Morgunblaðið - 06.03.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 6. MARZ 1985
21
ljós að sjá né neina mannveru.
Stúlkurnar kalla en er engu
svarað. Matrósarnir segja þá
sofa og þær veki þá. Þær kalla
enn og fer þessi kallleikur fram
um hríð. Er „matrósarnir" hafa
tekið upp matinn, tekið að
drekka vínið, sem var ætlað Hol-
lendingunum, verður vart við að
einhver sé um borð. Um leið og
„matrósarnir" syngja upphafs-
sönginn heyrist stef hollensku
sæfaranna hljóma í undirleik
hljómsveitarinnar. Allt í einu
taka sæfararnir til að syngja,
fyrst kallstefið, sem fljótlega er
brenglað af „tónskratta-tónbili".
Ntn*.
Schufatier Hauplmann geti an’s fancC,
sern 5e- 9x/n Cosst du. Ru(i’!
f þessum draugakór segja þeir
sögu Hollendingsins og að hann
sé óheppinn í ástum. Þeir séu
dæmdir af djöflinum og hann
sleppi þeim ekki að eilífu. Það
setur hroll að „matrósunum” og
þeir reyna að yfirgnæfa söng
Hollendinganna. Það tekst þeim
ekki og þeir enda atriðið með
söng sínum og draugalegum
hlátri.
Niðurlag óperunnar hefst á
því að Eiríkur reynir enn að
telja Sentu hughvarf en hún vill
ekki hlusta á hann. Að síðustu
syngur hann Cavatínu er fjallar
um þá daga er þau voru ham-
ingjusöm.
Nr.'t £>'r,kt
jinncn, akduzu Mnrudn Tiajest indos TcJ.
Hollendingurinn sem hefur
heyrt söng Eiríks, ryðst fram í
ofsa og segist vera glataður og
svikinn. Senta reynir að sefa
Hollendinginn og Eiríkur sér nú
hver hann er. Hollendingurinn
skipar sínum mönnum að gera
sjóklárt. Upphefst nú æðisgeng-
inn þrísöngur. Senta spyr hví
hann efist um tryggð hennar.
Hollendingurinn segir hana hafa
haft sig að fífli og Eiríkur reynir
að vara Sentu við hræðilegum
örlögum.
//r /Q ■þr\JO*t)urt* #
Þessum þrísöng lýkur og Hol-
lendingurinn harmar örlög sín,
að nú sé hann að eilífu glataður.
Eiríkur hleypur til að sækja
hjálp. Senta segir Hollendingn-
um, að frá því er hún sá hann
fyrst, hafi hún þekkt hann og
vitað um ógæfu hans. Hún muni
vera honum trú til dauðans og
frelsa hann. Fólkið, stúlkurnar,
matrósarnir, María, Eiríkur og
Daland koma. Hollendingur seg-
ir við Sentu: „Þú þekkir mig
ekki, veist ekki hver ég er.“
Hann segir til sín og Sæfararnir
hefja söng sinn. Fólkið hrópar á
Sentu, sem hefur klifrað upp á
klett. Áður en hún steypir sér I
sjóinn, hrópar hún: „Hér stend
ég, trú þér allt til dauðans."
Hljómsveitarkaflinn sem kemur
á eftir er byggður á stefi Sentu,
en síðan kemur kafli byggður á
stefi Hollendingsins, sem gæti
átt að tákna upprisu þeirra.
Óperan endar svo á stefi Sentu
upphöfnu og blíðu.
PJS, Tína mætti til fleiri stef
sem bæði eru sungin og heyrast í
hljómsveitinni en þetta verður
látið nægja að sinni.
Jón Ásgeirsson
Harpa GK — nýtt skip til Grindavíkiir
Vestnumuejjum, 4. mars.
GLÆSILEGT fiskiskip renndi sér
inn í Vestmannaeyjahöfn um há-
degisbilið á sunnudaginn. Ekki
var þó þarna á ferð nýtt skiþ í
fiskiskipaflota Eyjamanna hversu
kærkomið það annars hefði verið,
heldur var þarna á ferð Harpa GK
111, nýtt og fullkomið fiskiskip
sem var á leið til heimahafnar í
Grindavík. Skipið var smíðað á
Seyðisfirði.
Það var Hekla hf. sem stóð fyrir
því að skipið kom við í Eyjum og
bauð fyrirtækið ýmsum útgerðar-
mönnum og skipstjórum í Eyjum
að skoða hið glæsta fley meðan
það gerði stuttan stans á heim-
siglingunni. Fjölmargir notfærðu
sér þetta boð enda stóð vel í bólið
hja þessari stétt manna mitt í sjó-
mannaverkfallinu, allur flotinn
bundinn í höfn. Allir að farast úr
leiðindum athafnaleysisins og því
kjörið að skoða skipið. Þótti
mönnum mikið til um hversu vel
hefur til tekist með smíði skipsins,
tækjakostur allur af fullkomnustu
gerð og starfsaðstaða og aðbúnað-
ur skipverja með miklum ágætum.
Harpa GK 111 ber gott vitni um
ágæti innlends skipasmíðaiðnaðar
en svo er það bara stóra spurning-
in um verðið. Það voru ekki allir
sem þorðu að spyrja þeirrar
spurningar þó vel litist þeim á
skipið.
- hkj.
Glerborgar K-qlerið sannar að stundum er....
Samkvæmt ákvæðum nýrrar byggingareglugerðar á nú
að nota þrefalt gler, eða gler með samsvarandi
einangrunargildi, í nýbyggingar á íslandi.
K-glerið frá Glerborg er svarið við auknum einangrunar-
kröfum.
Enn sem fyrr er Glerborg í fararbroddi íslenskra
glerframleiðenda og býður nú húsbyggjendum tvöfalt
gler með mun betra einangrunargildi en venjulegt þrefalt
gler hefur. K-gler Glerborgar er ný tegund glers, þar sem
önnur glerskífan er húðuð sérstöku einangrandi efni sem
hleypirsólarljósi ogyl inn, en kemur í veg fyrirað hitinn
streymi út. K-glerið frá Glerborg uppfyllir ákvæði hinnar
nýju byggingareglugerðar, það minnkar hitunarkostnað,
en veitir óskert og fullkomið útsýni.
Einangrunargildi glers:
Tegund einangrunarglers Loftrúm mllli glerja K-gildi K-glldi m/argon
Venjulegt tvöfalt gler 12 mm 3,0 2,8
Venjulegt þrefaltgler I2mm 2,1 1,9
K-gler tvöfalt (diaplus) 12 mm 1,8 1,45
Einangrunargildi er mælt í W/m2 og kallast k-gildi. Því
lægri sem k-gildistalan er, þeim mun betri einangrun.
K-gler. Elnangrunarhúð á innanverðu glerlnu.
Hafðu samband strax
við sölumenn okkar og
fáðu nánari upplýsingar.
K-glerið á erindi til
allra húsbyggenda í dag.
K-gler. Sólarljós naer óhlndrað i gegn,
90% af hitanum haldið innl.
GLERBORG HE
DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI53333