sem menn ættu að venjast heima á Islandi. Kvikmynda á Þórs- höfn og í Shanghai Á SELFOSSI er verið að stofna hlutafélag um kvikmyndagerð og hefur fysta verkefni hins nýja hlutafélags þegar verið ákveðið. Er það kvikmynd, sem vonir standa til að hægt verði aö hefja tökur á síðsumars á þessu ári. Aðalhvatamaður hins nýja fé- lags er Eyvindur Erlendsson, rit- höfundur og kvikmyndagerðar- maður, en stofnfundurinn verður haldinn í Inghóli á Selfossi klukk- an 21.00 í kvöld. „Markmið þessa hlutafélags er að vinna að kvikmyndagerð og kosta hana, sem virðist ekki síst vera þörf á þegar jafn illa horfir með kvikmyndasjóð og raun ber vitni," sagði Eyvindur í samtali við blm. Mbl. í gær. En hann kvaðst einnig hafa sótt um úthlut- un úr kvikmyndasjóði. „Hluthaf- arnir eru 300, bæði fólk hér að austan og aðrir og höfuðstóllinn er ein milljón króna, enda köllum við félagið Milljónarfélagið, svona bæði í gamni og alvöru,“ sagði Ey- vindur. Fyrsta verkefni hins nýja hlutafélags sagði Eyvindur verða kvikmynd, og þegar lægju fyrir drög að handriti og væri einnig búið að ákveða hvaða leikarar yrðu í helstu hlutverkum. Heiti myndarinnar verður líklega „Er- indisleysan mikla" og vonast að- standendur til að hægt verði að hefja tökur á henni síðsumars. Eyvindur er höfundur handrits og leikstjóri. Eyvindur sagði að til stæði að hefja tökur myndarinnar á Húsavík eða Þórshöfn, en síðan yrði farið yfir höfin, þar sem hluti kvikmyndarinnar gerðist í Shanghai eða annarri austrænni milljónaborg. Tveir 11 og 12 ára drengir staðnir að fjölda innbrota TVEIR drengir, 11 og 12 ára gamlir, voru í fyrradag staðnir að því að brjóta fluorscent-ljósaperur í Hamraborg í Kópavogi. Lögreglu- menn veittu því athygli að drengirnir voru ataðir málningu og vaknaði grunur að þeir hefðu verið að verki í barnaheimilinu við Bjarnhólastíg um helgina. Svo sem skýrt var frá í Mbl. í gær, var brotist inn í barnaheimilið og mikil skemmdarverk unnin á því, málningu kastað á veggi, húsgögn og gluggatjöld. Barnaheimilið var bók- staflega lagt í rúst og var því lokað á mánudag á meðan viðgerð fór fram. Við yfirheyrslur viðurkenndu drengirnir að hafa verið að verki á barnaheimilinu og raunar komið víðar við að undanförnu. Þeir við- urkenndu að hafa tvivegis farið inn í barnaheimilið Kópasel. Þá viðurkenndu þeir innbrot í sex fyrirtæki og stofnanir í Kópavogi þar sem skemmdarverk voru unn- in. Þeir brutust inn í Heildverslun- ina Hrísnes, Bílasprautunina Varma, Sundlaug Kópavogs, Formbólstrun í Auðbrekku, Vita- og hafnarmálastofnun og hjólhýsi við Löngubrekku. Drengirnir stálu hvergi neinum verðmætum, held- ur unnu skemmdarverk á húsnæði og húsmunum. Þeir hafa ekki áður komið við sögu afbrota. Morgunblaðið/Gunnar G. Vigfússon Schltíter lemur húðirnar Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, bauð þingmönnum borgaraflokka á Norðurlöndum til kvöldverðar í veitingahúsinu Nausti á mánudagskvöldið. Var það fagnaður góður og hámarki náði hann þegar þeir hófu hljóðfæraleik, Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra á hljómborð, Árni Johnsen alþingismaður á gítar og Poul Schltiter, forsætisráðherra Dana, á trommur. Inflúensan af sama stofni og sú sovéska — ekki hætta á jafn slæmum áhrifum hennar hér INFLÚENSAN, sem herjað hefur á landsmenn síðan í janúar, er af sama stofni og inflúensa sem geysað hefur í Sovétríkjunum allan febrú- armánuð með slæmum afleiðingum, ekki síst fyrir ung börn. Er inflúens- an svo skæð þar eystra að öll sjúkra- hús í Moskvu hafa verið sett i hálf- gildings sóttkví. Að sögn Guðjóns Magnússonar, setts landlæknis, er þó ekki hætta á slíkum afleiðingum af völdum flensunnar hér á landi. Sagði hann að flensa af sama stofni gæti haft mismunandi áhrif eftir löndum. Áhrifin gætu farið eftir þeim tíma, sem liðinn er frá því inflú- ensa af sömu tegund hefur geysað í viðkomandi landi, almennu heil- brigðisástandi í landinu og fleiri þáttum. Leiktjaldasmiðir hjá Þjóðleikhúsinu segja upp: Framleiða leikmyndir fyrir almennan markað ÞRÍR starfsmenn í leikmunadeild Þjóðleikhússins hafa sagt upp störf- um sínum og hafa þeir stofnað fyrir- tæki sem ber heitið Sviðsmyndir hf. Fyrirtækið mun sérhæfa sig í fram- leiðslu á leikmyndum fyrir leikhús, óperu, auglýsingar, kvikmyndir og bakgrunna fyrir Ijósmyndara. Birgir Sveinbergsson, yfirleik- munavörður Þjóðleikhússins, sem ásamt tveimur leiktjaldasmiðum hefur sagt starfi sinu lausu, sagði í samtali við Mbl., að ástæðan væri fyrst og fremst launakjörin hjá hinu opinbera. „Við höfum verið með þessa hugmynd í ein sex ár, að fara út í sjálfstæðan rekstur á þessu sviði. Bæði er að eftir- spurn hefur verið mikil og einnig hitt, að launakjörin hjá hinu opinbera eru svo slæm að það lifir enginn á þessum launum. Við ákváðum því endanlega að láta verða af þessu nú um áramótin og sögðum upp með venjulegum upp- sagnarfresti," sagði Birgir. Skartgripir Einstök fegurö og enginn gripur eins Sjaldan hefur dönsk listhönnun risiö hærra en meö Flora Danica skargripunum. Þú færö meistara- verk náttúrunnar steypt 24 karata gullhúöun og þriggja ára ábyrgö á ótrúlega lágu verði. Og þaö sem er mest um vert. Það eru engir tveir gripir eins. Einkasöluumboð í Reykjavík. FRANCH MICHELSEN ÚRSMIÐAMEISrARI LAUGAVEGI 39, SÍMI 28355 REYKJAVÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.