Morgunblaðið - 06.03.1985, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 6. MARZ 1985
ÚTVARP / S JÓN VARP
Máttur
orðsins
Ooft veltir lítil þúfa þungu
hlassi, og eins má segja að
lítill punktur á röngum stað geti
umbylt merkingu texta. Þessu til
sönnunar vil ég sýna ykkur les-
endur góðir hvað gerðist í gær-
dagsgein minni.
Þar stóð skrifað: Sérstaklega
held ég nú að landsbyggðarfólkið
megi þakka fyrir að eiga sér þann
málsvara, sem ómar er. Á öld
Reykjavíkurdekursins tel ég raun-
ar Ómar einn af „uppfinninga-
mönnunum" í fjölmiðlaheimi
okkar ... Ég hefði hrist hausinn
yfir slíkri merkingarleysu í dag-
blaði enda átti að standa: Sérstak-
lega held ég nú að landsbyggðar-
fólkið megi þakka fyrir að eiga sér
þann málsvara, sem Ómar er á öld
Reykjavíkurdekursins. Tel ég
raunar Ómar einn af „uppfinn-
ingamönnum" í fjöimiðlaheimi
okkar. Einhverjum kann að finn-
ast að ég bruðli hér með dýrmætt
pláss blaðsins, að einn punktur sé
ekki mjög þungt lóð á þeim miklu
vogarskálum er íslensk tunga
sveiflast nú á í ölduróti upplýs-
ingabyltingarinnar. En eru það
ekki einmitt hinar smæstu eindir
málsins er færast fyrst úr stað,
uns að lokum tekur að hrikta í
sjálfri aðalbyggingunni?
Ófriður kirkjunnar?
Sjáifur Laxness segir í Skegg-
ræðunum: Ég hef orðið að spæla
mig eftir föngum, en maður er
aldrei búinn að læra íslensku nógu
vel (bls. 22). Hvað megum við hin-
ir þá segja, sem bara tölum og rit-
um þessa hversdagslegu íslensku
er allir skilja, en höfum hvorki
mátt né þor til að skapa eigið
tungutak að hætti nóbelskáldsins?
Ég ætlaði nú reyndar ekki að eyða
þessu þáttarkorni í spekúlasjón
um ástkæra, ylhýra málið okkar,
hafði upphaflega hugsað mér að
fjalla um útvarpsþátt Önundar
Björnssonar: I sannleika sagt er
að þessu sinni fjallað um „...
ófrið kirkjunnar í ófriðarumræð-
unni“. En „í sannleika sagt“ þá
sofnaði ég út frá þessu spjalli séra
önundar, kannski vegna þess að
hann hefir þegar náð þessum ein-
kennilega sefjandi prestlega tal-
anda, sem svæfir mann að öllu
jöfnu. Hvað er annars orðið um
eldklerka þessarar þjóðar, menn-
ina er stöðvuðu hraunflóð með
eldibrandi orða? Er Einar einn
eftir? f það minnsta minnist ég
þess ekki að börn mín hafi tekið
eftir útvarpsmessupredikuninni
utan eitt sinn er Einar Gíslason
Hvítasunnumaður stóð í stólum,
en þá greip elsti strákurinn í pils-
faldinn og hrópaði: Af hverju er
maðurinn svona reiður, mamma?
Rétílæíi guðs
En eiga flytjendur guðs orðs
ekki að byrsta röddina þegar víxl-
aramir hafa í raun sett upp borð
sín inní hinum innstu véum? Þeg-
ar braskararnir eru að snúa heila
kynslóð úr hálsliðnum með stjórn-
lausum okurvöxtum? Hví þegja þá
kirkjunnar þjónar eða temja sér
einhvers konar „oxford-íslensku"?
Auðvitað eru ekki allir þjónar
hinnar evangelísku ríkiskirkju
undir þessa sök seldir, en vantar
ekki eldmóðinn í ræður sumra
þeirra, þá þrumandi sannfæringu
er skelfdi son minn undir út-
varpspredikun Einars Gíslasonar?
Eða er okkur ekki í senn ætlað
að elska guðs orð og óttast kraft-
birtíngu þess? Kristur óttaðist
ekki braskarana og víxlarana, þá
hann kastaði um borðum þeirra í
musterinu. í dag eru musterin
klædd svörtum marmara og borð
víxlaranna búin drifhvítum tölv-
um — en hvar er meistarinn frá
Nasaret?
ólafur M.
Jóhannesson
Toranaga hinn
grimmi sem hef-
ur örlög Black-
thornes í hendi
sér.
Herstjórinn
4. þáttur
■■ í kvöld verður
50 sýndur fjórði
— þáttur banda-
ríska framhaldsmynda-
flokksins Herstjórans
sem er í tólf þáttum og
gerður eftir samnefndri
metsölubók James Cla-
vells, „Shogun".
