Morgunblaðið - 06.03.1985, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1985
23
Léttur vals
í Hjáleigunni
Leiklist
Jóhanna Kristjónsdóttir
Leikfélaf; Kópavogs sýnir Vals eft
ir Jón Hjartarson.
Ljósamcistari: Lárus Björnsson.
Tónlist: Stefán P.
Leikstjóri: Jón Hjartarson.
Leikfélag Kópavogs tók til
notkunar nýjan sal á föstu-
dagskvöldið þegar leikur Jóns
Hjartarsonar var frumsýndur.
Kallar salinn Hjáleiguna, þægi-
legur lítill salur í sömu byggingu
og Félagsheimili Kópavogs er til
húsa.
Vals er afar snotur smámynd,
þar sem dregin er upp mynd af
gamalli konu sem hefur ákveðið
að „verða" eitthvað á efri árum,
en líklega er hún þó einfaldlega
að eyða tímanum svo að henni
leiðist ekki. Og hún tekur upp á
því að sækja um hin ýmsu störf
sem eru auglýst. Þetta finnst
gömlu konunni fjarska skemmti-
legt, hun hittir hópa af bráð-
ágætu fólki og fær svalað félags-
þörf sinni, að því er virðist. En
mönnum stendur ekki á sama
um uppátektina, þessi gamla
kona hlýtur að vera eitthvað
meira en lítið skrítin og væri
kannski ráð að láta rannsaka
hana. Og er hún þó augsýnilega
heilbrigðari flestum öðrum sem
koma við sögu.
Sólrún Yngvadóttir fór með
hlutverk ömmunnar og bar sýn-
inguna uppi, hún er mikið og
skemmtilegt náttúrutalent og
leikstjóri og hún hljóta að hafa
átt ágæta samvinnu. Aðrir leik-
arar skila sínum hlut svona upp
og ofan, það er bara gaman að
hressilegum kækjum starfs-
mannastjórans og viðbrögð
þeirra sem amman talar við eru
vel gerð, unz kemur að prestin-
um. Þar er að vísu ekki leikara
einum um að kenna, því að þessi
endalok voru nokkuð vandræða-
leg. Af hverju í ósköpunum
skyldi amman ekki bara halda
áfram að sækja um störf á jörðu
niðri? Þetta virðist ganga svona
ágætlega þó svo hún fái reyndar
hvergi vinnu. Að minnsta kosti
verða engin sjúkleikamerki á
henni séð. En auðvitað verður
einhvern veginn að botna þátt-
inn og ég var ekki nógu ánægð
með hvernig höfundi fórst það.
En margt gott og hlýtt er í
sýningunni og sagður þar ýmis
sannleikur sem er hollt fyrir
okkur að hugleiða.
Á undanförnum árum hefur eflirspurn eftir sumarhúsum og íbúdum erlendis sífellt
aukist. í sumar bióöum vid þess vegna mjög fjölbreylt úrval slíkra gistislada í 7
Evrópulöndum: Austurríki, Bretlandi, Danmörku, Svíþjód, Noregi, Frakklandi og
Þýskalandi. Adalskrautfjödrin er ad sjálfsögdu hinn stórglæsilegi letigarður í Daun
Eifel sem geröi stormandi lukku sl. sumar.
Flug, bíll og sumarhús er sennilega ódýrasti feröamáti sem íslendingum býöst í sumar.
I bæklingnum okkar eru upplýsingar um staösetningu. aöbúnaö og þjónustu á hverjum
staö.
Hér koma nokkur verödæmi miöað við hjón meö 2 börn 2— 11 ára.
Innifaliö: er flug, bílaleigubíll í 1 viku meö ótakmörkuðum akstri, ábyrgöar- og kaskó-
tryggingu og söluskatti. sumarhús eöa íbúö í 1 viku. Rafmagn. hiti, rúmföt og ræsting
er innifalið í flestum tilfellum.
Austurríki: Verö frá kr. 58.790.- Noregur. Verð frá kr. 51.996.-
England: Verð frá kr. 47.070.- Svíþjóð: Verð frá kr. 56.880.-
Danmörk: Frakkland: Verö frá Verð frá kr. 55.010.- kr. 48.484.- Þýskaland: Verð frá kr. 45.784,-
FERMSKRIFSTOON ÚRVAL
Þú ferö varla í ódýrara frí!
mmmmmmnmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmBmmmmmmmmmmmm
Feröaskrifstofan Úrval viö Austurvöll, sími (91F26900.