í síðasta þætti gerðist
þetta helst: Stýrimaður-
inn Blackthorne er leidd-
ur fyrir Toranaga, hinn
grimma og volduga höfð-
ingja. Blackthorne reynir
að sannfæra Toranaga um
að hann sé ekki sjóræn-
ingi og glæpamaður, en
það stoðar lítið. Við feng-
um loks að sjá hina fögru
Mariko sem Blackthorne
virðist vera hugfanginn
af. Hún túlkar fyrir Tor-
anaga samtal hans og
Blackthornes, þar sem
hinn fyrrnefndi talar ekki
ensku. Niðurstaðan verð-
ur sú að Blackthorne sé
illmenni sem varpa skuli í
fangelsi.
Blackthorne er komið
fyrir í sóðalegum fanga-
búðum þar sem allt er yf-
irfullt af föngum. Á meðal
þeirra er spænskur klerk-
ur sem reynist Black-
thorne vel á meðan á vist-
inni stendur og reynir t.d.
að kenna honum jap-
önsku. En dvöl Black-
thornes verður ekki löng
og loks rennur upp sá dag-
ur að yfirböðullinn kemur
og sækir Blackthorne, en
hann hefur það fyrir
venju á hverjum degi að
sækja einhvern fanganna
til lífláts. Þátturinn endar
þar sem Blackthorne er
leiddur úr fangaklefanum
en ekki er trúlegt að hann
sé á leiðinni á höggstokk-
inn þar sem þáttaröðin er
svotil rétt hafin.
„Hvað viltu verða?“
■ Starfskynn-
20 ingarþátturinn
— Hvað viltu
verða? er á dagskrá út-
varps í kvöld kl. 20.20.
Umsjónarmenn eru Erna
Arnardóttir og Sigrún
Halldórsdóttir.
Að þessu sinni verður
ekki fjallað um eina ein-
staka starfsgrein heldur
um starfskynningar al-
mennt og starfsmátann í
sambandi við þær. Spjall-
að verður við Gerði
Óskarsdóttur, æfinga-
stjóra í uppeldis- og
kennslufræðum við Há-
skóla íslands. Gerður var
áður skólastjóri á Nes-
kaupstað, en þar er
M.a. verður spjallað við
Gerði Óskarsdóttur, æf-
ingastjóra í uppeldis- og
kennslufræðum við Há-
skóla íslands.
starfsþjálfun nemenda í
fullum gangi allan vetur-
inn en ekki eingöngu í
eina viku eða jafnvel
nokkra daga eins og tíðk-
ast hér fyrir sunnan. En
einmitt um þessar mundir
eru nemendur grunnskól-
anna í starfskynningum
úti á vinnumarkaðinum.
Þá verður rætt við
Rögnvald Guðmundsson
kennara í Garðaskóla, en
hann skipuleggur allt
starfsnám við skólann.
Loks verður spjallað við
nokkra unglinga um
starfsnámið. Þá verður
leikin létt tónlist inn á
milli dagskrárliða.
LIFANDI HEIMUR
— breskur heimildamyndaflokkur
■■ Hver man ekki
40 eftir hinum
fróðlega og
skemmtilega heimilda-
myndaflokki „Lífið á jörð-
inni“ frá breska sjónvarp-
inu BBC sem sjónvarpið
sýndi árið 1980 til 1981.
Nú hefur sjónvarpið feng-
ið annan slíkan til sýn-
inga og nefnist hann „Lif-
andi heimur". Umsjónar-
maður er David Attenbor-
ough.
Heimildamyndaflokkur
þessi, sem er í tólf þátt-
um, hefur vakið heimsat-
hygli líkt og myndaflokk-
urinn „Lífið á jörðinni". í
þessum nýja flokki er
David Attenborough er um-
sjónarmaður hins nýja
heimildamyndaflokks.
gerð grein fyrir dýralífi
og gróðri sem þrífst við
ákveðin skilyrði, s.s. í
eyðimörkum, heims-
skautalöndum, í skógum
og í hafinu.
Attenborough hefur
viðað að sér efni hvað-
anæva úr heiminum og í
fyrsta þættinum í kvöld,
sem nefnist „Jörð í mót-
un“, verður sýnt frá eld-
gosi hér á íslandi. í þess-
um þætti er einkum fjall-
að um mótun jarðar og
lífið á eldfjalla- og jarð-
hitasvæðunum.
Þýðandi og þulur er
Óskar Ingimarsson.
ÚTVARP
MIOVIKUDAGUR
6. mars
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt,
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorð: — Nlels Árni
Lund talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Agnarðgn" eftir Pál H.
Jónsson. Flytjendur: Páll H.
Jónsson, Heimir Pálsson og
Hildur Heimisdóttir (1).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Llr ævi og starfi Islenskra
kvenna. Umsjón: Björg Ein-
arsdóttir.
11.45 Islenskt mál. Endurtekinn
þáttur Asgeirs Blöndals
Magnússonar frá laugardegi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.20 Barnagaman. Umsjón:
Anna Ringsted (RÚVAK).
13.30 „Vlsnavinir, Hálft I hvoru,
Rló-tríó, Þrjú á palli" o.fl.
syngja og leika.
14.00 „Blessuð skepnan" eftir
James Herriot. Bryndís Vlg-
lundsdóttir les þýðingu slna
(20).
14.30 Miödegistónleikar
„Gautlandssvitan" eftir
Gunnar Hahn. Sin-
fóníettu-hljómsveitin i Stokk-
hólmi leikur; Jan-Olav Wedin
stjórnar.
14.45 Popphólfið — Bryndis
Jónsdóttir.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 íslensk tónlisl.
a. „Kantata VI Man-
söngvar" eftir Jónas Tómas-
son. Háskólakórinn syngur.
Oskar Ingólfsson, Michael
19.25 Aftanstund.
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni: Söguhornið
— Sálmurinn um blómið,
Gunnlaugur Astgeirsson les
kafla úr bók Þórbergs Þórð-
arsonar. Myndir eftir Sigrlði
L. Asgeirsdóttur. Tobba, Litli
sjóræninginn og Högni Hin-
riks.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Lifandi heimur.
(The Living Planet.) Nýr
flokkur — 1. Jörð I mótun.
Heimildamyndaflokkur I tólf
þáttum frá breska sjónvarp-
inu BBC. Umsjónarmaður
Shelton, Nora Kronblueh og
Snorri S. Birgisson leika á
klannettu, fiðlu, selló og pl-
anó; Hjálmar H. Ragnarsson
stjórnar.
b. Sex lög úr „Helgu jarls-
dóttur", lagaflokkí eftir Jón
Björnsson. Elín Sigurvins-
dóttir og Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir syngja; Ólafur
Vignir Albertsson leikur á pl-
anó.
17.10 Slðdegisútvarp.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
MIÐVIKUDAGUR
6. mars
David Attenborough. I þess-
um myndaflokki, sem vakið
hefur heimsathygli eins og
„Lifið á jörðinni", sem Sjón-
varpið sýndi árið
1980—1981, er gerð grein
fyrir dýrallfi og gróðri sem
þrlfst við ákveðin skilyrði svo
sem á eyðimörkum, heim-
skautalöndum, I skógum eða
hafinu. Attenborough hefur
viðaö að sér efni hvaöanæva
úr heiminum, m.a. frá is-
landi, I fyrsta þáttinn. i hon-
um er einkum fjallað um
mótun jarðar og llfið á eld-
fjalla- og jarðhitasvæðum.
Þýðandi og þulur Óskar Ingi-
marsson.
19.50 Horft I strauminn með
Kristjáni frá Djúpalæk.
20.00 Utvarpssaga barnanna:
„Grant skipstjóri og börn
hans" eftir Jules Verne.
Ragnheiður Arnardóttir les
þýðingu Inga Sigurðssonar
(7).
20.20 Hvað viltu verða?
Starfskynningarþáttur I um-
sjá Ernu Arnardóttur og Sig-
rúnar Halldórsdóttur.
21.00 Frá alþjóðlegu orgelvik-
unni i Núrnberg sl. sumar.
Andreas Rothkopf, sem
hlaut önnur verðlaun I
keppni organleikara, leikur
„Ad nos, ad salutatem und-
21.50 Herstjórinn.
Fjórði þáttur. Bandariskur
framhaldsmyndaflokkur I tólf
þáttum, gerður eftir metsölu-
bókinni „Shogun" eftir Jam-
es Clavell. Þýðandi Jón O.
Edwald.
22.35 Ur safni Sjónvarpsins.
Höggmyndaskáldið Einar
Jónsson. Sjónvarpsþáttur frá
árinu 1974. Greint er frá llfi
Einars og list I máli og mynd-
um frá æskuslóðum hans,
Galtafelli i Hrunamanna-
hreppi. Handrit og stjórn:
Andrés Indriðason.
23.30 Fréttir I dagskrárlok.
am“, fantasiu og fúgu eftir
Franz'Liszt.
21.30 Að tafli. Guðmundur
Arnlaugsson flytur skákþátt.
22.00 Lestur Passíusálma (27).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Tfmamót. Þáttur i tali og
tónum. Umsjón: Ævar Kjart-
ansson.
23.15 Nútlmatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandí: Kristján Sigur-
jónsson.
14.00—15.00 Eftirtvö
Létt dægurlög.
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Vetrarbrautin
Þáttur um tómstundir og úti-
vist.
Stjórnandi: Júllus Einarsson.
17.00—18.00 Ur kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eða samin
af konum.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
SJÓNVARP